Morgunblaðið - 16.11.1983, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
41
félk í
fréttum
Heitt í kolunum
í Dallas
+ Priscilla Presley, ekkjan hans Elvis, hefur fengið hlutverk í
Dallas og stundar nú leikfimina af miklum móö til að vera í fínu
formi þegar upptökurnar hefjast. Henni mun heldur ekki veita
af aö vera vel á sig komin því hún er þegar búin aö lenda í
hálfgeröum slagsmálum viö Sue Ellen eöa hana Lindu Gray.
„Hún lítur á sjálfa sig sem einhverja prinsessu en svo er hún
ekkert nema heimsk og hæfileikalaus stelpa, sem ég þoli ekki,“
segir Linda. Priscilla segir aftur á móti, aö Linda sé „reiö af því
aö ég er yngri og fallegri en hún“. Linda er 42 ára en Priscilla er
37.
Draumarnir rætast
hjá Liz Taylor
+ Þaö hlakkar í Elísabet Taylor þessa dagana enda fær hún
loksins tækifæri til aö gjalda nöfnu sinni Englandsdrottningu
rauöan belg fyrir gráan.
Svo er mál meö vexti, aö Elísabet Englandsdrottning hefur
aldrei veriö mjög hrifin af Taylor og látið þaö ógert hingaö til aö
bjóöa henni til Buckingham-hallar eöa þiggja miöa á frumsýn-
ingar meö henni. Nú hefur eiginmaöur Liz, Victor Luna, hins
vegar veriö valinn sendiherra Mexíkó í London og þá kemst
drottningin ekki hjá því aö bjóöa Liz meö þegar eitthvaö stend-
ur til hjá hiröinni. Þar er um aö ræöa matarboö, boö á veðreiö-
arnar og þaö besta af öllu, drottningin býöur alltaf nýjum
sendiherrum eina helgi meö sér og fjölskyldunni í Balmoral eöa
Windsor.
Victor Luna mátti velja um sendiherrastööu í París, Róm eöa
London og valdi síðastnefndu borgina til að geðjast konu sinni.
„Ég dái London og ég á líka dálitiö erindi þangaö,” segir Liz
og brosir meö augunum.
Sendiherrahjónin væntanlegu, Liz Taylor og Victor Luna
+ Victoria Principal, sem er mjög
vinsæl í bandarískum sjónvarps-
auglýsingum, var nú nýlega feng-
in til aö segja konunum hvernig
þær færu aö því aö fá hiö full-
komna hár. Þaö fæst meö því,
sagói hún, aö nota einmitt þaö
shampó, sem hún fær borgaö
fyrir að auglýsa. Þegar kom að
hárþvottinum varö hins vegar aö
fá aöra konu til þess, eöa öllu
heldur hendurnar á annarri konu,
því að Victoria þótti hafa svo Ijót-
ar hendur, stutta fingur og
hnýtta.
+ Austurríkismaðurinn Arnold
Schwarzenegger, sem einu sinr:
var kjörinn Herra Alheimur, er nú
oröinn bandarískur ríkisborgari
og þaö er aöeins eitt, sem vakir
fyrir honum með því: Hann vill
komast í Kennedy-fjölskylduna.
Sem aögöngumiöa hefur hann
unnustu sína, Mariu Schriver,
frænku Ted Kennedys, en um
nokkurt skeiö hefur hún dálítiö
fengið aö kynnast kröftunum
hans.
+ Leikkonan Raquel Welch hefur
nú gefiö Fransmanninum Andró
Weinfeld reisupassann eftir niu
ára sambúó. Segir André, aó sér
hafi vissulega veriö oröiö ofauk-
iö. Raquel hafi ekki tíma til neins
nema snúast í kringum sjálfa sig
og dást aó eigin útliti. Raquel er
annars önnum kafin viö aö skrifa
bók um fegrunarkúra og sjálfri
finnst henni hún ekki vera degin-
um eldrí en tvítug.
ÞVÍ EKKl AÐ FÁ ÞÆR
HEIMSENDAR?
VERJURNAR FRA
AMOR SVÍKJA ENGAN!
16 stk. Long love og 24 stk. Color set.
Samtals 40 stk. fyrir aðeins kr. 340.-
Sendum í póstkröfu um land allt.
--------------------------------
Vinsamlegast sendið mér í póstkröfu:
____stk. Amor, samtals kr.____
Naf n:__________________________
Heimilh_________________________
Sveitarfélag: __________________
Sendist til Póstval, Pósthólf 9133,
1 29 Reykjavík.
time manager
UPPRIFJUNAR
NÁMSKEIÐ
Vegna fjölda áskorana hefur okkur tekist aö fá
Time Manager International til aö halda eins dags
upprifjunarnámskeið fyrir þátttakendur á Time
Manager námskeiöum fyrri ára.
Aðaláhersla veröur lögö á notkun „Keys areas“.
Leiðbeinandi sem fyrr verður Anne Bögelund-
Jensen.
Námskeiðiö verður haldiö miövikudaginn 23. nóv-
ember n.k. í Kristalssal Hótels Loftleiða og
stendur frá kl. 9-17.
Væntanlegir þátttakendur þurfa aö hafa meö sér
Time Manager dagbókina og gögnin sem þeir
fengu á fyrsta námskeiðinu.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
Í SÍMA 82930
STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSLANDS