Morgunblaðið - 16.11.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
7
Alúðarþakkir
fyrir þá vinsemd, sem mér var sýnd á 70 ára afmœli
mínu. Sérstakar þakkir færi ég Kvenfélagasambandi
íslands og félagskonum þess um land allt, sem heibrubu
mig meb samsœti og stórgjöfum.
Sigríður Thoríacius.
I snjó
og sól
Austurríki
Skíðaferðir
til Austurríkis
Lech Am Arlberg
7 frábær skíðasvæði, Lech, Oberlech, Ziirs, Zufí,
Stuben, St. Anton ojí St. Christop.
Sérstök jólaferð 20. desember.
Brottfarardagar: 22. janúar, 5. og 19. febrúar og 4.
mars. Verð frá kr. 18.030.
Austurstræti 17, sími 26611.
Akureyri: Hafnarstræti 98, sími 22911.
Sterkur
stóll
kostar ekki
mjög mikið
Viö erum meö ótal geröir
af allskonar hægindastólum
bæöi í áklæöi og leöri
Hagsýnn velur það besta
„Borgaralegt
lýðræði
viss tegund
kúgunar“
„Afnám borgaralegs lýöræöis
í Alþýðubandalaginu“
„Nú eru á döfinni í Alþýðubandalaginu tillögur um að
breyta skipulagi flokksins. Kjarni þessara skipulagsbreyt-
inga miðar einmitt að því að efla raunverulegt lýðræði í
flokknum og skeröa (og vonandi afnema) hiö borgara-
lega lýðræði meirihlutavaldsins." Þetta eru eigin orð
frammámanns í Alþýöubandalaginu, Ásmundar Ásmunds-
sonar, í grein í blaðinu „Kópavogi", sem Alþýðubandalagið
gefur þar út.
Asmundur Ásmundsson,
einn af yngri forystu-
mönnum Alþýðubandalags
og fyrrum formaður mið-
nefndar Samtaka her-
stöðvaandstæðinga, gerir
því skóna í blaðagrein í
flokksblaði Alþýðubanda-
lagsins í Kópavogi, að
stefna beri að því að af-
nema „lýðræði meirihluta-
valdsins" enda sé það
„viss tegund kúgunar"!
Orðrétt segir hann m.a.:
„Meirihlutavaldið er
fólgið í því að geta gengið
að trausti meirihluta hreyf-
ingarinnar burtséð frá því
hvort skoðanir eða frum-
kvæði eru traustsins verð-
ar. Þetta vald, sem jafnan
er bundið við eina eða fáar
persónur, gerir það að
verkum, sé því misbeitt, að
ýmsar góðar skoðanir njóta
aldrei sannmælis... í raun
er þetta borgaralega lýd-
rædi meirihlutaralxinn
ákreðin tegund kúgunar.
t>að gerir a.m.k. mismiklar
kröfur til einstaklinganna í
hreyfingunni við öfiun fylg-
is við skoðanir sínar og því
vart samboðið sósíalistum
eða jafnaðarraönnum."
Hér þarf ekki frekari
vitna við. Þrátt fyrir full-
yrðingar um, að Alþýðu-
bandalagið standi vörð um
— og vilji starfa innan —
borgaralegs lýðræðis, eins
og það gerist á Vesturlönd-
um, er grunnt á hinu gagn-
stæða, enda liggja rætur
Alþýðubandalagsins í Sósí-
alistaflokki og Kommún-
istaflokki, sem aðild átti á
sinni tíð að Komintern, al-
þjóðasambandi kommún-
ista, með lögheimili í
Moskvu.
Asmundur Ásmundsson
er hreinskilnari en aðrir
forystumenn Alþýðubanda-
lagsins, en orð hans sýna
ótvírætt, að fiokkurinn
stefnir í raun að afnámi
„borgaralegs lýðræðis
meirihlutavaldsins", eins
og hann kemst að orði, og
er í hans munni „viss teg-
und kúgunar". Breytingar
á byggingu Alþýðubanda-
lagsins stefni í þá veru.
Þessi orð ÁÁ hefðu
sæmt sér vel í Rauðu
stjörnunni og öðrum álíka
„frelsisbókmenntum"
Kremlverja.
„Breiðfylking
verkafólks,
án verkafólks“
Alþýðublaðið kemst svo
að orði í forystugrein í gær:
„Og nú er fjórði fiokkur-
inn kominn af stað í þenn-
an skilgreiningarleik; Al-
þýðubandalagið heldur
landsfund sinn um næstu
helgi. Og hvað skyldi A>-
þýðubandalagið nefna sig á
því herrans ári 1983? Jú,
nú heldur Alþýðubandalag-
ið landsfund sinn undir
nafninu hin „alþýðlega
breiðfylking" — hvorki
meira né minna.
