Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 25
25 eftir dr. Ara K. Sæmundsen MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983 ORVERUFRÆÐI Erfðavísar krabbameins 8 14 I4q Jc-myc Stílfærð mynd af litningi nr. 8 og litningi nr. 14. Einnig er sýnt, hvernig lítill bútur af litningi nr. 8 (8q-r) hefur færst yfir á litning nr. 14 (14q+) í BL. Þessi litli bútur inniheldur c-myc. (Úr grein R. Dalla-Favera o.fl.) III hluti Áður en lengra er haldið, þá er rétt að rifja stuttlega upp gerð próteina. Öll prótein eru samsett úr svokölluðum amínósýrum og eru þær yfir 20 talsins. Það gefur því augaleið að fjölbreytileiki próteina er óendanlegur, en með- alstórt prótein er samsett úr 200—300 amínósýrum. Smávægi- legar breytingar í gerð próteina eta haft afdrifaríkar afleiðingar. sumum tilvikum nægir að ein amínósýra falli brott eða ein komi í stað annarrar. Slíkar breytingar endurspegla breytingar, sem orðið hafa í erfðaefninu, f þeim erfða- vísi, er ákvarðar viðkomandi pró- tein. Breytingar á erfðaefninu nefnast stökkbreytingar. Þær geta verið margvíslegs eðlis, en ekki verður farið nánar út í það hér. Stökkbreytingar í c-onc Þegar farið var að rannsaka þá c-onc, sem einangrast höfðu úr ýmsum krabbameinum og bera þá saman við sambærilega c-onc í heilbrigðum frumum, þá kom í ljós, að stökkbreyting hafði átt sér stað f c-onc krabbameinsfrum- anna. 1 fyrstu virtust þessar stökkbreytingar litlar og ómerki- legar, en þær nægðu þó til þess að raska réttri amínósýruröð við- komandi próteins. Þarna var hugsanlega komin ein skýring á því að c-onc gat átt þátt í því að umbreyta heilbrigðum frumum. Það að svo fáir, náskyldir c-onc einangruðust alltaf, var túlkað þannig að þessir erfðavísar væru e.t.v. næmari fyrir stökkbreyting- um en aðrir. Nokkrar orsakir mismunandi krabbameina virtust því liggja á hreinu: 1) Veirur í flokki Retro- veira, sem innihalda v-onc, trufla eðlilega starfsemi hinna sýktu fruma með því að framleiða pró- tein, sem ekki á að vera til staðar, eða með því að auka magn ákveð- ins próteins innan frumunnar. 2) c-onc geta valdið krabbameini beint, ef ákveðnar stökkbreyt- ingar áttu sér stað í þessum erfða- vísum. En gátu c-onc hugsanlega valdið krabbameini á annan hátt, án þess að beinar stökkbreytingar í erfðavísunum sjálfum kæmu til? Litningabrengl í mörgum tegundum krabba- meins má finna ákveðin litninga- brengl (chromosomal abberat- ions), sem eru stöðugir fylgifiskar viðkomandi krabbameina og þar af leiðandi mikilvægur þáttur í sjúkdómsgreiningu. Sem dæmi má nefna að í einni tegund hvítblæðis, „chronic myeloid leukaemia" (CML), er að finna svokallaðan Fíladelfíu-litning. Hann sker sig úr við skoðun í smásjá og er mikil- vægur í sjúkdómsgreiningu CML. Þessi litningur er samsettur að hluta til úr tveimur öðrum litn- ingum, þ.e. litning nr. 9 og litning nr. 22. Ánnað dæmi er eitlakrabbi, sem kallast „Burkit’s lymphoma" (BL), en þar má finna litning sam- settan að hluta til úr litning nr. 14 og litning nr. 8 (mynd 2). Til eru margar aðrar tegundir litninga- brengla. Þessi stöðugleiki ákveðinna litn- ingabrengla í ákveðnum krabba- meinum varð til þess að Georg Klein við Karolinska Institutet í Stokkhóimi setti fram þá tilgátu, að