Morgunblaðið - 04.03.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.03.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984 Mikil óvissa í sjávarplássum og viða óánægja með kvótann: I»órður Rafn Sigurðsson, Vestmannaeyjum: „Flestir verða búnir með kvótann í lok apríl“ Vestmannaeyjum, 29. febrúar. „MKK finnst þetta vera alltof stórt stökk, það hefði bara átt að hafa þorsk- inn í þessu fyrst. Kg held að það ráðist ekkert við þetta og mér finnst það furðu- leg ráðstöfun hvað tekið er mikið frá bátaflotanum og fært yfir til togara," sagði l'iirður Kafn Sigurðsson, skipstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, þegar rætt var við hann um kvótakerfið og áhrif þess. Ég vildi gjarnan vita hvað hinir háu herrar í ríkisstjórninni ætla að gera við þá báta sem ekki áður náðu saman endum með þetta 1200 til 1400 tonna fiskiríi en fá nú 600 til 700 tonna kvóta.“ Þórður Rafn taldi að það þyrfti ekki nema sæmilega góða vertíð svo flestir yrðu búnir með kvótann í lok apríl. „Hitt er svo annað mál að það er miklu meiri þorskur í sjónum en fiskifræðingar halda fram. Þá finnst mér sjávarútvegsráðherra vera sjálfur búinn að sprengja kvótann ef hann gefur þau svör að þeir sem nú þegar eru búnir að fylla kvótann megi halda áfram veiðum. Ég er í sjálfu sér hlynntur kvótakerfi að vissu marki en það má ekki fara út í öfgar.“ Þórður Rafn sagðist óneitanlega vera kvíðinn fyrir hvað við tæki þegar líður á árið og ekki vita hvað þá yrði hægt að gera. „Fólk ætti að hugsa til þess hvað skeð- ur af flotinn stöðvast og sjómenn og fiskvinnslufólk færi í stórum stil yfir á atvinnuleysisstyrki," sagði Þórður Rafn Sigurðsson. Sigurjón Óskarsson, sá þekkti afla- skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur VE, sagði í samtali við Morgunblaðið að sér fyndist allt í lagi að reyna þetta kvótakerfi í eitt ár. „Við verðum að vernda þorskinn því ekki er nóg af honum fyrir alla. Það er aðallega þorskurinn sem þarfnast verndunar en ég tel t.d. alveg óþarfa að hafa kol- ann í kvóta. Ég tel hættu á því að menn hendi kolanum þegar hann er verðminni en geymi sér hann þangað til hann hækkar í verði.“ Sigurjón sagðist nú fá kvóta fyrir 410 tonnum af þorski en hefði veitt rúmlega 700 tonn að meðaltali þau þrjú ár sem miðað er við við ákvörðun kvótans. Þeir á Þórunni Sveinsdóttur eru þegar komnir með á land 400 tonn af ufsa en þar af eru 210 tonn utan kvóta sem hljóðar uppá 600 tonn. Eins og fleiri sem rætt var við valdi Sigurjón mögu- leika á því að fiskast hefði upp í kvót- ann í lok apríl og hvað þá tæki við væri allt óráðið ennþá. „Ef eitthvað verður eftir af kvótanum reikna ég með að við förum á tveggja báta troll með Bylgjunni í haust. Þá hefi ég mik- inn áhuga á því að reyna tveggja báta troll á spærlingi en það hefur ekki ver- ið reynt áður. Einhvernveginn verða menn að bjarga sér í þessum þreng- ingum,“ sagði Sigurjón Óskarsson. „Ég hefi í sjálfu sér ekkert stór- vægilegt að athuga við kvótann hjá togurum okkar,“ sagði Magnús Kristinsson framkvæmdastjóri Bergs- Hugins sf. í samtali við Morgunblaðið. „Þorskkvótinn er meiri en skipin okkar veiddu á síðasta ári en það kem- ur til af því, að á árunum tveimur þar áður var þorskur það gott hlutfall af aflanum. Ég vona bara að okkur gangi vel að ná þessum þorski og nú þegar hafa skipin okkar tvö landað á þriðja hundrað tonnum af þorski. Nýjasta skipið okkar, Smáey, fær að mínu mati lélegan kvóta og er aðal- ástæðan fyrir því sú, að forsaga skips- ins er í raun stutt og þar af leiðandi varð að búa til