Morgunblaðið - 19.02.1984, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984
29
Tvær sóknarskákir frá Gausdal
Áður en við Jóhann Hjartarson
hófum þátttöku í Búnaðarbanka-
skákmótinu fórum við til Noregs
til að hita okkur upp fyrir átökin
hér heima. Fyrst vorum við með á
alþjóðlegu móti í Hamri, sem þeg-
ar hefur verið fjallað um á síðum
Mbl. og síðan öðru á háfjallahótel-
inu í Gausdal sem löngu er orðið
frægt fyrir þau mörgu mót sem þar
hafa verið haldin. I»að er Arnald J.
Eikrem sem gengst fyrir þessum
mótum, en hann er einmitt stadd-
ur hér á landi um þessar mundir
sem einn af dómurunum á 11.
Reykjavíkurskákmótinu.
Það er gott að tefla í Gausdal,
aðbúnaður frábær og má heyra
saumnál detta í keppnissalnum
því uppi á háfjöllum eru auðvit-
að engir áhorfendur til að trufla.
Erlendis eru áhorfendur á
skákmótum nefnilega ekki alveg
eins kurteisir og þeir íslensku
sem virðast gera sér fulla grein
fyrir því að í skáksal verður að
ríkja algjör þögn. A.m.k. kvört-
uðu keppendur á Búnaðarbanka-
mótinu ekkert yfir hávaða, nema
þegar skákskýringar Benónýs
urðu of háværar.
Við Jóhann vorum því í góðu
formi í Gausdal, urðum jafnir og
efstir og auk þess tryggði Jó-
hann sér áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli mjög léttilega. Þó
fjórir stórmeistarar væru með á
mótinu voru það tveir titillausir
Finnar sem veittu okkur harð-
asta keppni. Válkesálmi leiddi
mótið lengst af en tapaði fyrir
mér í fimmtu umferð. Við Jó-
hann unnum Yrjola báðir í fyrri
hluta mótsins og héldum að við
þyrftum ekki að hafa meiri
áhyggjur af honum, en með að-
stoð Monrad-meðvinds komst
hann upp að hlið okkar með því
að vinna fjórar síðustu skákirn-
ar.
1.—3. Margeir Pétursson (37,5
stig), Jóhann Hjartar-
son (37,5 stig) og Yrjola,
(Finnlandi) 37,0 stig) 6
v. af 9 mögulegum.
4. Ostermeyer (V-Þýzka-
landi 5'A v.
5.—10. Válkesálmi og Wester-
inen (Finnlandi),
Knezevic (Júgóslavíu),
Hartman (Svíþjóð),
Ögaard og Tiller (Nor-
egi) 5 v. ■
11. —13. McCambridge (Banda-
ríkjunum), Rajkovic
(Júgóslavíu) og Nykopp
(Finnlandi) 4‘Á v.
14. Benkö (Bandaríkjun-
um) 4 v.
15. Egede-Nissen (Noregi)
3'k v.
16. Brekke (Noregi) 3 v.
17. Bjerke (Noregi) 2 v.
18. Stefán Þórisson 1 'k v.
Hvítt: Yrjola (Finnlandi)
Svart: Jóhann Hjartarson
Nimzo-indversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rc3 —
Bb4, 4. e3 — c5, 5. Re2
Flestum er nú meinilla við að
fá á móti sér Húbner-afbrigðið 5.
Rf3 — Rc6, 6. Bd3 - Bxc3+, 7.
Bxc3 — d6. Með því hafa m.a.
Fisher, Timman og Seirawan
auk Húbners sjálfs unnið fræga
sigra.
5. — cxd4, 6. exd4 — 0-0, 7. a3 —
Be7, 8. d5 — exd5, 9. cxd5 — He8,
10. Be3 — Rg4, 11. Bd4 — Rh6!
Ungverski stórmeistarinn og
byrjanasérfræðingurinn Adorj-
an kom fyrstur með þennan leik
og hefur hælt honum mikið í
skákskýringum.
12. d6 — Bf6!
í skákinni Yrjola-Wedberg,
Gausdal 1983 varð framhaldið
12. - Bf8, 13. Dc2 - Bxd6, 14.
0-0-0 með góðum sóknarfærum
fyrir peðið. Jóhann vissi ekki um
þessa skák, en leikur hans virð-
ist eðlilegri og betri en 12. —
Bf8.
13. Rd5 — l)a5+, 14. Bc3 —
Bxc3+, 15. Rxc.1.
Nú hótar hvítur 16. Dd5 —
Dd8, 17. 0-0-0 sem gefur honum
mun rýmri stöðu. Eftir langa
umhugsun ákvað Jóhann að
fórna peði fyrir mótspil.
15. — b5!, 16. Dd5 — Rc6, 17.
Dxb5 — Dd8, 18. 0-0-0 — Hb8
Fyrir peðið hefur svartur
fengið sóknarfæri gegn hvíta
kónginum.
19. Dc5 — Df6, 20. Hd2 — Rf5, 21.
h4!? — Ba6, 22. Kdl?
Eftir þennan furðulega leik
verður svarta kóngssóknin
óstöðvandi. Nauðsynlegt var 22.
g4 — He5!, 23. Rd5 þó svartur
standi vafalaust betur eftir 23.
— Dxd6, 24. Dxd6 — Rxd6.
22. — He5, 23. Rd5 — De6, 24. g4
— Hxb2!, 25. gxf5 — Hxd2+, 26.
Kxd2 — Hxd5+, 27. Kel —
Dxe2+ og hvítur gafst upp vegna
framhaldsins 28. Bxe2 — Hxc5,
29. Bxa6 — Hcl+.
Hvítt: Ögaard (Noregi)
Svart: Margeir Pétursson
Tarrasch-vörn.
