Morgunblaðið - 04.03.1984, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARS 1984
Samband hárgreiðslu- og hárskerameistara:
Ráðstefna, árshátíð
og afmælishóf
SAMBAND hárgreiðslu- og hárskerameistara kom saman að Hótel Sögu sl.
laugardag og var tilefnið þríþætt. Ráðstefna félagsins hófst kl. 10.00 og stóð fram
á eftirmiðdag, en að henni lokinni var haldið upp á sextugsafmæli Félags hár-
skera. í afmælishófinu var Páll Sigurðsson, rakari, gerður að heiðursfélaga, auk
þess sem heiðursskjöl fyrir vel unnin störf voru veitt þeim Vilhelm Ingólfssyni,
lllfari Jenssyni, Skúla Nielsen og Pétri Guðjónssyni. Að afmælinu loknu hófst
síöan árshátíð sambands hárgreiðslu- og hárskerameistara.
Á ráðstefnunni voru framsögu-
menn þau Svanhvít Jakobsdóttir,
fulltrúi verðlagsstjóra, Sigurður
Kristinsson, formaður Landssam-
bands iðnaðarmanna, Ingvar Ás-
mundsson, skólastjóri Iðnskólans í
Reykjavík, Óskar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Iðnfræðsluráðs
og Fríða fsaksdóttir, varaformaður
sambands hárgreiðslu- og hárskera-
Ljósm. Mbl./Friðþjófur
Frá ráðstefnunni.
Dr. Kern
Til sölu dr. Kern sólarsamloka vel meö farin. Ennfremur til sölu
þýskur, lítiö notaöur barnavagn, sem er vagn, burðarrúm og
kerra. Upplýsingar í síma 91-39683 eftir kl. 18.00.
-------------------------------------N
Aóalfundur
HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS verður haldinn í
Súlnasal HótelSögu fimmtudaginn 5. apríl 1984
og hefst kl. 13:30.
DAGSKRÁ:
1. Aðalfundarstörf samkvœmt 14. gr. samþykkta
félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillögur til breytinga á 4. grein samþykkta
félagsins um skiptingu hlutafjárins með tilliti
til gjaldmiðilsbreytingar íslensku krónunnar
1. janúar 1981.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á
aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir
aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu félagsins í Reykjavík frá 29. mars.
Reykjavík, 3. mars 1984.
STJÓRNIN
EIMSKIP
Sparið peninga
Notiö FILTRE-síur í vökva-
kerfiö.
Viö aöstoðum viö val á síum.
Tank-retursía
Mæliglas á tank
Lok á tank
Véltak hefur 10 ára reynslu í
uppsetningu, viöhaldi og sölu
á vökvabúnaöi.
Einkaumboö Véltak hf.,
vélaverslun,
Hvaleyrarbraut 3,
Hafnarfiröi.
meistara. Frjálsar umræður og
fyrirspurnir voru síðan að loknum
erindum. Kom þar m.a. fram gagn-
rýni á nýlega verðkönnun á hár-
greiöslustofum sem verðlagsstjóri
lét gera. Töldu ráðstefnugestir það
ósanngirni að í könnuninni væri lögð
höfuðáhersla á að sína sem mestan
mismun á hæsta og lægsta verði
fyrir hverja þjónustu, án þess að
fram kæmi sú staðreynd að hár-
greiðslustofum er óheimilt að hafa
með sér samræmda verðskrá. Þá
kom einnig fram varðandi verðkönn-
unina að lægsta verð í henni væri
mjög óraunhæft.
Ennfremur kom fram að mikil
aukning er nú merkjanleg í svokall-
aðri „svartri atvinnustarfsemi", en
Fríða ísaksdóttur fjallaði um hana í
erindi sínu. Kvað hún slík störf oft
unnin af ófaglærðu fólki, eða þeim
sem ekki hefðu lokið námi og jafnvel
við aðstæður sem á engan hátt full-
nægðu kröfum um hreinlæti.
Frá Iðnskólanum í Reykjavík
koma í vor 52 nemar á fyrsta ári sem
fyrir höndum eiga tveggja og hálfs
árs verknám. Alls eru fyrsta árs
nemar um 80 á landinu öllu í hár-
greiðslu og hárskuröi. Töldu ráð-
stefnugestir fyrirsjáanlegt að hár-
greiðslu- og rakarastofur myndu
tæpast taka við öllum fjöldanum, en
sú hefur orðið raunin á undanförn-
um árum. Töldu menn þó ástandið
aldrei hafa verið eins slæmt og í ár.
Kistan eins
og kádiljákur
( hirago, 1. marz. AP.
IMAÐUR nokkur, sem myrtur var
nýlega, var greftraður í dag í lík-
kistu, sem var útlits eins og uppá-
haldsbfllinn hans, Cadillac Seville.
Eftirlíkingin var svo nákvæm
að aðalljós og afturljós blikkuðu
er kistan var látin síga niður í
gröfina. Rúmlega fimm þúsund
vinir hins myrta og forvitnir veg-
farendur voru viðstaddir greftr-
unina.
