Morgunblaðið - 24.09.1983, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
9
tnáfl
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 210. þáttur
í mannanafnabók Her-
manns Pálssonar segir um
kvenmannsnafnið Una að það
merki hamingjusöm kona. Það
sýnist vera góð þýðing. Orðið
er augljóslega skylt samhljóða
sögn, una, undi, unað, en hún er
náskyld að uppruna og
merkingu sögninni að unna,
ann, unni, unnað (unnt) = elska.
Stundum er beygingum þess-
ara sagna blandað saman. Af
sama stofni og þessar sagnir
eru mörg orð góðrar merk-
ingar, svo sem unun, unaður,
yndi, von, ósk og ást. Má sú
kona vel við una sem Una heit-
ir.
Enda þótt nafnið hafi svo
góða merkingu sem raun ber
vitni, hefur það aldrei verið al-
gengt. í Landnámabók er að-
eins nefnd ein Una, engin í
Sturlungu. í manntalinu 1703
er 51 Una, en þeim er svo mis-
skipt á landið, að frá og með
Borgarfjarðarsýslu að og með
Húnavatnssýslu er aðeins ein.
Síðan skiptir snögglega um,
því að 12 eru í Skagafjarðar-
sýslu, en það er hálfu meira en
í nokkurri annarri sýslu.
í manntalinu 1910 hétu 103
konur Unu-nafni, og á tímabil-
inu 1921—’50 urðu þær 80.
Frægust Una úr bókmennt-
um okkar er líklega sú sem
segir frá í þjóðsögunni um
dansinn í Hruna. Móðir (eða
eiginkona) hins gjálífa Hruna-
prests reyndi eftir föngum að
bjarga honum, og því kvað
hinn skuggalegi gestur í
Hruna þetta erindi:
Hátt lætur í Hruna,
hirðir þangað bruna;
svo skal dansinn duna
að drengir megi það muna.
Enn er hún Una
og enn er hún Una.
Og svo var náttúrlega
skáldkonan Una Jónsdóttir i
Vestmannaeyjum.
Samsvarandi karlmanns-
nafn, Uni, er enn sjaldgæfara
en kvenmannsnafnið. t Land-
námu eru aðeins Uni danski og
Uni sá sem dalurinn er kennd-
ur við, í Sturlungu enginn. Ár-
ið 1703 er enginn Uni, 1910 að-
eins þrír og á öllu tímabilinu
1921—’50 eru fjórir sveinar
skírðir þessu góða nafni.
★
Notkun tölvu og annarra
véla getur sett leiðinlegt yfir-
bragð á mál okkar, ef ekki er
brugðist við í tíma. Sumar
skrifstofuvélar virðast hafa
verið með þeim ósköpum að
geta ekki sett kommur
(brodda) yfir stafi, og sé ég
ekki betur en þetta sé farið að
smita út frá sér í óvandaðri
skrift.
Mér er í minni hversu lengi
ég rýndi skilningsvana ofan í
mannsnafn í opinberri skýrslu,
það sem stafsett var HUNN.
Þarna var komið kommulaust
hið sjaldgæfa mannsnafn
Húnn. Ekki skiptir litlu hvort
skrifað er Barður eða Bárður,
Lyður eða Lýður, Malfriður eða
Málfríður, Rosa eða Rósa, Runa
eða Rúna.
Annan háska ber tölvusetn-
ing blaða og bóka með sér, en
það er tilviljanakennd skipting
milli lína. Nú má sjá mörg
dæmi þess í blöðum, að vélar
og menn láti þar nótt sem
nemur í þess konar skiptingu.
Henni er jafnvel þröngvað upp
á orð sem eðli sínu samkvæmt
skiptast ekki, svo sem dra-ga.
Skringilegasta dæmi af þessu
tagi sá ég hér í blaðinu fyrir
skömmu. Þá var orðinu pen-
ingaupphæðir skipt svo, að í
fyrri línunni var peningaup og í
hinni síðari phæðir.
Látum nú ekki tæki og vélar
taka af okkur völdin. Þess er
engin þörf. Kommur (brodda)
yfir stafi, þar sem það á við, og
rétt skipting milli lína í prent-
verki. Sú er krafan. Þá skuldar
engin Runa Barðardottir nein-
um haar peningaup-phæðir.
Þá finnst mér einnig afar
óviðkunnanlegt að setja 0
(núll) framan við tölustafi í
dagsetningum og öðru sam-
bærilegu, dæmi 01.01. 1983,
sama sem 1.1. eða fyrsta janú-
ar 1983; eða 01.09. sama sem
1.9. eða fyrsta september.
í kafla- eða þáttaskilum ým-
issa lærdómslegra ritgerða má
líka tíðum sjá þetta merking-
arlausa núll notað mjög við of.
