Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjafd 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö. Orkuverð í Noregi Iumræðum hér um stór- iðju og raforkusölu til er- lendra fyrirtækja er mjög vitnað til orkuverðs erlendis og eru þær upplýsingar, sem fram koma um það, af margvíslegu tagi og ekki ör- grannt um, að þær tölur séu notaðar, sem henta málstað viðkomandi hverju sinni. Af þeim sökum er fróðlegt að lesa grein eftir Birgi ísl. Gunnarsson, alþm. og for- mann stóriðjunefndar, sem birtist hér í blaðinu í gær. í grein þessari skýrir grein- arhöfundur frá orkuverði til stóriðju í Noregi og er óneitanlega gagnlegt fyrir okkur íslendinga að hafa það til viðmiðunar í viðræð- um okkar við erlend stór- iðjufyrirtæki. Samkvæmt upplýsingum Birgis ísl. Gunnarssonar má skipta stóriðjusamning- um Norðmanna í fernt. Fyrst má nefna samninga, sem gerðir voru upp úr 1950. Meðalverð á orku til álvera samkvæmt þeim samningum er 5,5 mills. í annan stað er vitnað til samninga, sem gerðir voru upp úr 1960. Meðalverð til álvera, samkvæmt þessum samningum, er 9,57 mills. Þetta eru þeir samningar, sem gerðir eru á svipuðum tíma og við gerum okkar samninga við Svissneska ál- félagið. í þriðja lagi eru samningar, sem gerðir voru fyrir 1976 og er orkuverð skv. þeim undir meðalverði. Loks eru svo samningar, sem gerðir eru 1976 og síð- ar, en skv. þeim er orkuverð á bilinu 13,9 mills til 16,1 mills. Upphaflegir samningar okkar við Svissneska álfé- lagið voru gerðir á miðjum sjöunda áratugnum og raf- orkuverð skv. þeim endur- skoðað um áratug seinna. Síðan hefur ekki tekizt að ná samningum um endur- skoðun á raforkuverðinu fyrr en nú. Á þessu stigi er ástæðulaust að fjalla ífar- lega um hina nýju sam- ninga, þar sem þeir hafa ekki verið birtir opinberlega og bæði blöð og stjórnmála- menn býsna fljótir á sér að kveða upp dóma um samn- inga, sem þeir hafa ekki séð. Hitt fer ekki milli mála, að orkuverðið, skv. bráða- birgðasamningunum, sem gerðir voru í Sviss á dögun- um, er mjög svipað orku- verðinu skv. þeim samning- um, sem í gildi eru í Noregi frá þeim tíma, sem við Sömdum um byggingu ál- versins. Munurinn er aðeins sá, að við náum þessu orku- verði ekki fyrr en nú vegna þess að fyrrverandi iðnað- arráðherra, Hjörleifi Gutt- ormssyni, mistókst ger- samlega að ná nokkrum samningum við álfélagið. Þau mistök Hjörleifs Gutt- ormssonar eru þegar orðin þjóðinni býsna dýr. Fiskeldi eir einstaklingar, sem hafa barizt í því að byggja upp fiskeldi á ís- landi á undanförnum árum og áratugum, eru frumherj- ar í atvinnulífi okkar tíma. Tækifærin í þessari at- vinnugrein eru gífurleg og við höfum ekki nýtt okkur þau sem skyldi. Pétur Bjarnason, sjávar- útvegsfræðingur og kennari við Hólaskóla, skrifaði at- hyglisverða grein í Morgun- blaðið í gær, þar sem hann skýrir frá því hvað Norð- menn eru komnir langt á þessu sviði, en við stutt, þótt báðar þjóðirnar hafi verið á svipuðu stigi í þess- ari atvinnugrein fyrir ein- um og hálfum áratug. í grein Péturs Bjarnason- ar kemur fram, að á sama tíma og við höfum aukið heildarlaxaframleiðslu okkar úr 100 tonnum í 200—250 tonn á þrjátíu ár- um, hafa Norðmenn aukið sitt fiskeldi úr 100 tonnum 1971 í um 16 þúsund tonn nú. Jafnframt skýrir grein- arhöfundur frá því, að framleiðsla Norðmanna muni aukast í 40—45 þús- und tonn á ári að nokkrum árum liðnum. óhætt er að fullyrða, að mikil framtíð er í fiskeldi. Þetta er sú atvinnugrein, sem við eigum að leggja einna mesta áherzlu á næstu árin. 1 Ólöf leggur af stað í skólann. 