Morgunblaðið - 14.03.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.03.1984, Blaðsíða 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1984 Kjarasamningarnir og eftiahagsstefiia ríkisstjórnarinnar — cftir Lárus Jónsson Almennir kjarasamningar eru nú nýafstaðnir. í þeim var samið um grunnkaupshækkan- ir, sem teljast verða raunsærri en oft áður, en þó vænst að skili launþegum kjarabótum án nýrr- ar óðaverðbólguskriðu. Þessir samningar gilda til 15. apríl 1985 nema citthvað óvænt ger- ist. Að þessum samningum af- stöðnum er ekki úr vegi að gera nokkra úttekt á líklegri efna- hagsþróun í kjölfar þeirra. Sér- staklega er tilefni til þess að leggja nokkurt mat á það at- hyglisverða nýmæli að ríkis- stjórnin boðaði stefnu sína fyrirfram í launa-, verðlags- og gengismálum. Ilugmyndin með þessari nýbreytni í efnahags- stjórn var að sjálfsögðu sú, að auka ábyrgð samningsaðila og setja þeim aðhalds- og viðmið- unarmörk, svo að samningarnir yrðu kjara- en ekki verðbólgus- amningar. Grunnurinn var lagð- ur með miklum og skjótum árangri efna- hagsráðstafana sl. sumar Engum getur blandast hugur um að þessir kjarasamningar eru gerðir á grundvelli þess ótrúlega árangurs að verðbólgan er nú inn- an við Vio þess sem Þjóðhagsstofn- un spáði í maí sl. að hún kæmist í að óbreyttu kerfi víxlhækkana kaupgjalds og verðlags. Þetta sést greinilega á meðfylgjandi súlurit- um. Vinstra megin sést hver verð- bólgan hefði orðið án efnahagsað- gerða. Þriggja mánaða breyting framfærsluvísitölu hefði náð um- reiknað til árs hækkunar, hvorki meira né minna en 168%. Hægra megin er sýnt hversu hratt hefur tekist að ná tökum á þessum vá- gesti, sem oft hefur verið líkt við krabbamein í efnahagslífinu. Auðvitað hefði ekki verið raun- hæft að semja um 6,5—7% grunn- kaupshækkun launa á yfirstand- andi ári, ef hér hefði ríkt óðaverð- bólga og mikið atvinnuleysi, sem af þeim ósköpum hefði hlotost. Þessir kjarasamningar eru því snar þáttur þess árangurs sem náðst hefur með efnahagsráð- stöfunum í sumar. Nýjung í efnahags- stjórn: Fyrirfram ákveóin stefna í launa-, verðlags- og gengismálum í kjölfar efnahagsráðstafan- anna í fyrra var tekin upp sú nýbreytni í hagstjórn að ríkis- stjórnin boðaði svart á hvítu — fyrirfram áður en gengið var til samninga — fastmótaða stefnu í launa-, verðlags- og gengismálum. Á þessari stefnu voru fjárlög og lánsfjárlög byggð. í raun var sagt til viðmiðunar fyrir alla aðila í þjóðfélaginu m.a. aðila vinnu- markaðarins: Gengi krónunnar á árinu 1984 verður ekki hreyft meira en um 5%. Jafnframt var sagt: Hækki laun almennt ekki meira en 4%, verður verðbólgan innan við 10% í árslok og þá næst jöfnuður í viðskiptum við útlönd. Eyðsluskuldasöfnun verður þá hætt. Þetta er auðvitað ekki valdboð. Ríkisvaldið er einfaldlega að skýra almenningi frá því að hækki laun meira en þessi viðmið- un segir til um, verður verðbólgan meiri og hættara við áframhald- Lárus Jónsson, inganefndar. formaður fjárveit- andi eyðsluskuldasöfnun. I gengis- stefnunni felst að vinnuveitendur semja á eigin ábyrgð um launa- hækkun sem atvinnuvegirnir þola ekki innan framangreindra geng- ismarka. Þessi nýju vinnubrögð í efna- hagsstjórn frá hálfu ríkisvaldsins eru með allt öðrum hætti en áður hefur tíðkast. Engri slíkri stefnu- mótun hefur verið til að dreifa þótt ríkisstjórnir hafi látið í veðri vaka að samningar mættu ekki fara úr böndum, þá væri verið að efna til nýrrar verðbólguhol- skeflu. Oft hefur niðurstaðan