Morgunblaðið - 17.12.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1983
37
Norræna húsið:
Hulduskáld stíga
fram í dagsljósið
Upplestur úr ljóðum síðdegis á sunnudag
„Hulduskáld“ munu lesa upp í
Norræna Húsinu á sunnudag klukk-
an fjögur.
Það eru átta ljóðskáld, sem öll
eiga það sameiginlegt að gefa á
eigin vegum út bækur sínar, sem
standa fyrir upplestrinum: Elísa-
bet Jökulsdóttir, Berglind Gunn-
arsdóttir, Jón Þorleifsson, Birgir
Svan, Pjetur Hafstein Lárusson,
Sveinbjörn Þorkelsson, Svein-
björn Beinteinsson og Einar
ólafsson. Á blaðamannafundi sem
haldinn var í tilefni þessa sögðu
skáldin meðal annars: „í þessari
tíð þegar fjársterkir bókaklúbbar
og fyrirtæki auglýsa höfunda og
verk sem ákafast er hætt við að
eiginútgáfuhöfundar lendi í
skugganum. Tilgangurinn með
þessum upplestri er því að gefa
þessu huldufólki, sem lagt hefur
mjólkurpeningana í að gefa út list
sína, tækifæri til að sýna sig og
sjá aðra. Við viljum reyna að ná
til þess hóps sem við skrifum
fyrir, gefa því tækifæri til að hvíla
sig frá tónasúpunni og hlusta á
hið taiaða mál, standa augliti til
auglitis við höfundinn og heyra
''a^n lesa sín ljóð með þem áhersl-
um tilfinningu sem hann sjálf-
ur hefur skapað í ljóðinu. Þarna
bjóðast nýjar og gamlar bækur
höfunda til kaups. Rúllugjald
verður 100 krónur og gildir að-
göngumiðinn sem happdrættis-
miði.“
Pjetur Hafstein Lárusson og Birgir Svan Símonarson eru tvö af átta huldu-
skáldum sem lesa úr verkum sínum f Norræna húsinu á sunnudaginn
klukkan fjögur.
Sýslunefnd A-Hún. hefur
ekki afþakkað fjárveitingar
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá sýslu-
nefnd Austur-Húnavatnssýslu vegna
fréttar í blaðinu síðastliðinn þriðju-
dag um að Blönduós afþakki fjár-
veitingar:
„Að gefnu tilefni vill sýslunefnd
A-Hún. taka fram, að hún hefur
ekki afþakkað fjárveitingar til
Blönduóss eða annarra staða í
Húnavatnssýslu, hvorki með
skeyti né á annan hátt. Sýslunefnd
fagnar hverri fjárveitingu, sem
veitt er í sýsluna og væntir góðrar
samvinnu við fjárveitingavaldið
hér eftir sem hingað til.“
Þetta var samþykkt á aukafundi
sýslunefndar 14. desember síðast-
liðinn.
„Bláa þruman“ jóla-
mynd Stjörnubíós
JÓLAMYND Stjörnubíós í ár er
„Bláa þruman" (Blue Thunder). f
aðalhlutverkum eru Roy Schneider,
Warren Oats og Candy Clark. Leik-
stjóri er John Badham.
Myndin er bandarísk og naut
vinsælda vestanhafs á liðnu
sumri. f myndinni er greint frá
ævintýrum þyrluflugmannsins
Frank Murphys í Los Angeles, en
hann hefur mikla reynslu úr Víet-
nam-stríðinu. Hann er fenginn til
að reynslufljúga Bláu þrumunni,
sem er tæknilegt afrek, vel búin
vopnum. Murphy kemst að fyrir-
ætlunum alríkislögreglunnar og
nokkurra háttsettra embætt-
ismanna og í framhaldi af því
hefst eltingaleikur þeirra við
Murphy, sem tekið hefur Bláu
þrumuna traustataki.
Musica Antiqua með tónleika í and-
dyri Þjóðminjasafnsins í dag
MUSICA Antiqua heldur tónlcika í
anddyri Þjóðminjasafnsins í dag,
laugardaginn 17. desember, og hefj-
ast þeir klukkan 17.00.
Á efnisskránni eru Madrigalar
eftir Morley, Senfl, Monteverdi,
Jannequin o.fl., en á milli verður
leikin orgeltónlist frá sama tíma.
Flytjendur eru: Erna Guð-
mundsdóttir sópran, Camilla Söd-
erberg sópran, Marta Halldórs-
dóttir sópran, Hildigunnur Hall-
dórsdóttir sópran/alt, Sigríður
Jónsdóttir alt, Kristín Ólafsdóttir
alt, Snorri Örn Snorrason tenór,
Kjartan óskarsson tenór, Halldór
Vilhelmsson bassi og Jón Stefáns-
son bassi. Á orgelið leikur Jón
Stefánsson.
Hak)rien\\4mblads
Björ
studio-linie
A EINARSSON & FUNK HF
Laugavegi 85
Björn Wiinblad er einhver hugmyndaríkasti
og fjölhæfasti myndlistarmaöur okkar
tíma.Hann hófferilsinnsemmálari,
aX—; varösíöan heimsfrægurfyrirsitt
, sérstaka keramik. Hann hefur
ie ver'ð aöalhönnuöur hjá Rosenthal
mörg undanfarin ár. Hér hefur hann
5 hannað postulínshálsmen í gullkeöju
meö myndum af stjörnumerkjunum.
I
N