Morgunblaðið - 16.11.1983, Síða 30

Morgunblaðið - 16.11.1983, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983 HeimsmeisUrarnir, Denise Weavers og David Sycamore. Danskennarasambandið 20 ára: Heimsmeist- arar í dansi á Broadway Nú eru liðin tuttugu ár frá því að Danskennarasamband íslands var stofnað, en Hermann Ragnar Stef- ánsson hafði forgöngu um stofnun þess á sínum tíma. í tilefni afmælis- ins koma hingað til lands Bretarnir Denise Weavers og David Syca- more, en þau eru heimsmeisUrar í tíu dönsum, þ.e. svokölluðum ballroom-dönsum og suður-amer- ískum-dönsum. Þau koma fram á þremur sýn- ingum í veitingahúsinu Broadway dagana 18.,19., og 20. þessa mán- aðar og verður sýningin þann 19. að degi til þannig að yngstu dans- unnendurnir fái tækifæri til að berja heimsmeistarana augum. Á sýningunum verða flestir dans- skólarnir með skemmtiatriði, en einnig verður danstónlist stjórnað úr diskótekinu. Út er komin hjá Máli og menn- ingu ný íslensk barnabók eftir Sig- ríði Eyþórsdóttur, sem heitir LENA- SÓL. Sigríður hefur áður gefið út bækur handa börnum auk þess sem hún annast barnatíma í Ríkisútvarp- inu. f frétt frá útgefanda segir m.a. um efni sögunnar: „Sagan gerist daginn sem Lena-Sól fer í skólann í fyrsta sinn. Hún er nýflutt í bæ- inn með mömmu sinni og þekkir engan ennþá, þess vegna er það henni mikið tilhlökkunarefni að byrja í skólanum. En margt fer öðruvísi en ætlað er og dagurinn verður afdrifaríkari en nokkurn gat grunað." Bókin er 40 bls. Teikningar í bókinni eru eftir Önnu Cynthiu Leplar. Högun og filmuvinnu ann- aðist Repró, Formprent setti bók- ina og prentaði en Bókfell batt hana. Duftið breytti henni í svín Hér sjáiði Fassbinder heitinn eins og hann var orðinn undir það síðasta. Veróníka er mun hressari, ekki satt? Kvíkmyndír Olafur M. Jóhannesson Nafn á frummáli: Die Sehnsucht Der Veronika Voss Kvikmyndun: Xaver Schwarzenberger. Tónlist: Peer Raben. Klipping: Juliane Lorenz. Leikstjóri: Rainer Werner Fassbinder. Sýningarstaður: Kegnboginn. Regnboginn við Hverfisgötu heiðrar þessa stundina minn- ingu hins þýskættaða kvik- myndagerðarmanns Rainer Werner Fassbinder með sýningu á lokaverki meistarans: Die Sehnsucht der Veronika Voss. Fyrir þá sem ekki þekkja til er Rainer Werner Fassbinder ein- hver afkastamesti leikstjóri Þjóðverja og sá sem er hvað þekktastur af kvikmynda- gerðarmönnum þeirrar bylgju í kvikmyndasögunni sem kölluð er „Þýska nýbylgjan". Hvort sú bylgja er nú hnigin skal ósagt látið en þeir félagar Fassbinder, Schlöndorff og Herzog hafa sannarlega borið hana til himins og ég hef þá trú að valkyrjurnar Margarethe von Trotta og Helma Sanders-Brahms muni ekki detta af brimbrettinu. Ég bara vona að svo sé því þýskir (v-þ-'skir) kvikmyndaleikstjórar hafa horfst í augu við veruleik- ann af meiri einurð en starfs- bræður þeirra víðast hvar ann- ars staðar. Ekki svo að skilja að kvikmyndir þýsku nýbylgjuleik- stjóranna lúti einvörðungu lögmálum hins raunsæja frá- sagnarmáta, því þar á bæ eru menn oft tilfinningasamir og skáldlegir í hæsta máta, á þetta kannski einkum við um Werner Herzog sem reynir gjarnan að umbylta skynjun áhorfandans og fá hann til að upplifa áður óþekkt sjónhorn, til dæmis sjón- horn hins hálfvillta Kaspar Hauser eða hinnar trylltu hetju Woyszek í samnefndri sögu Búchners. Fassbinder leitast einnig við að krukka í vanahugsun áhorf- andans en með nokkuð öðru móti en Herzog. Það er einsog hann vilji spanna á filmu þann veru- leika sem við blasir í V-Þýska- landi — ekki bara þröngt sjón- horn utangarðsmannsins, heldur