Morgunblaðið - 19.02.1984, Page 48

Morgunblaðið - 19.02.1984, Page 48
 Ein KORT AU5 STAÐAR SUNNUDAGUR 19. FEBRUAR 1984 VERÐ I LAUSASOLU 20 KR. Frá undirritun samningsins í gærmorgun. l>orsteinn Geirsson, skrifstofustjóri fjármálaráðuneytisins til vinstri, Asthildur Erlingsdóttir, formaður Launamálaráðs, og l»orsteinn A. Jónsson, varaformaður. MorgunbiaJíj/JúHus Fjöldi manns til yfirheyrslna Hringdi ræninginn til aö villa um fyrir lögreglu? KÆNINGINN, sem hafði á brott tæpar 2 milljónir króna frá útibúi Landsbanka fslands á föstudagskvöldið, var enn ófundinn um klukkan tvö í gær.Samkvæmt heimildum Mbl. höfðu þó bnrist upplýsingar, sem vonir voru bundnar við að leiddu Kannsóknarlögreglu ríkisins á slóð ræningjans. Umfangsmikil rannsókn stendur yfir á ráninu og fór fram ein víð- tækasta leit í sögu lögreglunnar. Allt tiltækt lögreglulið var kallað út, víkingasveit lögreglunnar, lið Rannsóknarlögreglunnar og spor- hundur. Hundurinn rakti slóð frá bifreiðinni, en ekkert mun hafa komið út úr því. Fjöldi manns var færður til yfirheyrslu til RLR í fyrrinótt, bæði vitni og menn sem lögreglan taldi ástæðu til að færa til yfirheyrslu vegna rannsóknar málsins og hugsanlegra tengsla. Allar líkur benda til að ræning- inn hafi stolið haglabyssunni, sem hann notaði til ránsins, úr verslun- inni Vesturöst. Högl sem fundust í Volkswagen-bifreið starfsmanna Samningar takast með BHM og ríkinu 4,5% launahækkun 1. mars SAMNINGAR hafa tekist með l.aunamálaráði ríkisstarfsmanna innan BHM og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og undirrit- uðu Ásthildur Krlingsdóttir, for- maður Launamálaráðs, og l*or- steinn A. Jónsson, varaformaður, samkomulagið klukkan II í gær- morgun í skrifstofum fjármálaráð- herra. Deilan fór frá Kíkissátta- semjara til Kjaradóms fyrir um 3 vikum síðan, en deiluaðilar óskuðu eftir fresti fyrir dóminum og hafa samningaviðræður staðið yfir síð- an. Albert (iuðmundsson, fjár- málaráðherra, undirritaði samn- inginn fyrir hönd Ríkissjóðs. Samkvæmt samningnum hækka laun ríkisstarfsmanna innan BHM um 4,5% 1. mars næstkomandi og fjármálaráð- herra hefur með samkomulaginu heitið að beita sér fyrir því að lögboðinn samningstími BHM, sem er 2 ár, verði framvegis samningsatriði, en þó 1 ár ef ekki næst samkomulag og kjara- deila fer til Kjaradóms. Þá felur samningurinn í sér að samnings- aðilar munu standa sameigin- lega að samanburðarathugun á kjörum starfsmanna hjá öðrum en ríkinu, sem gegna hliðstæðum störfum að því er varðar ábyrgð, menntun og sérhæfni. Samning- urinn felur ekki í sér breytingu á endurskoðunarrétti Launamála- ráðs. „Okkar samningsréttarstaða hefur alltaf verið mjög bágborin. Okkur er uppáiögð sönnunar- byrði fyrir Kjaradómi sem ill- mögulegt er að uppfylla og einn helsti kosturinn við þennan samning er athugun á kjörum sambærilega menntaðra manna á hinum almenna vinnumark- aði,“ sagði Ásthildur Erlings- dóttir, formaður Launamála- ráðs. „Niðurstaða á að liggja fyrir í árslok 1984 og það er mjög mikilvægt fyrir næstu samn- inga, því þar fáum við væntan- lega þau gögn í hendur sem við þurfum að hafa og sýna hvað við berum skarðan hlut frá borði miðað við hinn almenna markað. Þá er einnig mikið atriði í samn- ingnum breytingin á samnings- tímanum, sem er ekki 2 ár, eins og hefur verið, heldur 1 ár og á í framtíðinni að verða samkomu- lagsatriði. Við teljum að þetta' sé að- gengilegt samkomulag miðað við aðstæðurnar í þjóðfélaginu. Við erum eiginlega að byggja upp fyrir framtíðina og tökum aðeins eitt skref í einu. Það vita allir að við höfum árum saman verið á eftir í kjörum, en sönnunarbyrð- in hefur reynst okkur erfið og samanburðarkönnun á kjörum er fyrsta skrefið í þá átt að fá fram breytingu á þessu," sagði Ásthildur. Hjá Ásthildi kom fram að um aðalkjarasamning er að ræða, en sérkjarasamningar eru alfarið i höndum félaganna. Samningur- inn er undirritaður með fyrir- vara um samþykki Launamála- ráðs eftir að aðildarfélögin hafa kynnt samninginn í félögunum. „Við lýsum ánægju okkar yfir að þessir samningar hafi náðst. Útgjaldahliðin er innan þess ramma sem fjárlög gera ráð fyrir og í samræmi við þær óskir sem fjármálaráðherra hefur sett fram. Við vonum að þessi samn- ingur hafi jákvæð áhrif á aðra samningsgerð," sagði Geir Haarde, aðstoðarmaður fjár- málaráðherra um samninginn. Fjórir hvítblæðisjúklingar sendir utan til mergskipta Unnið að undirbúningi að för hins fimmta — Tveir hafa látist FJORIR hvítblæóisjúklingar hafa verið sendir utan til mergskipta og nú er verið að vinna að undirbún- ingi þess að senda þann fimmta. Tveir sjúklinganna létust, en þeir voru til meðferðar erlendis vegna b"‘ Jahvítblæðis. Einar Stefánsson, sem Mbl. birti viðtal við á fostu- dag, er fyrsti íslenski sjúklingur- inn, sem líkur eru á að nái fullum bata eftir mergskipti, en hann þjáðist af krónísku hvítblæði. I»etta kemur fram í viðtali við Sig- mund Magnússon, yfírlækni á blóðrannsóknardeild Landspítal- ans, í Mbl. í dag. „Einar þjáðist af krónísku hvítblæði og mergskipti voru eini möguleiki hans til þess að lifa sjúkdóminn af. Sjúklingar með krónískt hvítblæði hafa lif- að að meðaltali í 3‘/í ár eftir að sjúkdómurinn hefur verið greindur. Hingað til hefur með- ferð falist í því, að gera þeim lífið bærilegt, en þeir hafa allir látist," segir Sigmundur í sam- tali við Mbl. f „Hins vegar er það misskiln- ingur að hvítblæði sé ólæknan- legt. Það er hægt að lækna bráðahvítblæði með lyfjagjöfum. Tekist hefur að lækna um 50% barna, sem þjáðst hafa af bráða- hvítblæði, með lyfjameðferð einni saman. Þá hefur tekist að lækna um 15% fullorðins fólks, sem fengið hefur sjúkdóminn. Við teljum okkur nú þegar hafa nokkurn hóp íslendinga, sem tekist hefur að lækna á þennan máta. Einar er þvf ekki fyrsti fslendingurinn sem lækn- ast af hvítblæði, þó hann verði vonandi sá fyrsti sem læknast af krónísku hvítblæði," segir Sig- mundur. Sjá viótal við Sigmund Magn- ússon, yfírlækni, á bls. 43. ÁTVR eru sams konar og stolið var úr Vesturöst. Þá hefur Mbl. heimildir fyrir því, að hringt var til lögreglunnar skömmu eftir að leigubifreiðinni var rænt í Nauthólsvík, og tilkynnt að leigubifreiðinni hefði sést ekið austur Suðurlandsbraut, framhjá Hótel Esju. Lögregluliði var þá stefnt í austurborg Reykjavíkur og Vesturlandsvegur lokaður, en á sama tíma var ránið framið á Laugaveginum. Er hugsanlegt talið að ræninginn, eða vitorðsmaður hans, hafi hringt til þess að villa um fyrir lögreglunni og beina at- hyglinni annað. RLR varðist allra frétta af rann- sókn málsins, en áfram var unnið af fullum krafti. Sjá viðtöl við Konráð Konráðs- son, starfsmann ÁTVK, og Örn Keyni Pétursson, leigubílstjóra, á blaðsfðu 2. Reykjavík: Samtök stofnuð um reiðhöll ÁKVEÐIÐ hefur verið að stofna samtök um byggingu reiðhallar í Reykjavík. Sex manna nefnd, skip- uð fulltrúm áhugafólks, vinnur að undirbúningi stofnunarinnar en rætt hefur verið um að byggja höll- ina í grjótnámi Reykjavíkurborgar á Víðivöllum, eða á Fákssvæðinu. Fyrirhugað er að nota reiðhöllina til kennslu í reiðmennsku, hesta- sýninga og hverskonar hesta- mennsku innan dyra. Á Búnaðarþingi í fyrra kom fram tillaga um byggingu reið- hallar. Kaus þingið milliþinga- nefnd, sem ætlað var að kanna nánar möguleika á framkvæmd- inni. Nefndin hefur skilað áliti og í framhaidi af þvi boðaði stjórn Búnaðarfélags lslands til fundar með hestamönnum og ýmsu öðru áhugafólki. Var þar ákveðið að stofna samtökin og undirbún- ingsnefndin kosin. Henni er ætl- að að kanna hvaða einstaklingar, félög, stofnanir og sveitarfélög vilji gerast aðilar að samtökum um byggingu reiðhallarinnar, gera tillögur að samþykktum og vinna að öðrum undirbúningi málsins, sem hún telur ástæðu til. Nefndinni er síðan ætlað að boða til stofnfundar. Siglufjöröur: Beitir NK með fyrstu loðnuna Siglufiröi, 18. febrúar. FYRSTA loðnan barst til Siglufjarðar á röstudagskvöldið og höfðu sjö skip til- kynnt komu sfna með samtals um 7 þúsund tonn. Beitir frá Neskaupsstað varð fyrsta skipið til Siglufjarðar, en skömmu síðar kom Eldborgin og Sig- urður RE og var verið að landa úr skip- unum í dag. Þá fóru skip með loðnuafla til Raufarhafnar og Krossaness. Hofs- jökul! er hér að lesta fisk til Amer- íku. Gott veður er hér á Siglufirði og hefur bærinn tekið fjörkipp og pen- ingalyktina leggur um allt. Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.