Morgunblaðið - 16.11.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
27
Skúli Alexand-
ersson (Abl.)
taldi ratsjárstöð
í Gufuskálum á
Snæfellsnesi
vera góða stað-
setningarstöð,
en eigi að síður
hernaðarmann-
virki, þó hún
þjónaði fiskiskipaflota og hefði ís-
lenzkt starfslið.
Mikilvæg í fridi,
mikilvægari í ófriði
Geir Hallgrímsson, utanríkisráð-
herra, taldi umferðar- og öryggis-
eftirlit ratsjárstöðva mikilvægt í
friði. Eftirlitsgildi þeirra er þó
enn meira í ófriði. En vonandi
þurfum ekki að hugsa til ófriðar í
Norðurálfu. Ratsjárvernd á ís-
landi, í höndum íslendinga og
fyrir íslendinga, er mikilvæg. Við-
leitnin til að koma í veg fyrir ófrið
skiptir þó ekki síður máli. Ég er
sammála Ingvari, sagði Geir efn-
islega, að við eigum að fara með
gát, taka ákvörðun að vel athug-
uðu máli. Hér yrði um það að ræða
að íslendingar tækju við störfum,
sem Bandaríkjamenn gegna nú,
svo í raun þýddi breytingin, ef til
hennar kæmi, að verið væri að
draga úr „umsvifum Bandaríkja-
manna", eins um sumir orða það.
Loran-stöðin á Snæfellsnesi er
undir stjórn Pósts og síma. Sami
háttur yrði hafður á um nýjar
ratsjárstöðvar, ef til þeirra kæmi.
400—500 Bandaríkja-
menn störfuðu í eldri
ratsjárstöðvum
Tómas Árna-
son (F) sagði
fjórar ratsjár-
stöðvar hafa
starfað hér á
vegum varnar-
liðsins: í Sand-
gerði, á Vest-
fjörðum, á
Langanesi og á
Stokksnesi. Þar hefðu starfað
samtals milli 400 og 500 Banda-
ríkjamenn. Tvær stöðvanna hefðu
verið lagðar niður, tvær störfuðu
enn, með 230 manna starfsliði frá
varnarliðinu. Ef sú breyting yrði
gerð að fjórar ratsjárstöðvar, bún-
ar fullkomnustu tækjum, leystu
þær tvær af hólmi, sem fyrir eru,
myndu 10—15 íslendingar starfa í
hverri hinna nýju stöðva, en 230
Bandaríkjamenn hverfa af þess-
um starfsvettvangi. Þetta getur
naumast kallast að auka umsvif
Bandaríkj amanna.
Leitin að samtákni
fyrir landsfund
Alþýðubandalags
Árni Gunnarsson
(A) spurði m.a.:
Hversvegna
þessi skyndilegi
áhugi Alþýðu-
bandalags á
ratsjárstöðvum;
hversvegna
þetta algera
áhugaleysi með-
an það átti sæti í ríkisstjórn til
skamms tíma? Er máske verið að
búa til „sameiningartákn" fyrir
landsfund Alþýðubandalagsins,
sem framundan er?
Halda alþýðubandalagsmenn að
ratsjárstöðvar séu okkur hættu-
legri en t.d. kjarnakafbátar, sem
sigla á fiskislóðum, berandi
geislavirk tæki? Ekki efna þeir til
mótmæla af því tilefni.
Siglt inn á
kreppuslóðir
Stefán Bene-
diktsson (BJ)
taldi það sýna
skort á ábyrgð,
þegar siglt væri
ínn í kreppu, að
veifa framan í
fólk, sem á í
vændum at-
vinnuleysi,
framkvæmdum á borð við þessar
ratsjárstöðvar. Hann taldi undrun
sæta að utanríkisráðherra hefði í
máli sínu neitað að hugsa um
mögulegt styrjaldarástand.
Hvenær varð
sjónauki ögrun?
