Morgunblaðið - 24.09.1983, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
21
eftir Kjartan
Norðdahl
Því meir sem maður hugleiðir
þann voðaatburð er Rússar skutu
niður farþegavél frá Suður-Kóreu,
því óskiljanlegri verður hann.
Allt í sambandi við þetta mál er
svo óþolandi órökrétt og sjálfu sér
ósamkvæmt. í fyrsta lagi að vélin
skyldi yfirleitt villast inn á þetta
svæði. í öðru lagi að Rússarnir
skyldu skjóta hana niður og í
þriðja lagi framkoma þeirra eftirá,
hvort sem þeir játa mistök eða
ekki. Það er eins og þeir skilji alls
ekki, að jafnvel þótt njósnasaga
þeirra væri rétt myndi það á eng-
an hátt afsaka eða réttlæta að tor-
tíma farþegum, sem í því tilfelli
hefðu orðið að skoðast sem gíslar.
Séu hinar tvær skýringarnar, sem
fram hafa komið, íhugaðar vand-
lega, kemur í ljós að fátt eða ekk-
ert er þar skiljanlegt og rökrétt.
Hin vestræna skýring
Það er helst að skilja af útlegg-
ingum hinna ýmsu fréttamiðla, að
það sé í rauninni ekkert svo voða
sérstakt þótt vélin hafi farið
þarna útaf leið, eða villst af réttri
leið eins og það er orðað. Mannleg
mistök er sagt, og bent á að þetta
hafi komið fyrir áður þónokkrum
sinnum víða um jörð. Ekki dettur
mér í hug að neita þessu né hinu
að seint verður komið í veg fyrir
mannleg mistök. Það sem er svo
sérstakt við þessi mistök er hversu
mikið gat verið í húfi, væru þau
gerð. Eitt er að fara útaf leið þar
sem venjulegar aðstæður ríkja,
annað að villast inn yfir eldrautt
hernaðarlegt púðursvæði þar sem
slík taugaveiklun ríkir að ekkert
má útaf bera.
Það má ekki gleyma því, að milli
Suður-Kóreumanna og Rússa hef-
ir ríkt og ríkir fullkomin tor-
tryggni. Þeir hafa ekkert stjórn-
málasamband sín á milli og trúa
því versta hvor um annan. Suður-
Kóreumenn hljóta því að alast upp
við ótta í garð risans í norðri og
þess sem hann er megnugur að
gera — og vís til þess að gera. Nú
liggur flugleið sú sem flogin er frá
Anchorage í Alaska til Seoul í
Suður-Kóreu nærri rússnesku
svæði sem er talið „super“-
viðkvæmt frá hernaðarlegu sjón-
armiði séð, og þess vegna eðlilegt
að flugmenn frá KAL sýni meir en
venjulega eftirtekt og varkárni
þegar flogið er þarna nálægt. Það
væri raunar bæði rökrétt og skilj-
anlegt að þeir teldu stórhættulegt,
að fara inn í sovéska lofthelgi á
þessum stað.
Maður skyldi því ætla, að í hvert
skipti sem leiðin lægi þarna hjá.
væri allt um borð notað til að
tryggja sem best að ekki væri far-
ið af leið — einmitt þarna. Ekki
aðeins hin afarnákvæmu sjálf-
Kjartan Norðdahl
„Það er mér hulin ráð-
gáta, hvers vegna þessir
menn kjósa nú í miðju
friðartalinu að opinbera
nakta ásýnd grimmdar
og ósveigjanleika, eins
og til þess eins að undir-
strika að Rússagrýlan
sé einmitt ekki grýla
heldur sannleikur.“
virku siglingatæki (ons/ ins), því
það vita allir flugmenn að óvart
getur verið vitlaust stimplað inn í
tölvuna, heldur einnig önnur eldri
tæki og er radarinn þar öruggast-
ur. í honum má sjá landið fyrir
neðan líkt og horft væri á landa-
kort og er sérstaklega þægilegt að
miða sig út með honum ef eyjar
eða auðþekkjanlegir skagar eru
framundan á flugleiðinni, en
þannig háttar einmitt til á þessu
svæði þarna við Kamchatska-
skaga og Sakhlin-eyju. Það þarf
enginn að segja mér að suður-
kóresku flugmennirnir noti ekki
radarinn í hvert skipti sem þeir
fljúga þarna framhjá og því þarf
hvorttveggja að hafa gerst í einu
— radarinn bilað og siglingatækn-
in brugðist, einmitt þar sem allra-
síst skyldi.