e.t.v. mætti finna c-onc á ein- hverjum þeirra litninga, sem taka þátt í litningabrenglum af þeirri tegund, sem lýst er hér að ofan. Tilgáta þessi byggði á því að séu erfðavísar færðir úr sínu eðlilega umhverfi, t.d. frá einum litningi yfir á annan, þá ruglist starfsemi þeirra. Þannig var hugsanlegt að einhver c-onc væri til staðar á litningi nr. 8. Þegar hluti af þess- um litningi flyttist yfir á litning nr. 14, þá væri viðkomandi c-onc komið í annað umhverfi, starfsemi hans brenglast og afleiðingin er BL. Þegar farið var að athuga stað- setningu hinna ýmsu c-onc á litn- ingum frumunnar, kom í ljós að bæði c-myc og c-mos voru á litn- ingi nr. 8. Ennfremur sýndi það sig að c-mycvar á þeim hluta litn- ings nr. 8, sem fluttist yfir á litn- ing nr. 14 í BL (mynd 2). Frekari rannsóknir hafa síðan leitt í ljós að c-abl og c-bas eru á litningi nr. 9 og c-sis á litningi nr. 22. Allir þessir c-onc taka því þátt í þeim litningabrenglum, sem koma fyrir í CML. Margir fleiri c-onc hafa verið staðsettir á litningum frum- unnar og oft virðist mega rekja breytta starfsemi þeirra til litn- ingabrengla. Leikurinn æsist Töluvert er unnið við svokallað- ar raðgreiningar próteina. Með því að raðgreina prótein, þá má ákvarða, hvaða amónósýrur eru til staðar og í hvaða röð þær koma fyrir. Nú á tölvuöld þykir sjálfsagt að mata allar niðurstöður inn í tölvur. I hvert sinn, sem nýtt pró- tein er raðgrein er amínósýru- röðinni matað inn í tölvu og síðan getur tölvan gert samanburð á tegund og röð amínósýra í fjöl- mörgum ólíkum próteinum og þannig er hægt að ákvarða, hvort um einhvern skyldleika er að ræða milli mismunandi próteina. Nýlega var próteinið PDGF (platellet-derived growth factor) einangrað og raðgreint. Þetta prótein finnst í miklu magni í blóðflögum, en blóðflögur gegna m.a. mikilvægu hlutverki í blóð- storknun. PDGF er vaxtarþáttur, þ.e. hvetur vöxt og viðgang fruma, og er talin gegna hlutverki í við- gerð vefja, t.d. þegar sár grær. Þegar amínósýruröð PDGF var matað inn í tölvu, þá kom í ljós að þetta prótein var náskylt einu öðru próteini, nefnilega p28, en c- sis ákvarðar einmitt p28 (sjá töflu II). Enn hefur c-sis, mér vitanlega ekki verið orðaður við neitt krabbamein í mönnum, en simian sarcoma-veiran (ein í hópi Retro- veira), sem inniheldur v-sis, velur sarcoma-krabbameinum í vissum apategundum. Það má einnig minna á að c-sis er til staðar í" litningi nr. 22, þeim hluta, sem flyst yfir á litning nr. 9 í CML. Niðurstöður raðgreiningarinnar á PDGF benda því til að c-sis (og v-sis) ákvarði vaxtarþátt (p28) samskonar eða mjög líkan PDGF, og að þessi vaxtarþáttur geti und- ir vissum kringumstæðum truflað eðlilega starfsemi fruma og valdið krabbameini. En krabbamein er jú einmitt óviðráðanlegur vöxtur. Lokaorð Hér hefur verið rakin í stuttu máli 15—20 ára stöðug vinna við leitina að orsökum krabbameins. Aðeins hefur verið fjallað um þann hluta krabbameinsrann- sókna, sem ná yfir rannsóknir á „erfðavísum krabbameins". Svo virðist sem svörin séu innan seil- ingar. En vert er að minna á að krabbamein eru flóknir sjúkdóm- ar og orsakir þeirra eru eflaust samspil margra ólíkra þátta. Þessar rannsóknir endurspegla starf og samvinnu fjölmargra í mörgum mismunandi