Morgunblaðið - 24.09.1983, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
35
Útlán Ferðamálasjóðs á verðlagi
hvers árs
Útlán Ferðamálasjóðs á verðlagi
ársins 1982
Útlán Ferðamálasjóðs
aukast að raungildi
Ferðamálsjóður er einn af stofnlánasjóðum ríkisins og er hlutverk
hans að stuðla að byggingu gisti- og veitingahúsa á landinu og einnig
að bæta á annan hátt skilyrði til móttöku ferðamanna, innlendra sem
erlendra, svo og aðbúnað þeirra.
Á árunum 1981—’82 voru heildarútlán Ferðamálasjóðs kr.
25.308.000 á verðlagi hvors árs um sig. Séu útlán ársins 1981 fram-
reiknuð til verðlags 1982, nema heildarútlán þessara tveggja ára tæp-
um 30 millj. kr.
I síðasta hefti Ferðamála,
fréttabréfs Ferðamálaráðs, er
fjallað um starfsemi sjóðsins.
Þar segir ennfremur:
Meðai þeirra framkvæmda
sem lánað var til, var hið nýja
Hótel ísafjörður og stækkanir á
Hótel Borgarnesi, Hótel Reyni-
hlíð og Hótel Bæ á Kirkjubæj-
arklaustri. Þá var og lánað til
byrjunarframkvæmda við
stækkun Hótel Sögu og til upp-
steypu hótela á Selfossi og í
Vestmannaeyjum. Svo sem
framangreind upptalning ber
með sér, er lánað til fram-
kvæmda víðsvegar um landið,
en alls voru veitt lán til 27 aðila
á þessu tveggja ára tímabiii.
Ef athuguð eru útlán Ferða-
málasjóðs á hverju ári, sem lið-
ið er síðan núgildandi lög um
skipulag ferðamála voru sett á
miðju ári 1976, og þau fram-
reiknuð til ársins 1982, kemur í
ljós að það ár eru útlánin hæst
að raunvirði.
Til fróðleiks eru hér útlans-
tölur síðustu þriggja ára (í þús.
kr.), bæði á verðlagi hvers árs
og verðlagi 1982.
Eins og sjá má, er aukning á
útlánum. Ef hinsvegar ætti að
anna eftirspurn eftir fjár-
magni, þá yrði Ferðamálasjóð-
ur að fá heimild til mun meiri
lántöku og einnig þyrfti fram-
lag ríkissjóðs að aukast. Ekki
síst þyrfti ríkisframlag til
niðurgreiðslu á lánakjörum
Ferðamálasjóðs, en þau eru
meðal hinna þyngstu er þekkj-
ast hérlendis. Það er einnig svo,
að þeir aðilar sem fengið hafa
lán til hinna ýmsu verkefna í
ferðaþjónustinni eiga, margir
hverjir, erfitt með að standa í
skilum, og kemur það að sjálf-
sögðu mjög mikið niður á starf-
semi sjóðsins. Vegna þessa
takmarkast útlánageta hans
ntjög og mikill tími starfs-
manna fer í að sinna vanskila-
málum. Það er því mjög mikil-
vægt að gripið verði til ein-
hverra aðgerða til hjálpar
skuldurum, svo ekki þurfi að
koma til fullnustuaðgerða.
Ef lánakjörin væru niður-
greidd, þá væri hægt að vinna
mun skipulegar að uppbygg-
ingu ferðaþjónustunnar. Ferða-
málasjóður gæti þá, undir for-
ystu Ferðamálaráðs, átt frum-
kvæði að ákveðnum fram-
kvæmdum víðsvegar um landið,
boðið heimamönnum lán á við-
ráðanlegum kjörum til þeirra
framkvæmda og verið þannig
mjög hvetjandi aðili í uppbygg-
ingu ferðaþjónustunnar.
