Morgunblaðið - 24.09.1983, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
45
n iii .
VELVAKANDI
SVARAR I SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
VKAmÉPxmwixt
Óþægileg gusa
öeint í andlitið
Marta Þorsteinsdóttir skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Svo er mál með vexti, að um
daginn fékk ég bréf frá Pósti og
síma, þar sem mér var tilkynnt, að
ég væri ekki lengur á skrá yfir þá,
sem hafa frían síma, en það hef ég
verið í rúmt ár. Ég hringdi í
Tryggingastofnun ríkisins og
spurði, hvernig á þessu stæði.
Svarið var: Jú, þetta stafar af þvi
að greiðslur til þín úr lífeyrissjóði
hafa hækkað umfram leyfilegt
mark (mánaðargreiðslur til mín
úr þessum lífeyrissjóði nema nú
rúmum 2.000 krónum). Ég sagði,
að niðurfellingin gæti ekki stafað
af þessum sökum, þar sem hækk-
un greiðslnanna væri óveruleg
miðað við verðlagshækkanir. Jú,
sagði konan í Tryggingastofnun-
inni: Það breytir engu, jafnvel
þótt hækkunin hafi ekki verið
nema 10 krónur frá því í júní, um-
fram vissa prósentutölu. Og konan
sagði mér, að ekkert tillit væri
tekið til þess, við hvers konar að-
stæður viðkomandi byggi.
Ég er ein í heimili, var 65% ör-
yrki áður en ég sótti um ellilifeyri
og varð auk þess fyrir því óláni í
vor að slasast alvarlega, svo að ég
er enn ósjálfbjarga af þeim sökum
og upp á aðra komin með alla
hluti.
Mér finnst þetta óþægileg gusa
beint í andlitið og spyr: Hvenær
.;rum við, sem komin erum á átt-
ræðisaldur eða meira, búin að
borga með þrældómnum? Þarf
líka aö nota lífeyrissjóði okkar,
sem tekið hefur verið í af lágum
iaunum okkar í gegnum tíðina, til
að styrkja hina og þessa, alla
í'remur en okkur sjálf?
Hvar eru allir þeir stjórnmála-
.nenn, sem eru að berjast fyrir
málstað þeirra sem minni máttar
eru og þurfa á aðstoð að halda?
ilvar er Albert með sitt stóra og
góða hjarta? Er þetta liður I
sparnaðaráformum ríkisstjórnar-
innar? Væri ekki nær að selja
Póst og síma með öllum hans „tap-
rekstri“?“
Skyldu ekki
margir líta
í eigin barm?
F.FJ., Akureyri, hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Þökk sé Sighvati Björgvinssyni
fyrir grein hans í Dagblaðinu
Vísi 20. september, „Hver fer í
gapastokk Sjálfstæðisflokks-
ins?“. Skyldu ekki margir úr
flokki okkar sjálfstæðismanna
líta í eigin barm og hugsa: Er ég
sek/sekur um ósanngirni, ill-
girni og að hugsa aðeins um eig-
in hagsmuni? Svo sannarlega
þyrftu margir að blygðast sín,
því að margir hafa bara horft á
Geir Hallgrímsson, en ekki
hlustað á heilsteyptan og ábyrg-
an málflutning hans. Þökk sé
Geir. Blessun i'ylgi framtíð hans
og störfum á ókomnum árum.
Hugljúf fram- J
haldssaga á ;
slæmum útsend-
ingartíma
Unnur Benediktsdóttir liringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Mig langar til að þakka Ríkis-
útvarpinu fyrir hina hugljúfu |
framhaldssögu, Drengirnir á
Gjögri, sem nú er verið að lesa í
útvarpinu. Saga þessi er eftir
Bergþóru Pálsdóttur, sem hefur
skrifað margar góðar barna- og j
unglingabækur. Ég hef hitt að
máli marga, bæði unga og
gamla, sem hafa ánægju af lestri
þessarar sögu, enda er hún vel
lesin af Jóni Gunnarssyni leik-
ara. En einn galli er á gjöf
Njarðar. Hún er lesin á mjög
óheppilegum tíma, eða kl. 20.00 á
þriðjudags- og miðvikudags-
kvöldum. Við sem erum heima- |
kær viljum gjarna horfa á frétt- j
ir sjónvarpsins, sem eru á sama !
tíma. Marga hlustendur hef ég
heyrt velta því fyrir sér, hvers
vegna óskir þeirra séu svo lítils
virtar, því að þetta er ekki fyrsti
upplestur góðs efnis á fréttatíma |
sjónvarpsins, og hefur það |
margoft áður verið átalið.
iSÆTUM TUNGUNNAR
Sést hefur: Þar voru bæði Ameríkanar og
Kanadamenn.
Rétt væri: Þar voru bæði Bandaríkjamenn og
Kanadamenn.
2-úoof Hetcnöack / 4-öoor sedan
Komdu og kynntu þér af
eigin raun allan búnað,
sérstök gæði og frábær-
an frágang, sem tryggir
Honda sæti meðal vönd-
uðustu bíla í heimi.
>4ccord 1
Tökum notaða Honda-bíla upp í nýja.
Athugið opiö í dag, laugardag frá kl. 1—5.
HONDA A ISLANDI — VATNAGÖRÐUM 24 — SIMAR 38772 — 39460.
Buxur
Fernar buxur
Barnabuxur
Sértilboð á buxum í
stærðunum 25 - 30
kaupirðu tvennar buxur færðu
|pær þriðju í kaupbæti.
Föt
Stakir jakkar
Vetrarjakkar
Blússur og sumarjakkar
Peysur
Skyrtur frá
Vesti
Bolir
Ýmislegt í 50 króna horninu.
kr. 200,-
kr. 700,-
kr. 100,-
kr. 100,-
kr. 1.200,-
kr. 500,-
kr. 400,-
kr. 200,-
kr. 200,-
kr. 50,-
kr. 100,-
kr. 50,-
Opið laugardag 10-16.
flDflm#