Morgunblaðið - 17.12.1983, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1983
íslendingar geta borið höfuð-
ið hátt vegna afstöðu sinnar
Umræður um afvopnunar- og kjarnorkumál á Alþingi:
— sagði Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra
ALLHARÐAR umræður urðu í
samcinuðu Alþingi á fimmtudag
þegar mælt var fyrir tillögu til
þingsályktunar um frystingu
kjarnorkuvopna, en tillaga þessi
er flutt af Kvennalista, en fyrir
henni mælti Guðrún Agnarsdótt-
ir, fyrsti flutningsmaður, en
meðflutningsmenn eru þær Sig-
ríður Dúna Kristmundsdóttir og
Kristín Halldórsdóttir.
Guðrún sagði í máli sínu að
efni tillögunnar væri það að Al-
þingi ályktaði að skora á ríkis-
stjórnina að beita sér fyrir því á
alþjóðavettvangi að Sovétríkin og
Bandaríkin lýsi yfir tafarlausri
frystingu kjarnorkuvopna, annað
hvort með samtíma einhliða yfir-
lýsingum, eða með sameiginlegri
yfirlýsingu. Yrði slík yfirlýsing
fyrsta skref í átt að yfirgripsmik-
illi afvopnunaráætlun sem í sér
fæli eftirfarandi:
1. Allsherjarbann við tilraunum
með framleiðslu á og uppsetn-
ingu kjarnorkuvopna. Enn
fremur algjöra stöðvun á
framleiðslu kjarnakleyfra efna
til vopnanotkunar.
2. Frystingu sem er háð öllum
þeim aðferðum til sönnunar og
eftirlits sem þegar hafa verið
samþykktar af málsaðilum í
Salt I og Salt II samningunum
auk þeirra aðferða sem þeir
hafa samþykkt í grundvallar-
atriðum í þríhliða undirbún-
ingsviðræðum í Genf um al-
gjört bann við kjarnorku-
vopnatilraunum.
3. Frystingu sem gildir í fimm ár
til að byrja með en gæti orðið
lengri ef önnur kjarnorkuveldi
slást í hópinn eins og vonir
standa til.
Fjórða tillaga
Næstur talaði Geir Hallgríms-
son utanríkisráðherra. Sagði
hann að fram hefðu komið þrjár
aðrar tillögur um afvopnunarmál
og þeim hefði verið vísað til utan-
ríkismálanefndar. Kvaðsf hann
ekki telja ástæður til þess að
fjalla um efni þessarar fjórðu til-
lögu sérstaklega, því það yrði
gert í utanríkismálanefnd og
væri rétt að ræða framkomnar
tillögur um þessi mál saman i
nefndinni.
Þá talaði Hjörleifur Gutt-
ormsson (Abl) og lýsti hann fylgi
sínu við áðurgreinda tillögu
Kvennalista og slíkt hið sama
gerði Stefán Benediktsson (BJ)
fyrir hönd Bandalags jafnaðar-
manna.
Ekki tekin afstaða
til tillagna
Næstur talaði Svavar Gestsson
(Abl). Sagði hann að það væri af-
leitt að Alþingi, eitt þjóðþinga í
V-Evrópu og N-Ameríku, hefði
ekki fengið tækifæri til að ræða
kjarnorkumál undanfarið. Það
væri ekki tekin afstaða til til-
lagna um þessi efni, þeim væri
vísað til nefndar, en ekki af-
greidd. Þetta væri slæmt, þar
sem þetta væru stór mál sem
ráða myndu úrslitum um framtíð
alls mannkyns. Hins vegar sagði
Svavar að hugsanlegt væri að
einhver afgreiðsla á málum þess-
um fengist fyrir hátíðar.
Þá gagnrýndi Svavar að Al-
þingi hefði ekki gefist færi á að
taka afstöðu til tillögu Mexíkó og
Svíþjóðar sem í dag (fimmtudag)
hefði verið til afgreiðslu á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Sagði Svavar að ríkisstjórnin
hefði kosið að fara fram með sína
afstöðu, þ.e. að sitja hjá án þess
að spyrja þingið og án þess að
kanna afstöðu þess til málsins.
Óbreytt afstaða
Kom þá í ræðustól Geir Hall-
grímsson, utanríkisráðherra.
Sagðist hann vísa orðum Svavars
Gestssonar heim til föðurhús-
anna. Ríkisstjórnin hefði í engu
breytt afstöðu sinni til áður-
greindra mála, frá þeim tíma sem
Svavar Gestsson var ráðherra í
ríkisstjórn Iandsins. Þá hefði það
verið á valdi hans að vekja máls á
því erlendis hver afstaða íslands
væri, ef hugur hefði fylgt máli.
Þá fór Geir nokkrum orðum
um þær tillögur um afvopnun-
armál sem fram hefðu komið á
Alþingi. Sagði hann að tillaga
sjálfstæðismanna hefði komið
snemma fram á þinginu og væri
6. mál þess. Aðrar tillögur hefðu
komið síðar fram, enda væru til-
lögurnar mál númer 69 og 114.