kvóta fyrir það tímabil sem uppá vantaði. Niðurstaðan var skárri af sóknarkvótanum en ég von- ast til þess að einhver leiðrétting fáist fyrir skipið. Aflakvóti skipsins í ár er rúmlega helmingur þess afla sem skip- stjóri skipsins hefur veitt að meðaltali á ári undanfarin þrjú ár,“ sagði Magn- ús Kristinsson. — hkj. Útgerðarmenn við Eyjafjörð um kvótaskiptingu: Samdrátturinn veldur minnk- andi atvinnu eða atvinnu- leysi víða Akureyri, 2. mars. „VIÐ hér á Hauganesi höfum fátt fal- legt að segja um þessa kvótaskiptingu, hún kemur afskaplega illa út hér,“ sagði Valdimar Kjartan.sson, útgerðar- maður á Hauganesi, þegar Mbl. ræddi við hann um hina umdeildu kvóta- skiptingu. „Þrír af fjórum bátum okkar hér koma út með yfir 50% skerðingu á afla og það sér hver mað- ur að slíkt hlýtur að hafa gífurleg áhrif á alla afkomu í ekki stærra sam- félagi en hér er. Að öllu óbreyttu verð- um við búnir með okkar kvóta í apríl og hvað þá verður veit enginn. Ef til vill er hugsanlegt að fara á rækju, en það ætla víst allir svo að hætt er við að hart verði þar barist um bitana. Auk þess fækkar þá um a.m.k. 3 menn á hverjum bát, atvinnuleysi virðist því blasa við hjá okkur. En þú mátt hafa það eftir mér, að svartsýnin hefur nú ekki þjakað okkur hér í gegnum árin og auðvitað munum við klóra í bakk- ann eins og mögulegt er,“ sagði Valdi- mar Kjartansson að lokum. Sverrir Leósson, útgerðarmaður á Akureyri, sagði að samdráttur í fisk- veiðum undanfarin ár fyrir Norður- landi kæmi að sjálfsögöu illa niður á Norðlendingum, en kvaðst þó ætla að samdráttur vegna kvótaskiptingar kæmi jafnt yfir landið miðað við afla- magn síðustu ára. „Það er ljóst að við á Súlunni fáum takmarkaðan þorsk- afla á þessu ári vegna loðnunnar. Það hlýtur að koma illa við Grenvíkinga, þar sem við höfum landað töluverðum afla undanfarin ár, en við höfum veitt rúm 1.100 tonn af botnfiski undanfar- in ár að meðaltali. Við erum að kanna hvort álitlegt sé að gera út á rækjuna, en vissulega er beygur í okkur varð- andi þær veiðar, ef öllum flotanum verður stefnt í þær,“ sagði Sveriir Leósson. „Við keyptum 182 tonna bát á síð- asta ári til hráefnisöflunar fyrir frystihús okkar,“ sagði Knútur Karls- son, framkvæmdastjóri Kaldbaks á Grenivík. „Bátnum vr úthlutað 560 tonnum af slægðum afla, þar af eru 414 tonn af þorski. Á síðasta ári unn- um við úr 2.640 tonnum í frystihúsinu og þar af lönduðu Súlan og Hákon 1.560 tonnum. Nú er ekki útlit fyrir að þeir bátar landi miklu hjá okkur, þeirra kvóti verður lítill sem enginn vegna loðnunnar. Aðrir heimabátar hér munu sennilega ekki leggja mikið upp hjá okkur, þeir taka sennilega sinn litla hlut úr sjó fyrir sunnan, þar sem aflabrögðin eru betri en hér fyrir norðan. Allt stefnir því í atvinnuleysi hér á Grenivík um mitt sumar að öllu óbreyttu,“ sagði Knútur Karlsson að lokum. „Það segir sig sjálft að atvinna hlýt- ur að dragast verulega saman við þessar aðstæður. Að mínu mati er ekki um neina vannýtta fiskistofna að ræða, sem við getum gert út á,“ sagði Vilhelm Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri Útgerðarfélags Akureyringa. Afli hjá okkur var lítill á síðasta ári, eða 18.010 tonn hjá fjórum togurum. Othlutun til þeirra nú er 15.649 tonn, þar af 4.379 tonn af þorski, en við veiddum 5.633 tonn í fyrra. Það leiðir af sjálfu sér að slík skerðing hlýtur að koma niður á atvinnu og það er reynd- ar þegar farið að hafa áhrif,“ sagði Vilhelm Þorsteinsson að lokum. GBerg Verðbólgu- hrapið síðan í maí 1983 STRAX eftir að ríkisstjórnin tók við völdum