Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983 35 fólk í fréttum Bond-stúlkur í Kaupmannahöfn + Nýjasta Bond-myndin, „Octopussy", var frumsýnd í Kaupmannahöfn nú fyrir skömmu og þar sem Roger Moore sjálfur gat ekki komið, þá sendi hann í sinn stað tvær stúlknanna, sem eru honum innan handar í myndinni. Það voru þær Tina Hudson og Mary Stavin. Mary, sem er sænsk-ensk, er þekktust fyrir búskapinn með George Best, knattspyrnusnillingnum fyrrverandi, og enn segist hún elska hann þrátt fyrir allt, sem á undan er gengið. Myndin af þeim stöllunum var tekin í Hot- el Scandinavia og er Mary Stavin sú ljós- hærða. Diana með töskuna góðu. Diana kann að nýta hlutina + Það hefur verið sagt um Diönu prinsessu, að hún sé hinn mesti eyðsluseggur. Þurfi mikla peninga og kaupi og kaupi föt og hendi þeim þegar hún hefur gengið í þeim einu sinni. Nú hafa konunghollir Bretar hins vegar fengið sönnun fyrir því, að Diana kann líka að spara og nýta hlutina vel. Það var þegar einhver glöggskyggn blaðamaður veitti því athygli, að Diana hefur verið með sömu axlartöskuna í þrjú ár og það meira að segja tösku, sem ekki getur hafa kostað nein ósköp á sínum tíma. Það, sem er sérstakt við þessa tösku, er að hún fékk hana að gjöf þegar hún trúlofaði sig en hvorki hún né hirðin vill segja hver gef- andinn var. Dýr sundbolur + Þegar leikkonan Lisa Hart- mann fer í sund hefur hún alltaf með sér nokkra lífverði. Ekki til að bjarga henni frá drukknun því Lisa er synd sem selur, heldur til að passa upp á sundbolinn. Bolur- inn hennar Lisu er nefnilega bród- eraður með 19 gimsteinum og 91 perlu af dýrustu tegund. Án hans væri hún níu milljónum króna fá- tækari. COSPER COSPER 9224 — Nei, þá vil ég heldur Hauk Morthens. TOYOTA SAUMAVÉLAR KOSTABOÐ Á KJÖRGRIPUM TOYOTA 7200 EL KR. 12.289,- Skólaboró og StÓlar sem henta öllum aldurs- hópum ISKRIFSTOFU HUSGOGN V*V»y«V^»WC«M*;»>W»"*’»Wk\W.V\V.NSNNV.V.V.,.V.V.SVV.,.-.,.'t,X".V HALLARMÚLA 2 - SlMI 83211 PE 82 stóllinn hefur skapað sér fastan sess hér á landi vegna gæða sinna og hagstæðs verðs. PE 82 fæst bæði með og án arma og hægt er að stilla setu og bak eftir hentugleikum. Og til að hafa rétta birtu við námið eða tómstunda- störfin eigum við mikið úrval LUXO — lampa. PE 83 — borðið er nýjung. Borðið má hækka og lækka að vild og halla borðplötunni eftir því sem best hentar hverju sinni. PE83 — borðiðer tilval- ið til náms og tómstunda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.