Morgunblaðið - 04.03.1984, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 04.03.1984, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984 Róið úr höfnum suður: SOTTIR TVEIR FUGLAR „í lok ræðu minnar, herra forseti, vil ég minna þingheim á það, að árið 1844 reru nokkrir menn úr Höfnum suður út að Fuglaskerjum og sóttu þangað tvo fugla.“ l*að var Tryggvi Gunnarson, skip- stjóri á Brettingi, fyrsti varaþing- maður Sjálfstæðisflokks í Aust- fjarðakjördæmi, sem þannig komst að orði, er veiðistjórn, þ.e. aðlögun veiðisóknar fiskveiðiflotans að veiði- þoli nytjafiska, skauzt inn í umræðu á alþingi í vikunni sem leið. Þingmaður úr kviku atvinnulífsins Eyjólfur Konráð Jónsson mælti sl. þriðjudag fyrir tillögu til þings- ályktunar um takmörkun veiða í skammdeginu, frá miðjum des- embermánuði og út janúarmánuð. Á þeim tíma eru ekki mikil afla- brögð, sagði Eyjólfur, olíunotkun meiri en í annan tíma, veiðarfæra- tjón oft mikið, auk þess sem þessi tími er hættulegastur til sjóróðra. Þegar takmarka þarf sóknina hvort eð er, sagði hann efnislega, þá sýnist liggja beint við að huga að efni þessarar tillögu. Valdimar Indriðason sagði til- gang tillögunnar góðan, en var- hugavert væri að leggja of mörg höft á útveginn, sem stæði höllum fæti rekstrarlega, og einmitt þessi árstími væri „hagkvæmur þeim togurum sem stunda siglingar með afla“. Þingmenn nótuðu þetta mál til að fara í hár saman út af kvóta- kerfi, eina ferðina enn. Fór þar margur með kunnan kveðskap af miklum tilþrifum. Þessi kvóta- umræða var þó frábrugðin öðrum, sömu tegundar, að því leyti, að kunnur togarskipstjóri, Tryggvi Gunnarsson í Vopnafirði, tók þátt í henni. Þar kom til sögunnar þingmaður beint úr kviku at- vinnulífsins, kunnur málavöxtum, með kjarnyrt tungutak og lifandi tengsl við umræðuefnið sjálft. Al- þingi myndi sízt setja niður þó fleiri slíkir sætu þar á bekkjum. Við höfðum þorsk við Græn- land, sagði skipstjórinn, efnislega eftir haft; það var sagt að þar \væru skaflar af fiski, sem ekki væri hægt að veiða upp. Þó var hann uppurinn á örskammri stund. Þar var ekki fisk að fá í lengri tíma. Sagan endurtók sig við Austur-Grænland. Bæði að því er varðar karfa og þorsk. Einnig á Hvíta hafinu og miðum við Bjarn- arey. Þetta var allt klárað upp. Víkjum að Norðursjónum. Þar fást tittir einir nú orðið. Búið er að fiska alla stærri fiska upp. Síldin var og kláruð þar, með okkar þátttöku. Hún var sögð í því magni að ekki væri hægt að veiða hana upp. En það tókst. Friða þurfti hana í fjölda ára. Suður- iandssíldin fór eins. Hún var einn- ig friðuð, til að ná henni upp. Norski síldarstofninn; þið vitið hvern veg fór fyrir honum. Er ekki tímabært að læra af reynslunni? Fíkniefni eru alvarlegt og vaxandi vandamál, hérlendis sem erlendis, og birtist í mörgum óhugnanlegum myndum. Guðrún Agnarsdóttir, alþingismaður, bar fram fyrirspurn á Alþingi til Matthíasar Bjarnasonar, heilbrigðisráðherra, um athvarf fyrir börn og unglinga sem illa eru komin af fíkniefnaneyzlu. Frá þessu þingmáli er greint í síðari hluta þingbréfs í dag. Fyrri hlutinn fjallar um samskipti manns og þorsks — og fleiri fisktegunda. 1 lok ræðu minnar, herra for- seti, vil ég minna þingheim á að 1844 reru nokkrir menn úr höfn- um suður út að fuglaskerjum og sóttu þangað tvo fugla." Engin veiðistjórn undanfarin ár Garðar Sigurðsson, þingmaður frá Vestmannaeyjum, sagði í þess- ari umræðu. „Það gerir ekkert til þó við ræð- um hér einhver mál af viti, meðan menn eru að stjórna Norðurlönd- um út í Stokkhólmi (hvar Norður- landaráð þingaði), sem aldrei hef- ur tekizt, auðvitað. En það er hár- rétt hjá Tryggva Gunnarssyni að við tókum ekki nægilega fljótt á þessu máli. Sannleikurinn er sá að það var auðveldara að byrja á skipulagningu meðan mikill fiskur var til staðar. Það var kjörið tæki- færi 1981. Við hefðum ekki þurft að drepa öll þessi kvikindi. Við hefðum getað átt bærilega inni- stæðu ... “. Hér talar þingmaður er stóð að stjórnarsamstarfi 1978—1983. Fiskveiðistefna þeirra ára, sem hér skal ekki gerð