hið víða sjónsvið sem aðeins verður tjáð í þúsund kvikmynd- um. Því miður gætti Fassbinder ekki meðalhófs í eigin lífsmáta og því „brann hann upp“ ef svo má segja og lést fyrir aldur fram. f|,Die Sehnsucht Der Ver- onika Voss“ finnst mér hann ein- mitt lýsa þeim eldi sem brenndi lífsþráð hans til ösku. Aðalsögu- hetjan, Veronika Voss, er fræg kvikmyndastjarna. Hún er þó á hraðri niðurleið vegna ofnotkun- ar á ópíum. Er nánast um stjörnuhrap að ræða því hún lætur sér nægja að koma andar- tak fram í kvikmynd — svona til að gleymast ekki alveg. En þrátt fyrir að þessi kvikmynd gæti þannig hugsanlega lýst baráttu Fassbinder sjálfs við hið hvíta duft djöfulsins, þá vill svo til að söguþráðinn spinnur hann út frá staðreyndum í lífi leikkonunnar Sybille Schmitz sem var mjög vinsæl á fimmta áratugnum. Leikkona þessi framdi sjálfs- morð og getur Fassbinder sér þess til að hún hafi verið fangi læknis nokkurs sem rekur einka- hæli og falsar þar lyfseðla í sam- vinnu við heilbrigðisfulltrúa og bandarískan hermann. Annars fer Fassbinder frjáls- lega með heimildir og einbeitir sér mjög að þjáningum þessa ógæfusama listamanns. Hann beitir mjög andstæðum ljóss og skugga til að magna upp óhugn- aðinn sem umlykur Veroniku. Ekki dregur það úr áhrifunum að myndin er ekki í lit og kvik- myndataka Xaver Schwarzen- berger með slíkum ágætum að sjónhornið kemur sífellt á óvart. Hinsvegar verður smáspennufall er söguþráðurinn tekur á sig mynd hefðbundinnar glæpasögu þar sem læknirinn er í hlutverki skúrksins og Veróníka í hlut- verki hins varnarlausa sakleys- ingjans. Það er ekki hægt að stilla upp í verki sem þessu myndastyttum sem annars veg- ar eru málaðar svartar og eru hinsvegar hvítar sem marmari. Þó má ekki gleyma því að Ver- óníka Voss er hvergi góða litla stúlkan sem við sjáum gjarnan í amerískum hasarmyndum. Hún er í raun sterkur persónuleiki sem hið hvíta duft hefir svín- beygt og gert skepnu líkasta. Hvílíkt vald hafa ekki þeir menn sem ráða yfir slíkum efnum? Guð gefi að börn okkar lendi aldrei í klóm þeirra, að þögnin nái ekki að hylja verk þeirra. Okkur ber að bregða við skjótt vakni hinn minnsti grunur um að hin hvíta hönd sé á ferli, ann- ars er aldrei að vita nema við horfumst í augu við Veróníku Voss, inná okkar eigin heimili. Hér gildir ekki lögmálið að hver sé sjálfum sér næstur. Rainer Werner Fassbinder virðist hafa skilið þá staðreynd er hann fest- ir síðasta meistaraverk sitt á filmu en því miður skildi hann það of seint. V andamálið úr sögunni? Undirritaður ritaði hér grein á dögunum í tilefni samals við fréttastjóra sjónvarpsins. En svo var mál með vexti að ég hugðist kynna í þættinum Á döfinni sýn- ingu sem ég kom fyrir í veitinga- húsinu Mensu. Fréttastjórinn vildi ekki birta tilkynningu um sýninguna á þeim forsendum að „ ... þeir vildu ekki prómótera veitingarekstur". I grein minni bendi ég á að leiksýningar sem sýndar eru á veitingahúsum njóti þeirrar auglýsingar sem þáttur- inn Á döfinni óneitanlega veitir. Og hægt sé að nefna fleiri dæmi er veiki röksemdafærslu frétta- stjórans. Ég ætla ekki frekar að fjalla um sjálfan mig í þessu samhengi en víkja að kjarna málsins sem er stefnuleysi þessa áhrifamesta fjölmiðils hvað varð- ar listkynningu almennt. Ég hef rætt þetta mál við myndlistarmenn og fundið að hér eru menn ekki á eitt sáttir. Gísli Sigurðsson ritstjóri Lesbókar, sem hefir einsog mönnum er kunnugt staðið prýðilega að kynningu myndlistar þau ár sem hann hefir setið við ritstjórn, var þannig ekki alveg sáttur við það sjónarmið er ég viðraði í