Morgunblaðið - 19.02.1984, Síða 38

Morgunblaðið - 19.02.1984, Síða 38
3g MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 Landnýting og ljúfifengt öl ÞINGBREF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON ' \ste " W*’. * .. *.-• i-► *■*■■ ♦» W~-- *' Landið okkar, með gögnum þess og gæðum, er lán frá forsjóninni, okkur til vndis og afkomu. I>að er þjóðarskylda að varðveita það, auka á landgæði og skila, helzt betur komnu, til framtíðar. Um þetta, eða landnýtingaráætlun, fjallar fyrri hluti þingbréfs í dag. Síðari hluti bréfsins fjallar um „feimnismál“, sem þingheimur hefur lengi farið í kring um eins og heitan (grjóna)graut, ölmáliö svokallaða. Nú liggur fyrir Alþingi tillaga um að vísa því til þjóðaratkvæðis. Hvers vegna er ekki mælt fyrir tillögu um öl og þjóðaratkvæði? „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að hlutast til um að hafinn verði undirbúningur landnýtingar- áætlunar sem taki til allra megin- þátta landnýtingar. Drög að landnýt- ingaráætlun skulu liggja fyrir í árs- lok 1985. Við gerð þeirra verði áherzla lögð á sem hagkvæmasta nýtingu og varðveizlu landgæða." Þannig hljóðar tillaga til þings- ályktunar sem Davíð Aðal- steinsson (F), Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S), Helgi Seljan (Abl), Ingvar Gíslason (F) og Jó- hanna Sigurðardóttir (A) flytja í Sameinuðu þingi. Auk móðurmáls, þjóðarsögu og menningararfleifðar er það landið (og landhelgin), sem knýtir okkur saman sem heild. Auðlindir lands og lagar, sem okkur eru lagðar í hendur til framfærslu og varð- veizlu, eru fjöregg þjóðarinnar frá nútíð til framtíðar. Það er því ekki vonum fyrr að fram kemur tillaga á Alþingi um landnýtingaráætlun, byggð á nýtingarþoli gróðurlendis, hyggilegri nýtingu og varðveizlu auðlinda landsins og sérkenna þess til langrar framtíðar. Skipuleg og hófleg nýting auðlinda f greinargerð með þessari til- lögu er lögð áherzla á naúðsyn skipulegrar og hóflegrar nýtingar auðlinda lands og sjávar. Þar er vakin athygli á því að með land- græðsluáætlun 1974 hafi verið gert stórátak til að stöðva gróður- eyðingu og uppblástur, varðveita og bæta landgæði. Nú er unnið að framkvæmd nýrrar landgræðsluáætlunar. Henni þarf að fylgja eftir með gerð víðtækrar áætlunar, sem taki tillit til margs konar landnýtingar í landbúnaði, svo sem nýtingar beitilanda og skógræktar. Þar þarf að huga að landnotum margs- konar mannvirkja og þéttbýlis. Minna má á staðsetningu stór- virkjana og orkuiðnaðarfyrir- tækja, sem hljóta að verða liður í framfarasókn þjóðarinnar, fram- tíðaratvinnuöryggi og framtíðar- lífskjörum. Síðast en ekki sízt þarf að muna eftir þörf hins almenna manns, í þéttbýli sem strjálbýli, til útivistar, samvista við náttúru landsins. Þar undir heyra sumar- byggðir þéttbýlisfólks. Búrekstur og byggð um landið allt í greinargerðinni er og vikið að nýtingu úthagabeitar, bæði í heimalöndum og afréttum, enda byggist framtíð landbúnaðar, einkum sauðfjárræktar, á hag- kvæmri nýtingu beitilanda. Þar er réttilega lögð áherzla á gildi „náttúrulegs gróðurlendis" og staðhæft, að „framleiðslukostnað- ur sauðfjárafurða yrði mun hærri ef ekki tækist að varðveita