Morgunblaðið - 16.11.1983, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
17
Þett* sigurstranglega lið, en drengirnir eiga heima í Kópavogi, hélt þar
hlutaveltu til ágóða fyrir Geðverndarfélagið og varð ágóðinn 700 kr.
Drengirnir heita: Hjörvar Örn Brynjólfsson, Róbert Freyr Kolbeins,
Haraldur Vignir Sveinbjörnsson, Atli Már Daðason og Arnar Helgi
Lárusson.
Á hlutaveltu sem þessir drengir efndu til í Árbæjarhverfi söfnuðu þeir
700 kr. til Rauða kross íslands. Þeir heita Jón Emil Claessen Guð-
brandsson, Sigurður Freyr Guðbrandsson, Sigurður Þór Jóhannsson og
Björn Harðarsnn
Þessir drengir efndu til hlutaveltu í Spóahólum 6 Breiðholtshverfi til
ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra og náðu að safna 690 kr.
Þeir heita Guðjón Valberg, Arnar Árnason, Snorri Halldórsson og
Snorri Valberg.
Þessir strákar efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfélag vangef-
inna í Giljaseli 12 Breiðholtshverfi. Þeir söfnuðu alls um 870 kr.
Strákarnir heita Kjartan Þór Þórðarson, Þorkell Grétar Guðbrandsson
og Ásgeir Kolbeinsson.
September 1982 til september 1983:
Fasteignaverð lækkaði
um tæplega fjórðung
VERÐ fasteigna reiknað á föstu verðlagi hefur lækkað um tæplega fjórðung
frá september í fyrra til saraa tíma í ár. Á þessu tímabili hækkaði fasteigna-
verð um tæplega 50%, en lánskjaravísitala um 95%. Þessar upplýsingar kom
fram í fréttabréfi Fasteignamats ríkisins.
„Á stærsta markaðssvæði
landsins, höfuðborgarsvæðinu,
einkenndist markaðurinn af tak:
mörkuðu framboði lítilla íbúða
auk almennrar verðlækkunar.
Verð á þeim hefur því fallið minna
en á stærri íbúðum," segir enn-
fremur í fréttabréfinu.
Á þriðja ársfjórðungi í ár, júlí
til september, hafði verð á hverj-
um fermetra í tveggja og þriggja
herbergja íbúðum hækkað frá
fyrra ári um 48—52% eftir stærð.
Fermetraverð stærri íbúða hækk-
aði um 38—42% á sama tíma.
„Þetta hefur í för með sér, að
litlar íbúðir eru nú hlutfallslega
nokkru dýrari en hinar stærri. í
sumar og haust var verð á fer-
metra í tveggja herbergja íbúð á
höfuðborgarsvæðinu til jafnaðar
16% hærra en verð á fjögurra her-
bergja íbúð. Jafnframt eru verri
greiðslukjör á minni íbúðunum,"
segir í fréttabréfinu.
I ágúst kostaði tveggja her-
bergja íbúð 950 þúsund krónur.
Útborgun var 725 þúsund krónur,
eða 76,3%. Fjögurra herbergja
’'búð kostaði þá 1.390 þúsund krón-
ur og útborgunin var um 1.048
þúsund krónur, eða 75%.
SUMIR VERSLA DÝRT -
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
Notíð
tækifærið!
Folaldakjöts
M7"l Ci Þessa viku getur
▼ MMm.CC enginn sleppt því að
fá sér nýslátrað folaldakjöt í matinn
Á KYNNINGAR
VERÐI!
Buff
File
Mörbráð
Beinlausir fuglar
Mínútusteik
Innra læri
Vöóvar í 1 steik
Kryddlegið buff
Gúllas
Framhryggir
T.bone
Hakk
Baconbauti
Karbonaði
Hamborgarar —
Nýbakað
hamborgarabrauð
fyigir
Reykt folaldakjöt
Saltað folaldakjöt
.00
pr-kg.
VÖRUKYNNING:
^ýtt AÐEINS
Folaldahakk
í pottrétt
Urbeinað nýreykt
Foldalakjöt
AÐEINSÍW.OO
Beinlaus biti!
pr* kg.
AUSTURSTRÆT117 STARMÝRI 2