Eins og áður sagði þarf aukið
ríkisframlag til Ferðamála-
sjóðs, til þess að lánakjör hans
geti orðið viðunandi. Sam-
kvæmt gildandi lögum (frá
1976) skal árlegt framlag ríkis-
sjóðs til Ferðamálasjóðs nema
ekki lægri upphæð en 40 millj.
g.kr. Ef sú upphæð er fram-
reiknuð með byggingarvísitölu,
ætti lágmarksframlag ríkis-
sjóðs á yfirstandandi ári að
vera 7,4 millj. kr. en ekki þær
439 þús. sem fengust. Sem
dæmi um það hve núverandi
ríkisframlag er lítið hlutfall af
veltu sjóðsins, þá má geta þess
að á sl. ári voru greidd vaxta-
gjöld lántakenda 30,2 millj. kr.
en framlag ríkissjóðs aðeins kr.
330 þús.
fram í ullarlopa og bandi, þar sem
út voru flutt 367,8 tonn, borið
saman við 470,0 tonn á sama tíma
í fyrra. Samdrátturinn milli ára
er um 22%.
SKINNAVARA
Skinnavöruútflutningur dróst
saman um nær 44% á umræddu
tímabili, þegar út voru flutt 178,9
tonn, borið saman við 320,2 tonn á
sama tíma í fyrra. Verðmæta-
aukningin milli ára var aðeins um
20%, eða um 70,1 milljón króna,
borið saman við 58,6 milljónir
króna á sama tíma í fyrra.
VÖRUR TIL
SJÁVARÚTVEGS
Útflutningur á vörum til sjávar-
útvegs jókst á umræddu tfmabili
um 27%, þegar alls voru flutt út
1.233,8 tonn, borið saman við 974,6
tonn á sama tíma í fyrra. Verð-
mætaaukningin milli ára er um
148%, eða um 58,4 milljónir króna
á móti um 23,6 milljónum króna á
sama tímabili í fyrra.
niðurlagðar
SJÁVARAFURÐIR
Útflutningur á niðurlögðum
sjávarafurðum dróst saman um
5% á tfmabilinu, þegar alls voru
flutt úr 1.254,5 tonn, borið saman
við 1.315,9 tonn á sama tíma í
fyrra. Verðmætaaukningin milli
ára er um 124%, eða tæplega 154,9
milljónir króna, borið saman við
69,2 milljónir króna á sama tíma-
bili í fyrra.
KÍSILGÚR
Útflutningur á kfsilgúr dróst
saman um 12% fyrstu sjö mánuði
ársins, þegar samtals voru flutt út
13.436.9 tonn, borið saman við
15.251.9 tonn á sama tímabili í
fyrra. Verðmætaaukningin milli
ára er um 89%, eða 68,9 milljónir
króna, borið saman við 36,5 millj-
ónir króna á sama tímabili í fyrra.
MÁLNING OG LAKK
Útflutningur á málningu og
lakki jókst um 150% fyrstu sjö
mánuði ársins, þegar samtals voru
flutt út 1.006,0 tonn, borið saman
við 402,9 tonn á sama tímabili í
fyrra. Verðmætaaukningin milli
ára er um 440%, eða tæplega 36,7
milljónir króna, borið saman við
6,8 milljónir króna á sama tfma-
bili í fyrra.
VIKUR
Útflutningur á vikri jókst um
130% á umræddu tfmabili, þegar
alls voru flutt út liðlega 17.268,6
tonn, borið saman við 7.504,2 tonn
á sama tfma f fyrra. Verðmæta-
aukningin milli ára er um 520%,
eða liðlega 13,55 milljónir króna,
borið saman við 2,2 milljónir
króna á sama tfmabili f fyrra.
ÞANGMJÖL
Útflutningur á þangmjöli jókst
á tímabilinu um 38%, þegar alls
voru flutt út um 1.057,2 tonn, bor-
ið saman við 764,0 tonn á sama
tímabili f fyrra. Verðmætaaukn-
ingin milli ára er um 201%, eða
um 6,6 milljónir króna, borið sam-
an 2,2 miíljónir króna á sama
tímabili f fyrra.
