Morgunblaðið - 10.09.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1983
5
Vélarbilun
í Ottó
N. Þorláks
„ÞVÍ ER EKKI að neita að
strokklok í vélinni í Ottó N. Þor-
lákssyni hafa farið nokkrum sinn-
um og vissulega angrar það
okkur. Nú síðast á miðviku-
dagskvöldið fór eitt strokklok-
anna og seinkaði það brottför
hans um tæpan sólarhring. Þar
sem vélin er aðeins tveggja ára
gömul erum við óánægðir með
þetta og nu er verið að kanna
hvort ekki sé einhver galli í þess-
um lokum,“ sagði Björgvin Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
BÚR, í samtali við Morgunblaðið.
Björgvin sagði ennfremur, að
þrátt fyrir þessar smábilanir
hefði útgerð Ottós gengið vel og
væri hann nú kominn með um
3.450 lestir frá áramótum. Hann
hefði á þriðjudag landað alls 244
lestum, aðallega karfa, og hefði
aflaverðmætið numið 1,7 millj-
ónum króna.
Landað úr Ottó N. Þorlákssyni i
Reykjavíkurhöfn.
MorgunblaAiA Kmilía Björg.
Réttum frestað
vegna heyanna
Borg, Miklaholtohreppi, 9. september.
HÉR ER norðaustan gola og heið-
skír himinn. Klukkan sjö i morgun
var hitastig 2 stig. Gaman er að
vakna í geisla morgunsólar eftir all-
ar vatnsgusurnar sem lamið hafa
glugga flesta morgna í sumar.
Þar sem heyannir eru ennþá
nokkrar eftir víða þá verður rétt-
um frestað hér um eina viku.
Langholtsrétt verður 28. septem-
ber næstkomandi. Ég hef einnig
heyrt að Ölkeldurétt verði 29.
september og Arnarhólsrétt 27.
septembec.
— Páll.
Vestur-þýskir
úrvals júdó- og karategall-
ar nýkomnir. Hér er um ad
ræöa níösterka ga\\a sem
þola mikil átök.
Júdógallar
Stæröir frá 150—200 cm.
Verö frá kr.
1.280-1.590,-
Karategallar
Stæröir frá 160—200 cm.
Verö frá kr.
1.795-2.195,-
'P0RTVAL
A Htommtorg Mmar 14390 9 29999
Bikarinn
SkótovörAuatig 14. R. Simi 24520
1
Gormabúnaðurinn sem brást um borð í Hólmadrangi:
Er ekki til að skjóta
út bátnum, aðeins fyr-
ir opnun á læsingu
— segir Páll Guðmundsson, deildarstjóri hjá Siglingamálastofnun
„ÞESSI gormabúnaður sem þarna er,
er ekki annað en sæti fyrir báta.
Gormarnir sem þarna voru, eru ekki
til að skjóta út bátunum, heldur bara
fyrir opnunarbúnað á læsingu," sagði
Páll Guðmundsson, deildarstjóri hjá
Siglingamálastofnun ríkisins, í sam-
tali við Morgunblaðið, en hann var
spurður um gormabúnað þann sem
brást um borð i togaranum Hólma-
drangi og frá er greint í blaðinu á
miðvikudag.
Þar kemur fram í samtali við
skipstjóra að um sé að ræða Sig-
munds-búnaðinn svokallaða
breyttan, en Páll sagði að þessi
gormabúnaður ætti ekkert skylt
við það. Um væri að ræða sæti
fyrir björgunarbátana og hefði það
ekki verið samþykkt og þess vegna
væri búnaðurinn ekki kominn um
borð í önnur skip. Spurningu um
það af hverju settur væri ósam-
þykktur búnaður í skip, sagði Páll,
að þetta væri eiginlega ekki búnað-
ur, þetta væru sæti fyrir bátana og
væri ekki erfiðara að taka þá þaðan
en úr öðrum sætum sem eru í flest-
um skipum í dag. Gormurinn sem
um væri rætt, væri í öllum þeim
tækjum sem fram hefðu komið og
væri einnig í Sigmunds- og Olsen-
búnaðinum en vinnur þar á annan
hátt, og hefur ekki brugðist. Hann
væri til þess að losa gjörð af bátn-
um, en ekki til þess að hleypa bátn-
um fram.
Páll sagði að almennt um sjó-
setningarbúnað væri það að segja
að sjósetningarbúnaður væri
prófaður og varðandi Sigmunds-
búnaðinn hefði við prófanir komið í
ljós að lagfæra hefði þurft viss at-
riði. Hins vegar tók Páll fram að
allt slíkt hefði verið lagað með
góðri samvinnu við viðkomandi og
öllum ábendingum hefði verið vel
tekið. Því væri verið að láta betri
búnað í bátana en hann hefði verið
í upphafi.
Páll sagði að Sigmunds-búnaður-
inn væri brautryðjandinn, en þær
tegundir búnaðar sem á eftir komu
FáBkrúÓRnrdi, 9. september.
Á MORGUN, laugardaginn 10. sept-
ember, verður minnst í félagsheimil-
inu Skrúð 'í Fáskrúðsfirði 50 ára af-
mælis Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga,
þar sem öllum félagsmönnum og
starfsfólki ásamt mökum er boðið til
samkvæmis. Dansað verður í félags-
heimilinu um kvöldið.
hefðu einnig verið prófaðar og
hefðu þar komið fram örðugleikar
sem leystir hefðu verið og átti þá
Páll við Olsen-búnaðinn svokall-
aða, en sá búnaður ásamt Sig-
munds-búnaðinum hefur verið
samþykktur. Hins vegar nefndi
Páll að nú lægju hjá Siglingamála-
stofnun teikningar af tvenns konar
búnaði, frá Stálvík og ísafirði.
Páll sagði að settar hefðu verið
ákveðnar gæðakröfur sem fara
ætti eftir varðandi björgunarbún-
aði sem þessa. Hefðu þær kröfur
verið sendar hagsmunaaðilum til
kynningar.
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga var
formlega stofnað 6. ágúst 1933 og
voru stofnfélagar 21. Fyrsti kaup-
félagsstjórinn var Björn Stefáns-
son. Núverandi kaupfélagsstjóri er
Gísli Jónatansson.
Afmælisins verður getið síðar
hér í blaðinu.
— Albert.
Fáskrúðsfjörður:
Kaupfélagið 50 ára
Kynntu þér Honda áöur en þú velur þér bfl.
Vandvirkni og nákvæmni eru einkunnarorö þeirra sem framleiöa Honda-bíla og
tryggir eigendum mest fyrir peningana.
Honda Civic frá kr. 245.000,-
Athugiö: Opiö á laugardag 10. september frá kl. 1—5.
HONDA A ISLANDI — VATNAGÖRDUM 24 — SIMAR 38772 — 39460.