Það sem ég er að segja með
þessu er, að það er alveg óhugs-
andi annað en suður-kóresku flug-
mennirnir hafi, með sitt eigið lífs-
öryggi í huga ekki síður en ann-
arra, svo sannarlega ætlað sér að
vera vel fyrir utan sovéska loft-
helgi. Samt sem áður, og alveg
óskiljanlega, lenda þeir langt útaf
leið, og það kostar þá og alla um
borð lífið. Hér er ekki verið að
ásaka hina ógæfusömu áhöfn, bil-
anir og mistök er nokkuð sem
fylgir manninum, heldur er verið
að undirstrika, að hér hljóta mjög
óvenjulega lúmsk atvik að hafa átt
sér stað, sem óhemjuþýðingarmik-
ið er að fá upplýst, ekki síst nó
þegar úrræðaleysi og taugaveikl-
un æðstu stjórnenda sóvét-hersins
er komin í ljós.
Þá finnst mér rétt að benda á þá
staðreynd, sem er hvorttveggja í
senn gremjuleg og sorgleg, að
bandaríski herinn á Japanseyjum
fylgdist allan tímann með þessum
harmleik þarna austur frá án þess
að gera neina tilraun til að að-
stoða eða aðvara hina villuráfandi
farþegavél, sem stefndi í stór-
hættu. Hér sjá menn eftirminni-
legt dæmi þess, hversu allt er
ómanneskjulegt í kringum þessar
hermaskínur. Farþegaflug kemur
hernum ekki við og þess vegna er
ekki sagt orð, aðeins fylgst með.
Það væri vel þegið, ef einhver, sem
vit hefði á, gæti upplýst, hvers
vegna tæki (radar og eftirlitsvél-
ar), sem er án afláts beint að
þessu víghreiðri Sovétmanna, eru
ekki notuð til aðvörunar í svona
neyðartilfellum, þar sem auðsjá-
anlega er stefnt í aðgerðir, er gætu
hleypt af stað styrjöld.
Nú gæti einhver haldið að ég
væri að gefa í skyn að vélin hafi
lent inná sovésku yfirráðasvæði,
ekki óviljandi heldur viljandi, og
þá skulum við líta á hina rússn-
esku skýringu.
Hin austræna skýring
Þeir segja að um njósnaflug
hafi verið að ræða, skipulagt af
leyniþjónustu Bandaríkjanna.
Þessi skýring virkar á mig eins og
máttlítil yfirklórstilraun ringl-
aðra stjórnmálamanna eftir að
hernaðarmaskína þeirra hefir
gert hroðaleg og ófyrirgefanleg
mistök, sem þeir geta samt ekki
hugsað sér að viðurkenna, því þá
væru þeir að viðurkenna að þeir
réðu engu um það sem herinn
gerði.
Það þarf ekki mikla röksemda-
færslu til að sýna fram á að þessi
njósnaflugskenning fær ekki stað-
ist, en ef nefna á það augljósasta,
þá má byrja á að benda á hversu
ólíklegt það er, að Bandaríkja-
menn geti ekki fengið upplýsingar
sínar með öðrum hætti en þessum,
sem minnir á löngu liðna tíð. Það
veit hvert mannsbarn að stórveld-
in njósna hvort um annað með að-
stoð gervihnatta, háfleygra her-
þota, leyniþjónustu og svikara
o.s.frv.
Jafnvel þótt maður gæfi sér að
samt hefði verið um einhvers kon-
ar njósnaflug að ræða, væri það
engu að síður út í bláinn, því að
vita hefði mátt fyrirfram, með
100% vissu, að auðvitað yrði slíkt
flug stöðvað, þ.e. vélin neydd til
lendingar eða skotin niður. Það
veit hver einasti flugmaður að far-
þegavél eins og þessi hefir enga
möguleika til þess að komast und-
an herþotum, hvað þá heldur flug-
skeytum frá þeim, sem leita ein-
faldlega uppi hitann frá útblæstr-
inum og granda vélinni óhjá-
kvæmilega. Þar duga engar flug-
kúnstir til þess að komast undan.
Og þá er komið að öðru sem er
alveg óskiljanlegt í þessu máli.