BROTAJÁRN
Útflutningur á brotajárni jókst
um 33% á umræddu tímabili, þeg-
ar alls voru flutt út 4.966,3 tonn,
borið saman við 3.742,7 tonn á
sama tímabili í fyrra. Verðmæta-
aukningin milli ára er um 122%,
eða 10,25 milljónir króna, borið
saman við 4,62 milljónir króna á
sama tímabili í fyrra.
Minning:
Hallberg Halldórs-
son fv. kaupmaður
Við andlát Hallbergs, vinar
míns og frænda, varð ég því miður
að láta ógert að minnast hans á
prenti, en nú get ég látið verða af
því, einmitt réttu ári eftir fráfall
hans. En hann andaðist 24. sept-
ember 1982.
Hallberg fæddist að Borgarkoti
á Skeiðum í Árnessýslu 4. maí
1910. Foreldrar hans, Sigríður
Guðjónsdóttir og Halldór Einars-
son, höfðu þá ekki stofnað heimili,
og varð það til þess að hann ólst
upp utan foreldrahúsa, en hjá
ágætu fólki á góðu heimili, þótt
fátæklegt væri.
Hallberg var talinn greint og
efnilegd' barn, sem lærði hvaðeina,
sem unnt var á afskekktum sveita-
bæ. Skólagangan var þá aðeins
nokkur farkennsla, en grundvöllur
uppeldisins var fyrst og fremst
guðsótti og góðir siðir og starf. Já,
einmitt að læra að vinna öll hin
venjulegu sveitastörf, úti og inni á
öllum árstíma, allt sem viðkom
venjulegum sveitabúskap þess
tíma. Umgengnin jafnt við menn
og skepnur með góðum hug til alls
og allra, var einmitt snarasti þátt-
urinn í námi fyrsta bekkjar í skóla
lífsins. Og ég fullyrði, að sú undir-
staða reyndist Hallberg, eins og
svo mörgum fleiri ungmennum
þess tíma, ekki minna virði en ým-
islegt í bóklegum fræðum seinni
tíma.
Um tvítugsaldur má svo segja,
að hann legði út í hið raunveru-
lega líf. Fyrst til Eyrarbakka og
svo til Vestmannaeyja. Þangað
tlutti margt á þeim tíma af ungu
og dugmiklu fólki, einkum af Suð-
urlandi, og þangað kom Hallberg
1933. Þar var þá uppgangur í gró-
andi bæjarfélagi, og tók hann þá
hvað sem bauðst og hlífði sér
hvergi við hvað sem var. Snemma
byrjaði hann að vinna við verslun-
arstörf. Reyndist hann við þau
sérstaklega vel látinn fyrir lipurð,
heiðarleika og góða umgengis-
hæfileika. Þannig vann hann sig
upp í þeim störfum, sem varð til
þess, að hann setti á stofn eigið
fyrirtæki, verslunina Borg í Eyj-
um, sem hann svo rak um 20 ára
skeið, eða fram að gosinu 1973. En
þá varð hann að flytjast með
straumnum þaðan til Reykjavík-
ur. Þar keypti hann verslunina
Skerjaver, sem hann svo rak með-
an heilsan leyfði, allt fram undir
andlát hans.
Þannig urðu verslunarstörfin
aðallífsstarf Hallbergs. En ef ég
ætti að skilgreina nánar uppistöð-
una í lífsvef hans, þá var hún sam-
tvinn af þrem meginþáttum.
Sterkum vilja, trúmennsku og
heiðarleika og ívafið í þann lffsvef
var hans eðlislægi eiginleiki að
koma sér ætíð og alls staðar vel,
sem einmitt leiddi til þeirrar góðu
þjónustu, sem honum var svo eig-
inlegt og lagið að veita í öllum
samskiptum við hvern sem var.
