Morgunblaðið - 16.11.1983, Side 34

Morgunblaðið - 16.11.1983, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983 Um sálfræðiþjónustu í skólum Nokkur orð að gefnu tilefni — eftir Askel Örn Kárason í Mbl. 30. október sl. birtist grein eftir Guðmund Magnússon, blaðamann, þar sem fjallað er um sálfræðiþjónustu í skólum. í greininni er varpað fram efasemd- um um nauðsyn þessarar þjónustu og virðist henni ætlað að vekja spurningar um gildi hennar. Slík- ar spurningar eru réttmætar og umræða um þessi mál mætti gjarnan vera meiri og skynsamleg gagnrýni nauðsynleg. Umfjöllun blm. í þessari grein er hins vegar þannig, að ekki verður hjá því komist að gera við hana athuga- semdir. Greinin ber vott óvand- virkni, vanþekking á umræðuefn- inu er sláandi og blm. mistekst gersamlega að hafa taumhald á hleypidómum sínum í garð sál- fræðinga. Sálfræðingar hættulegir? Blm. virðist telja lítt til bóta að sálfræðingar hafi afskipti af nem- endum sem á einhvern máta stíga feilspor í sinni skólagöngu, valda kennurum og foreldrum áhyggj- um. Svo er að sjá að meginfor- sendur hans séu tvær: Annars vegar að sálarfræðin sé ómerkileg vísindagrein og að miklu leyti fúsk, störf sálfræðinga séu þar af leiðandi hálfkák hið mesta og þeir raunar hættulegir menn að öðru jöfnu. Svo heppilega hafi þó tekist til að í stéttinni sé að finna nokkra öndvegismenn, sem hafi til að bera sæmilegt brjóstvit og mannþekkingu, þrátt fyrir að þeir séu sálfræðingar. Hins vegar gefur hann sér þá forsendu að sálfræðingar hafi einkum afskipti af því sem afbrigðilegt er í fari barna og leit- ist þá við (a.m.k. óbeint) að flokka þá einstaklinga afbrigðilega og á einhvern hátt sjúka sem til þeirra er vísað. Blm. dregur þá ályktun að afskipti sálfræðings af nem- anda hafi gjarnan í för með sér stimplun á viðkomandi og hátt- erni hans, sem e.t.v. sé bundið til- teknu aldurs- og þroskaskeiði en að öðru leyti fullkomlega heilbrigt og aðeins hluti af þeim vanda að vera manneskja. Þessi umfjöllun er í meira lagi ORUGGT - ÚTIUÓS í SKAMMDEGINU KOMBI-PACK-útiljósið er með 80 watta kvikasilfursperu, sem gefur mikla birtu. Það er sterkbyggt og auðvelt í uppsetningu. KOMBI-PACK eykur öryggi hvar sem er, á vinnusvæðum, við útihús, á skólasvæðum og við hvers manns dyr Lýsið umhverfið með KOMBI-PACK Heimilistækí hf undarleg. Blm. veltir fyrir sér vandanum að vera til, þeim krepp- um sem einstaklingurinn lendir í og einkennum sem á hversdags- máli eru nefnd „óþekkt", „óeirð“, „feimni", o.s.frv. Hann minnir á að mörk heilbrigðis og afbrigði- leika eru á engan hátt skýr og bendir á þá hættu að hátterni sem kunni að virðast afbrigðilegt sé, vegna skorts á mannþekkingu, stimplað sjúkt. Allt er þetta gott og biessað, svo langt sem það nær. Blm. virðist hins vegar sjást yfir þau einföldu sannindi, að einmitt þessi málefni, sem hann telur svo mikilvæg — og ég er sama sinnis — hefur sálarfræðin afhjúpað og fjallar stöðugt um. Mörk (eða markaleysi) eðlilegs og afbrigði- legs atferlis, þroskaferill og þroskakreppur, vandinn að vera manneskja, allt eru þetta við- fangsefni hennar. Sú yfirsýn sem sálfræðimenntun og reynsla í starfi gefur sálfræðingum er ákaf- lega mikilvæg forsenda þess að takast á við þessi tilvistarspurs- mál. „Vinaþjónusta“ í staö sálfræðiþjónustu? Fuliyrða má að sálfræðingar hafi almennt ekki þörf fyrir að stimpla eitt barn afbrigðilegt fremur en annað — til þess eru margir aðrir boðnir og búnir — heldur beita sinni