1. d4 — d5, 2. c4 — e6, 3. Rc3 —
c5, 4. cxd5 — exd5, 5. Rf3 — Rc6,
6. g3 — Rf6, 7. Bg2 — Be7, 8. 04)
0-0
Grunnstaðan í Rubinstein-
Schlechter-afbrigðinu. í átta
landa keppninni í Ósló í október
lék Ögaard 9. Bg5 gegn mér og
fékk betra tafl þó skákinni lyki
með jafntefli. Nú velur hann
annað framhald sem þeir Timm-
an og Andersson hafa gert vin-
sælt.
9. dxc5 — Bxc5, 10. Bg5 — d4, 11.
Bxf6 — Dxf6, 12. Rd5 — Dd8, 13.
Rd2 - He8, 14. Hel
Miles náði betri stöðu gegn
Kasparov í Niksic í haust eftir 14.
Hcl — Bb6, 15. Hel — Be6, 16.
Rf4. Ögaard hyggst beita svipaðri
leikaöferð.
14. — a6!?, 15. Hcl — Ba7, 16.
Rb3
Nú jafnar svartur taflið auð-
veldlega með því að ná uppskipt-
um á sterka biskupnum á g2, 16.
Rf4 hefði því gert svörtum öllu
erfiðara fyrir.
16. — Bf5! 17. Dd2 — Be4, 18.
Bxe4 — Hxe4, 19. Rb4?!
19. Rf4 og síðan 20. Rd3 var
mun traustara. Nú fær svartur
sóknarfæri á kóngsvæng.
19. — Rxb4, 20. Dxb4 — Dd7, 21.
Dc4 — Hae8, 22. Rd2 — H4e7, 23.
Rf3 — h6, 24. Hcdl — b5, 25. Dd3
— He4
Nú hótar svartur 26. — De6
með ásetningi á e2 og a2 í einu.
Auk þess vonaðist ég nú eftir 26.
Rd2 - He3!, 27. fxe3 - Hxe3 þó
staðan sé ekki fyllilega ljós eftir
28. Dbl - d3, 29. Kg2 - dxe2,
30. Hcl! En þegar Ögaard fellur í
þessa gildru eru aðstæðurnar
enn hagstæðari fyrir svart en
nú.
26. a3 — Dd5, 27. Rd2?
Ögaard skynjaði ekki hættuna
og hugðist endurtaka leiki til að
spara tíma. Hann átti einungis
von á 27. — H4e5, sem hann ætl-
aði að svara með 28. Rf3. Þó
hann hefði leikið 27. Hcl hefði
svartur samt sem áður haft
fnjög góð sóknarfæri eftir 27. —
g5!
(■ A mm*
Það ríkti ró og kyrrð á Gausdal-mótinu í janúar.
standa öll spjót á hvíta kóngium.
29. — llxd3, 30. exd3 — Kh7!
Fléttan hefur að vísu ekki
fært svörtum neina liðsyfir-
burði, en í þessari stöðu vinna
hvítu hrókarnir illa saman og
hvíta kóngsstaðan er veik. í raun
þarf svartur ekki annað en að
koma biskupi sínum í sóknina til
að tryggja sér sigurinn.
31. He2 — Bb8, 32. Hc2 — Bd6,
33. Re4 — Be7, 34. g4
Að öðrum kosti leikur svartur
34. - f5 og 35. - Bg5.
34. — Bg5!, 35.Hc5
Svartur vinnur peð eftir 35.
Rxg5+ — Dxg5, 36. h3 — h5.
35. — Db3, 36. Rxg5+ — hxg5, 37.
Hd2 — De6, 38. Hf2?
38. Hcc2 hefði veitt meiri mót-
spyrnu.
38. — Dxg4+ 39. Kfl — Ddl+, 40.
Kg2 — 16, 41. Hcf5 — Dxd3, 42.
H5f3 — De4, 43. Kg3 — Kg6, 44.
Hd2 - Del+, 45. Hdf2 - d3! og
Ögaard gafst upp í stað þess að
setja skákina í bið því 46. Hxd3
gengur ekki vegna 46. — De5+,
47. Kf3 - g4+!.
NORDMENDE
„Lengi
getur gott batnad“
Nýja Nordmende myndtækiö hefur nú veriö gert tíu sinnum
betra og var þó valið af stærri myndbandaleigum vegna
gæöa og góörar þjónustu.
STUTT
LÝSING:
1. Skyndi-upptaka ef mikiö
liggur á.
2. .14 daga upptökuminni
gefur míkla möguleika á
upptöku fram i timann.
3. Læsanleg myndleit á ni-
földum hraöa fram og tll
baka.
4. Góö kyrrmynd ef skoöa
þarf nánar.
5. Rammi* á eftir ramma-
kyrrmynd þannig aö hver
hreyfieining á eftir annarri
er möguieg
6. Sjálfvirk finstilling á mót-
takara.
7. Sjálfvirk bakspólun.
8. Rakaskynjari.
9. Átta stööva minni.
10. Kvartz-stýröir mótorar.
11. Digital-teljari þannig aö
auövelt er aö skrá hvar
ákveöiö efni er á mynd-
bandinu.
12. Framhlaöiö, tekur minna
plase
13: Lattröfar 8§m eru tam>
h»föir.
14. stærö:
Breidd 43,5 sm.
Hæö 13,0 sm.
Dýpt 36,0 sm.
m •D
“ c—•*» V ***'S ~52Z>»
27. — He3!, 28. fxe3 — Hxe3, 29.
Hcl
Ögaard varð að fórna drottn-
ingunni, því eftir 29. Dbl? — d3
36-9®