Morgunblaðið - 19.02.1984, Side 20

Morgunblaðið - 19.02.1984, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 Steinn í Taðmi fjolskyldunnar við heimili þeirra að Huldulandi 6. Lengst til vinstri er Sigurbergur Steinsson, þá kona Steins, Hrafnhildur Sigurbergsdóttir, fyrir framan þau hjónin er Hrönn Sigríður Steinsdóttir og loks Kjartan Steinsson. Morgunbiaftið/ ói.k.m. Seldi áður íslend inguni heiminn - selur nú útlendingum ísland * Rætt við Stein Lárusson, fyrrverandi forstjóra Urvals og núverandi sölustjóra Flugleiða í Noregi, um ferðamál fyrr og síðar Hvað skyldi vera langt síöan fólk hætti að tala um „siglda menn“ af sérstakri lotningu? Sennilega ekki mikið meira en fimmtán, tuttugu ár, enda fóru feröalög ekki að verða al- menningseign fyrr en um miðjan sjöunda áratuginn. Á árinu 1%3 fóru rétt liðlega 13 þúsund Islendingar til útlanda, en árið 1978 var þessi tala komin upp í 80 þúsund manns. I>aö liggur við að hægt sé að tala um stökkbreytingu og hú á dögum eru þeir menn hvítir hrafnar, og fáséðir eftir því, sem ekki hafa stigið fæti á erlenda grund. Ferðamanna- þjónustunni hefur á sama tíma vaxið fiskur um hrygg: 1963 voru starfandi sex ferðaskrifstofur á landinu, en í dag eru ferðaskrifstofuleyfin 27 að tölu. Steinn Lárusson er einn þeirra manna sem hefur lifað og hrærst í ferðamálaheiminum þessa um- brotatíma: Hann var annar af eig- endum Landa og leiða frá árinu 1962, stýrði Pan American- skrifstofunni hérlendis frá 1%8—70, tók þátt í stofnun Ferða- skrifstofunnar Úrval árið 1970 og hefur verið forstjóri hennar frá upphafi til síðustu áramóta. Og enn rær Steinn á ný mið í sama sjó. Hann tók við starfi sölustjóra Flugleiða í Noregi um áramótin, þar sem hann hefur þegar tekið til óspilltra málanna við að „selja landið“, eins og hann orðar það; það er að segja, selja útlendingum ferðir til íslands, í stað þess að selja íslendingum ferðir út úr landinu, eins og hann er öllu van- ari. Það þurfti töluvert að ganga á eftir Steini til að fá hann til að þýðast viðtal. Hann hefur verið upp fyrir haus í verkefnum undan- farna mánuði og því nískur á hverja mínútu. Það er heldur ekk- ert smáræðis starf sem hann skil- ur eftir sig hér á landi; auk þess að gegna forstjórastöðu Úrvals, hef- ur hann átt sæti í stjórnum fimm fyrirtækja úti á landi sem tengj- ast ferðaþjónustu, verið formaður Félags íslenskra ferðaskrifstofa, fulltrúi og stjórnarnefndarmaður í Ferðamálaráði, ásamt því að taka þátt í störfum skátahreyf- ingarinnar. Eigum við að bæta við, „og ýmislegt fleira"! En loks tókst að fá Stein til að fórna ein- um eftirmiðdegi til að ræða vítt og breitt um ferðamál á íslandi fyrr og síðar, enda Ijóst að vandfund- inn er sá maður sem hefur meiri reynslu í þeim efnum en hann. Það er forvitnilegt að heyra Stein lýsa þróuninni í ferðamálum íslendinga sl. 20 ár: „Það hafa orðið geysilegar breytingar á síðastliðnum tuttugu árum. Arið 1%3 fóru rétt liðlega 13 þúsund fslendingar úr landinu, en 1978, eða 15 árum síðar, fara rúmlega 80 þúsund. Það er hæsta tala sem við höfum komist upp í, því upp úr 1978 dregur heldur úr ferðalögum fólks sem stafar vafa- laust af því að kaupgeta íslend- inga gagnvart erlendri mynt, hef- ur rýrnað óskaplega á síðastliðn- um fimm, sex árum. Það er þó at- hyglisvert að toppurinn hefur ekki talað mikið; alveg frá ’78 hefur fjöldinn verið rétt undir 80 þús- undum, og svo virðist sem á árinu 1983 hafi um það bil 77 þúsund íslendingar farið úr landi. Það má segja að stærsta stökkið verði á árabilinu 1963 til 1%7, því 1967 fara 26.300 manns til út- landa. Það kemur lægð í kjölfarið frá 1967 til 1970, en síðan tekur fjöldinn að aukast jafnt og þétt til 1973, en þá fara 47 þúsund íslend- ingar utan. Frá 1%3 til 1%7 var mestmegn- is um að ræða litlar hópferðir og einstaklingsferðir. En frá og með 1%7 hefjast þessar ódýru leigu- ferðir til sólarlanda, sem gerir það að verkum að ferðalög verða í fyrsta sinn í sögu landsins að al- menningseign. Sólarlandaferðir „Það er þess virði að velta því fyrir sér hvers vegna sólarlanda- ferðir nutu þeirra miklu vinsælda sem raun bar vitni. Að mínu mati eru ástæðurnar þrjár: Það er í fyrsta lagi nýjabrumið, þetta var ný reynsla fyrir tslendinga að liggja á strönd og sóla sig. I öðru lagi mótast þetta af þeim gjaldeyrisreglum sem þá voru við lýði. Það voru strangar reglur um það hvað ferðamenn fengu að kaupa mikinn gjaldeyri, og því skipti miklu máli að reyna að nýta hann sem best. Og besta nýtingin var að fara á ódýra sólarstaði, þar sem bæði gisting og fæði var á besta verði sem þekktist. Maður var ríkur á Spáni í kringum 1970. Loks er stór þáttur í vinsældum sólarlandaferða hið mikla skipu- lag sem var á þessum ferðum. Þær voru, það sem við köllum í brans- anum, „þrælskipulagðar"; farar- stjórinn leiddi ferðalanginn nán- ast inn í hótelherbergi, og fólk hafði aðgang að fararstjóra á hverjum einasta degi. f þessu fólst mikið öryggi fyrir ferðamanninn, sem var kannski að fara sína fyrstu ferð. Með öðrum orðum, það var ekki meira mál að skreppa til Spánar en fara í Þórsmörk. Annars held ég að sólarlanda- ferðir hafi náð því hámarki sem þær geta náð. Toppurinn var 1978, en þá fóru á milli 25 og 30 þúsund manns til sólarlanda, en í ár reikna ég með að talan sé innan við 15 þúsund og mín spá er sú að í náinni framtíð haldist fjöldinn stöðugur á bilinu 15 til 20 þúsund manns." En hvað veldur „samdrættin- um“ á sólarlandaferðum? Nýr ferðamáti „Ferðamáti fólks er að breytast. Það sækir meira í að sjá merka staði, gista í sumarhúsi, eða það sem við köllum „flug og bíP, það er að segja, þá fljúga menn til ein- hverrar borgar í Evrópu til dæm- is, leigja bíl og haga síðan ferða- lögum sínum eftir veðri og vind- um. Einnig hefur það aukist að íslendingar heimsæki fjarlægari slóðir, og mun aukast enn meira ef við getum búið við stöðugt gengi, sem lækkar ferðakostnaðinn mik- ið. Ég held að í framtíðinni verði sumarhúsin og „flug og bíll“ jafn- vel enn vinsælli ferðamáti en þeg-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.