grein minni. Heyrðist mér helst á Gísla að hann vildi að myndlistarkynn- ing sjónvarpsins markaðist af fáum viðurkenndum sýningarsöl- um á höfuðborgarsvæðinu en einnig að sýningar sem haldnar væru í menningarmiðstöðvum dreifbýlisins — einkum í félags- heimilum — nytu forgangs. Mér finnst tillaga Gísla Sigurðssonar athyglisverð að því leyti að þar er tekin afdráttarlaus afstaða til þess myndlistarefnis sem skal kynnt á skjánum. En spurningin er bara, hver á að dæma um hvar er sýnd alvörulist og hvar ekki. Persónulega er ég þeirrar skoð- unar að tilefni sýningarhaldsins skipti meira máli en sýningar- staðurinn og þess vegna mætti geta um verk sem hengd eru upp í biðskýlinu á Hlemmi. Annars held ég að ég hafi á takteinum tillögu, sem gæti brú- að bilið milli mín og Gísla í þessu efni. Hvernig væri að í stað þáttar- ins Á döfinni, sem líkist fremur safnþró en listkynningarþætti, og Gluggans, sem er fyrirmyndar- þáttur en nær aðeins að spanna örlítið svið listframleiðslunnar — kæmu fjórir stuttir listkynn- ingarþættir á viku? Þessir þættir tækju fyrir afmörkuð svið listar- innar, þannig fjallaði einn um myndlist, annar um leiklist og kvikmyndir, sá þriðji um bók- menntir og hinn fjórði um tónlist. Þessir þættir væru í höndum sér- fróðra manna líkt og leiklistar- framleiðsla sjónvarpsins er nú þegar, eða er ekki Hrafn Gunn- laugsson enn í hálfu starfi sem leiklistarráðunautur sjónvarps- ins? Ég veit ekki betur en við eig- um prýðilega færa myndlistar- fræðinga, aðra sem kunna að flokka bókmenntir, jafnvel kvikmyndafræðinga. Eigum við ekki að gefa alþjóð kost á að njóta leiðsagnar þessa fólks um huliösheima listarinnar? Þannig væri sérfræðingunum í sjálfsvald sett hvaða listsýningar þeir veldu til nánari skoðunar í þessum þáttum. Þar væri að sjálfsögðu um persónulegt val að ræða, val sem byggðist á smekk sérfræðingsins og þeirri þekkingu er hann hefði aflað sér á listsvið- inu. Klíkuskapur snertir alla list- kynningu og því verður að telja hann með líka. Menn hrökkva kannski við að heyra þetta orð nefnt en sannleikurinn er sá að í litlu samfélagi ræður kunn- ingsskapur miklu um veraldar- gengi. Þess vegna má ekki fá þessu fólki það vald uppí hendur að meina mönnum aðgang að list- kynningarþáttunum. Én það vald hefur fréttastjóri sjónvarpsins nú tekið sér einsog ég gat um í fyrri grein. í alvöru talað, líst ykkur ekki vel á þessa hugmynd? Hér gætu allir þeir, er fást við listiðkun í voru listelska landi, fengið að kynna framlag sitt á skjánum og sérfræðingar látnir um að kynna nánar það sem þeir teldu merkast í augnablikinu. Það skipti ckki máli hvort myndir héngju fyrir ofan kaffibolla eða blómavasa — aðeins listin sjálf réði á skjánum. Þá ber þess að gæta að áhugi manna beinist í misríkum mæli að listsviðum — sumir myndu vafalaust límast við skjáinn á mánudögum þegar músikin væri kynnt, aðrir á fimmtudögum þeg- ar myndlistina bæri fyrir og enn aðrir á föstudögum er leiklist og bíó skörtuðu á skjánum. Þá má skjóta inní þessa þætti auglýsing- um sem oft eru hrein listaverk í sjálfu sér. Þannig mætti tengja grafíksýninguna í Norræna hús- inu við það nýjasta sem er á boðstólum í húsgagnaverslunum svo dæmi sé tekið. Listin er ekki eitthvað sem svífur í hæðum, hún er veruleikinn í svolítið skraut- legu bandi. Minnumst þess að hún hefir löngum gert lífið bæri- legt í voru harðbýla landi. Hvað stoða annars milljón þorskar ef við sjálf breytumst í þorsk með fótbolta í stað heila? DREGIÐ19. NÓVEMBER. í byggingarhappdrætti SÁÁ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.