Morgunblaðið - 16.11.1983, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
Foreldrafræðsla á meðgöngu
- eftir Kristínu I.
Tómasdóttur
Vegna greinar er birtist í Morg-
unblaðinu 7. september ’83, „Fæð-
ing án sársauka” eftir Marjatta
ísberg, langar mig að koma eftir-
farandi upplýsingum á framfæri:
Árið 1953 byrjaði Hulda Jens-
dóttir, ljósmóðir og forstöðukona
Fæðingarheimilis Reykjavíkur,
með fræðslu- og slökunarnám-
skeið fyrir verðandi foreldra. Hún
hefur alla tíð síðan verið með
námskeið, um tíma á Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur en aðallega á
Fæðingarheimili Reykjavíkur. Ár-
ið 1969 byrjaði fyrsti vísir að
fræðslu á Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur, komu verðandi for-
eldrar þá í eitt skipti og sáu
kvikmyndir um meðgöngu og fæð-
ingu og aðra um meðferð ung-
barna. ísienskir textar þessara
mynda voru gerðir af Guðjóni
Guðnasyni, lækni, og Huldu Jens-
dóttur, ljósmóður. Einn fyrirlest-
ur var haldinn af fæðingarlækni.
Þetta fyrirkomulag hélst til ársins
1972 að námskeið hófust með
þátttöku læknis, ljósmóður,
heilsuverndarhjúkrunarfræðingi,
félagsráðgjafa, sjúkraþjálfara,
barnalækni og fleiri.
Síðan 1976 hefur Helga Daní-
elsdóttir, ljósmóðir, séð um fram-
kvæmd foreldrafræðslu á Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur og árið
1982 komu 370 verðandi mæður og
í flestum tilfellum makar þeirra á
námskeið. Hver hópur kemur að
jafnaði 8 sinnum, er þá byrjað á
fyrirlestri, síðan er leikfimi og
slökun. Á eftir gefst verðandi for-
eldrum kostur á að skoða fæð-
ingarstofnanir. Hin síðari ár hafa
námskeiðin haldið þessu formi,
eða með líku sniði og á Fæð-
ingarheimili Reykjavíkur og
Kvennadeild Landspítalans.
Síðan haustið 1969 hafa
fræðslu- og slökunarnámskeið
verið haldin í sambandi við mæðra
skoðun Kvennadeildar Land-
spítalans, í frystu eingöngu fyrir
verðandi mæður. Hin síðari ár
hafa feðurnir bæst í hópinn, þó í
of litlum mæli. Þeir koma í einn
kvöldtíma þegar sýndar eru
myndir af fæðingu og er þá Fæð-
ingardeildin jafnframt skoðuð.
Erfitt reyndist að fá leyfi fyrir
þessari starfsemi og verð ég að
viðurkenna að ég hóf hana áður en
leyfi stjórnarnefndar rfkisspítal-
anna lá fyrir hendi, en í bréfi
hennar dags. 18. febrúar ’70 stóð
eftirfarandi:
„Stjórnarnefndin fellst á að
starfsemi þessari sé haldið uppi,
en hún leggur áherslu á, að hún
verði ekki meiri en þarf með tilliti
til kennslu ljósmæðranema."
Þótt allstaðar sé viðurkennt að
þessi starfsemi sé nauðsynlegur
liður í undirbúningi verðandi for-
eldra vegna fæðingar og tilkomu
barns, hefur stjórnarnefnd ríkis-
spítalanna enn ekki veitt neinar
stöðuheimildir fyrir starfseminni,
þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar
um á hverju ári. Ljósmæður sem
vinna á fæðingargangi hafa hing-
að til annast þessa fræðslu að
mestu leyti, og oft orðið að bæta á
sig aukavinnu til að gera hana
framkvæmanlega.
Árið 1982 komu 470 konur á
námskeið á Kvennadeild Land-
spítalans og færri komust að en
vildu, en sama ár fæddi 2421 kona
á deildinni.
Víða um land halda ljósmæður
uppi fræðslu fyrir verðandi for-
eldra og get ég nefnt sem dæmi
Sauðárkrók, Keflavík, Seyðisfjörð,
Selfoss og fleiri staði.
Foreldrafræðsla hefur verið
einn þáttur í námi ljósmæðra-
nema síðan 1969 og hin síðari ár
einnig í námsbraut í hjúkrunar-
fræði við Háskóla íslands.
Ljósmæðrafélag íslands hefur
gengist fyrir námskeiðum fyrir
ljósmæður þar sem foreldra-
fræðsla hefur sérstaklega verið
tekin fyrir.