að umtalsefni sérstaklega, studdist lítt við fiski- fræðilegar niðurstöður. Þeir sem þá réðu ferð í sjávarútvegsmálum axla að sjálfsögðu stjórnarfars- Iega ábyrgð á gjörðum sínum. Og hverjar vóru afleiðingar veiði- sóknar langt umfram veiðiþol? Áætlaður þorskafli 1984 er meira en helmingi minni en 1981. En „það var kjörið tækifæri 1981“, sagði Garðar Sigurðsson. Þau vóru mörg tækifærin, sem ekki vóru nýtt 1978—1983. Meðal ann- ars tækifærið til að breyta orku fallvatna okkar í störf, verðmæti og bætt lífskjör. Það minnkaði allt í höndum okkar, fiskstofnar, þjóð- artekjur og lífskjör. Ekkert óx nema verðbólgan. En hún gerði það líka myndarlega. Garðar Sigurðsson sagði orð- rétt: „Það eru auðvitað margir sár- óánægðir með sinn hlut. Hver verður ekki óánægður yfir því að mega aðeins veiða 40 fiska á þessu ári miðað við 100 árið 1981?“ Það er eðli'egt að spurt sé. Ekki sízt ef haft er í huga máltækið, að „vítin eru til þess að varast þau“. Hér skal enginn dómur lagður á rétt eða rangt þegar kvótakerfið á í hlut. Það hefur margar við- kvæmar og neikvæðar hliðar. Það leiðir t.a.m. til miðst.ýringar, sem hvarvetna verkar sem hemill á hugvit og framtak, verðmæta- sköpun og lífskjarasókn. Hugsan- lega hefði mátt koma á viðunandi veiðistjórn eftir öðrum leiðum. En þær leiðir hafa ekki verið settar fram enn sem komið er, a.m.k. ekki með nægjanlega rökstuddum hætti. Dæmisaga skipstjórans úr Vopnafirði um fuglana tvo — af þeirri tegund sem ekki er lengur til, týnd úr lífkeðju jarðar, á er- indi við okkur öll. Meira að segja brýnt erindi. Athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur? „Ætla má af könnunum að víða hafi um 80% ungmenna á gagn- fræða- og menntaskólastigi neytt eins eða fleiri vímuefna í því skyni að komast í einhvers konar vímu- ástand." Það er Guðrún Agnarsdóttir, þingmaður og læknir, sem þannig Selfoss: Sjúkradeild fyrir aldraða vígð Fjölmenni var við vígslu sjúkradeildarinnar. FÖSTUDAGINN 24. febr. sl. var haldin vígsluhátíð sjúkradeildar fyrir aldraða á Selfossi. Deildin er til húsa í endurbyggðu húsnæði að Austurvegi 28 þar sem áður var sjúkrahúsið á Selfossi. Sr. Sigurður Sigurðarson vígði húsið en viðstaddir vígsluna voru m.a. heilbrigðisráðherra, Matthías Bjarnason, þingmenn Suðurlands- kjördæmis og bæjarstjórn Selfoss. Endurbygging hússins hófst í nóv- ember 1982. Mikil sjálfboðavinna hefur verið unnin í húsinu og í því sambandi kom m.a. fram hjá sjúkrahússráðsmanni, Hafsteini Þorvaldssyni, að gjafir, bein fjár- framlög og afsláttur félaga og fyr- irtækja af viðskiptum næmi á fjórðu milljón króna. Fjárframlög úr ríkissjóði væru engin ennþá, en von væri um styrk úr Fram- Matthías Bjarnason heilbrigðisráð- herra í ræðustóli. kvæmdasjóði aldraðra, en fram að þessu hefur allt fjármagn komið úr héraði í formi frjálsra fram- laga einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka og einnig lántök- um. Heimild hefur íengist fyrir 24,5 stöðugildi við rekstur deildar- innar. Á sjúkradeildinni eru rúm fyrir 26 vistmenn sem þegar eru upp- pöntuð og er þegar kominn tvö- faldur biðlisti, þannig að greini- legt er að þörfin er fyrir hendi. Reiknað er með að starfræksla hefjist af fullum krafti í næsta ynánuði. Byggingameistari hússins er Trausti Traustason. Haukur. Milljón bændur í Perú í verkfalli Lím*. I. nurs. AP. RÖSKLEGA milljón bændur í Perú lögðu í dag niður vinnu og hyggjast efna til þriggja daga verkfalls til að mótmæla landbúnaðarstefnu ríkis- stjórnarinnar. Þeir hafa m.a. hótað að hindra flutninga á matvælum til þéttbýlissvæða. Að sögn talsmanna bænda nær vinnustöðvunin til landsins alls, að undanskildum 12 héruðum í sunnanverðum miðríkjum Perú en þar á her landsins í útistöðum við vinstri sinnaða skæruliða. Bændur eru óánægðir með að hægt gengur að hrinda í fram- kvæmd ýmsum umbótum sem fyr- irheit hafa verið gefin um, og einnig gremst þeim mjög nýir toll- ar sem lagðir hafa verið á kaffi, sykur, ull, baðmull og fleiri land- búnaðarafurðir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.