Morgunblaðið - 17.09.1983, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1983
9
fiOaiEfeö ddqSD
Umsjónarmaöur Gísli Jónsson 209. þáttur
í síðasta þætti urðu tvær
vondar tilvitnunarvillur. Lík-
lega eru þær báðar til komnar
vegna þess, að prófarkalesari
hefur ekki trúað sínum eigin
augum og fært til betri vegar.
Fyrri tilvitnunin átti að vera
svo: „Um konu í Bandaríkjun-
um segir að störf hennar hafi
aðallega beinst að styrkingu á
afköstum fyrirtækja, bættu
stjórnskipulagi og boðleiðum
hjá fyrirtækjum í rafeinda-
iðnaði, fataiðnaði, vörudreif-
ingu, flug- og landfluttningum
(svo!) og framleiðsluiðnaði."
Seinni tilvitnunin átti að
vera:
„Þetta er ekki búið: „Tark-
enton & Company hefur stuðl-
að að verulegri framleiðni-
aukningu með breyttri stjórn-
unahegðun (svo!) í meira en 200
fyrirtækjum."
Orðið flutningar var ofan á
annað með tveimur téum og
orðið stjórnun haft í fleirtölu.
Þeir, sem hlut eiga að máli,
eru beðnir afsökunar á þessum
mistökum.
í nútímamáli teljast eignar-
fornöfnin vera fjögur: minn,
þinn, sinn og vor. Beyging
þeirra er ekki vandasöm. I
fornu máli voru eignarfornöfn
þremur fleiri, sbr. bréf Skúla
Magnússonar í síðasta þætti.
Til viðbótar voru okkarr, ykk-
arr og yðarr. Þau beygðust öll á
sama veg og nokkurn veginn
eins og fornöfnin annar og
nokkur í nútímamáli. Dæmi:
Hvárrgi okkarr, sama sem
hvorugur okkar, i Eglu, og
hvártki okkart, sama sem
hvorugt okkar, í Njálu. Enn-
fremur úr þeirri frægu bók:
„Svá hefr nú borit saman fund
okkarn ..."
Dæmi úr nútímamáli: „Dan-
ir sjá nú vel, að hér er mörg
matarholan, og óttast að verða
burt reknir, sumpart af rás
viðburðanna, en sumpart af
voru eigin viti og manndáð
okkarri." Svo skrifaði sr. Guð-
mundur í Gufudal í Njörð 1918.
Búum enn til dæmi: Við sitjum
í stofu okkarri. Það varð til
stuðnings okkrum málstað.
Þetta er gert í þágu barna
okkarra.
Þessi myndarlegu, en nokk-
uð svo stirðlegu fornöfn, eru
nú að kalla horfin úr máli
okkar (eða okkru), en í staðinn
komið eignarfall af persónu-
fornafni. Að þessu er mikill
skaði, og fyrir þá, sem læra
vilja erlend mál, svo sem
þýsku, er mikið hagræði að
kunna skil á þessum gömlu
eignarfornöfnum. Þjóðverjar
hafa enn þann hátt á sem
höfðu forfeður okkar (eða
okkrir), að þessu leyti.
Þó að aðrar þjóðir búi til
lýsingarorðið korean af lands-
heitinu Korea eða Kórea eftir
okkar (okkru) lagi, finnst mér
það á engan hátt réttlæta orð-
myndina kóreanskur sem
flestir fjölmiðlar hafa notað í
fréttum undanfarið. Flugvélin
var ekki suður-kóreönsk, held-
ur suður-kóresk. Aðeins hjá
Haraldi Blöndal í grein í DV
hef ég séð þessa orðmynd og er
þakklátur fyrir. Þetta kann að
þykja smámunasemi, en á
mjóum þvengjum læra hund-
arnir að stela.
Reyndar rekur mig stundum
í rogastans. Ágætur embættis-
maður íslenska ríkisins segir
frá því í sjónvarpi, að nú eigi
að hafa fjölskyldusamverur á
Austurlandi. Þetta var skýrt.
Orðið var í fleirtölu. Ég býst
við að maðurinn hafi átt við
einhvers konar fjölskyldu-
samvistir. Hverjar eru fjöl-
skyldusamverur? Eru það ekki
bara verur sem eru saman 1
fjölskyldunni? Skyldulið?
Og svo var orðið leki komið í
fleirtölu, er mér tjáð. Ég man
að vísu ekki hvar lekarnir
voru.
