Morgunblaðið - 07.12.1983, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1983
51
mænusótt og var það fyrsta árið
sem ekkert sjúkdómstilfelli kom
upp, fram til þess voru 80—100 til-
felli á ári.
1982 fengu 6.000 bændafjöl-
skyldur land til ræktunar, 52.000
heimili á landsbyggðinni fengu
rennandi vatn og 13.000 rafmagn.
En svona smámál skipta litlu á
síðum Morgunblaðsins. Þar er lít-
ill gaumur gefinn að þeim vanda-
málum sem íbúar bananalýðveld-
anna þurfa að kljást við til að
halda lífi. Lágmarkstrygging á
fæði, klæði og húsnæði angrar
ekki hugi þeirra sem hafa línurit
Wall Street að leiðtoga lífsins.
Þess vegna þótti skrifurum Morg-
unblaðsins harla gott þegar stjórn
Allendes var steypt í Chile, þótt
eitt fyrsta verk Chicago-drengj-
anna hafi verið að stöðva daglega
mjólkurgjöf til barna fátækra-
hverfanna. Tugþúsundir myrtra
skilgreinast auðveldlega óvinir.
Stríðið gegn
Nicaragua
Á fyrstu 4 mánuðum þessa árs
myrtu innrásarsveitir Somoza-
liðsins, sem Bandaríkin reka, ríf-
lega 500 íbúa Nicaragua. Það sam-
svarar 38.000 manns í Bandaríkj-
unum.
Sérstaklega hefur verið ráðist á
þá sem aflað hafa sér einhverrar
þekkingar. Kennarar sem unnið
hafa að lestrarherferðinni út um
land hafa verið vinsæl skotmörk
gagnbyltingarsinna.
Skorið hefur verið á samgöngur
við Nicaragua beggja vegna eftir
Pan-American-hraðbrautinni.
Reynt er að brjóta Nicaragua á
bak aftur efnahagslega. I okt. 1982
rauf Standard Fruit samninga
sína við Nicaragua um banana-
kaup. I maí sl. tilkynnti Banda-
ríkjastjórn að hún skæri niður
kaup á sykri frá Nicaragua um
90%.
Nú nýverið voru eldsneytis-
birgðir Nicaragua eyðilagðar og í
kjölfarið tilkynntu bandarísku
olíurisarnir að þeir myndu ekki
lengur leigja Mexíkó flutningaskip
til að flytja olíu til Nicaragua. En
Mexíkó hefur verið aðalútflytj-
andi olíu til landsins.
Hondúrasher er farinn að taka
beinan þátt í hernaði gegn Nicar-
agua og þar samræmir Banda-
ríkjaher krafta argasta afturhalds
álfunnar. Notkun Bandaríkjahers
á Hondúras minnir einna heUt á
notkunina á Thailandi í Víetnam-
stríðinu. Green Berets-sveitir æfa
þar 3.000 salvadorska hermenn.
Þess dagana eru þar 6.000 banda-
rískir hermenn að æfa innrás í
Nicaragua. Útifyrir lónar flotinn.
Við ráðum ...
I Newsweek þann 20. júní sl. er
haft eftir bandarískum stjórnar-
erindreka að vissulega geti Banda-
ríkin unnið sigur í Mið-Ameríku:
„Við unnum hernaðarsigur í Chile,
í Bólivíu, í Guatemala ... Það er
það eina sem þeir skilja, sannleik-
urinn liggur i valdinu." Augljós-
lega er erindrekinn ekki einn um
þessa skoðun.
Þann 7. apríl sl. birtist í New
York Times frásögn af fundi er
Reagan átti með helstu ráðgjöfum
í apríl 1982. Umræðuefnið voru
aðgerðir Bandaríkjastjórnar í
Mið-Ameríku til ársloka 1984. Þar
var m.a. farið hörðum orðum um
Mexíkó fyrir það að „styðja leynt
og ljóst öfgafull vinstri öfl með
áróðri, fjárframlögum og pólitísk-
um stuðningi". Mexíkóstjórn var
vöruð við og í ágúst 1982 barst
henni skýrsla þar sem fjallað var
um mögulegar efnahagsþvinganir
gegn Mexíkó.
Mexíkó er algerlega háð Banda-
ríkjastjórn efnahagslega vegna
skulda og annarra fjármála-
tengsla sem landið er fjötrað í.