Síðan væri þessi síðasta tillaga
númer 139 á málaskránni. Af
þessu væri ljóst að tillögurnar
væru misfljótt fram komnar og
leiddi það í ljós að ríkisstjórnin
tefði ekki fyrir afgreiðslu þessara
mála á þingi. Geir kvaðst gera sér
vonir um að hægt væri að fjalla
um allar 4 tillögurnar saman í
utanríkismálanefnd. Hins vegar
væru þessi mál meiri að vöxtum
en svo að unnt væri að ljúka þeim
fyrir jól, enda væru þau þannig
að þau þyrftu nægan tíma til um-
fjöllunar i þinginu. Þetta mál
ætti að vinna þannig að það væri
virðingu Alþingis samboðið og
reyna að fella tillögurnar saman í
eina og ef það væri ekki hægt, að
gera þá grein fyrir því í hverju
skoðanamunurinn liggur.
U tanríkisráðher ra
notar vald sitt
Næstur talaði Kjartan Jó-
hannsson (A). Sagði hann að á
utanríkismálanefndarfundi á
fimmtudagsmorgun hefði komið
fram góður vilji til samstöðu.
Hins vegar taldi hann slæmt hve
skammt á veg málin væru komin.
Þá talaði Svavar Gestsson
(Abl). Sagði hann að utanríkis-
ráðherra hefði hagað orðum sín-
um þannig á Alþingi nýlega, að
hann vildi fá afstöðu Alþingis til
afvopnunarmálatillögu Mexíkó
og Svíþjóðar, en það hafi hann
ekki gert, vegna þess að hann
óttaðist að tillaga þjóðanna yrði
studd af Alþingi. Því hefði
utanríkisráðherra kosið að fara
einförum með þetta mál og bæri
Geir Hallgrímsson
að harma það. Utanríkisráðherra
hefði notfært sér vald sitt til þess
að ákveða hvernig atkvæði yrði
greitt á allsherjarþingi SÞ.
ísland styöur vígbúnaö
Þá talaði Ólafur R. Grímsson
(Abl). og spurði hann hvort Geir
Hallgrímsson hefði verið að
framkvæma stefnu ríkisstjórnar-
innar þegar hann studdi þá
stefnu NATO að fjölga kjarn-
orkuvopnum í Evrópu. Sagði
hann að ísland væri í hópi víg-
búnaðarþjóðanna, þar sem utan-
ríkisráðherra hefði greitt því at-
kvæði að settar yrðu upp Persh-
ing-flaugar og stýriflaugar í Evr-
ópu. Þá afstöðu hefði utanríkis-
ráðherra tekið ytra og það væri
sú staðreynd sem Alþingi stæði
frammi fyrir. Væri sú stefna önn-
ur en stefna Danmerkur, Grikk-
lands og Spánar í þessum málum.
Þá sagði ólafur að nú væri ísland
í hópi þeirra ríkja sem ekki vildu
styðja tillögu Mexíkó og Sviþjóð-
ar um frystingu kjarnorkuvopna.
Það að Geir Hallgrímsson hefði
beðið um gott samstarf innan
þings um þessi mál, hefði bara
verið skálkaskjól til þess að geta
mótað stefnuna sjálfur.
Odrengilegar árásir
Næstur talaði Eyjólfur Konráð
Jónsson (S), en hann gegndi for-
mennsku á fundi utanríkismála-
nefndar í gær. Gagnrýndi hann
Ólaf R. Grímsson fyrir ummæli
hans og ódrengilegar árásir á
utanríkisráðherra. Sagði hann að
samkomulag hefði verið um að
halda fund utanríkismálanefndar
á fimmtudagsmorgun og það væri
ljóst að utanríkisráðherra ætti
enga sök á því hvernig málin
hefðu dregist.
Kjarnorkuvopnum
fækkar um Vz
Þá kom í ræðustól Geir Hall-
grímsson utanríkisráðherra.
Sagði hann að aðrar ályktanir
yrðu ekki dregnar af umræðun-
um en þær að Alþýðubandalagið
vildi- ekki missa glæpinn sinn og
vildi ekkert jákvætt leggja fram
til framgangs málsins. Sagði
hann að uppsetning kjarnaflauga
í Evrópu hefði verið samþykkt í
desember árið 1979 og bæru þrír
utanríkisráðherrar ábyrgð á
stefnunni þá og síðan, þeir Kjart-
an Jóhannsson, Ólafur Jóhann-
esson og Geir Hallgrímsson. Þó
íslendingar hefðu staðið að
ákvörðun þessari hefðu þeir tekið
skýrt fram sérstöðu sína, það að
hér væri ekki íslenskur her og ís-
lendingar sættu sig ekki við
kjarnorkuvopn í landi sínu. Þá
sagði Geir rangt að með uppsetn-
ingu flauga NATO í Evrópu
myndi kjarnorkuvopnum þar
fjölga. NATO hefði ákveðið ein-
hliða að leggja 1000 kjarna-
oddum, sem var gert í fyrra og
1800 kjarnaoddum hefði verið
lagt í ár. Auk þess væri tekið úr
umferð kjamavopn í stað hverrar
nýrrar kjarnaflaugar sem upp
væri sett. Þetta þýddi ekki aukn-
ingu kjarnorkuvopna heldur
fækkun um Vís. Hins vegar hefðu
Sovétmenn sett upp 369 kjarn-
orkuflaugar í Evrópu og væru
þær með 3 kjarnaoddum hver. Á
meðan á því stóð hefðu Alþýðu-
bandalagsmenn ekki hreyft legg
eða lið, en Sovétmenn settu niður
eina kjarnaflaug á dag, án þess
að því væri mótmælt. Vopn
NATO væru til svörunar þessari
ógnun og raunar hefði NATO
boðist til þess að taka niður allar
sínar flaugar í Evrópu, ef Sov-
étmenn gerðu það sama, en því
höfnuðu þeir. Þá sagði Geir að
þeir sem vildu koma þeim stimpli
á íslendinga að þeir væru ekki
friðarmegin, þeir væru ekki frið-
elskandi sjálfir. Sagði Geir að ís-
lendingar gætu borið höfuðið
hátt varðandi afstöðu sína til
þessara mála.