Mörg verða dæmin um falla-
rugling. Ég tek hér tvö dæmi
úr bréfi Páls Helgasonar á Ak-
ureyri. Fyrra dæmið frá hon-
um er svona:
„Á meðfylgjandi mynd má
sjá hvar hún gluggar í ind-
verskri útgáfu af ævintýrum
H.C. Andersens.“
Forsetningin í stýrir þolfalli,
þegar hún táknar hreyfinguna
til. en þágufalli, þegar hún
táknar dvölina á. Hér væri rétt
að segja: þar sem hún er að
glugga í indverska útgáfu
(þolfall) o.s.frv. Það sakar svo
kannski ekki að skjóta því inn
hér, að Steingrímur Thor-
steinsson frumþýddi þessi
frægu ævintýri á þess konar
íslensku máli sem margir
mættu lesa sér til fyrirmynd-
ar. Þó sagði eitt sinn í þvílíku
lesmáli sem átti að heita rit-
gerð um Grím Thomsen:
„Grímur Thomsen þýddi
ævintýri H.C. Andersens á ís-
lensku og heita þau síðan
Grímsævintýri."
Seinna dæmið: „Jafnframt
var löghaldsaðgerðinni á húsi
Arnþórs úr gildi felld."
Hér á auðvitað að breyta
þágufalli í nefnifall. Þetta er
þolmyndarsetning. Löghalds-
aðgerðin var úr gildi felld.
Menn segja að fella eitthvað
(ekki einhverju) úr gildi.
Að lokum nokkur fleiri
gullkorn úr Pálspósti með
smávægilegum athugasemdum
og leturbreytingum umsjón-
armanns:
1. „Veturinn 1959—’60 sat
hann í Stýrimannaskólanum
með góðum tilstyrk konu sinn-
ar og lauk þaóan skipstjóra-
réttindum á fiskiskip."
2. „Allir Austur-Eyfellingar
urðu fyrir miklum skaða af
heimatúnum og af Skógasandi,
sem ekki er hægt að meta.“
Já, margur er skaðvaldur-
inn, og ekki við öðru að búast
en Skógasandur sé ómetanleg-
ur.
3. „... þá þarf erindisleit-
andi að bera upp einu sinni enn
við hvern hann vantaði nú aft-
ur að ná sambandi við.“ „Ann-
ars erindi rekur“ o.s.frv. orti
sr. Hallgrímur, og notkun
sagnarinnar að vanta er þarna
enskuleg úr hófi.
4. „Ég vil endilega leggja at-
hygli á vandamáli einu sem fer
mjög í taugarnar á mér.“
Ætli við leggjum ekki áherslu
á eitthvað, en vekjum athygli á
öðru?
Þjóðrekur þaðan kvað:
Ríka áherslu á það ég legg,
að hver önd skuli búa við stegg;
vek líka athygli á því,
að þá er allt fyrir bí,
ef þau efna ekki í velheppnað egg.
PS: Nokkrum dögum eftir að
þáttur þessi var skrifaður heyrði
umsjónarmaður orðmyndina
suður-kóreskur tvívegis í kvöld-
fréttum ríkisútvarpsins.
Iðnaðarhúsnæði
óskast
Höfum kaupendur að 300—500 fm iðnaöarhúsnæði
á jarðhæð. Æskileg staösetning Ártúnshöföi.
Fasteignasalan
EIGNABORG sf.
Hamraborg 5 - 200 Kópavogur - Símar 43466 & 43805
Sölum.: Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, Þórólfur Kristján Beck hrl.
E
29555 — 29558 )
Opið 1—3
Skoðum og verðmetum eignir samdœgurs
Blöndubakki
Vorum að fá til sölumeöferðar sórlega glæsllega 4ra herb. íbúö á 2.
hæö viö Blöndubakka í Reykjavík. fbúöln skiptlst í 3 rúmgóö
svefnherb., stofu meö suðursvölum, eldhúsi meö borökrók og wc.
Möguleiki er á sérþvottahúsi í íbúðinni. Geymsla í íbúöinni svo og í
kjallara, einnig fylgir gott íbúðarherb. í kjallara meö aögangi aö
snyrtingu. Litaö gler í gluggum. Fallegt útsýni. Æskileg makasklpti á
2ja—3ja herb. íbúö á Reykjavíkursvæðinu.
Eignanaust SUphoiii 5.
Þorvaldur Lúðvíksson Síml 29555 og 29558.
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Raöhús Endaraöhús á 2 hæð-
um í Austurbænum í Kópavogl.
5—6 herb., bílskúrsréttur. Fal-
leg ræktuö hornlóð.