Þótt aðalstarf hans byggðist
þannig á einkaframtaki, þá var
hann einnig mikill og sannur fé-
lagshyggjumaður, í þess orðs
besta skilningi, enda er það að
mínum dómi og reynslu besti
grundvöllur góðra mannlegra
samskipta, að þeir þættir, fram-
tak og félagshyggja fylgist að og
falli saman.
Hallberg var glaðværð og léttur
í skapi að eðlisfari og naut sín vel
í góðra vina hópi, en líka þar var
hann heill og einlægur, fastur
fyrir og ákveðinn í að halda öllum
gleðskap innan vissrar smekkvisi
og reglu. Eins og ósjalfrátt lifði
hann í meginatriðum eftir hinni
gullvægu reglu: „hvað sem þú
vinnur í verki eða leik, þá verðu
þér öllum til“. Hallbergi varð 5
barna auðið. Öll eru þau hin
mannvænlegustu og er mér vel
kunnugt um að þeim hefir yfirleitt
hlotnast sá eiginleiki föðursins að
koma sér alls staðar vel. Það er
líka besta óskin sem ég get borið
fram þeim til handa og áfram-
haldandi afkomendum Hallbergs,
að þeim megi í hvívetna auðnast
langt og farsælt líf í anda þess
besta, sem frá foreldrunum er
fengið.
Eftirlifandi eiginkona Hall-
bergs er Irma F. Pöhls. Hún kom
hingað ungur stúdent frá Ham-
borg í Þýskalandi. Hefir hún
reynst manni sínum með afbrigð-
um góður lífsförunautur, ekki ein-
asta sem eiginkona og móðir, held-
ur einnig í öllum störfum hans, og
með ómetanlegri hjálp og fórnfýsi
í sambandi við vanheilsu, sem
hann átti nokkuð við að stríða.
Tengdaforeldrar Hallbergs lifa
enn og búa í Hamborg, þau eru nú
öldruð hjón, og eðlilega hallar
nokkuð undan fæti hjá þeim
heilsufarslega eins og gengur. En
þótt vík hafi þar verið milli vina,
þá hafa fjölskyldurnar ætíð brúað
þá vík með heimsóknum á víxl og
innilegum vináttusamskiptum,
eftir því sem ástæður hafa leyft.
Hallberg kunni manna best að
meta vinskap tengdaforeldranna
og þau kunnu líka að meta hinn
ágæta, íslenska tengdason. Slík
samskipti og vinátta er jafnan svo
mikils virði til gæfu og gengis í
mannlegum samskiptum. Vildi ég
gjarnan að til þeirra Pöhls-hjóna
bærist kveðja samúðar og þakk-
lætis frá okkur hjónum hér, fyrir
þá vinsamlegu kynningu, sem við
fengum af þeim, og þá ágætu mót-
töku og leiðbeiningu sem dóttir
okkar fékk hjá þeim, er hún á sín-
um tíma kom fyrst alókunnug og
ung til náms í Þýskalandi.
Frú Irma var mjög fljót aö ná
tökum á íslensku máli og tileinka
sér íslenska háttu og siði, svo að
við, sem best þekkjum til, lftum á
hana sem einlæga vinkonu, já eig-
inlega sem sannan og góðan ís-
lending.
Um leið og ég bið Guð að blessa
minningu Hallbergs, þá enda ég
þessi fátæklegu orð mín með
hjartans þökk fyrir langa og góða
kynningu af þeim hjónum. Jafn-
framt vona ég, að frú Irma megi
ennþá eiga hér langa og góða
framtið sem íslendingur, meðal
hinna mörgu íslensku vina og
kunningja sem hún hefir unnið sér
hylli hjá með allri framkomu sinni
hér á landi, bæði í störfum og
vinsamlegum samskiptum á öllum
sviðum.
Ilalldór Guðjónsson