Morgunblaðið - 24.09.1983, Síða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
218. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
Prentsmiöja Morgunblaösins
Þota fórst
með 112
Abu I)habi, 23. september. AP.
BOEING 737-farþegaþ«ta frá flugfé-
laginu Gulfair hrapaði í fjallshlíð 50
km norðaustan flugvallarins í Abu
Dhabi í gær, er hún var á leið inn til
lendingar. 112 manns voru um borð í
þotunni, farþegar og áhöfn, og fórust
allir.
Flugmálayfirvöld í Abu Dhabi
greindu frá atburðinum og sögðu
þotuna hafa verið á leið frá Karachi
í Pakistan í venjulegu farþegaflugi.
Björgunarsveitir fóru strax á vett-
vang, einnig sérfræðingar frá flug-
félaginu. Sögðu þeir lítið hægt að
segja um tildrög slyssins á þessu
stigi, en „svo virtist sem slys hafi
átt sér stað“, því þotan hefði
skyndilega orðið alelda. Þeir sögðu
einnig að slysið hefði greinilega
borið mjög skyndilega að, því það
varð allt í einu sambandslaust við
þotuna 20 mínútum áður en hún
átti að lenda, en állt hafði verið í
stakasta lagi fram að því. Fljótlega
hvarf þotan síðan af ratsjám.
Draga úr
fjárstreymi
til SÞ
Washington 23. september. AP.
ÖLDUNGADEILD bandaríska þings-
ins samþykkti í gær með yflrgnæfandi
meirihluta að skera verulega niður
fjárveitingar til starfsemi Sameinuðu
þjóðanna, en hlutur Bandaríkjanna
hefur lengi verið mjög stór á þeim
vettvangi.
Það var öldungadeildarþingmað-
urinn Nancy Kassebaum sem bar
fram tillöguna og vakti hún tals-
verðar deilur þrátt fyrir að hún
hafi verið samþykkt með 66 at-
kvæðum gegn 23. Tillagan felur í
sér niðurskurð bandarískra fjárút-
láta til Sameinuðu þjóðanna að
upphæð sem mun nema 500 milljón-
um dollara næstu 4 árin. Niður-
skurðurinn mun hefjast á fjárlaga-
árinu sem hefst 4. október, en þá
verða framlög Bandaríkjanna skor-
in niður um 21 prósent. Næstu þrjú
fjárlagaárin verður niðurskurður-
inn síðan 10 prósent hvert ár.
„Sameinuðu þjóðirnar verða að
halda fast um pyngju sína alveg
eins og aðrir, auk þess eru Banda-
ríkjamenn orðnir dauðleiðir á því
að hlaða undir óvini okkar og gagn-
rýnendur. Þessi niðurskurður mun
segja meira en mörg orð um afstöðu
okkar," sagði frú Kassebaum í sam-
tali við fréttamenn.
Hóta að
loka Hor-
muzsundi
Nýju Delhi, 23.septeniber. AP.
ÍKANIR ítrekuðu hótun sína í gær um
að loka hinu mikilvæga Hormuzsundi
ef Prakkar létu verða af því að selja
írökum flmm Super Etenard orrustu-
þotur.llm Hormuzsund sigla olíu-
flutningaskip með nær alla þá olfu
sem flutt er til Mið-Austurlanda svo
eitthvað sé nefnt.
Það var Abbas Honardoost, að-
stoðarolíumálaráðherra frans sem
lét þessi orð falla á olíuráðstefnu í
Nýju Delhi. Sagði hann að íranir
myndu gera allt sem í þeirra valdi
stæði til að koma í veg fyrir að ír-
akar gætu gert þeim skráveifur. Ef
ein leiðin væri að loka sundinu,
myndu þeir gera það.
Símamynd AP
Stund milli stríða, ungur drúsi kastar mæðinni.
Saumað að Marcosi:
Miklar óeirðir
í Manila í gær
Manila, 23. september. AP.