Raöhús Endaraðh. í smíöum á
fögrum staö í Ártúnsholti, 2
hæðir, samtals 200 fm 6—7
herb. Bílskúr 38 fm. Húsiö og
bílskúrinn er uppsteypt, járnaö
þakið, múrhúöaö aö utan, tvö-
falt verksmiöjugler í gluggum.
Til afh. strax.
Kóngsbakki 5—6 herb. rúmg.
vönduö endaíb. á 2. hæö. Sér
þvottahús á hæðinni, suður-
svalir.
Engihjalli 3ja herb. nýl. og
vönduö íb. á 6. hæð, Svallr, sér
þvottah. á hæöinni.
Laufósvegur 3—4 herb. íb. á
efri hæð í tvibýlishúsi, sér hiti,
sér inng. á viðbyggingu sem er
27 fm. Gott vinnurými, upp-
hitaö.
Hverfisgata 3ja herb. nýstand-
sett íb. á jaröh. Sér hiti, sér inn-
gangur.
Hesthús til sölu í Hafnarfiröl
fyrir 6 hesta ásamt hlöðu.
Helgi Ólafsson,
löggiltur fasteignasali.
Kvöldsími 21155.
RAÐHÚS
Hðfum fengið í sölu glæsilegt raðhús á
2 hæöum á fögrum útsýnisstaö. Húslö
er alls ca. 200 fm að gólffleti, með inn-
byggöum bflskúr. Eignin er ekki alveg
fullbúin, en þaö sem komiö er, er af
vönduöustu gerö. Ákveöin sala Verö
2.8 millj.
BRATTHOLT
NÝLEGT RAÐHÚS
Tll sölu nýiegt raöhús, alls 130 fm, á 2
hæðum í Mosfellssveit, sem skiptist
m.a. í stofur, 2 stór svefnherb., eldhús,
stórt baöherb., o.fl. Verö 1.750 þút.
MIÐBÆRINN
STÓR 4 HERBERGJA
Nýstandsett og falleg íbúö á 1. hæö vlö
Barnónsstíg. Til greina koma skipti á
minni 3ja herbergja íbúö í sama hverfi.
Gott verö og skilmálar.
VESTURBÆR
3JA HERBERGJA
Falieg lítil risíbúö viö Framnesveg. Lítlö
áhvflandi. Góö kjör. Laus fljótlega.
UGLUHÓLAR
VÖNDUÐ 3JA HERBERGJA
Ný og glæsileg íbúö í 3ja hasöa fjölbýl-
ishús. Stór stofa, 2 svefnherbergi. Lagt
fyrir þvottavól i íbúöinni. Gott útsýni af
svölum. Lítiö áhvflandi. Laus fljótlega.
STÓRAGERÐI
4RA HERB. BÍLSKÚR
Mjög falleg íbúö á efstu hæö í fjölbýlis-
húsi. Stofa, 3 svefnherbergi, þvotta-
aöstaöa í íbúöinni. Stutt í alla þjónustu.
Verö 1.650 þús.
HJARÐARHAGI
3JA HERBERGJA
Rúmgóö ibúö i kjallara i fjölbýlishúsi.
Stórar samliggjandi stofur og stórt
svefnherbergi. Verö 1.200 þús.
SELJENDUR ATHUGIDI
Nú er vaxandi eftirspurn eftir öllum teg-
undum fasteigna. Á kaupendaskrám
okkar er stór hópur fólks sem vantar aö
kaupa eignir.
VANTAR
einbýlishús í austurbæ Kópavogs fyrir
góöan kaupanda.
VANTAR
4ra herbergja ibúö í Vesturbæ, ekki í
blokk.
VANTAR
4ra herbergja í Hraunbær fyrlr ofan
bensínstöö, á veröbilinu ca. 1.600 þús.
VANTAR
5 herbergja vandaöa eign í Vesturbæ.
Fjársterkur kaupandi.
VANTAR
Nokkra viöskiptavini okkar vantar eign
meö 2 íbúðum. Vmislegt kemur til
greina, t.d. hæö og ris, eöa raóhús o.fl.
VANTAR
iönaöarhúsnæöl viö Dugguvog eöa i
austurbæ Kópavogs ca. 100 fm.
VANTAR
2ja herbergja íbúöir í fjölbýlishúsum, i
Ðreióholti eöa annars staöar og þá i
lyftublokkum. Góöir kaupendur.
VANTAR
fyrir afar sterkan kaupanda, einbýlis-
hús, t.d. tilbúiö undir tréverk eöa
skemmra komiö, sem mætti vera alls
ca. 250—350 fm. Ekki í vesturbæ,
Fossvogi eöa Mosfellssveit.
