Morgunblaðið - 09.03.1984, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1984
11
"HflNN “aTRKK OPP R ÞVÍ W RRWERRRBÍLSTJQRRRNIR
YR9U W MINNSTRKOSTl EKKI FLEIRI EN BILRRNIR"
Metdagar í sköp-
un útflutningsverð-
mæta í Bolungarvík?
Bolungarvík, 5. marz.
UNDANFARNA daga hafa verið miklar annir í vinnslu sjávarafurða hér í
Bolungarvík. Frá því loðnan fór að berast hingað fyrir nokkrum vikum, hefur
verið unnið á vöktum í Sfldarverksmiðju E.G., en um síðustu helgi hafði
verið landaö hér um 6.000 lestum af loðnu.
Úr síðustu loðnuförmunum hafa
verið skilin hrogn úr loðnunni og
þau unnin í frystingu. Gengur sú
vinnsla mjög vel enda hefur vel
verið að undirbúningi staðið og
allt gert til að uppfylla ströngustu
kröfur.
Þá hefur verið mikil vinna í
rækjuvinnslu Ishúsfélagsins.
Rækjuveiðarnar í fsafjarðardjúpi
hafa gengið vel og í lok síðustu
viku höfðu bátarnir lokið við að
veiða þann kvóta, sem úthlutað
var, en búizt er við að leyfður
verði einhver viðbótarkvóti. Þá
hefur rækjutogarinn Sveinborg,
sem stundar úthafsrækjuveiðar,
landað hér tvisvar í febrúar, sam-
tals um 55 lestum.
Afli togaranna hefur verið
nokkuð tregur frá áramótum, en
hins vegar hafa línubátarnir aflað
sæmilega. Til dæmis var afli
Hugrúnar um 10 lestir síðastlið-
inn miðvikudag og daginn eftir
um 11 lestir. Sama dag landaði
Jakob Valgeir 15 lestum eftir tvær
lagnir. Það hefur því verið alllíf-
legt atvinnulíf hér undanfarið,
a.m.k. hvað snertir vinnslu sjávar-
afla. Ef til vill hafa síðustu dagar
verið metdagar í sköpun útflutn-
ingsverðmæta hér í Bolungarvík.
— Gunnar
Akureyri:
Þrír sóttu um skóla-
stjórastarf Síðuskóla
Akureyri, 7. marz.
f G/ER rann út umsóknarfrestur um
starf skólastjóra Síðuskóla á Akur-
éyri, sem ráðgert er að byggður verði
í sumar og að þar hefjist skólastarf
þegar í haust.
Að sögn Sigrúnar Sveinbjörns-
dóttur, varaformanns skólanefnd-
ar Akureyrar, hafa borizt þrjár
umsóknir um starfið, en vera kann
að einhverjar umsóknir séu á leið
til nefndarinnar í pösti.
Þau sem sækja um skólastjóra-
stöðuna eru: Ingólfur Ármanns-
son, kennari við Gagnfræðaskóla
Akureyrar og formaður skóla-
nefndar, Ingvar Ingvarsson, kenn-
ari við Lundarskóla á Akureyri, og
Þórunn Bergsdóttir, kennari við
Barnaskóla Ákureyrar.
Ekki er búizt við því að skóla-
nefnd taki afstöðu til umsókna
þessara fyrr en seint í næstu viku.
— G.Berg
Wterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Komdu í
rúmaslag
Nú borgar sig að kaupa rúm
úrvalið er stórkostlegt
gæðin mikil, verðið lágt og
afborgunartilboð okkar hagstætt
Tilboð
meðan birgðir endast
og athugiö aö þó tegundir séu margar,
eru aöeins fá rúm til af hverri gerö.
Rúm m/dýnu undir 10.000 2.000 út gr. 1.000 á mán.
Rúm m/dýnu 10.000 15.000 3.000 út gr. 1.500 á mán.
Rúm m/dýnu 15.000 20.000 4.000 út gr. 2.000 á mán.
Rúm m/dýnu yfir 20.000 5.000 út gr. 2.500 á mán.
■yivm'H ■ ‘wamm w imi
18.740,-
Tegund Dolly 4.000 út
2.000 á mán.
Opið föstudag til kl. 8 (20)
laugardag til kl. 4 (16)
BnSBáGNAHÖLlIN
BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410