Morgunblaðið - 16.11.1983, Side 48
Bítlaæðið
i
V>
CCCADWir
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1983
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Óðinn kemur í dag
með RÁN tíl Rvíkur
VARÐSKIPIÐ Óðinn er væntanlegt
til Reykjavíkur um klukkan 9 í dag
með flak þylunnar TF-RÁN, sem
hrapaði í sunnanverðum Jökulfjörð-
um aðfaranótt miðvikudagsins fyrir
viku síðan, en um miðjan dag í gær
tókst að ná þyrlunni upp á yfírborðið
og um borð í Óðin. I>að var strand-
ferðaskipið Askja, sem fengið var til
að lyfta þyrlunni um borð í Óðin, en
það var á leið til Bíldudals frá Pat-
reksfírði og var með nægilega sterka
krana til að lyfta þyrlunni. Varðskip-
ið er einnig með lík tveggja áhafnar-
meðlima þyrlunnar um borð, en þau
fundust í henni að kvöldi mánudags.
Björgun þyrlunnar um borð í
varðskipið gekk fljótt fyrir sig.
Byrjað var um klukkan 12 og IV2
tíma síðar var þyrlan komin um
borð í varðskipið. Þá hafði vélbát-
urinn Siggi Sveins frá ísafirði híft
þyrluna af rúmlega 80 metra dýpi
á um 10 metra, og henni hafði ver-
ið snúið við, en hún lá á hvolfi á
sjávarbotninum. Þyrlunni var
fyrst lyft upp á 30 metra dýpi, á
böndum sem tókst að koma á bæði
hjól hennar, þar sem hún lá á
botninum. Þar gengu kafarar frá
tryggari festingum við hana. Síðan
var þyrlunni lyft á 16 metra dýpi,
Rjúpnaskytta frá Akureyri
komst í hann krappan:
Skreið í skurði
af ótfa við gamla
konu með riffil
Akureyri, 15. nóvember.
RJÚPNASKYTTA frá Akureyri varð
fyrir óvenjulegri og allsérstæðri lífs-
rcynslu í síðustu viku, er hún gekk til
rjúpna austanmegin Eyjafjarðar.
Kom skyttan að bæ einum, þar
sem býr öldruð kona ásamt syni
sínum og var gamla konan ein
heima á bænum. Konan varð vör
mannaferða, en þar sem hún hefur
slæma sjón greip hún til forláta
veiðiriffils sonar síns sem á er góð-
ur kíkir, og hugðist konan komast
að því hver þarna væri á ferð.
Beindi hún rifflinum að rjúpna-
skyttunni og skoðaði hana í gegn-
um kíkinn.
Af rjúpnaskyttunni er það að
segja að henni brá eðlilega við er
hún sá að riffli var að henni beint
og stökk hún hvatlega í næsta
skurð. Var skyttan síðan öðru
hvoru að gægjast upp fyrir skurð-
barminn, en gamla konan fylgdist
með þessum skrýtnu tilburðum af
miklum áhuga. Af ótta við riffilinn
og þann sem á honum hélt, taldi
rjúpnaskyttan öruggast að skríða
eftir skurðinum, þar til hún var
komin í hvarf frá bænum, en það
er nokkur hundruð metra vega-
lengd. Ekki er Mbl. kunnugt um
hvort skyttan fékk einhverjar
rjúpur í þessari veiðiferð, en til
Akureyrar komst hún heil á húfi,
þótt illa horfði um sinn.
— G.Berg.
en þá voru lík mannanna tveggja,
sem í henni voru, sótt. Þyrlan var
síðan dregin á grynnra vatn og
henni sökkt í fyrrakvöld. Eftir að
Askja kom á staðinn var þyrlunni
lyft að nýju, böndum komið á
vængjaás hennar og henni snúið.
Askja hífði hana síðan um borð í
varðskipið.
„Ég get ekkert sagt um ástand
þyrlunnar að svo komnu máli.
Björgunaraðgerðum er nú lokið og
rannsókn slyssins getur hafist,"
sagði Skúli Jón Sigurðarson, hjá
rannsóknanefnd flugslysa í sam-
tali við Morgunblaðið um borð í
Óðni í gær, eftir að þyrlan var
komin þar um borð.
„Það er mönnunum á Óðni og á
fiskibátnum, samvinnu þeirra,
mjög góðri sjómennsku, ásamt
mikilli og erfiðri vinnu að þakka
hversu vel tókst til og þeir gerðu
okkur starfið auðvelt," sagði annar
köfunarsérfræðinganna, sem feng-
inn var frá Bandaríkjunum vegna
björgunaraðgerðanna, í samtali
við Morgunblaðið í Jökulfjörðum í
gær.
Sjá frásögn, viðtöl og myndir á
miðsíðu og á bls. 36 og 37 í blaðinu
í dag.
Heilbrigðisráð Reykjavíkurborgar:
Hitalögnum verði kom-
ið fyrir í Bankastræti
HEILBRIGÐISRÁÐ Reykjavíkur-
borgar samþykkti á fundi sínum ný-
lega að leggja það til við borgarráð
að komið verði fyrir hitalögnum
undir gangstéttum í Bankastræti til
þess að minnka slysahættu af völd-
um hálku, en árlega verða þar slys
á gangandi vegfarendum.
Samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. fékk hjá Katrínu Fjeldsted,
formanni heilbrigðisráðs, bar
hún fram tillögu þessa efnis á
síðasta fundi ráðsins og var hún
samþykkt. Borgarráð vísaði síðan
tillögunni til borgarverkfræð-
ingsembættisins.
Katrín sagði í gær að árlega
yrðu slys af völdum hálku í
Bankastræti og vonast væri til að
slysum myndi fækka ef hitalögn-
um yrði komið fyrir undir
gangstéttunum. Einkum taldi
Katrín nauðsynlegt að koma fyrir
lögnum frá horninu á Ingólfs-
stræti og niður eftir Bankastræti.
Nýja stólalyftan í Bláfjöllum:
Vírinn slitnaöi og
stólar féllu niöur
Frystihús Skjaldar
selt á 7-7,5 milljónir
Patreksfírði, 15. nóvember.
LAUGARDAGINN 12. nóvember sl.
var stofnað á Patreksfírði nýtt félag
um rekstur fískvinnslu, sem hlaut
nafnið Vatneyri hf. Tilgangur félags-
ins er að starfrækja fískvinnslu í
væntanlegu húsi félagsins, sem áður
hét Skjöldur hf., en var síðast í eigu
Kópaness hf.
Ákveðið er að félagið kaupi húsið
af Byggðasjóði, sem keypti það á
uppboði í haust. Áætlað er að geng-
ið verði frá kaupunum í næstu
viku. Kaupverðið er 7,0—7,5 millj-
ónir. Kostnaðaráætlun við fyrstu
tvo áfanga endurbóta við húsið
mun vera um 6,5 milljónir. Áætluð
árshráefnisöflun er 2.000 tonn, af
tveim vertíðarbátum og minni bát-
um.
Stefnt er að því að hefja vinnslu
fljótlega upp úr áramótum. Stjórn
hins nýja félags skipa: Hilmar
Jónsson, Bolli Olafsson, Kristinn
Friðþjófsson, Stefán Egilsson og
Guðfinnur Pálsson. — Fréturiuri.
VÍRINN í nýju stólalyftunni í Bláfjöll-
um slitnaði um helgina og féll einhver
hluti stólanna niður. Þetta mun hafa
gerzt á tímabilinu frá því á fimmtu-
dagskvöld og fram á sunnudag. Stjóm
Bláfjallafólkvangs hafði ekki tekið við
lyftunni af framleiðendum, en beðið
var eftir því að starfsmaður, sem var á
leið frá Bandaríkjunum, kæmi og próf-
aði lyftuna áður en hún yrði tekin i
notkun.
Samkvæmt upplýsingum Elínar
Pálmadóttur, formanns stjórnar
Bláfjallafólkvangs, var strax sent
skeyti til framleiðanda lyftunnar,
Dobbelmeyers, og sendi hann strax
hingað 3 menn og komu þeir í
gærkveldi til landsins. Einn mann-
anna er frá framleiðandanum sjálf-
um, annar frá framleiðanda víranna
og hinn þriðji er prófessor frá Zúr-
ich-háskóla. Munu þeir fara upp í
Bláfjöll strax og birtir í dag ásamt
þeim verkfræðingum, sem stóðu að
lyftukaupunum, Stefáni Hermanns-
syni og Stefáni Stefánssyni.
Elín Pálmadóttir kvað þetta
óhapp óskiljanlegt og taldi það eins-
dæmi. Vírarnir í lyftunni hafi verið
sérstaklega styrktir að ósk Bláfjalla-
nefndar til þess að þola meira álag
af stólunum, en nauðsynlegt var tal-
ið. Þeir eru 80 til 90 talsins og mun
einhver hluti þeirra hafa hrapað
niður við það að vírinn slitnaði. Elín
kvað ekki hafa verið hreyft við lyft-
unni og yrði það ekki gert, fyrr en
sérfræðingarnir hefðu skoðað hana.
Elín kvað hundruð slíkra lyftna í
gangi víða um heim.
Að lokum sagði Elín, að í haust
hafi maður frá fyrirtækinu að venju
yfirfarið alla víra í gömlu stólalyft-
unni í Kóngsgili til þess að ganga úr
skugga um, hvort þar gætti slits.
Eftirlitsskylda er á lyftunum eftir
ákveðinn notkunartíma og er skipt
um víra eftir ákveðinn tíma. Ekki
hafði verið farið yfir nýju lyftuna,
þegar óhappið varð og því mun ekki
unnt að fullyrða hvað olli.
Fékk bók um
sig í 91 árs
afmælisgjöf
FINNUR Jónsson, listmálari, varð 91 árs í
gær. í tilefni afmælisins fóru þeir Brynjólfur
Bjarnason, framkvæmdastjóri, og Eiríkur
Hreinn Finnbogason, cand. mag., til lista-
mannsins, og afhentu honum fyrsta eintakið
af bók um iist Finns, sem Almenna bókafé-
lagið er að gefa út um þessar mundir. Á
myndinni afhendir Brynjólfur Finni fyrsta
eintakið.
Á veggnum fyrir aftan er listaverkið
„Þrjár sólir", sem Finnur Jónsson fékk
fyrstu verðlaun fyrir á listahátíð Norður-
Noregs á árinu 1971, en sú hátíð var hald-
in í Harstad. Þetta verk fékk og Amnesty
International lánað til þess að nota það
við útgáfu plakats til kynningar á mann-
réttindabaráttu samtakanna.
Morgunblaðíð/ÓI.K.M.