löndum og er hún gott dæmi um það, hvernig hver hópur leggur til þekkingar- mola, sem síðan er smám saman hægt að raða í heillega mynd. Þannig leggja margra ára grund- vallarrannsóknir grunninn að þeirri þekkingu, sem síðan er hægt að hagnýta í baráttunni gegn krabbameini. Heimildir: A. de Klein o.n. (1982) Nnture 300:765—767. B. G. Neel o.fl. (1983) Proceedings of the nation- al Academy of Science, handrit. E. Santos o.fl. (1982) Nature 298:343-347. FJ. Fenner og D.O White (1973) „Medical Viro- logy“, Academic Press, New York. G. Klein (1981) Nature 294:313—318. J.M. Bishop (1982) Advances in Cancer Re- search, 36. bindi, Academic Press, New York. M.D. Waterfield o.fi. (1983) Nature 304:35—39. R. Dalla-Favera o.fi. (1983) Proceedings of the National Academy of Science, handrit. R. A. Weinberg (1982) Advances in Cancer Re- search, 36. bindi, Academic Press, New York. S. Cory (1983) Immunology Today 4:205—207. S. Pulciani o.fl. (1982) Nature 300:539-542. Keppt í ökuleikni við Laugarnesskóla BINDINDISFÉLAG ökumanna stóð fyrir keppni í ökuleikni á 21 stað á landinu í sumar. Mjög góð þátttaka var og hefur hún aukist ár frá ári. Um 300 manns tóku þátt í keppn- inni. í dag verður íslandsmeistara- keppnin í ökuleikni haldin við Laugarnesskólann í Reykjavík og verður keppt í karla- og kvenna- riðli. Um 40 manns alls staðar að af landinu eiga rétt á þátttöku og keppa allir á sams konar bifreið, þ.e. Opel Kadett frá Véladeild Sambandsins. í keppninni í dag verða einnig valdir þátttakendur til keppni í ökuleikni í Vín, sem fram fer í lok nóvember. Keppend- ur þar verða að vera á aldrinum 18-25 ára. Hjólarall í Hafnarfirði SUNNUDAGINN 11. september gengst JC-Hafnarfjörður fyrir Hjóla- ralli á Álftanesvegi. Lagt verður af stað frá Engidaj, þ.e. mótum Reykja- víkurvegar og Álftanesvegar, klukk- an tvö eftir hádegi. Skilyrði til þátt- töku er aðeins það eitt að eiga reið- hjól og að það sé í lagi. Keppt verður í þrem aldurshóp- um þ.e. 9—11 ára, 12—14 ára og 15 ára og eldri. Vegalengdirnar sem hjólaðar verða eru 7—13 km, allt eftir flokkum. Þátttökugjald er 20 krónur. Skráning í rallið hefst klukkan hálf eitt, einnig er hægt að láta skrá sig í versluninni Parma Reykjavíkurvegi 64 og verða skráningar þar að berast fyrir hádegi á laugardag. Góð verðlaun eru í boði fyrir þá sem hlutskarpastir verða, einnig fá all- ir viðurkenningarskjal fyrir þátt- tökuna. JC-Hafnarfjörður hvetur fjöl- skyldufólk til að mæta og taka þátt í gamninu, segir í frétt frá félaginu. Sigrún Guðmundsdóttir ásamt Jóni Gunnari Árnasyni (t.h.) og Hannu Siren frá Finnlandi við skúlptúr hennar sem hún kallar „Kýrhausinn". Höggmyndasýning í Noregi — fimm ísl. listamenn meðal þátttakenda í DRAMMEN í Noregi stendur nú yfir sýning á norrænum höggmyndum og nefnist hún „Nordisk skulptur 1983“. Á henni sýna fimm listamenn frá bverju Norðurlandanna en i þeún hópi eru frá Islandi Jón Gunnar Árna- son, Helgi Gíslason, Þór Vigfússon, Þorbjörg Pálsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir með fimm högg- myndir hvert. Alls eru 125 höggmynd-ir. Sýningin hófst 18. ágúst og stend- ur til 14. sept. en þá fer hún á flakk um Noreg í eitt ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.