í maí 1983 setti hún bráða- birgðalög sem miðuðu að því að stemma stigu við verðbólgunni. Kjarni þeirrar lagasetningar var að afnema vísitölubætur á laun. Árang- urinn lét ekki á sér standa eins og sést af súluritinu hér að ofan, verð- bólgan hefur hrapað. Myndin skýrir sig best sjálf. Súlurnar þrjár til vinstri á mynd- inni sýna verðbólguna eins og spáð var að hún yrði á árinu 1983 ef ekki hefði verið gripið til aðgerð- anna eftir stjórnarskiptin. Lægri súlurnar til vinstri sýna þróunina eins og hún hefur verið. Með hliðsjón af nýgerðum kjarasamn- ingum hefur af opinberri hálfu verið sagt að verðbólgan verði nokkru hærri en 9% sem mæl- ingar í janúar gáfu til kynna. Útboð á asfalti: Sænskt íyrirtæki með lægsta tilboðið í GÆR voru opnuð tilboð í útboði Inn- kaupastofnunar Keykjavíkurborgar á 11.350 til 16.000 tonnum af asfalti fyrir Reykjavík, Akureyri og Reyðarfjörð. Vaíur Guðmundsson, forstöðumaður Malbikunarstöðvar Reykjavíkurborg- ar, sagði í samtali við Mbl. að tilboð sænska fyrirtækisins Nynás Petrolium hefði reynst lægst en það hljóðaði upp á um 62 milljónir fyrir lágmarksmagn- ið, þ.e. 11.350 tonn. Umboðsaðili sænska fyrirtækisins er Pólstjarnan í Þverholti. Valur sagði að 7 tiiboð hefðu bor- ist og teldu þeir lægsta tilboðið nokkuð hagstætt þrátt fyrir að það sé heldur hærra en lægsta tilboðið í fyrra. Norska fyrirtækið Norsk Fina var með næstlægsta tilboðið. Valur sagði að asfaltið væri notað sem bindiefni í malbik. 9.700 til 14.200 tonn af útboðinu eru fyrir Reykja- víkurborg, 1.300 til 1.400 tonn fara til Akureyrar og 350 til 400 tonn fara til Reyðarfjarðar. Illviðri teppti umferð ILLVIÐRI á suðvesturlandi I fyrra- kvöld og -nótt olli umferðartöfum og vandræðum hjá nokkrum fjölda fólks. Þungfært var um götur Reykjavíkur seint á fóstudagskvöldið og einnig var Hellisheiði ófær. Ekki var um neina teljandi hrakn- inga að ræða, að sögn lögregluvarð- stjóra, sem Mbl. hafði tal af á laug- ardagsmorgun. Nokkur hópur fólks hafðist við í Litlu kaffistofunni í Svínahrauni aðfaranótt laugardags- ins og aðrir létu fyrirberast í skíða- skálanum í Hveradölum. Lögreglu- menn úr Reykjavík og af Selfossi auk björgunarsveitarmanna austan heiðar mættust á miðri leið og lóðs- uðu fólk til síns heima. Reykjanesbraut varð ófær um tíma í fyrrinótt og beið fólk þar í bílum sínum þar til veðri slotaði og hægt var að aðstoða það til höfuð- borgarsvæðisins eða suður á Reykja- nes. Með morgninum fór að rigna. Hádegisverðarfundur Hádegisverðarfundur presta í Reykjavíkurprófastsdæmi verður í Hallgrímskirkju á morgun, mánudaginn 5. mars. Morgunblaðið / Ól.K.M Fulltrúar japanskra loðnukaupenda eru nú staddir hér á landi til að fylgjast með hrognatöku og frystingu loðnunnar. Þykir þeim loðnan og hrognin mikill herramannsmatur og neyta hans á ýmsan hátt. Hér eru þrír þeirra að búa sig undir að bragöa á góðgætinu, lítillega þurrkuðu. Bræla á loðnumiðunum: Föstudagsaflinn varð 17.000 lestir Á FÖSTUDAGSKVÖLDH) brældi upp á loðnumiðunum og frá klukkan 21 þá um kvöldið til hádegis í gær, er Mbl. fór í prentun, höfðu engin skip tilkynnt Loðnunefnd um afla. A föstudaginn tilkynntu alls 26 skip um afla samtals 17.070 lestir. Til viðbótar þeim skipum, sem get- ið var í Morgunblaðinu í gær, bættust eftirfarandi í hópinn: Harpa RE, 530, Skarðsvík SH, 600, Pétur Jónsson RE, 750, Hilmir SU, 1.330, Grindvíkingur GK, 970, Súl- an EA, 600, Höfrungur AK, 850, Víkingur AK, 650, Guðmundur RE, 300 og Dagfari ÞH 450 lestir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.