Morgunblaðið - 14.03.1984, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.03.1984, Blaðsíða 18
66 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1984 Kaikúnar í girðingu f Mosfellasveit fyrir nokkrum árum. Kalkúnar af þess- um gamla stofni munu nú vfkja fyrir nýjum og betri stofni frá Noregi, sem fluttur hefur verið inn. Úr sláturhúsi ísfugls. Þar er slátrað um 400 þúsund fuglum á ári og í bígerð er að stækka sláturhúsið, að sögn Alfreðs Jóhannssonar. Hyggjumst reyna að auka neyslu á kalkúnakjöti Rætt við Alfreð Jóhannsson framkvæmdastjóra ísfugls EITT þúsund kalkúnaegg komu til landsins fyrir nokkrum dögum, flugleiðis frá Noregi. það er fyrirtækið Hreiður hf. sem flytur eggin inn, og eru þau nú í útungun uppi í Mosfellssveit, en ætlunin er að ungarnir úr eggjunum myndi kjarnann í nýjum kalkúnastofni, sem ræktaður verði hér á landi. — Búist er við að fyrstu kalkúnunum verði slátrað í sláturhúsi ísfugls fyrir næstu jól, og verulegt magn af kalkúnum verði síðan komið á markað árið 1985. Hreiður hf. er hlutafélag 60 framleiðenda, sem meðal annars reka sláturhús ísfugls sameiginlega. Guðmundur Hauksson verkstjóri hjá ísfugli með sýnishorn af framleiðsl- unni: Pekingendur, sem eru um 3 kg. á þyngd og holdakjúkling, sem er 1,2 kg- á þyngd. Alfreð Jóhannsson og Baldvin Viggósson ganga frá sendingu af kjúklingum. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins lögðu leið sína upp í Mosfellssveit í vikunni, og hittu þar að máli framkvæmda- stjórann, Alfreð Jóhannsson, og hann var inntur eftir hinum ný- komnu kalkúnaeggjum og öðru í starfsemi fyrirtækisins. Fyrsti kalkúnainnflutn- ingur í mörg ár „Þessi þúsund kalkúnaegg, sem við vorum að fá frá Noregi, eru fyrstu kalkúnaeggin, sem flutt eru inn hingað til lands í mörg ár,“ sagði Alfreð. „Vegna strangra reglna um innflutning búfjár og alifugla eru slíkum innflutningi þröngar skorður settar, og þau egg sem nú eru komin og ungarnir úr þeim verða að vera i strangri sóttkví. Ég get því ekki leyft myndatökur af þeim eins og er, svo dæmi sé tekið. En þegar frá líður munu þessir nýju kalkúnar væntanlega mynda stofn alikalkúna hér á landi, sem munu verða uppistaðan í ræktun þessara fugla á íslandi næstu ár- in. — Fyrir eru að vísu kalkúnar, og við höfum slátrað nokkur hundruð stykkjum árlega hin seinni ár, en framfarir í kynbótum í alifuglarækt eru það örar að nauðsynlegt er að fylgjast með og fá það besta á hverjum tíma. Slíkt er nauðsynlegt, bæði vegna meiri gæða framleiðslunnar og einnig vegna minni kostnaðar við uppeldi fuglanna, sem svo aftur gerir okkur mögulegt að bjóða vöruna á lægra verði til neytenda." Hyggjast auka kalkúna- neyslu íslendinga — Og er markaður fyrir kalk- úna hér á landi? „Já, það er þegar nokkur mark- aður fyrir kalkúna hér, og við höf- um til dæmis ekki fyllilega getað annað eftirspurninni undanfarin ár. Þessi egg, sem við vorum að fá núna, munu því verða til að gera okkur kleift að anna eftirspurn- inni, en um leið hyggjumst við reyna að auka kalkúnaneyslu ís- lendinga. Kalkúnar eru vinsæll matur víða erlendis, ekki síst sem veislu- matur, og ég er sannfærður um að auka má áhuga íslendinga á þessu, ekki til að minnka neyslu á öðru, heldur til að auka fjöl- breytnina. Þetta hefur til dæmis verið gert með kjúklinga, það er ekki langt síðan fslendingar byrj- uðu að borða kjúklinga." — Og er þá hugsanlegt að hér hefjist fjöldaframleiðsla kalkúna í sama mæli og nú er með kjúkl- inga, eða gilda þar önnur lögmál? „Kalkúnar verða trúlega seint svo ódýrir að þeir verði nánast hversdagsfæða eins og kjúklingar eru að verða. Kalkúnar verða trú- lega áfram fyrst og fremst hátíða- matur. — Þetta skapast fyrst og fremst af því, að fuglinn er mun stærri en hænsni og á allan hátt vandmeðfarnari. Við áætlum til dæmis að hver hæna verpi ekki nema um 40 eggjum á ári, og upp- eldið er einnig vandasamt. Þá er fuglinn orðinn svo stór og kjöt- mikill vegna langrar ræktunar, að erfiðleikum er bundið að láta han- ann frjóvga hænuna og hefur því verið gripið til sæðinga í auknum mæli, svo ótrúlegt sem það kann að virðast. En íslenskur ráöunaut- ur er einmitt úti um þessar mund- ir, að kynna sér sæðingar á kalk- únum." Æskileg stærö 4 til 5 kg — Hver er æskileg stærð kalk- úna á markaði? „Heppilegasta þyngdin er talin vera 4 til 5 kg., en hægt er að hafa þá miklu þyngri, allt að 12 kg, án þess að gæðum hraki. En 4ra til 5 kg þyngdin hentar best venju- legum fjölskyldum. Vaxtartími kalkúna í þessa þyngd er um 12 vikur. Til samanburðar er vaxt- artími kjúklinga 7 til 8 vikur, anda 7 til 8 vikur og gæsa 3 til 4 mánuð- ir, sem er bundið við sumarið vegna grassprettunnar. Þyngd þessara fugla er svo talin best þessi: Kjúklingur 1,2 kg, önd 3 kg, gæs 4 kg og kalkúnn 4 til 5 kg eins og ég sagði fyrr. Vaxtartími fuglategundanna flestra er mjög að styttast og það hefur orðið bylting í þeim efnum hin síöari ár, sem er meðal annars grundvallarforsenda þess að verð- ið lækki. Sums staðar eru uppi há- værar gagnrýniraddir vegna þessa, enda er víða um lönd beitt hormónum og lífrænum efnum í fóðrið til að stytta vaxtartímann. Það er hins vegar ekki gert hér á landi, og því tel ég að hér höfum við einna best kjúklingakjöt á markaði í heiminum. Fuglinn er látinn vaxa á eðlilegan hátt, en kynbótum beitt til að ná fram betri einstaklingum í betri stofn- um.“ 9 milljónir fugla á einu búi — Þú ert nýkominn heim frá Bandaríkjunum, varstu þar að kynna þér nýjungar í þessum efn- um? „Já, ég fór á afskaplega athygl- isverða, alþjóðlega sýningu í Atl- anta, þar sem fjallað var um og sýndar nýjungar í vélabúnaöi við slátrun og kjötvinnslu. Það er eitt þeirra atriða, sem við höfum lagt hvað mesta áherslu á nú síðustu misseri. Við erum til dæmis í auknum mæli farnir að bjóða niðurskorna kjúklinga og úrbein- aða „fyllta“ kjúklinga til matsölu- staða og mötuneyta og gjörbylting hefur orðið og á eftir að verða á neytendaumbúðum. Kjúklingar hafa lækkað í verði undanfarin ár. Það hefur leitt til aukinnar neyslu. Næsta skrefið er að gera vöruna enn betur úr garði og mæta þannig í einu kröfum um hollan og kolesterolsnauðan mat og kröfum um mat, sem handhægt og fljótlegt er að matreiða. Með breytingum á stöðu kvenna og aukinni þátttöku þeirra í atvinnu- lífi vaxa kröfur um mat, sem auð- velt og fljótlegt er að matreiða. Þetta er reynslan erlendis og þannig mun þetta verða hér á landi og er þegar farið að sjá merki þess. Við íslendingar eigum alla möguleika á því að gera hið sama og útlendingar i alifuglarækt. Úti í Atlanta var maður nokkur til dæmis að halda fyrirlestur um gríðarlega mikið hænsnabú, sem þar er nýtekið til starfa. Á því eru um 9 milljónir fugla, sem gefið er úr einni stjórnstöð. — Við íslend- ingarnir létum okkur fátt um finnast, og sögðum honum frá því, að á stærsta alifuglabúinu hér á landi, á Vallá, væru 50 þúsund fuglar. — Miðað við höfðafjölda jafngilti það 50 milljónum fugla á einu búi í Bandaríkjunum!" - AH Alfreð Jóhannsson framkvæmdastjóri ísfugls á skrifstofu sinni. - Ljósm: Kristján Örn Eliasson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.