fræðilegu þekk- ingu, þeim aðferðum sem henni fylgja og sínum persónulegu eigin- leikum til þess að leysa vandann, sé til þeirra leitað. Það er sjálfs- agt mál að við höfum öll þörf fyrir umhyggju góðhjartaðs og skiln- ingsríks fólks, en ég á bágt með að sjá að fræðileg þekking sé eitt- hvert handikapp í því sambandi. Því miður er það svo að suma skortir þessa umhyggju og stund- um verður vandinn að vera mann- eskja meiri en að við hann ráðist án utanaðkomandi aðstoðar. Það er e.t.v. hugmynd Guðmundar Magnússonar að þetta verði leyst með því að að í stað sálfræðiþjón- ustu verði sett á stofn „vinaþjón- usta“, þar sem þeir fengju starf sem væru góðhjartaðir og skiln- ingsríkir, hvernig sem það væri svo mælt og metið. Mannskilningur á grundvelli þekkingar Blm. segir, að deila megi um að- ferðir sálfræðinga. Það er rétt. Það er nauðsynlegt fyrir þróun fræðigreinarinnar og hina enda- lausu leit að endanlegum sann- leika um manninn. Engu að síður koma þær aðferðir sem nú eru til- tækar að góðum notum ef rétt er á haldið. Engar ábendingar koma fram í greininni um hvað betur mætti fara í þessum aðferðum. Sálfræðileg próf eru nefnd og tal- in vafasöm, án þess að nánar sé farið út í þá sálma. Vísast veit blm. ekkert um sálfræðileg próf, enda er sannleikurinn sá að þessi tæki eru mjög gagnleg til grein- ingar á stöðu og ástandi hins próf- aða, ef vel er unnið og þau eru í höndum sérmenntaðs fólks. Túlk- un niðurstaða krefst þekkingar sem sálfræðingar hafa á valdi sínu, en aðrar stéttir góðhjartaðra hafa ekki fengið réttindi til þess að nota þessi próf, enda menntun þeirra ekki við þau miðuð. Þegar skólabarn hefur með hátterni sínu gengið lengra en umhverfið þolir, eða sýnir einhver þau merki vanlíðunar að vekur áhyggjur aðstandenda, er gjarnan leitað til sálfræðideildar skóla um aðstoð. Þá er hætt við að heim- spekilegar vangaveltur um „vandann að vera maður" lini ekki áhyggjurnar eða breyti hátterni barnsins. Við vandanum þarf að bregðast, þótt hann sé „eðlilegur". Að það sé gert af fólki sem hefur til að bera mannskilning grund- vallaðan á staðgóðri fræðilegri þekkingu, með aðferðum sem byggja á sama grunni, er besta tryggingin fyrir að árangur náist. „Reynsla kynslóðanna“ Eftir að hafa greint frá starfi Sálfræðideilda skóla í Reykjavík með því að vitna í ársskýrslu, varpar blm. enn fram efasemdum um gildi þjónustunnar og störf sálfræðinga að henni og lýkur greininni með svofelldum orðum: „ ... að starfið sé ekki eingöngu byggt á hinum vafasömu vísindum sálfræðinganna heldur allt eins þeirri mannþekkingu sem sprottin er af hversdagslegri íhugun og at- hygli venjulegs fólks og reynslu kynslóðanna?" Hvað er maðurinn að fara? Skil- ur hann það sem hann er að skrifa? Þessi niðurlagsorð bera vott um ótrúlega grunnhyggni. Hvaða aðferðir eru það sem byggj- ast á „reynslu kynslóðanna"? Hvers konar þjónusta er það sem á að byggja á slíkum grunni? Misskilningur blm. í þessu efni byggist á því að hann virðist ekki skilja, eða vita, hvað sálfræði er og þekkja vinnubrögð hennar nema ákaflega yfirborðskennt. SÆTUNI8-S: 27500 „Orð, orð innantóm“ Orð. Hvað er orð? Það er birt- ing, eða ættum við að segja fæð- ing hins ósýnilega með auðveld- ustum hætti inn í hinn sýnilega heim. Hugsun, andi, kraftur, tilfinn- ing, duldar orkulindir streyma þar fram með ýmsum hætti og geta síðan orðið áður en varir að athöfnum og framkvæmdum, húsum og höllum, skipum og flugvélum, frjósömum ökrum