”^| Ólafur Þ. Þórð-
^ , arson (F) spurði
riær ^glMtuöu ís-
**SkaUrÆt landhelgi sinni,
me5 þeim
tæknibúnaði er bezt hentar örygg-
is- og eftirlitsgæzlu? Síðan hven-
ær höfum við glatað rétti til að
koma upp í landi okkar slysavörn-
um af því tagi sem her er um
rætt? Og síðan hvenær var sjón-
auki ögrun, en ratsjárstöð er í
raun sjónauki nútímatækni?
Aldrei rætt í
fyrri ríkisstjórn
Svavar Gestsson (Abl.) fullyrti að
ratsjárstöðvar hefðu aldrei verið
ræddar í fyrri ríkisstjórn. Mál
• þetta fjallaði um aukinn vigbúnað
Bandaríkjamanna hér á landi. Það
sem til þarf til að auka eftirlit og
öryggi á sjó og í lofti eigum við
sjálfir að kosta og koma upp.
Steingrímur Sigfússon (Abl.)
sagði vígtól vera vígtól, hvað nafni
sem þau væru nefnd.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
(Kvl.) taldi íhugunarefni að utan-
ríkisráðherra gæti ekki hugsað sér
þann möguleika, að ófriður kæmi
til í Norðurálfu.
Skyldur sjálf-
stæðrar þjóðar
Friðrik Sophus-
son (S) taldi
sjálfstæða þjóð
þurfa að tryggja
öryggishags-
muni sína og
fylgjast grannt
með, hvað gerð-
ist í loft- og
landhelgi henn-
ar. Hann spurði Skúla Alexand-
erson, hvort Loran-stöðin á Snæ-
fellsnesi þjónaði ekki öryggis-
hagsmunum sjómanna. Við verð-
um að vita, hvað er gerast um-
hverfis okkur; það þjónar engum
tilgangi að stinga höfði í sand eins
og strúturinn.
Geir Hallgrímsson, utanríkis-
ráðherra, taldi það horfa til góðs,
ef talsmenn Bandalags jafnaðar-
manna og Kvennalista vildu nú
gera sér grein fyrir styrjaldar-
hættu á norðurslóðum, en ekki
síður, ef þeir glöggvuðu sig á, hvað
tryggt hefði frið í okkar heims-
hluta og hvað fyrirbyggt gæti
ófrið.
Ratsjárstöðin
í Keflavík
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, kvað upplýsinga
vant til að taka ákvörðun í þessu
máli. Hann minnti á að ratsjár-
stöðin í Keflavík hefði hlutverki
að gegna vegna íslenzkra flugvéla,
til og frá Keflavíkurflugvetli, og
flugs inn á Reykjavíkurflugvöll.
Vill Alþýðubandalagið afþakka
þessa þjónustu?
Skúli Alexanderson (Abl.) taldi
löngu fyrir séð að Gufuskálastöðin
yrði lögð niður. Ef hún hefði ekki
verið til staðar hefðum við leyst
þetta mál með öðrum hætti.
ríkis og sveitarfélaga skuli
reiknast sem ákveðinn hundr-
aðshluti af fasteignamati fast-
eigna, þar með talið mat fast-
eigna til eignar vegna álagn-
ingar eignarskatts, skal lækka
gjaldstofn álagningarinnar um
20% við álagningu 1984 fyrir |
gjöld, sem reiknast árlega, en
frá og með 1. des. 1983 að því er
önnur gjöld varðar. Jafnframt
er óheimilt að hækka viðkom-
andi álagningarprósentur frá
því sem í gildi var hinn 25. maí
1983.
3. Við 2. gr. bætist nú mgr. sem
verði 3. mgr. og orðist svo:
Frá og með gildistökudegi
laga þessara og þar til öðruvísi
um semst skulu lágmarksheild-
arlaun vera kr. 15.000 á mánuði
fyrir fulla dagvinnu og tilsvar-
andi fyrir hlutastörf. Til heild-
arlauna teljast í þessu sam-
bandi taxtalaun að viðbættum
hvers kyns álögum, en án
orlofs."