Panama hefur einnig fengið sín-
ar hótanir. Við Panama-skurð eru
10.600 bandarískir hermenn.
Stjórninni hefur verið hótað
beinni hernaðaríhlutun gangi hún
í einhverju gegn stefnu Banda-
ríkjastjórnar. í Panama eru einn-
ig æfingabúðir fyrir Salvador-her.
í plagginu frá 8. apríl 1982 var
gert ráð fyrir að aðgerðir Banda-
ríkjanna í Mið-Ameríku muni
kosta um 1 milljarð dollara fram
til ársins 1984. CIA hefur beðið
um 80 milljónir dollara fyrir fjár-
hagsárið 1984 til að efla gagnbylt-
ingarher Somoza-manna upp i
12—15.000 manns.
...ykkur
í baráttu íbúa Rómönsku Amer-
íku felast kröfur milljóna vinn-
andi fólks sem krefst þess að endir
sé bundinn á rányrkju bandarísku
auðhringanna á vinnuafli þess og
auðlindum landa þeirra.
Þessar kröfur eru gjörsamlega
andstæðar hagsmunum Wall
Street. Fyrir múltímillana sem
ráða stefnu Bandaríkjanna er
þetta meira en nægileg ástæða
fyrir stríði; þetta er ástæðan fyrir
stríði.
Þetta er einnig ástæðan fyrir
því að Kúba er og verður eilífur
þyrnir í augum valdhafanna í
Washington. Kúba braut af sér
hlekki auðhringanna og fyrir það
er aðeins ein refsing — dauöi.
Kúbanskir útlagar stunda opin-
skátt heræfingar á Miami undir
handleiðslu Bandaríkjahers. Þar
eru um 600—700 CIA-ráðunautar
og 2.000 manna bandarískt herlið
til þjálfunar.
Það er ekki lengra síðan en 1981
að Alexander Haig lagði til að
komið yröi á hafnbanni á Kúbu og
því fylgt eftir með hugsanlegum
loftárásum á skotmörk í Nicar-
agua og á Kúbu. Ekki var lagt i
aðgerðir Haigs, en Kúbustjórn
vöruð við að veita stjórninni í Nic-
aragua aðstoð, þá yrði gripið til
beinna hernaðaraðgerða gegn
Kúbu.
Þetta vita ráðamenn Morgun-
blaðsins, enda er leikurinn til þess
gerður; að vera reiðubúnir að
réttlæta hið versta er að því kem-
ur. Stríðshundurinn Kissinger er
kominn á vettvang. I kjölfar ferð-
ar hans um Mið-Ameríku var ráð-
ist inn í Grenada. Það er ekki ein-
ungis tímaspursmál hvenær látið
verður til skarar skriða gegn Nic-
aragua, heldur er það ekki síst
komið undir viðbrögðum við inn-
rásinni á Grenada. Verði Morgun-
blaðsviðbrögð ráðandi mun al-
menningur i Nicaragua ekki
kemba hærurnar. Þess vegna er
mikilvægt að bregðast harkaleg
gegn dauðadómnum sem lófaklapp
landsfundarins fól i sér.
22. nóv. 1983.
Birna Þórdardóttir er skrifstofu-
maður hji læknafélögunum í
Reykjavík.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Þú svalar lestrarþfkf dagsins y
' Stóum Moggans!
TÖRBUlENCES
frá Hovillon
angan engri lík
TURBULENCES er afurð náttúrunnar.
Angan engri l(k, - frá blómum og jurtum óspilltrar náttúru.
Samsetningin er síðan fullkomnuð í háborginni París.
TURBULENCES frá REVILLON
FRANSKUR SEIÐUR FYRIR NÚTlMAKONUR
Hvað er meðferð?
í bókinni Furðuheimar alkóhólismans, er hulunni svipt af starfsháttum AA.
Höfundurinn, Steinar Guömundsson fer á kostum I umfjöllun sinni um meðferó
og I hverju hún sé fólgin. Bókin kostar aóeins 500 kr. og er hægt að fá hana senda
gegn póstkröfu (ekkert kröfugjald). Hringiö I sima 33370 eða fylliö út með-
fylgjandi mióa og sendið okkur.
m
-