Morgunblaðið - 24.09.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
27
Meginstefnan að fjalla um málefni sem
ráðherrar flokksins hafa með að gera
„VIÐ HÖFUM undirbúið margar mjög vandaðar ályktanir og fengið til
liðs við okkur mjög hæfa menn til þess. Varðandi það hvað mál eru tekin
fyrir hefur verið fylgt þeirri meginstefnu að fjalla um málaflokka sem
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa með að gera, og er þetta hugsað til
þess að leggja þeim lið,“ sagði Geir H. Haarde, formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna í samtali við Morgunblaðið, en hann var inntur
eftir því, hvernig málefnaundirbúningur fyrir þing SUS nú um helgina
hefur gengið.
„Auk þessa," segir Geir, „verð-
ur að sjálfsögðu mjög ítarleg
stjórnmálaályktun. Loks höfum
við tekið fyrir sérstak viðfangs-
efni, sem er nýmæli og köllum
við það „Atvinnuþróun og há-
tækniiðnaður". í tengslum við
þetta mál höfum við fengið til
liðs við okkur þrjá valinkunna
sérfræðinga, til þess að flytja
stutt kynningarerindi, en þetta
eru dr. Ingjaldur Hannibalsson
iðnverkfræðingur, forstjóri Iðn-
tæknistofnunar, Jón Erlendsson
verkfræðingur.forstjóri upplýs-
ingaþjónustu Rannsóknaráðs og
Jón Hjaltalín Magnússon verk-
fræðingur. Þessir menn munu
skýra frá því hvaða möguleika
við íslendingar eigum í
raftækniiðnaði og öðrum há-
tækniiðnaði og við teljum að
þetta sé svið sem hafi orðið út-
undan í pólitískri umræðu, en
hins vegar sé mjög mikilvægt að
marka stefnu í því. Þess vegna
höfum við tekið þarna visst
frumkvæði sem við vonumst til
að flokkurinn fylgi eftir. Sam-
hliða þessu verður síðan á þing-
s
Geir H. Haarde
inu samþykkt stefnumarkandi
pólitísk ályktun um þessi mál,“
sagði Geir.
„Ég tel að tvær ályktanir verði
meginályktanir þingsins, annars
vegar ályktunin um atvinnu-
þróun og hátækniiðnað og hins
vegar stjórnmálaályktunin, en
einnig verða ályktanir um utan-
ríkis- og öryggismál, skóla- og
menntamál, iðnaðar- og orku-
mál, efnahags- og viðskiptamál
og húsnæðis- og samgöngumál,
auk fleiri ályktana sem upp
koma á þinginu,“ sagði Geir.
Geir gat þess að á þinginu yrði
fjölmenni og kvaðst hann vænta
þess að þar yrðu málefnalegar
umræður um málin og þær yrðu
til þess að styrkja sambandið og
Sjálfstæðisflokkinn í þeim átök-
um sem framundan eru á kom-
andi vetri.
31 1 -J 1 , • ir =1 . s?
I HANDBÓK H
i i 1983 1984
Handbók fyrir
framhalds-
skólanema
Heimdallur hefur gefið út 2. ár-
gang Handbókar fyrir framhalds-
skólanema. Bókin er í vasabrots-
stærð, 68 bls.
í bókinni eru ýmsar hagnýtar
upplýsingar fyrir nemendur, s.s.
um nám að loknu stúdentsprofi,
námslán og námsstyrki, skóla-
dagatal, upplýsingar um al-
þjóðasamtök sem Island er aðili
að, upplýsingar um samtök
ungra sjálfstæðismanna o.fl. Að
þessu sinni er áhersla lögð á
friðarmálefni til upplýsinga
fyrir framhaldsskólanema.
Ný stjórn Heimdallar
Á Aðalfundi Heimdallar þann 10. september sl. var kosin ný stjórn félagsins og þar var einnig ný formaður
kjörinn. Meðfylgjandi mynd er af hinni nýju stjórn. Á myndinni eru frá vinstri í neðri röð: Eiríkur Ingólfsson
ritari, Haukur Þór Hauksson varaformaður, Sigurbjörn Magnússon formaður og Bergljót Friðriksdóttir. í efri
röð eru frá vinstri: Benedikt Bogason, Sigurbjörn Þorkclsson, Þór Sigfússon, Árni Sigurðsson, Baldvin Einars-
son gjaldkeri og Svanbjörn Thoroddsen.
Dagskrá SUS-þingsins
Föstudagur 23. september.
Kl. 16.00. Þingsetning (Kristalssal-
ur). Ávarp Sigurbjörn Magnússon,
formaður Heimdallar, ávarp Friðrik
Sophusson, varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins, ávarp Jörgen Glenthöj,
formaður NUU. Ræða Geir H.
Haarde, formaður SUS. Nefndakjör
og önnur upphafsstörf þingsins. Kl.
18.00 nefndarstörf hefjast, kl. 20.00
—, kl. 24.00 kvöldvaka í Valhöll.
Laugardagur 24. september.