og fögrum aldingörðum, sælum samleika sálna og þjóða eða sundrung og djöfulæði haturs og hefnda. Þess vegna hefur orð og orka orðið eitt, og þá nefnt andi í hugsun og tjáningu trúar og óska. Því hefur verið lyft á æðsta trón hins mannlega og gert að Guði, það er að segja látið tákna lífsorkuna sjálfa. Og þá hafa jafnvel hinir verstu meðal manna rænt sæti þess, með blekkingum eða valdi, og gert sig að Guði orðsins, fulltrúum hins ósýnilega í samfélagi og siðum, með öllum þess fjötrum og for- dæmingum. Æðsta tákn orðs í þessum lík- ingaleik hefur orðið Kristur, boðberi frelsins og elsku, sem æðstu verðmætatilveru í mann- heimi. En jafnvel því tákni hafa voldugir boðendur orðsins rænt, svo hryllilega að orðið hefur ver- ið táknað með sverði og vopnum til fordæmingar, eyðingar og glötunar. Kristindómur hefur verið æðsta starfssvið orðs hér á Vest- urlöndum. Hið frjálsa orð hefur orðið framfarakraftur vísinda og lista. Innstreymi hins ósýnilega heims inn í hversdagsins hljóð- látu önn og fjölbreyttu sam- skipti. Og myndað þar eftir göfgi þess og þroska, sem notaði töfra- Uexr.t. við gluggann eftirsr. Árelius IMíelsson lykil orðsins, gæfu eða böl, gleði eða sorg, sælu eða kvöl. Þess vegna skulum við nú, þegar flaumi orðanna er með komandi hausti og vetri veitt inn í skólana og þannig til æsku og framtíðar, litast um og hlusta á notkun orðsins á okkar hvers- dagsbrautum. íhuga hvað og hvernig við, einstök og umkomu- lítil, eigum samt þátt og aðild að þessum mikla krafti í töfrum orðsins. Ekkert, sem við teljum okkur hafa framyfir dýrin gæti verið að öllu æðra en málið — myndun og notkun orðsins. Þar birtist það daglega sem tæki andans, hið mikla undur hversdagsins. Engin furða, þótt sú trú hafi myndast að það hafi verið tæki Alföður til að skapa og móta alla hluti. Og umfram allt, er það talið sýna þann, sem talar á andlegan « hátt öllu öðru fremur, bæði hugsun hans, tilfinningu og óskir. Þar gilda hér orð skálds- ins flestu fremur. „Oft má af máli þekkja manninn, hver helzt hann er.“ „Og vel skal það vanda, sem lengi skal standa." Þar er bæði lýst spegli orða, sem sýnir okkar eigin sálar- mynd. Og hins vegar krafti orðs, sem getur mótað ævi og örlög, bæði einstaklings og fjölda til gæfu og ógæfu. Því orðið er tvíeggjað sverð og öllu beittara. Hættulegt í notkun heimskingja og blekkjenda. „Mikið er skraddarans pund,“ syngja sumir. En ekki væri síður hægt að segja: Mikið er pund — það er að segja gullgildi orðs á vörum kennara, prests og móður, en samt ekki síður af munni stjórn- enda, leiðtoga og valdhafa, sem hafa laumast upp í hásæti þess við hlið hins allsvaldanda, upp eftir hliðarstiga blekkinga og valds, sem nú er hættulegra en áður á helvegum kjarnorkunnar. Samt gætu núverandi helbrautir þeirrar orku orðið æðsta heilla- gjöf mannheimi til handa ef orð elskunnar ættu þar yfirtök. En lítumst nú um á hvers- dagsstigum okkar, barna hvers- dagsins. Þar má einnig nota orð á svo margvíslegan hátt, meira að segja til að gleðja og græta, sam- eina og sundra, villa og trylla eða sefa og leiða á réttan veg. Þar eigum við öll okkar hlut á svo heillavænlegan hátt, ef við notum hlýlega og ljúflega þenn- an lykil hins ósýnilega að leynd- ustu afkimum í svip og sögu samferðafólksins. Og þar er ekki sama, hvernig við tölum. Jafnvel orðin í kveðju og upphafi sam- tals, þegar sagt er „góðan dag“ geta haft svo margVíslegan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.