Morgunblaðið - 17.12.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1983
5
Barnaguðsþjónusta
í Dómkirkjunni:
Börn flytja
helgileik —
Lúðrasveit
leikur jólalög
Á MOKGUN, sírtasta sunnudag fyrir
jól, verður að venju barnaguðsþjónusta
í Dómkirkjunni og hefst hún kl. 11 f.h.
Þetta er orðinn fastur liður í
helgihaldi Dómkirkjusafnaðarins og
hefur þessi messa jafnan verið vel
sótt. Að þessu sinni sjá börnin úr
kirkjuskóíanum, sem er á hverjum
laugardagsmorgni á Hallveigarstöð-
um, um stóran þátt í athöfninni. Þau
flytja jólahelgileik undir stjórn sr.
Agnesar Sigurðardóttur. Y ngstu
börnin úr kirkjuskólanum flytja líka
tvo hreyfisöngva. Sr. Þórir Stephen-
sen talar við bömin um jólin og sr.
Hjalti Guðmundsson les jólasögu. Þá
verður að sjálfsögðu almennur söng-
ur, og síðast en ekki síst leikur
Lúðrasveit Laugarnesskóla jólalög
undir stjórn Stefáns Þ. Stephensen.
Ég vænti þess, að foreldrar og afar
og ömmur komi með börnunum til
kirkju á morgun og við njótum öll
góðrar stundar.
Þórir Stephensen
Pósthús opin
til kl. 20 í kvöld
I DAG, 17. desember, verða allar
bréfastofur borgarinnar opnar til kl.
20 til móttöku jólabréfa. Bréf þarf að
póstleggja i síðasta lagi í dag, ef þau
eiga að ná til viðtakanda fyrir jól.
Bögglapóststofan I Hafnarhvoli og
Tollpóststofan í Hafnarhúsinu verða
opnar til klukkan 18.
Nokkrir félagar í Kammersveit Reykjavíkur á æfingu fyrir jólatónleik-
ana í Bústaðakirkju á morgun: Rut Ingólfsdóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir,
Helga Ingólfsdóttir, Helga Hauksdóttir, Bernard Wilkinson og Pétur
Þorvaldsson.
*
I Bústaðakirkju kl. 5 sunnudag:
Jólatónleikar Kammer-
sveitar Reykjavíkur
Jólatónleikar Kammersveitar
Keykjavíkur verða haldnir í Bú-
staðakirkju sunnudaginn 18. des-
ember klukkan fimm.
Á efnisskránni eru fjögur bar-
okktónverk: Brandenborgar-
konsert nr. 3 eftir J.S. Bach,
Flautukonsert í G-dúr eftir
Pergolesi, þar sem Bernard
Wilkinson leikur einleik á
flautu, Gítarkonsert í D-dúr eft-
ir Vivaldi, einleikari á gítar er
Pétur Jónasson, og Concerto
Grosso (jólakonsert) eftir Franc-
esco Manfredini.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn þeim sem ekki eru
styrktarfélagar.
-- ■! ■ T n i— —i _ m —^l^_—
"FRRPU VRRLfófl. MÉR FINN'dT HRNN GRUN5RM-
LEGUR. HRNNPRNTRPI FJÖRTÉIN NRUTRSTEIKUR11
Gaukur
á stöng
Þú hefur
m.a. um þrennt
aö velja
i Einn bezta hádegis- og kvöldmat
síöan á þjóöveldisöld.
i Heitir hátíðardrykkir og heima-
bakkelsi beint úr ofninum á Stöng
I Skemmtilegt fólk á skemmtileg-
um staö.
Allt
þetta færðu
á nýja
kaupmáttarverðlaginu
Opiö virka daga frá k'. 11—23.30
og um helgar frá kl. 11 —17 og
18—3.