2Rétt hji gatnamótum Vatnsstígs og Hverfisgötu hafði sendibifreið verið • lagt ólöglega og byrgði útsýnið. Ólöf á leið í skólann: Ökui litlu ÓLÖF Viktorsdóttir er sex ára göm- ul. Hún á heima á Hverfisgötu 49, á gatnamótum Vatnsstígs og Hverfis- götu, norðan megin við Hverfisgöt- una. í gær fór Olöf í fyrsta sinn í skólann til þess að heilsa upp á kenn- ara sína, þær Guðrúnu Halldórsdótt- ur og Nínu Magnúsdóttur. Óíöf hefur um langan veg að fara — hún þarf að fara yfir fjölfarnar umferðargötur og það er vanda- samt lítilli stúlku. Blaðamaður Mbl. og ljósmyndari fóru með Ólöfu í gær. Hættur leyndust víða á leið Ólafar litlu og m,argt bar að varast — hver af annarri þutu bif- reiðir framhjá á mikilli ferð. Ailir virtust vera að flýta sér og máttu lítt vera að því að sinna lítilli stúlku, sem er að stíga sín fyrstu skref í umferðinni. Þó ólöf stæði þolinmóð við gangbrautir, þutu bíl- Geir Hallgrímsson og í ræddu flugstöð og flug göngur í Madrid í gæn Ræða Gromykos utan marka velsæmis, segir utanríkisráðherra Geir Hallgrímsson, utanríkisráð- herra, ræddi í gærmorgun í Madrid við Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna. Að sögn utanríkisráðherra ræddu þeir einkum um flugstöðina í Keflavík og flugsamgöngur, en önnur mál bar einnig á góma. Geir Hallgrímsson hefur verið í Madrid undanfarna daga, þar sem hann hefur setið lokafund Madrid- ráðstefnunnar og flutti hann ræðu þar í fyrradag sem birt er í heild í Morgun- blaðinu í dag. I fyrrakvöld óskaði Shultz eftir sér- stökum fundi utanríkisráðherra Atl- antshafsbandalagsríkjanna, sem saman voru komnir í Madrid, til þess að skýra þeim frá viðræðum sínum við Gromyko, utanríkisráðherra Sov- étríkjanna fyrr um daginn um árás Sovétmanna á farþegaþotuna frá Suður-Kóreu. Geir Hallgrímsson sagði í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær, að á þessum fundi hefði verið rætt um þau viðhorf, sem skapast hefðu eftir þennan atburð. Utanríkisráðherrarn- ir gerðu grein fyrir skoðunum sínum á þeim viðbrögðum, sem hafa bæri í frammi við Sovétmenn vegna þessa atburðar. í þeim efnum voru menn sammála um að taka bæri málið upp á fundi ICAO í Montreal hinn 15. september nk. og jafnframt lýstu sumir ráðherranna þeim aðgerðum, sem stjórnir þeirra hefðu þegar tekið ákvörðun um, eins og t.d. Kanada, sem hefur sett bann við flugferðum milli Kanada og Sovétríkjanna í 60 daga. Á þessum fundi var ákveðið, að NATÓ-ráðið tæki málið til meðferð- ar, en jafnframt var talið, sagði utan- ríkisráðherra, að þetta væri ekki mál Atlantshafsbandalagsins sem slíks né heldur austurs og vesturs, heldur mál, sem snerti allar þjóðir og þess vegna bæri að halda málinu áfram í Öryggisráðinu og styðja Kóreumenn í kröfum þeirra um fullnægjandi skýr- ingu, afsökun og skaðabætur. Enn- fremur, að Sovétmenn heimiluðu al- þjóða flugmálayfirvöldum og yfir- völdum í Suður-Kóreu aðgang að staðnum, þar sem flugvélin féll í sjó- inn og að þeim, sem ábyrgð bæru yrði refsað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.