★
Skal svo fella niður kvartan-
ir um vélgert (ekki velgert)
mál og birta í staðinn mönnum
til fróðleiks og skemmtunar
tvo kafla úr gamalli kennslu-
bók í náttúrufræði. Höfð er
stafsetning bókarinnar Hand-
ritin og fornsögurnar eftir
Jónas Kristjánsson:
Fyrri klausan er um merki-
legan hval:
„Er hvalr í sæ er heitir
aspedo... Þá er hann hungrar
lýkr hann upp munn sinn, ok
sem nökkurn ilm láti hann út
fara. En litlir fiskar kenna ilm
ok samnask saman í munn
hans. En þá er muðr hans er
fullr, lýkr hann saman munn
sinn ok svelgr þá.“
í síðara lagi segir frá und-
arlegum fugli:
„Einn fogl er í Ánni Níl, sá
heitir hidris ... Segir þat frá
honum at hann banar koko-
drillo. Þat er náttúra ok vandi
hans: Þá er hann sér kokodrill-
um sofa, klínisk hann leiri og
hleypr í munn kokodrillo, er
hann sefr á árströndu, ok rífr
ok slítr hann allan innan, ok
setr í gegnum kvið hans ok at
honum dauðum."
★
Enn hef ég verið beðinn að
reyna að andæfa eignarfalls-
fælninni, eða kannski með öðr-
um orðum að mælast til þess
að fólk segi t.d. vegna örvænt-
ingar, ekki örvæntingu, eða til
Sigrúnar og Sigurbjargar, ekki
til Sigrúnu eða Sigurbjörgu.
Ekki var eignarfallsfælninni
fyrir að fara hjá áðurnefndri
Unu Jónsdóttur í Vestmanna-
eyjum. Hún kvað:
Þær ég átti þrautum í,
þeirra mjnning aldrei farga,
Jónína, Ólafía mín,
Ástríðar og Sigurbjargar.
rai
Fasteignasala — Bankastrssti
SÍMAR 29680 - 29455 — 3 LÍNUR
Opiö í dag
Stærri eignir
Brekkubær
Ca 200 fm raöhús á 2 hæöum og bíl-
skúr. A 1. hæö er eldhús og stórar stof-
ur. Gert er ráö fyrlr arnl. Uppl eru 4
svefnherb. Mjög góö elgn. Akv. sala.
Verö 3,3—3,4 mlllj.
Vesturberg
Parhús ca. 130 fm og fokheldur bílskúr.
Ibúóin er stofur og 3 svefnherb. og
eldhus meó þvottahúsi innaf. Vinsœl og
hentug stærö. Verö 2,5—2,6 millj.
Miövangur Hf.
Endaraöhús á 2. hæöum, ca. 166 fm
ásamt bilskúr. Niöri eru stofur, eldhús
og þvottahús. Uppi 4 svefnherb. og gott
baóherb. Teppi á stofum. Parket á hinu.
Innangengt í bílskúr. Verö 3—3,1 millj.
Vallarbraut
Góö ca. 150 fm efri sérhæö ásamt
bílskur Mikil og góö eign. Ekkert áhvíl-
andi. Ákv. sala. Verö 2,5—2,7 millj.
Skaftahlíö
Ca. 115 fm ibúó á 3. hæö i góöri blokk.
Mjög stórar stofur og 3 svefnherb.
Hægt aö taka viöbótarherb. af stofu.
Mjög góö sameign. Ákv. sala.
Neshagi
Ca. 125 fm sérhæö á 1. hæö i þríbýli.
Samllggjandi stofur og 2 herb. Suöur-
svalir. Ákv. sala. Verö 2—2,1 millj.
Fossvogur
Fokhelt parhús á 2. hæöum ca. 210 fm
viö Ánaland. Nlöri er gert ráö fyrir stof-
um, eldhús meö þvottahúsi innaf og 1.
herb. Uppi eru 4 stór herb. og baö.
Arinn i stofu. Teikn. á skrifstofu. Veró
2.2 millj.
Rjúpufell
Fallegt raöhús efst i Rjúpufelli ca. 210
fm. Stór og góöur bílskúr. Á hæöinni
sem er ca. 140 fm eru stofur, 3 svefn-
herb , stórt baóherb. eldhús meö búri
og þvottahúsi innaf. Allar innróttingar
mjög góöar. í kjallara eru 70 fm sem
búió er aó pússa og má innrétta fyrir
sérhúsnæöi eöa sameina haBÖinni. Verö
2,9 millj.
Rauðageröi
Ca. 220 fm oinbýll á 2 haaöum ♦ ris og
bilskúr. Skilast tokhelt Verö 2.2 millj.
Laugateigur
Miöhæö í þribýll, ca. 117 fm, og 30 fm
bílskúr. ibúöin er rúmgóö meö 2 svefn-
herb. og hægt aö gera 3|a svefnherb. úr
boröstofu. Góö stofa og stórt eldhús.