FJÖLMENNT LIÐ lögreglu í Manila, höfuðborg Filippseyja, var kallað
til í gær, er þúsundir eyjaskeggja flykktust út á götur til að mótmæla
stjórn Ferdinands Marcosar. Til mikilla átaka kom skammt frá forseta-
bústaðnum og nokkrar mjög fjölmennar mótmælagöngur aðrar voru
skakkaðar.
Ólætin í gær komu aðeins degi
eftir að Marcos hafði hótað því í
kjölfarið á miklum óeirðum, að
beita enn meira valdi til að
berja niður mótmælin. Sagði
hann eftir slagsmálin í fyrra-
dag, að hann hefði heimilað lög-
reglumönnum að skjóta alla þá
sem hefðu í frammi mótmæli og
létu sér ekki segjast að láta af
þeim. Þá hefur Marcos ýjað að
því að hann gæti vel hugsað sér
að hneppa landið í herlög verði
stjórnarandstæðingar ekki til
friðs.
Enginn lét lífið í óeirðunum í
gær, en um hressileg slagsmál
var þó engu að síður að ræða og
fjöldi ungmenna varð að leita
sér lækninga eftir kylfur lög-
reglumanna. Fjölmennt lið mót-
mælenda kom einnig saman við
bandaríska sendiráðið og þar lét
lögreglan til skarar skríða er
ungmennin æptu til lögreglu-
mannanna að þeir væru „brúður
Marcosar".
Leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar efndu til blaðamanna-
funda í höfuðborginni í gær og
þar lýstu þeir yfir hver um ann-
an þveran að ólætin nú væru að-
eins upphafið, ólgunni myndi
ekki linna fyrr en Marcosi hefði
verið komið frá völdum. Sögðu
foringjarnir að Marcos gerði sér
greinilega enga hugmynd um
hversu alvarlegt ástandið væri
og hversu höllum fæti hann í
raun stæði, úr því að hann leyfði
sér að hafa í hótunum við sjálfa
þjóðina.
Minnkandi líkur á
vopnahléi í Beirút
Beirút, Líbanon, 23. september. AP.
UM SKEIÐ í gær benti allt til
þess að vopnahlé myndi taka gildi
í Líbanon klukkan 10.00 í dag.
Háttsettir embættismenn sögðu
að aðeins ætti eftir að afgreiða
I nokkur smáatriði. Þau smáatriði
virtust hins vegar hafa vaxið mjög
er leið á daginn, því síðustu fregn-
ir í gærkvöldi hermdu að „nýir
| snagar" hefðu myndast og óvíst
I væri með vopnahléð.
Saudi-arabíski milligöng-
umaðurinn, Rafik Hariri, sagði
fréttamönnum í gær að sam-
I komulag væri í nánd og eftir að
vopnin væru þögnuð í dag myndi
Fahd konungur Saudi Arabíu
bjóða deiluaðilum til friðarráð-
stefnu til Saudi Arabíu. Að sögn
Hariris var góður hljómgrunnur
meðal deiluaðila og ætti aðeins
eftir að ryðja til hliðar nokkrum
smáatriðum. Seinni partinn í
gærkvöldi voru hins vegar blik-
ur á lofti. Walid Jumblatt, leið-
togi drúsa, tók að heimta að
friðargæslusveitirnar allar yrðu
að hverfa umsvifalaust á brott,
að öðrum kosti myndu drúsar
halda áfram skothríðinni. Þá
taldi Jumblatt að taka bæri til-
lit til Sýrlendinga, en framtíð
Líbanon væri mjög samofin
framtíð Sýrlands.
Hart var barist í Líbanon í
gær, bæði áður en vopnahléð
virtist vera að fara út um þúfur,
og ekki síst eftir að þáð virtist
ljóst. Drúsarnir og shítarnir
héldu uppi ákafri skothríð á
Beirút úr fjallastöðvum sínum
og síðdegis rigndi sprengjum og
eldflaugum þeirra yfir stöðvar
bandaríska friðargæsluliðsins.
Særðust tveir landgönguliðar
bandaríska flotans. Bandaríkja-
menn svöruðu skothríðinni eins
og áður síðustu dagana, bæði frá
herskipum og með fallbyssum á
landi. Sprengjuhríðin stóð enn
yfir er sólin var sest.