Hafi Rússarnir, hversu ólíklegt
sem það má teljast, trúað því í
raun og veru að um njósnaflug
hafi verið að ræða, hvers vegna í
ósköpunum reyndu þeir þá ekki að
ná vélinni niður án þess að granda
henni alveg (hvort sem þeim var
hlýtt eða ekki) og eyðileggja þar
með trúlega öll hugsanleg
„njósnagögn"? Á maður að trúa
því að flugtækni þeirra og vopna-
búnaður dugi ekki til að ná vél
niður með því að laska hana á
réttum stöðum án þess að gjör-
eyðileggja? Hvílíkt vatn hefði það
ekki orðið á myllu „friðaráróðurs"
Sovétmanna, hefðu þeir getað
sannað njósnir á Bandaríkin með
þessum hætti. Jafnvel þótt það
væri rétt sem rússnesku orrustu-
flugmennirnir halda fram, að
Kóreuvélin hafi ekki sinnt aðvör-
unum, sem ógerningur er að trúa,
þvi vel mátti vita hvað það gat
kostað, þá hefði verið betra, úr því
sem komið var, að láta hana eiga
sig. „Njósnavélin" átti aðeins ör-
skammt eftir ófarið til að komast
út úr sovésku lofthelginni og því
væntanlega búin að ljúka „verk-
efninu" og þá um leið búin að
koma „upplýsingunum" á fram-
færi eftir sínum leiðum og því al-
veg tilgangslaust að skjóta hana
niður. Þá hefðu Sovétríkin getað
borið fram mótmæli eftirá og sagt
sem svo:
„Þarna sjáið þið. Við erum góðu
strákarnir. Við vissum að þetta
var njósnavél en vildum ekki
skjóta hana niður því við vissum
að saklausir farþegar voru um
borð. Við viljum frið.“ í stað þess
kjósa þeir, eftir yfirvegun, að
skjóta vélina niður, til þess eins að
kalia yfir sig gífurlega reiði og
hatur um heim allan og eyðileggja
þar með gersamlega fyrir sér allt
friðartalið.
Eftirleikurinn
Þá er ekki síður óskiljanlegt
hvernig Rússarnir halda á þessum
málum eftirá. Ekki heyrist eitt
orð frá þeim um að þeim þyki
þetta leitt (þeir gætu sagt það
jafnvel þótt þeir héldu áfram með
njósnasöguna sína), hvað þá að
þeir bjóði bætur. Þvert á móti
hreykja þeir sér af „afrekinu" og
segjast fúsir að vinna önnur álíka
ef tækifæri gefst á ný.
í sambandi við margnefndan
„svarta kassa" ætti hverjum
manni að vera ljóst, að eina leiðin
til að koma í veg fyrir að hvor
aðili um sig saki hinn um falsanir
væri auðvitað að fulltrúar frá báð-
um blokkum yrðu viðstaddir rann-
sókn á innihaldi kassans, finnist
hann á annað borð.
Það eina sem ég skil í þessu
máli er, að nú höfum við verið
vitni að hryggilegri staðfestingu
þess, að þessu stórveldi, sem getur
margsinnis tortímt öilu lífi á jörð-
inni, er stjórnað af mönnum á
stigi slíkrar spennu og taugaveikl-
unar, að þeir myndu sennilega
fyrirskipa árás ef gæsahópur birt-
ist á skerminum á röngum stað.
Þunglamaleikinn er þar að auki
svo mikill, að því er virðist, að
ekki gefst tími til að ráðfæra sig
við æðstu ráðamenn ríkisins þegar
virkilega reynir á. Þá virðist
tæknin ekki vera meiri, þegar allt
kemur til alls, en svo, að þeir geta
ekki tekið niður eina farþegavél í
sæmilega heilu lagi. Þeir gátu ekki
einu sinni gengið hreint til verks,
úr því að ódáðaverkið var á annað
borð ákveðið, og tortímt „óvinin-
um“ á augnabliki, svo enginn
þyrfti að þjást, heldur þurfti til
þess tólf eilífðarlangar mínútur.
Ekkert, alls ekkert manneskju-
legt er tengt þeirra hlut í þessum
mikla harmleik.
Það er mér hulin, óhagganleg
ráðgata, hvers vegna þessi menn
kjósa nú, í miðju friðartalinu, að
opinbera nakta ásýnd grimmdar
og ósveigjanleika, eins og til þess
eins að undirstrika að „Rússagrýl-
an“ sé einmitt ekki grýla heldur
sannleikur.
Það er til máltæki sem segir:
„Betra seint en aldrei". Það er
enn ekki of seint fyrir rússneska
ráðamenn að viðurkenna mannleg
mistök og bæta ofurlítið um,
draga eitthvað úr þeim sársauka
og álitshnekki sem þetta sorglega
atvik hefir valdið. Þá, ef til vill,
myndu opnast dyr sem nú eru
harðlæstar.
Kjartan Norðdahl er ílugmaður hjá
Flugleiðum.
LAUGARDAGUR
omim io-4
E/Ð/STORG111
Vörumarkaðurinn M.