Morgunblaðið - 24.09.1983, Blaðsíða 48
Þ
,ettalestuídagm.a.
Deilur rísa um nýtt verzlunar-
hús við Laugalæk. Hrafn Bach-
mann og Haukur Viktorsson
lýsa andstæðum sjónarmiðum.
lOíymmMafoífo
Tölvupappír
Bls. 30/31/32/33.
FORMPRENT
Hverfisgolu 78. simar 25960 - 25566
LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1983
Borgarfsjaki á reki við Gjögur
Morgunbladið/ RAX
Þegar Morgunblaðsmenn voru á ferð norður i Ströndum í fyrradag, nánar tiltekið út af Gjögri, flugu þeir fram á þennan myndarlega ísjaka sem lónar
skammt frá landi. Annar borgarísjaki var nokkrum kflómetrum fjær landi, en kuldinn í lofti á þessum slóðum minnti óneitanlega á þennan sendiboða
íshafsins.
Vill setja
upp báta-
leigu á
Tjörninni
SÖTT hefur verið um leyfi til þess að
hafa bátaleigu á Tjörninni í Reykja-
vík.
„Ég lagði inn umsókn til borgar-
stjóra fyrir skömmu og vonast eftir
jákvæðum viðbrögðum,*' sagði Pétur
Th. Pétursson, smíðakennari, í sam-
tali við Mbl.
„Hugmyndin er að hafa um 20
báta, kajaka og árabáta, á þeim
hluta Tjarnarinnar sem liggur að
Hljómskálagarðinum. Ég fékk
hugmyndina þegar Árbúar voru
með skemmtun í Hljómskálagarð-
inum í sumar og sá ég um fram-
kvæmdina fyrir þá. Þetta er vel
framkvaemanlegt og yrði þá vænt-
anlega um helgar yfir sumarið. Ég
tel að þetta raski ekki fuglalífi, en
auðgi hins vegar mannlífið við
Tjörnina," sagði Pétur Th. Péturs-
Nígeríumenn skulda íslenzkum skreiðarframleiðendum einn milljarð króna:
Vilja breyta skreiðar-
skuldum í lengri lán
„VIÐ ERtJM nú ekki stórir skreið-
arútflytjendur, en við eigum þó úti-
standandi í Nígeríu tæpar 30 millj-
ónir króna, eina milljón dollara, og
sýnir þetta í hnotskurn við hvaða
vanda er að eiga. Hér er um að ræða
skreið, sem flutt var út til Nígeríu í
lok síðasta árs, og átti að greiða
hana í byrjun þessa árs,“ sagði
Steinar Berg Björnsson, forstjóri
Lýsis hf. í samtali við Morgunblaðið.
Steinar Berg sagði ennfremur,
að ekki hefði verið samið um
neinn greiðslufrest í þessari send-
ingu, hana hefði átt að greiða við
afhendingu eða t upphafi þessa
árs. Kaupendur hefðu greitt
skreiðina strax inn á nígerskan
banka, en ábyrgðir hefðu verið
opnaðar þar. Greiðsla frá bankan-
um væri hins vegar ekki komin
enn og biði afgreiöslu þar. Sér
væri kunnugt um að þannig væri
ástatt hjá fleiri útflytjendum og
væru bankar í Nígeríu nú að
kanna hvernig þeir gætu leyst
þessi mál. Stæðu þeir nú í samn-
ingum við banka á Vesturlöndum
og væru íslenzkir bankar með í
þeim viðræðum. Væri meðal ann-
ars rætt um að breyta þessum
skuldum í þriggja ára lán, en Níg-
eríumenn hafa áhuga á að breyta
skuldum sínum í lán til lengri
tíma.
Steinar Berg sagði ennfremur,
að ástandið í landinu undanfarið,
meðal annars mikill samdráttur í
olíuframleiðslu og ókyrrt stjórn-
málaástand vegna kosninga, hefði
haft mikil áhrif á efnahagsástand
í Nígeríu. Menn vonuðust hins
vegar til þess, að ástandið skánaði
og greiðslur færu að skila sér.
Sigurður Jóhannesson, deildar-
stjóri í Seðlabankanum, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að ís-
lenzkir skreiðarútflytjendur ættu
nú um einn milljarð króna úti-
standandi í Nígeríu. Sér væri hins
vegar ekki kunnugt um að skuldir
væru komnar í vanskil svo nokkru
næmi. Þetta stafaði fyrst og
fremst af því að upp á síðkastið
hefði skreiðin verið flutt út með 6
til 9 mánaða gjaldfresti og á níg-
erskum ábyrgðum og væru áb-
yrgðir jafnvel ódagsettar. Áður
hefðu nígerskir kaupendur yfir-
leitt opnað ábyrgðir í evrópskum
bönkum og hefðu greiðslur þá yf-
irleitt skilað sér við afskipanir.
Það væri hins vegar seljenda hér
heima að taka ákvörðun um það,
að hvaða kjörum þeir gengju í
Nígerfu.