beit- argæði úthaga, sérstaklega afrétt- anna“. Af þessu leiðir að samræmi þarf að vera á milli búfjárfjölda og tiltæks haglendis; — á sama hátt og við þurfum að laga veiði- sókn fiskiskipaflotans að veiðiþoli nytjafiska. Þetta þýðir jafnframt að nánara samhengi þarf að vera á milli vals á búgreinum og bú- fjárfjölda á sérhverri jörð annars vegar og þeirra landgæða sem hún hefur til umráða hinsvegar. „Hér kemur m.a. til álita," segir í grein- argerðinni, „hvernig fjárfestingu er hagað í landhúnaði, hvernig hægt er að koma við markvissari stjórnun, hvernig hægt er að að- stoða bændur sem gera róttækar breytingar í búskaparháttum." Þar er og vikið að gerð búrekstrar- og byggðaáætlana, „þar eð nýting jarðargróða er einn af hornstein- um lífvænlegrar byggðar um land allt“. Tillögumenn fjalla og um nauð- syn skógræktar og hvern veg tengja megi hana hefðbundnum búskap. „Trúlegt er,“ segir þar, „að tekjur af skógrækt skipti nokkru máli þegar tímar líða, enda líkur á hækkandi timbur- verði og ýmiss konar skógarafurð- um í framtíðinni — og jafnvel gæti orðið skortur á þeim.“ „Ef að líkum lætur," segir ennfremur, „mun þjóðin í vaxandi mæli byggja afkomu sína á skyn- samlegri nýtingu innlendrar orku. Því er nauðsynlegt að tryggja orkuvinnsluiðnaðinum nægilegt landrými, ekki sízt til að forðast árekstra í framtíðinni." Loks er vikið að auknum áhuga almennings á samskiptum við náttúru landsins og náttúruvernd, umhverfismálum og útivist hvers konar. Mæta þurfi þessum sjón- armiðum, en jafnframt að vernda viðkvæm gróðurlendi fyrir ágangi fénaðar og manna. Fagna ber þessum tillöguflutn- ingi. Velferð okkar felst ekki sízt í skynsamlegri nýtingu gæða lands- ins. Landnýtingaráætlun gæti orðið vegvísir til þeirrar áttar. Þjóðaratkvæði um öl „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta fara fram al- menna atkvæðagreiðslu um heim- ild til bruggunar og sölu meðal- sterks áfengs öls. — Atkvæða- greiðslan fari fram samtímis næstu alþingiskosningum eða sveitarstjórnarkosningum, hvorar sem á undan verða." Þannig hljóðar tiilaga, sem Magnús H. Magnússon (Á), Frið- rik Sophusson (S), Guðrún Helga- dóttir (Abl) og Stefán Benedikts- son (BJ) fluttu fyrir allnokkru, en ekki hefur enn verið mælt fyrir, hvað sem veldur. Þeir, sem telja öl æskilegt á ís- lenzkan markað, tíunda rök sín efnislega á þessa leið: • Hér er leyfð sala hverskonar áfengis utan þess sem minnstan styrkleika hefur, áfengs öls. AIWA AIWA AIWA Stórkostleg útsala Vikuna 20. til 25. febrúar seljum viö eldri model af AIWA-hljómflutningstækjum og AIWA-feröaútvörp- um/segulbandstækjum ásamt ýmsu ööru á stórlækkuöu veröi. 20—40% afsláttur AD 3150 segulb. Verð áður kr. 11.380. Nú kr. 8.800 22% afsláttur. Tílvalið til fermingargjafa. — Greiðslukjör. Gefum jafn- framt 5% afslátt á öllum öðrum vörum verslunarinnar sömu viku. •" • V:j> . , ,i •m ífflw mni tm mrn 0 0 8 8 0 AX-550 útv./magn. Verö áður kr. 17.730 Nú kr. 10.500 TPR-990 Verö áöur kr. 19.415 Nú kr. 15.455 20% afsláttur 40% afsláttur. D_____i_j. i\daio; ARMULA 38 iSelmúla megim — 105REVKJAVIK SIMAR: 31133 83177 - POSTHOLF 1366

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.