Hinn látni, Willie M. Stokes,
sem var 26 ára, var myrtur er
hann sté út úr bifreið sinni fyrir
utan heimili sitt sl. föstudag. Þrír
menn biðu hans þar og skutu hann
til ólífis. Óljóst er hvað olli verkn-
aðinum.
SUMARAÆTLUN
Majorka — Kanaríeyjar — Grikkland
Sólarlandaferöir allan ársins hring. Brottför alla föstudaga 10,17, 24, eöa 31 dags feröir
eða lengri.
2'h dagur í London á heimleiðinni í kaupbæti án aukakostnaöar.
Majorka. Fjölsóttasta sólskinsparadís Evrópu. Glæsilegar ibúöir og hótel á eftirsóttustu stööunum,
Magaluf, Santa Ponsa og Arenal.
Kanaríeyjar — Tenerife. — Fögur sólskinsparadís. Glæsileg hótel og ibúöir.
Grikkland — Aþenustrendur. Hótel og ibúöir á eftirsóttustu stööunum.
Malta, sögufræg sólskinsparadís.
Athugíð: Hagstæð fjölskyldukjör. Krakkarnir borga bara helming.
Pantiö snemma því plássiö er takmarkaö. Og þeir sem til þekkja panta snemma hjá okkur, enda veröið
ótrúlega hagstætt, lægra en í fyrra.
Flugferöir — Sólarflug
Vesturgata 17, símar 10661, 15331 og 22100.
Búnaðarþing:
Hvetur til
votheysverk-
unar og mót-
mælir lax-
veiðum í sjó
MIKLAR annir eru nú á síðustu
dögum liúnaðarþings en stefnt er að
því að þinginu Ijúki um helgina. Á
fimmtudag voru fjölmörg mál til
fyrri umræðu og þrjú mál afgreidd
sem ályktanir Búnaðarþings.
í ályktun um votheysverkun er
því beint til landbúnaðarráðherra
að hann beiti sér fyrir því að efla
votheysverkun í landinu. Telur
þingið það eitt brýnasta hags-
munamál landbúnaðarins að kom-
ið verði í veg fyrir áföll vegna
óþurrka. Einnig segir að mikils-
vert sé að tollar og sölugjöld af
tækjabúnaði í votheysgeymslur
verði felldt niður. I greinargerð
segir að þrátt fyrir kosti votheys-
verkunar og ágæta reynslu
margra bænda af slíkri fóðurverk-
un sé enn lítill hluti af heyfeng
landsmanna verkaður í vothey.
Ætla má, segir einnig, að hér valdi
að nokkru, að vothey er þungt og
erfitt í meðhöndlun, þar sem
handverkfæri eru notuð til flutn-
ings á fóðrinu úr stæðu á fóður-
gang. Nú eru komin á markað
hentug tæki til að brúa þetta bil á
vélrænan hátt.
{ annarri ályktun sem samþykkt
var á fimmtudag tekur Búnaðar-
þing eindregið undir mótmæli
gegn hugmyndum, sem hreyft hef-
ur verið nýlega, um að heimilað
yrði hérlendis að veiða lax í sjó. I
ályktuninni segir orðrétt: „Stund-
um hefur litlu munað að rányrkja
á ýmsum fiskistofnum við fsland
hafi komið þjóðinni á kaldan
klaka. reynslan ætti að kenna
mönnum að hlífa laxinum, sem
notið hefur verndar og ræktunar
vegna skynsamlegrar löggjafar.
Af honum koma í þjóðarbúið veru-
legar tekjur, sem vonir standa til
að aukist jafnt og þétt. Búnaðar-
þing mótmælir því afdráttarlaust
hugmyndum, sem leiða myndu til
að þessari viðkvæmu auðlind yrði
spillt í fálmkenndri leit að stund-
arúrræðum í rányrkjuvandanum."
Dísarfell
selt til
Grikklands
DÍSARFELL, eitt af skipum skipa-
deildar Sambandsins, hefur verið
sclt til útgerðar í Grikklandi. Skipið
verður notað til vöruflutninga á milli
Ítalíu, Grikklands og annarra landa
fyrir botni Miðjarðarhafs. Skipið
verður væntanlega afhent nýjum eig-
endum fyrir lok næsta mánaðar, en
söluverð er tæplega 12 milljónir
króna.
Dísarfell var smíðað árið 1967 í
Danmörku, en Sambandið keypti
það árið 1972. Það er 2.000 tonn að
burðargetu og hefur verið notað
til almennra vöruflutninga til og
frá landinu.
Salan er, samkvæmt upplýsing-
um Sambandsmanna, hiuti af
þeirri endurnýjun skipaflotans,
sem unnið hefur verið skipulega
að hjá skipadeild Sambandsins á
síðustu árum.
Embætti far-
prests Þjóð-
kirkjunnar laust
ANNAÐ embætti farprests Þjóð-
kirkjunnar er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur rennur út þann
28. þessa mánaðar.
(flr rréiutilkjnninipi)