Komum og verðmetum
samdægurs.
OPIÐ LAUGARDAG
KL. 1—4.
Atli Va^nsson lögfr.
Suöurlandsbraut 18
84433 82110
AUCLÝSINCASTOFA
MYNDAMÖTAHF
Síeh
Opið 1—3 í dag
Á Seltjarnarnesi
2ja herb. 80 fm stórglæsileg íbúö á 1.
haBÖ. Góöur bílskúr. Nýleg eign.
í Miðbænum
3ja herb. risíbúö m. svölum. Verð 1
millj.
Glæsileg ný rishæð
2ja herb. 70 fm ný fullbúin rishæö
(byggt ofaná gamalt hús) vió miöborg-
ina. Verð 1200 þúa.
Við Sörlaskjól
3ja herb. ibúö á 1. hæð. Verö 1300 þú*.
Við Arnarhraun
3ja herb. góö ibúö á jaröhæö (gengið
beint inn). Verö 1350 þús.
Við Krummahóla
3ja herb. góö ibúö á 7. hæö. Nýstand-
sett baöh. Glæsilegt útsýni. Verö 1350
þús. Bflskúrsréttur.
Við Breiðvang m. bíl-
skúr
3ja herb 100 fm góö íbúö á 4. hæö.
Bflskúr. Vsrö 1500—1440 þús.
Við Æsufell
3ja herb. 90 fm góö íbúö á 4. hæö. Vsrö
1400 þús.
Við Eiðstorg
4ra—5 herb. 150 fm íbúö á 5. hæö.
Vsrö 2,6 millj.
Við Hólabraut Hf.
Nær fullbúiö parhús á 3. hæöum. Innb.
bflskúr. Glæsilegt útsýni.
Við Drápuhlíð
4ra herb. 115 fm efri sérhæö ásamt
bflskúr. Ákveöin sala. Verö 1,9—2 millj.
Við Bauganes
5 herb. 110 fm góö efri hæö. Glæsilegt
útsýni. Vsrö 1600—1650 þús.
í Hlíðunum
Efrí hæö og ris, samtals 170 fm. Ibúöin
er m.a. 5 herb., saml. stofur o.fl. Vsrö
2,5 millj.
í Fossvogi
5 herb. 140 fm glæsileg á 1. hæö. Bfl-
skúr.
Við Búðagerði
4ra herb. 100 fm góö íbúð á 2. hæö Ný
teppi
Við Bugðulæk
4ra herb. 100 fm íbúö á jaröhaeö. Sér-
inng. Vsrö 1550 þús.
Við Blönduhlíð
150 fm 5 herb. nýstandsett ibúöarhæö.
Ðiiskúr. Verö 2,5 millj.
Glæsilegt einbýlishús
við Barrholt
140 fm 6 herb. nýtegt einbýlishús m. 40
fm bflskúr. Fallegur blóma- og trjágarö-
ur. Vsrö 3,5 millj.
Giæsilegt raðhús við
Ásbúð
180 fm vandað raöhús á tveimur haaö-
um. Innb. bflskúr. Vsrö 23 millj.
í Austurbænum, Kóp.
220 tm gott endaraöhús á góöum staö
(Hjöllunum). Bílskúr. Verö 2,9—3 millj.
Skipti á minni eign koma til greina.
Parhús á Seltjarnarneei
5 herb. 130 fm parhús vlö Meiabraut.
Biiskúr. Verð 2.5 miHj.
Við Heiönaberg
200 fm endaraöhús. Bflskúr. Vsrö
3—3,1 millj.
Raðhús í Selásnum
200 tm vandaö raöhús á tveimur hæö-
um. 50 fm bílskúr. Húsiö er laust nú
þegar.
Við Laugarnesveg
Um 140 tm sýningarsalur (ásamt 60 fm
verslunarplássi) rými i kjallara. Qóölr
sýningargluggar. Allar nánari upptýs-
ingar á skrirstotunnl.
Húsnæöi
Fyrir heildvsrslun, vinnustofu og fl.
180 fm húsnæöi á jaröhaaö á Teigunum.
Hentar vel fyrir heildverslun (meö lager).
Verslunar- og vinnupláss o.fl.
25 pcnfimiÐLunin
PjNCHOLJSSTRIET. 3
Sölustjörl SvwTlr Krtatinaaon
ÞortaMur OuömurKtaaon aðiumaöur
Unnstainn Bacfc hrt, sfml 12320
hós ólln. UaHrtdmnn ■ - «-
nanoorfton iogir.
Kvöldsími sölumannt 30483.
Metsölublad á hverjum degi!