Eftirtaldar bækur með efni
fyrir verðandi foreldra hafa komið
út síðan 1940:
1940 — Heilsufræði handa hús-
mæðrum eftir Kristinu Ólafsdótt-
ir, lækni.
1957 — Mæðrabókin þýdd úr
norsku af Stefáni Guðnasyni,
lækni.
1962 — Slökun og eðlileg fæðing
eftir Huldu Jensdóttur, ljósmóður.
1973 — Bókin um barnið eftir
Benjamin Spock, ný endurskoðuð
og aukin útgáfa þýdd af Bjarna
Bjarnasyni, lækni.
1980 — Meðganga og fæðing eft-
ir Laurence Pernoud, þýdd af Sig-
urði Thorlacius, lækni.
1982 — Barnið okkar eftir Pen-
elope Leach þýdd af Sigurði Thorl-
acius og Jóni Sigkarlssyni.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
hefur gefið út eftirfarandi bækl-
inga sem notaðir eru víða um land:
„Meðan við bíðum" og „Leið-
beiningar um meðferð ungbarna"
hafa komið út í áratugi. „Góð ráð
fyrstu vikur sem mæður hafa börn
á brjósti" hefur komið út síðan
1978.
Kvenfélagasamband Islands
31
(sími: 12325) hefur opna skrifstofu
þar sem hægt er að fá ýmsa bækl-
inga'um mataræði, og hafa gildi
fyrir verðandi mæður.
Erlendar bækur um meðgöngu
og fæðingu fást í ýmsum bókabúð-
um og einnig er hægt að fá þær
pantaðar eins og aðrar bækur ef
fólk óskar þess.
Af ofanskráðu má sjá að ýmis-
legt hefur verið unnið að þessum
málum í okkar landi á undanförn-
um árum, þótt alltaf megi segja
„betur má ef duga skal“.
Kristín I. Tómasdóttir er yfirljós-
móóir Kvennadeildar Landspítal-
ans.
EIGENDUR
SPARID
BENSIN
LÁTID STILLA OG YFIR-
EARA BÍLINN
FYRIR VETURINN
1. Vélarþvottur. 14. Ath. slag I kúplingu og bremsu-
2. Ath. bensín, vatns- og olluleka. pedala.
3. Ath. hleðslu, rafgeymi og 15. Smyrja hurðalamir.
geymissambönd. 16. Setja silikon á þéttikanta.
4. Stilla ventla. 17. Ljósastilling.
5. Mæla loft I hjólböröum. 18. Vélarstilling með nákvæmum
6. Stilla rúðusprautur. stillitækjum.
7. Frostþol mælt. 19. Skiptum bensinslu.
8. Ath. þurrkublöð og vökva á rúðu-
sprautu. Verð með söluskatti kr. 1.770.00
9. Athuga loftsíu. Innifalið i verði: Platinur, kerti, ventla-
10. Skipta um kerti og platínur. lokspakkning og frostvari á rúðusprautu.
11. Timastilla kveikju.
12. Stilla blöndung.
13. Ath. viftureim.
Þér fáið vandaða og örugga þjónustu
hjá sérþjálfuóum fagmönnum
MAZDA verkstæðisins.
Pantið tíma I símum: 81225 og
81299.
BÍLABORG HF.
Smiöshöföa 23.
Dalvík:
Þrír bílar skemmdir
— ökumenn sluppu ómeiddir
Dalvík, 14. nóvember.
TVÖ umferðaróhöpp urðu í Svarfaðardal um liðna helgi og eru þrír bílar
mikið skemmdir. Skammt frá Tjörn í Svarfaðardal valt bíll út af vegi og
urðu töluverðar skemmdir á honum en ökumaður slapp ómeiddur. Þá
varð árekstur tveggja bfla á „Hvarfinu" í Svarfaðardal og skemmdust
báðir bflarnir allmikið en engin meiðsl urðu á ökumönnum. Mikil hálka
var á vegum og má rekja bæði þessi óhöpp til hennar.
f gær valt svo vörubifreið, sem Hjalteyrar, þegar óhappið varð.
var á leið frá Hjalteyri til Akur-‘ Litlar skemmdir urðu á bílnum
eyrar með skreið. Bíllinn var við og ökumaður slapp ómeiddur.
Kambhól, á vegamótunum til Fréttaritarar.
I
YNINGIN
1
B|fcDSHOEÐANUM
SKRIFSIOFAI
iframtiðar
LYKUR I KVOLD KL. 21