Tvennar svallr. Verö 1800—1850 þús.
Dalsel
Fallegt raöhús á þremur hæöum ca.
230 fm. Á mióhæö eru stofur, eldhús og
forstofuherb. Uppi eru 4 svefnherb. og
baó. Kjallari ókláraöur. Fullbúió bílskýli.
Verö 2.6 millj.
3ja herb. íbúöir
Norðurbær Hf.
Glæsileg ca. 96 fm ibúö á 3. hæö. Mjög
góöar innréttlngar. Þvottahús Innaf
eldhúsi. Verö 1450 þús.
Framnesvegur
Ca. 75 fm íbúö á 2. hæö. 2 stofur, herb.
og baö meö sturtu. Ákv. sala Laus 1.
des. Verö 1200 þús.
Hraunbær
Ca. 95 fm ibúö á 3. hæö ásamt bílskúr á
góöum staö i Hraunbæ. 2 svefnherb.,
stofa, gott baöherb. og eldhús meö
þvottahúsi innaf. Góö ibúö. Laus fljót-
lega. Veró 1600 þús.
Öldutún Hf.
Ca. 80—85 fm íbúö á 2. hæö i fjórbýli,
ásamt góöum bílskúr. Skammmt frá
Öldutunsskóla Björt ibúö meö góöum
innréttingum. Suöursvalir. Verö 1,5
millj.
Brekkubær
Ca. 96 fm ósamþykkt ibúö í kjallara.
Parket á gólfum, mjög björt og
skemmtileg ibúö. Ekkert áhvílandi. Verö
1200 þús.
Leirubakki
Góö ca 90 fm ibúó á 3.hæö. Þvottahús
og búr innaf eldhúsi. Nýtt parket á eld-
húsi. Ákv. sala. Verö 1400 þús.
Tjarnarból
Góö ibúö á jaróhæö í blokk ca. 85 fm.
Ákv. sala. Verö 1300—1350 þús.
Kaldakinn Hf.
Ca. 85 fm risibúó i þríbýli i góöu stein-
húsi. Nýstandsett baöherb. Suóursvalir.
Verö 1250 þús.
Nýbýlavegur
3ja—4ra herb. ibúö ca. 90 fm á jarö-
hæö i steinhúsi. Stofa og 2—3 herb.
Góöar innréttingar, sér inngangur. Verö
1250 þús.
Friörik Stefánsson
viöskiptafræöingur.
Ægir Breiöfjörö sölustj.
EINBÝLISHÚS
í SMÍÐUM
Höfum til sölu myndarlegt 230 fm ein-
býlishús úr timbri meö bilskúr, byggt
skv. arkitektáteikningu á fallegum staó
á Álftanesi. Fokhelt. Verö: ca. 1800 þús.
HAFNARFJÖRÐUR
SUNNUVEGUR
Vönduö 4ra herbergja 2. hæö i tvíbýl-
ishúsi. Grunnflötur íbúöarinnar er alls
um 115 fm. Ibúöin skiptist m.a. i 2 stof-
ur og 2 svefnherbergi. Vandaöar inn-
réttingar. Viöbyggingarréttur. Verö
1950 þús.
KRUMMAHÓLAR
2JA HERBERGJA
Falleg. ca. 55 fm ibúö á 3. hæö í lyftu-
húsi meö fullfrágengnu bílskýli. íbúóin
sem er meö góöum innréttingum og
nýjum teppum, er meö noröursvölum.
UGLUHÓLAR
3JA HERBERGJA
Glæsileg ca. 90 fm íbúö á 1. hæö i
nýlegu fjölbýlishúsi. íbúöin sem er meö
vönduóum innréttingum, skiptist i stóra
stofu, meö suöursvölum og 2 svefn-
herbergi. Lítiö áhvílandi. Laus fljótlega.
Verö ca. 1400 þús.
FRAMNESVEGUR
3JA HERBERGJA
Lítil en falleg risíbúö i steinhúsi. Litiö
áhvilandi. Góö kjör. Laus fljótlega. Verö
ca. 900 þúa.
RAÐHÚS
BREIÐHOLTI
Nýtt glaBsilegt raöhús á tveimur hæöum
á fögrum útsýnisstaö. Eignin er alls ca.
200 fm aö gólffleti meö innbyggöum
bílskúr. Eignin er ekki alveg fullbúin en
allt sem komiö er er af vönduöustu
geró. Vsrö 2,8 millj.
GARÐASTRÆTI
3JA HERBERGJA
Rúmgóö og endurnýjuó ibúó i kjallara.
2 stofur, 2 stór svefnherbergi. Eldhús
og baöherbergi meö nýlegum innrétt-
ingum. Ný teppi. Sér þvottahús. Vsrö
1200 þús.