★ ★ Jóhanna Sigurðardóttir (A),
flytur frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum um Lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins. Markmið
breytinga, sem frumvarpið felur í
sér, „er að við fráfall sjóðfélaga
gangi lífeyrisréttindi til barna
hans undir sérstökum kringum-
stæðum," þ.e. þegar ekkjur, ekklar
eða einstæð foreldri hafa átt í hlut
og börn að hluta eða öllu leyti ver-
ið á þeirra framfæri. í annan stað
„ef sjóðfélagi er einstætt foreldri,
sem láti eftir sig maka, sem sjóð-
félagi hefur fyrir andíátið slitið
samvistir við, skuli makalífeyrir-
inn við sambærilegar aðstæður
skiptast að jöfnu milli makans og
barnanna".
★ ★ Páll Pétursson og Guðmundur
Bjarnason, þingmenn Framsóknar-
flokks, spyrja iðnaðarráðherra: 1)
Hvert er starfssvið samstarfs-
nefndar um iðnráðgjöf í lands-
hlutum og að hvaða verkefnum
hefur hún unnið? 2) Hverjir sitja í
nefndinni og hverjir eru starfs-
menn hennar? Hver er kostnaður
við störf nefndarinnar?
★ ★ Hjörleifur Guttormsson o.fl.
þingmenn Alþýðubandalags flytja
tillögu um fiskeldi og rannsóknir á
klaki og eldi sjávar- og vatnadýra.
Tillagan felur ríkisstjórninni að
undirbúa heildarlöggjöf um fisk-
eldi, þar sem m.a. verði ákveðin
yfirstjórn þessara mála og stuðn-
ingur hins opinbera; að koma upp
tilraunaaðstöðu vegna fiskeldis og
klaks á vegum Hafrannsókna-
stofnunar; að undirbúa fjármögn-
un þessa; að kanna almennar for-
sendur fyrir fiskeldi hérlendis; að
meta gildi jarðvarma og aðrar
staðbundnar forsendur fyrir fisk-
eldi o.fl.
★ ★ Magnús H. Magnússon og
Árni Gunnarsson, þingmenn Al-
þýðuflokks, flytja frumvarp til
laga um breytingu á lögum um
kosningar til Alþingis, sem felur
m.a. í sér að „kjósendur viðkom-
andi framboðslista, og þeir einir,
ráði alfarið röðun listans".
Vinnu við mótun
ferðamálastefnu
verður haldið áfram
og hún framkvæmd
— sagði Matthías Bjarnason samgöngu-
ráðherra á Ferðamálaráðstefnu 1983
Borgarnesi, 15. nóvember.
MATTHÍAS Bjarnason, samgöngu-
rádherra, lýsti því yfir á Ferðamáia-
ráðstefnu 1983, sem haldin var á
Hótel Borgarnesi um helgina, að
hann myndi beita sér fyrir því að
vinnu við mótun ferðamálastefnu
yrði haldið áfram og hún fram-
kvæmd í framhaldi af þeim tillögum
um ferðamálastefnu sem þegar
liggja fyrir.
Samgönguráðherra sagði í
ávarpi sínu á ráðstefnunni frá því
helsta, sem unnið hefði verið að á
sviði ferðamála í samgönguráðu-
neytinu síðan hann kom í ráðu-
neytið fyrir um hálfu ári. Gat
hann um tvær nefndir sem hann
hefði skipað. Önnur undir forystu
Friðjóns Þórðarsonar alþingis-
manns til að endurskoða ýmis lög
um skipulag ferðamála. Hin er
undir forystu Lúðvíks Hjálmtýs-
sonar ferðamálastjóra til að
endurskoða 20 ára gömul lög um
veitinga- og gististaðahald og
fleira.