Kinu sinni var það
Kommúnistaflokkurinn,
svo Sameiningarfiokkur al-
þýðu, Sósíalistaflokkurinn,
síðan Alþýðubandalagið og
nú er það „alþýðlega
breiðfylkingin". Nafngift-
irnar hafa aldrei staðið í
kommunum og hálfkomm-
unum. I*eir hafa reglulega
gert andlitslyftingu, sem
hefur verið fólgin í þvi
einu, að skipta um nafn.
■ Stefnubreyting eða
áherslubreyting hafa engar
orðið í raun þrátt fyrir ný
slagorð, ný nöfn. Sömu
persónurnar hafa staðið að
baki. Grundvöllurinn verið
óbreyttur.
Auðvitað kemur Alþýðu-
bandalagið aldrei til með
að verða nein breiðfylking
íslenskrar alþýðu. Til þess
eru kreddumar of miklar,
þröngsýnin og afturhaldið
of rótfast, staóa gömlu til-
beiðenda Kremiarvaldsins
of sterk, og í raun enginn
áhugi til opnunar hins
staðnaða og þrönga flokks-
kerfis og til að hnekkja for-
ingjaalræðinu.
Það hljómar líka eins og
verstu öfugmæli þegar .41-
þýðubandalagið á hátíða-
stundum vill kenna sig við
verkalýðinn, því á sama
tíma vita allir að gáfy-
mannafélagið eða mennta-
mannaarmurinn í Alþýðu-
bandalaginu hefur mark-
visst hrifsað til sín allar
helstu lykilstöður í Alþýðu-
bandalaginu á kostnað
þeirra Alþýðubandalags-
manna, sem starfað hafa
innan verkalýðshreyfingar-
I innar.
Hver er til að mynda
staða Guðmundar J. Guð-
mundssonar innan Alþýðu-
bandalagsins í dag? Ein-
hver skyldi nú ætla að
formanni Dagsbrúnar og
Verkamannasambandsins
væri ætlaður heiðurssess á
landsfundi hinnar „alþýð-
legu breiðfylkingar". Nei,
það er öðra nær. Formaður
Verkamannasambandsins
hlaut kosningu til lands-
fundarins á hlutkesti.
Menntamennirnir i Al-
þýðubandalaginu gerðu allt
til þess að koma í veg fyrir,
að þessi forystumaður í
verkalýðshreyfingunni
fengi að sitja landsfund
hinnar „alþýðlegu breið-
fvlkingar", og tókst það
næstum. Og fieiri Alþýðu-
bandalagsmenn úr verka-
lýðsarmi flokksins hlutu
svipaða meðferð og Guð-
mundur J. Guðmundsson.
En kannski er hugmynd
slagorðasmiðanna á Þjóð-
vilja og í gáfumannafélag-
inu, að halda landsfund
hinnar „alþýðlegu breið-
fylkingar", án þess að fulÞ
trúar alþýðunnar og verka-
fólks verði þar staddir."
Pallborösumræður — Pallborðsumræður — Pallborðsumræður — Pallborðsumræður
UPPSTOKKUN
eða óbreytt ástand?
INGVI HRAFN JÓNSSON, fréttamaður stýrir pallborðsumræðum á almennum félags-
fundi hjá Verzlunarráði íslands, þriðjudaginn 22. nóvember nk., klukkan 16:00 til
18:00. Ýmsar breytingar eru í undirbúningi í efnahagslífinu og veröur fjallaö um þær á
fundinum undir heitinu: Uppstokkun eöa óbreytt ástand?
ÞÁTTTAKENDUR í umræðunum verða þeir Davíð Ólafsson, Seðlabankastjóri, —
endurskoöun gjaldeyris- og viðskiptamála. — Geir H. Haarde, aðstoöarmaður fjár-
málaráðherra, — sparnaður í ríkisrekstri og sala nkisfyrirtækja. — Ólafur Nilsson,
endurskoðandi, — breytingar á skattalögum og fjárfestingar í atvinnulifinu. — Þor-
steinn Pálsson, alþingismaður, — endurskoöun laga um banka og sparisjóði.
FUNDURINN veröur haldinn í Lækjarhvammi, Hótel Sögu, og hefst
hann meö stuttu ávarpi Ragnars S. Halldórssonar, formanns VI.
Þátttaka tilkynnist til skritstofu VÍ, síma 83088, fyrir 21. nóvember.
4
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS