Morgunblaðið - 14.03.1984, Page 1
Kjarasamningar 50
Jótlandspóstur 50
Kissinger og NATO 52
Svipmyndir úr borginni 55
Leiklist á Dalvík 56/57
Svíþjóð láglaunaland 56/57
Kalifornía 58
Tækninýjungar 59
Verðkynning 60/61
Miðvikudagur 14. marz
Jens Pauli Heinesen 62/63
Bókmenntir/hljómpl. 64/65
Kalkúnarækt 66
Viðskiptasíða 68/69
Fangar marsmánaðar 69
fþróttir 70/71
Myndasögur 72
Fólk í fréttum 73
‘Velvakandi 76/77
Lífríki 79
Unnur Eir og móðir hennar,
Þuríður Magnúsdóttir.
Morgublaðið/ Friðþjófur.
Hlaupár
hlaupársdagur og
hlaupársbörn
„Víða um lönd hafa menn haft nokkra ótrú á hlaupársdeginum, mánuðinum eða
jafnvel hlaupárinu öllu. Þá átti allt að ganga öfugt við það sem venjan bauð og
flestar fyrirtektir að misheppnast. Ekki verður neins vart í þessa átt hérlendis fyrr
en á síðari tímum og þá einungis varðandi þann gamansið, að konur megi biðja sér
karlmanns á hlaupársdeginum. Hann má þá ekki neita, en getur keypt sig lausan
með gjöf eða gjaldi!" Þetta segir um hlaupársdaginn í Sögu daganna eftir Árna
Björnsson þjóðháttafræðing.
Það gerðist þó ekkert óvænt á afmælisdeginum hennar Unnar Eir Björnsdóttur sem
er ein af 5 börnum, sem fæddust á Fæðingardeild Landspítalans á hlaupári, fyrir
fjórum árum. Var hún eina stelpan í hópnum, en það voru alls 14 börn, sem fæddust
þennan dag hér á landi og lifa enn.
afmælisdagsins. Hún var meira
að segja svo spennt að hún vildi
eiginlega ekkert tala við okkur,
en brosti bara og tróð fingrun-
um upp i munninn.
Unnur Eir, sem er lítil fal-
leg, rauðhærð hnáta, hélt
í fyrsta skipti upp á afmælið
sitt á réttum degi, þ.e. 29.
febrúar síðastliðinn. Foreldrar
Unnar, þau Þuríður Magnús-
dóttir og Björn Ágústsson,
ákváðu því að gera þennan dag
eftirminnilegan og segja má að
veisluhöld hafi staðið yfir allan
miðvikudaginn. Fyrir hádegi
hélt hún upp á afmælið sitt í
leikskólanum en síðdegis var
svo öllum frænkum og frænd-
um og öðrum vinum boðið í
heljarmikið kaffiboð.
En það er ekki eins og Unnur
Eir hafi aldrei haldið afmæl-
isveislu fyrr, því þrátt fyrir að
á almanakinu sé hlaupið yfir
afmælisdaginn hennar nema á
fjögurra ára fresti hefur af-
mælið bara verið haldið aðra
daga í lok febrúar og þá um
helgi.
En hvernig ætli Unni Eir líði
við þessi tímamót. Við hittum
hana reyndar nokkrum dögum
fyrir afmælið og þá var hún
voðalega spennt og hlakkaði til
En hvað er hlaupár og hlaup-
ársdagur og hvernig ætli hann
hafi orðið til? Hlaupár er alm-
anaksár, sem er degi lengra en
venjulegt almanaksár, þ.e. 366
dagar í stað 365 daga. f bókinni
Stjörnufræði eftir Þorstein
Sæmundsson, stjarnfræðing,
segir, að í nýja stíl sé hlaupár
alltaf, þegar talan 4 gengur upp
í ártalinu, nema ef um alda-
mótaár er að ræða. Þá er
hlaupár aðeins þegar talan 400
gengur upp í ártalinu. Auka-
deginum, sem nefndur er
hlaupársdagur, er aukið við
febrúarmánuð. Nafnið hlaupár
mun dregið af því, að merkis-
dagar eftir hlaupársdag
„hlaupa yfir“ þann vikudag,
sem þeir myndu annars falla á.
Reglur um hlaupár eru nauð-
synlegar til að fella alm-
anaksárið varanlega að árs-
tíðarárinu, sem ekki telur heila
tölu daga. Meðallengd árstíðar-
ársins (tíminn milli sólhvarfa)
er 365 dagar, 5 stundir, 48 mín-
útur og 46 sekúndur, en með
ofangreindri hlaupársreglu
verður meðallengd almanaks-
ársins 365 dagar, 5 stundir, 49
mínútur og 12 sekúndur. Mun-
urinn er aðeins 26 sekúndur á
ári, svo að 3 þúsund ár mega
líða áður en skekkjan nemur
heilum degi.í bókinni Stjörnu-
fræði segir ennfremur, að sam-
kvæmt tímatali Rómverja hafi
þessi dagur verið síðasti dagur
ársins. Samkvæmt tímatals-
ákvæðum Cæsars frá 46 f.Kr
skyldi hlaupársdeginum skotið
inn á eftir vorhátíðinni Term-
inalia, sem haldin var 23.
febrúar. Sú hátíð virðist hafa
táknað lok eins árstíðaárs og
upphaf annars í augum Róm-
verja (þótt hinn opinberi ný-
ársdagur flyttist frá 1. mars til
1. janúar þegar á 2. öld f.Kr.).
Hlaupársdagurinn varð þvi 24.
febrúar, og festi sú regla rætur
i kirkjulegu tímatali, þannig að
messur, sem féllu á 24.-28
febrúar, féllu í hlaupárum á
25.-29 febrúar. Á Islandi var
þó undantekning frá þessu og
Matthíasmessa yfirleitt látin
haldast 24. febrúar, en 25.
febrúar gerður að hlaupársdegi
í staðinn. Nú á dögum er al-
mennt litið á 29. febrúar sem
hlaupársdag, enda sjaldan mið-
að við messudag.