IÐNAÐARLÓÐIR
Til sölu á besta staö i austurborginni
vestan Elliöaáa 2 byggingarlóöir, sam-
tals um 3.500 fm.
MIÐLEITI
STÓR 2JA HERB. M. BÍLSK.
Ca. 85 fm ibúó á 2. hæö i fjölbýlishúsi i
nýja miöbænum. Til afhendingar tilb.
undir tréverk í nóvember.
SKOÐUM ÍBÚÐIR
SAMDÆGURS
OPIÐ í DAG
LAUGARDAG KL. 1—4
Atlt Vajlnsson lögfr.
Suöurlandshraut 18
84433 82110
Hafnarfjöröur
Til sölu meðal annarc
Reykjavíkurvegur
Lítið 2ja herb. steinh. með
bílskúr. Samþykkt teikning lyrir
2ja hæöa húsi á leiöinni.
Hólabraut
Nýtt 250 fm parhús, 2 hæðir og
kjallari meö innbyggðum bíl-
skúr. Mjög fallegt útsýni.
Suðurvangur
3ja—4ra herb. falleg og vönduö
íb. á 3. hæö (efsta hæð). Verö
kr. 1400—1450 þús.
Álfaskeió
2ja herb. íb. á 3. hæð m. bíl-
skúr. Verð 1,2 millj.
Nönnustígur
Járnvariö timburhús, hæö og
ris, um 100 fm alls, á rólegum
staö.
Hamarsbraut
5 herb. járnvariö timburhús,
hæð og ris, á rólegum og fögr-
um útsýnisstaö.
Sléttahraun
2ja herb. íb. á 3. hæö. Verö kr.
1,1 millj.
Hringbraut
4ra herb. miöh. i steinhúsi.
Góöur bílskúr.
Lækjargata
3ja herb. nýstandsett risíb. f
timburh. Verð kr. 1 millj og 50
þús.
Hringbraut
3ja herb. 65 fm risíb. í steinh.
Fallegt útsýni.
Garöavegur
3ja herb. risíb. í timburhúsi.
Álfaskeiö
3ja herb. íb. á 1. hæö. Sór
þvottahús og nýtt eldhús. Bíl-
skúr fylgir. Verö 1450 þús.
Granaskjól
Glæsileg efri hæö 145 fm í tvi-
býlishúsi. Allt sér. Bílskúr.
Vogar Vatnsleysuströnd
130 fm vandaö timbureininga-
hús, skiþti möguleg á eign á
höfuöborgarsvæöinu. Laust 1.
okt. Verð kr. 1,4 millj.
Opiö í dag
frá kl. 1—4
FASTEIGNASALA
Árna Gunnlaugssonar
Austurgötu 10 — S:50764
VALGEIR KRISTINSSON, HDL.
Allir þurfa híbýli
Uppl. í síma 20178
laugardag og sunnudag
Sóleyjargata
Einbýlishús á þremur hæöum. Húsiö er ein haBÖ, tvær stofur,
svefnherb., eldhús, baö. önnur hæö, 5 svefnherb., bað. Kjallari 3ja
herb. íbúö, bílskúr fyrir tvo bíla.
★ Hraunbær
Ca 120 fm 4ra herb. íbúö á 3.
hæð (efstu) ein stofa, 3 svefn-
herb., eldhús, baö. Suöursvalir.
Falleg íbúö og útsýni.
★ Lundarbrekka
3ja herb. íbúö á 3. hæö. Góö
ibúö.
★ Raðhús
Raöhús í smíðum meö inn-
byggöum bilskúr í Breiöholti.
Falleg teikning.
★ Hafnarfjöröur
Raöhús á tveim hæöum. Bil-
skúr. Góöur garður.
★ Breiöholt
3ja herb. íbúö. Góð íbúö.
★ Kópavogur
2ja herb. íbúö á 1. hæö með
innbyggöum bílskúr.
★ Norðurmýri
3ja herb. íbúð á 1. hæö. 1 stofa,
2 svefnherb., eldhús, bað. Suö-
ursvalir.
★ Vantar — vantar
2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. íbúöir.
★ Vantar — vantar
Raöhús, sérhæðir.
★ Garöabær
Gott einbýlishús, jaröhæö, hæö
og ris meö innbyggöum bílskúr
auk 2ja herb. ibúöar á jaröhæö.
Húsiö selst t.b. undir tréverk.
★ Raðhús
í smíðum á besta stað í Ár-
túnshöföa. Möguleiki á tveimur
íbúðum í húsinu.
Hef fjársterka kaupendur að öllum stæröum húseigna.
Verðmetum samdægurs.
Heimasími
sölumanns:
20178
HIBYLI & SKIP
Garóastræti 38. Sími 26277. Jón Ólatsaon
Gisli Ólafsson. lögmaöur.