Þá mótmælti Geir því að hann
hefði tefið störf Alþingis.
Obreytt utan-
ríkisstefna
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra sagði, að þegar
ríkisstjórnin var mynduð hefði
verið um það samið að utanrík-
isstefnan skyldi vera óbreytt, en
utanríkisráðherra mótaði stefn-
una. Hins vegar fagnaði forsæt-
isráðherra umræðum um þessi
mál og kvaðst hann sjálfur ekki
hafa tekið persónulega afstöðu til
þess hvort setja eigi upp kjarna-
flaugar í Evrópu.
Kvaðst Steingrímur hallast að
því að íslendingar beittu sér fyrir
því að framleiðslu kjarnorku-
vopna verði hætt.
Aþýðubandalag kemur
í veg fyrir samstöðu
Ólafur G. Einarsson (S), sagði
að þáttur Alþýðubandalagsins í
umræðum þessum væri sérstakur
og legðu þeir sig fram um að
koma í veg fyrir þá samstöðu um
framgang þingmála sem ætti að
geta náðst.
Er hér var komið sögu kvöddu
nokkrir þingmenn Alþýðubanda-
lagsins sér hljóðs, en greip þá
forseti Sameinaðs þings til þess
ráðs að fresta umræðunni, enda
sagði hann að um það hefði verið
samið að hleypa þingsályktunar-
tillögunni sem varð tilefni
umræðnanna, umræðulítið í
gegn.
Að svo komnu máli kvöddu þeir
ólafur R. Grímsson og Svavar
Gestsson sér hljóðs um þingsköp,
en lyktir máls urðu þær að ekki
urðu frekari umræður um þessi
mál og var þingsályktunartillög-
unni vísað til utanríkismála-
nefndar.
Frumvarp til breytinga á höfundalögum:
Verk höfunda nýtt í stór-
um stíl án endurgjalds
með ljósritun, fjölritun, hljóð- og myndritun
FRAM hefur verið lagt á Alþingi
stjórnarfrumvap til breytinga á
höfundalögum nr. 73/1972, samið
af höfundaréttarnefnd, en formað-
ur hennar er dr. Gaukur Jörunds-
son, prófessor. Meginefni frum-
varpsins felur í sér að „höfundar
verka, sem útvarpað hefur verið
eða gefin hafa verið út á hljóðriti
eða myndriti, eigi rétt á sérstöku
endurgjaldi vegna upptöku verka
þeirra á hljóð- eða myndbönd til
einkanota með heimild í 1. mgr.
þessarar greinar", eins og segir í
fyrstu frumvarpsgreininni (sem er
viðbótarmálsgrein við 11. grein
laganna).
„Greiða skal gjald af tækjum
til upptöku verka á hljóð- eða
myndböndum til einkanota, svo
og af auðum hljóð- eða mynd-
böndum og öðrum böndum, sem
telja má ætluð til slíkra nota.
Gjaldið skal greitt af tækjum og
böndum, sem flutt eru til lands-
ins eða framleidd hér á landi, og
hvílir skylda að svara gjaldi
þessu á innflytjendum og fram-
leiðendum. Menntamálaráðu-
neytið setur nánari reglur um
gjaldið, þar á meðal um viðmið-
un þess og fjárhæð, að höfðu
samráði við heildarsamtök
rétthafa svo og innflytjendur og
framleiðendur.
Sameiginleg inheimtumiðstöð
samtaka rétthafa, þar með tal-
inni listflytjenda og framleið-
enda, innheimtir höfundarrétt-
argjald ...“
í greinargerð, sem er mjög ít-
arleg, segir m.a. að tæknifram-
farir á síðari árum hafi haft í för
með sér stórfellda röskun á
hagsmunum og réttindum höf-
unda, listflytjenda og annarra
rétthafa samkvæmt höfundalög-
um. Umfangsmikil og almenn
not eru nú höfð af verkum höf-
unda, svo sem með ljósritun,
fjölritun, hljóðritun og myndrit-
un, án þess að endurgjald komi
fyrir.