Auk samgönguráðherra flutti
Gísli Kjartansson, oddviti Borg-
arneshrepps, ávarp við upphaf
ferðamálaráðstefnunnar. Sagði
hann frá uppbyggingu í Borgar-
nesi á sviði ferðamála síðustu ár
og þeim miklu breytingum sem
Borgarfjarðarbrúin hefði haft í
för með sér fyrir ferðamál í Borg-
arnesi. í skýrslu Lúðvíks
Hjálmtýssonar ferðamálastjóra
um störf Ferðamálaráðs á árinu
1982 kom fram að það ár komu
samtals rúmlega 82 þúsund er-
lendir ferðamenn til landsins og
hafði þeim fjölgað um 4 þúsund
eða 5% frá árinu áður.
Gjaldeyristekjur vegna erlendra
ferðamanna voru 655,6 milljónir
króna árið 1982, sem er 86 milljón-
um króna meiri framreiknaðar"
gjaldeyristekjur en árið á undan,
sem er 15,1% aukning. Lúðvík gat
þess að þetta yrði síðasta árs-
skýrsla Ferðamálaráðs, sem hann
hefði hönd í bagga með útgáfu á.
Samkvæmt lögum um skipulag
ferðamála er ferðamálastjóri
skipaður af ráðherra til 4 ára í
senn og samkvæmt því mun Lúð-
vík láta af því starfi 30. september
á næsta ári en því starfi hefur
hann gegnt í tæpa tvo áratugi.
Ferðamálaráðstefnuna sóttu
nokkuð á annað hundrað manns
fyrri daginn og hátt í hundrað
þann seinni. Var þetta að sögn
fjölmennasta ferðamálaráðstefn-
an sem haldin hefur verið og þótti
hún takast mjög vel. Fyrri daginn
var auk ávarpa og skýrsluflutn-
ings -erindaflutningur en seinni
dagurinn var nokkru helgaður
ferðamálum á Vesturlandi en að
lokum voru almennar umræður og
afgreiðsla ályktana. Meðal álykt-
ana sem samþykktar voru var
ályktun þar sem þátttakendur á
ferðamálaráðstefnunni lýsa
ánægju sinni með þá viðurkenn-
ingu sem ferðaþjónustan hefði nú
hlotið sem atvinnugrein í landinu
og var þar vísað til yfirlýsingar
samgönguráðherra á ráðstefn-
unni. Hvatt var til sameiginlegs
átaks allra aðila ferðaþjónustunn-
ar um að efla ferðir íslendinga um
eigið land, vakin athygli á þeim
vaxtarmöguleikum sem ferðaþjón-
ustan veitir til aukinna atvinnum-
öguleika í framtíðinni og skorað á
fræðsluyfirvöld að efna til fræðslu
í skólum landsins um ferðaþjón-
ustu sem atvinnugrein, svo nokkur
atriði séu nefnd úr ályktunum
ráðstefnunnar.
- HBj.
Bæ, Höfðaströnd:
Þíðviðri hvern dag
og snjó tekur upp
Bæ, Mofrta-strond. 15. nóvember.
NÚ ERU Skagfirðingar ánægöir því
um lengri tíma hefur veðrátta verið
eins og á sumardegi. Þó nokkrar
frostnætur hafi komió hefur þíðviðri
verið hvern dag og snjó, sem áður
var töluverður, hefur tekið upp svo
aðeins er snjór í skurðum og giljum.
ís er að taka af Höfðavatni. Það
má nú segja að t.d. í Fljótum og
úthéraði hafi næstum verið hita-
veður suma daga og orðið jafnvel
meiri munur þar en í framhéraði.
Sauðfé sést víða úti og hross eru í
haustholdum. Fram að þessu hef-
ur slátrun stórgripa staðið yfir á
Sauðárkróki. Óstillt hefur verið til
sjávar á djúpmiðum, en Skaga-
fjörðurinn virðist vera átulaus og
þar með fisklaus. Aðeins togarar
hafa verið að fiska og þó ekki sam-
fleytt og hefur atvinna í frystihús-
um verið stopul. Verið er að undir-
búa skelfiskveiði frá Hofsósi.
— Bjöm
m nl il
£ Gódan daginn!
OPIÐ TIL SJÖ í KVÖLD Vöruniarkaðurinn hl. eioistorgi »
mánudaga — þriðjudaga - — miðvikudaga