Hannes Hall, framkvæmda-
stjóri Skreiðarsamlagsins, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að í
þessu væri ekki við kaupendur í
Nígeríu að sakast. Seljendum hér
heima hefði verið kunnugt um þá
kaupmála, sem í boði voru í Níg-
eríu og þann greiðslufrest, sem
þar var farið fram á. Kaupendur
hefðu staðið við sitt, en greiðslur
hefðu tafizt í nígerskum bönkum.
Akureyri:
Dregur úr
atvinnuleysinu
Akureyri, 22. seplember.
SAMKVÆMT upplýsingum frá
vinnumiðlunarskrifstofu Akureyr-
arbsjar voru 104 skráðir atvinnu-
lausir á Akureyri í ágústmánuði sl.,
59 konur og 45 karlar. Skráðir voru
í mánuðinum 1775 heilir atvinnu-
leysisdagar, sem svarar til þess að
77 hafi verið atvinnulausir allan
mánuðinn. Til samanburðar má
nefna, að í júlímánuði voru skráðir
113 atvinnuiausir, eða ívið færri en
í ágúst.
Samkvæmt upplýsingum
vinnumiðlunarskrifstofunnar
hefur enn dregið úr atvinnuleysi
það sem af er september, og er
tiltölulega lítið um skráningar
þessa dagana og margir, sem áð-
ur voru á skrá hafa nú fengið
atvinnu á ný, t.d. ræstingakonur
við skólana, sem voru allmargar
atvinnulausar í sumar og fram í
september. GBerg.
Sendinefnd íslands á allsherjarþingi SÞ í New York:
Ferða- og uppihaldskostnaður
gæti numið 1,5 milli. króna
Ferða- og uppihaldskostnaður íslenskra embættis- og stjórnmálamanna
í New York vegna Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna gæti numið allt
að hálfri annarri milljón króna. Er þá miðað við að allir þingflokkar muni
eiga fulltrúa í sendinefnd íslands á þinginu, eins og venja hefur verið.
Þingflokkarnir eru nú sex í stað fjögurra áður.
Samkvæmt upplýsingum, sem enn fengið upplýsingar þing-
Morgunblaðið fékk í gær í utan-
ríkisráðuneytinu, hafa þing-
flokkarnir ekki enn tilkynnt um
óskir sínar í þessu efni. Éngin
lög gilda um sendinefnd íslands
á þing SÞ né heldur reglugerð,
það er á valdi utanríkisráðherra
hverju sinni hversu margir full-
trúar sækja þingið, að sögn
Þorsteins Ingólfssonar, sendi-
fulltrúa. „Venjan hefur verið að
þingflokkarnir sendi tvo hópa,
sem hvor um sig situr þingið í
þrjár vikur, eða sex vikur í allt,“
sagði Þorsteinn. „Við höfum ekki
flokksformannanna um hvaða
hátt þingmenn vilja hafa á —
væntanlega stafar drátturinn
m.a. vegna þess, að nú vilja
menn reyna að spara eins og
frekast er unnt á öllum sviðum.
Við vitum t.d. ekki enn hvort
þingflokkarnir munu allir eiga
fulltrúa eða hvort skiptingin
verður eitthvað meiri en venja er
til.“
Ríkissjóður greiðir flugfar-
gjald fulltrúanna og einnig dag-
peninga fyrir þá daga sem full-
trúarnir dvelja í New York. Far-
gjald þangað og heim aftur kost-
ar nú kr. 18.525 og mun sú tala
áttfaldast eða tólffaldast eftir
því hvort fulltrúarnir verða fjór-
ir eða sex og er þá miðað við að
tveir hópar fari á þingið. Dag-
peningar í New York eru nú
3.818 krónur og sú upphæð yrði
samanlagt kr. 641.440 fyrir fjóra
þingmenn í tvisvar sinnum þrjár
vikur en 962.161 fyrir sex þing-
menn í tvisvar sinnum þrjár vik-
ur.
Gert er ráð fyrir að auk fasta-
fulltrúanna í New York, sem eru
þrír á sínum föstu mánaðarlaun-
um þar, fari þrír embættismenn
úr utanríkisráðuneytinu til New
York vegna þingsins, auk utan-
ríkisráðherra. Samkvæmt upp-
lýsingum, sem Mbl. fékk í ráðu-
neytinu í gær, má reikna með að
samtals muni þeir fjórir fá
greidda dagpeninga í hámark 56
daga, eða liðlega 213 þúsund
krónur. Þannig reiknast til, að
ferð embættismannanna og full-
trúa þingflokkanna sex muni
kosta tæplega 1,5 milljónir
króna en ferð embættismanna
og fulltrúa fjögurra þingflokka
tæplega 1,1 milljón króna. Að
auki gæti komið til aukinn
kostnaður vegna þingfarar-
kaups, því venjan er að þing-
flokkarnir tilnefni menn úr sín-
um röðum til að sitja þingið og
þarf þá oft að kalla inn vara-
þingmenn, sem einnig þarf að
greiða laun.