Kl. 09.00 nefndir starfa á Hótel
Loftleiðum, kl. 11.00 umræður um
skýrslu stjórnar — afgreiðsta reikn-
inga — lagabreytingar. Kl. 12.00 mat-
arhlé, kl. 13.30 „atvinnuþróun og há-
tækniiðnaður (Kristalssal). Lesarar:
Dr. Ingjaldur Hannibalsson iðnaðar-
verkfræðingur, Jón Erlendsson verk-
fræðingur, Jón Hjaltalín Magnússon
verkfræðingur. — Fyrirspurnir. Kl.
15.00. —. Kl. 18.30 almennar umræð-
ur, kynning ályktana. Kl. 19.30 hátíð-
arkvöldverður (Víkingasalur). Aðal-
ræðumaður Davíð Oddsson, borgar-
stjóri.
Sunnudagur 25. september.
,K1. 09.00 nefndarstörf á Hótel
Loftleiðum, kl. 12.00 hádegisverður,
kl. 13.00 almennar umræður, af-
greiðsla ályktana, stjórnarkjör, kl.
18.00 þingslit.
SUS-þingið:
Þátttakendur á
SKRÁDIR þátttakendur á þingi
Santbands ungra sjálfstæðismanna
nú um helgina eru hátt á þriðja
hundrað, samkvæmt upplýsingum
sem Morgunblaðið fékk hjá Gerði
Thoroddsen, framkvæmdastjóra
sus.
Rúmlega helmingur þingfulltrú-
anna er utan Reykjavíkursvæðis-
ins og einnig gat Gerður þess að
um fjórðungur þeirra væru konur,
en það er óvenjuhátt hlutfall
kvenna á SUS-þingi.
þriðja hundrað
Síðast var SUS-þing haldið í
Reykjavík árið 1967, en síðasta
þing sambandsins var haldið á
Vestfjörðum.
Að sögn Gerðar hefur undirbún-
ingur þingsins gengið mjög vel og
meðal nýmæla sem þar eru má
nefna barnagæslu, sem verður
laugardag og sunnudag. Sagði
Gerður það vera gert til þess að
auðvelda sem flestum að taka þátt
í störfum þingsins.
Alþjóðleg ráðstefna um
ávana- og fíkniefnamál
DAGANA 26. til 30. september næst-
komandi verður haldinn hér á landi
alþjóðleg ráðstefna um ávana- og
fíkniefni. Ráðstefnan verður haldin á
Hótel Loftleiðum í Reykjavík, þar
Skreiðarframleid-
endur með fund
BOÐAÐUR hefur verið fundur með
skreiðarframleiðendum til að ræða
vanda skreiðarverkunar og hagsmuna-
mál skreiðarframleiðenda. Fundinum,
sem boðaður hafði verið 30. septem-
ber, hefur nú verið frestað til 5. októ-
ber.
Á fundinn mæta ráðherrarnir
Halldór Ásgrímsson og Matthías Á.
Mathiesen og flytja ávörp.
Búast má við að skreiðarframleið-
endur fjölmenni á fundinn, enda
mikill vandi sem skreiðarfram-
leiðslan á nú við að etja.
sem bæði (slenskir vísindamenn og
erlendir munu flytja erindi og svara
fyrirspurnum.
Að þessari ráðstefnu standa
Áfengisvarnaráð, fyrir hönd heil-
brigðisráðuneytisins, og Alþjóða-
ráðið um áfengis- og fíkniefnamál
(ICAA) í Sviss.
Markmið ráðstefnunnar er að
leita raunhæfra leiða til lausnar á
þeim vanda sem neysla ávana- og
fíkniefna veldur á grunvelli reynslu
og rannsókna víða að úr heiminum.
Á ráðstefnuna koma fyrirlesarar
víða að með mikla reynslu og þekk-
ingu á hinum ýmsu sviðum þessara
mála.
Á þessari ráðstefnu er dregin
saman víðtækari þekking í ávana-
og fíkniefnamálum en áður hefur
verið gert hér á landi, að því er
segir í frétt frá undirbúningsaðilum
ráðstefnunnar.
Nýskipaður sendiherra Svíþjóðar
ÞANN 13. september sl. afhenti nýskipaður sendiherra Nvíþjóðar, hr. Gunn-
ar Dahlström, forseta íslands trúnaðarbréf sitt og sést hann á myndinni
ásamt Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands og Matthíasi Á. Mathiesen
viðskiptaráðherra sem var viðstaddur afhendinguna.
Síðdegis þáði sendiherrann boð forseta (slands að Bessastöðum ásamt
fleiri gestum.
Ráðstefna fóstra og
þroskaþjálfa um
nám þeirra og starf
í DAG, laugardaginn 24. september,
gangast Fóstrufélag íslands og Fé-
lag þroskaþjálfa fyrir sameiginlegri
ráðstefnu um menntunarmál þess-
ara stétta, stöðu þeirra í dag og
framtíðarskipan. Ráðstefnan verður
haldin á Grettisgötu 89 og stendur
frá klukkan níu f.h. til fimm e.h.
Að hálfu menntamálaráðuneyt-
isins mun Stefán Ólafur Jónsson
deildarstjóri koma og kynna fram-
haldsskólafrumvarpið, en fóstra
og þroskaþjálfi munu kynna stefn-
ur félaganna í menntunarmálum.
Markmið ráðstefnunnar er að
kynna nám og starf þessara stétta
og athuga möguleikana á sam-
starfi í framtíðinni.