orð- ið sú að samið hefur verið um tugi prósenta hærri grunnkaupshækk- un en atvinuvegirnir hafa þolað. Viðkomandi ríkisstjórn hefur þá neyðst til þess að taka kauphækk- anir umfram getu atvinnuveganna og þjóðarbús aftur með gengis- breytingu eða gengissigi. Sú stíf- 168% I VERCBOLGA Agjg 1983 án a&gerða 139% Þriggja mánaða hækkun framfærsluvisi- tölu reiknuó til árshækkunar (Útreikn Þ|ó6hagsstof.) VERPBÓLGA 1983 OG í JANÚAR 1984 EFTIR EFNAHAGSAOGEROIR Hækkun framfærslu- visitölu þriggja mán. hækkun umreiknuð til árshækkunar 32^% Hækkun framf vísitölu í jan. reiknuð til árshækkunar Jótlandspóstur — eftir Þórhall Heimisson Skyldi nokkur trúa því, að hægt sé að ganga út að morgni nú í febrúarmánuði, taka sér sæti, líta yfir landið og sjá grænar grundir og Iaufguð tré? Getur kaldur norð- angarrinn íklæðzt silkihönzkum og strokið blíðlega um grös og vanga? Slík veðursæld er nær okkur en við höldum. Ég er nú nýsloppinn úr klakaklóm íslenzks janúarmán- aðar, floginn suður yfir pollinn mikla og lentur í landi frænda okkar, Dana. Nánar tiltekið hefur mig borið að ströndum Jótlands austanverðum, þar sem sterklegar brýr spanna Litla-Belti og tengja eyjuna Fjón við meginland Evr- ópu. Veturinn er ótrúlega mildur. Miðdegisganga í skóginum verður að messugjörð. Kórinn situr í greinum trjánna, og fuglakliður- inn feykir burt þokuslæðingi hversdagsleikans úr hugskotinu. Samtímis berst hingað frétta- mergð af baráttu annarra Skand- ínava hið hörð og miskunnarlaus náttúruöflin. Hér virðist ríkja sæluástand í náttúrunnar ríki, a.m.k. í augum ferðalúins frónbúa. Sami sælulundur blasir á yfir- borðinu við, þegar litið er til þess þjóðfélags, sem frændur vorir hafa komið á fót. Danmörk er eitt af fyrirmyndarríkjum heimsins, hvað varðar stjórnarfar og um- hyggju fyrir þegnum konungsins. Heilsugæzla og félagsleg þjónusta bera t.a.m. af því, sem víðast ger- ist. II Hins verður því miður að geta, að með þessu er ekki öll sagan sögð. Land og þjóð þjást af inn- anmeinum. Náttúran er miklum mun gjöfulli en á útskerinu okkar. En náttúra Danmerkur er að kafna í mengun. Rusl í skógi og á engi; olíustybba yfir sundunum bláu. Fleiri og fleiri grænir blettir hverfa undir stál og steinsteypu. Gott er að skoða strendur Jót- lands og Fjóns, meðan gengið er eftir gömlu Litla-Beltisbrúnni, þunglamalegu og mikilfenglegu mannvirki. En þaðan blasa við fleiri skógar en furu- og greni- lundir eða faguílimað beykið. Skorsteinsskógar margvíslegra verksmiðja spúa eitruðum reykj- arbólstrum til himins dag og nótt, án þess að nokkur fái þar við ráð- ið. Mest gætir loftmengunar frá iðnaðarbænum Fredericia, sem er Jótlandsmegin við sundið. Afleið- ing alls þessa er fnykur, sem stundum leggst yfir borg og bæ og umhverfir fögrum sveitum í grámózkuleg og náttúrufjand- samleg iðnaðarhéruð. Óþefurinn er þráfaldlega með eindæmum. III Á sama hátt og náttúran er gegnsýrð mengun, læðist óttaleg- ur sjúkdómur um blómleg heimili velferðarþjóðfélagsins: Atvinnu- leysið. Flestir íslendingar, sem fylgjast með erlendum fréttum, hafa haft spurnir af atvinnuleysinu, sem þjakar Danmörku og ýmis Vestur- lönd önnur. Sumir kannast við at- vinnuleysi af eigin raun, í íslenzk- um búningi. En fæstir held ég að geri sér grein fyrir merkingu jíeirra prósentutalna um atvinnu- Íeysi erlendis, sem af og til dynja í fréttum. Afleiðing fjöidaatvinnu- leysis er ill fyrir þjóðfélagsheild- ina. En þrenging þess einstakl- ings, sem dæmdur er til atvinnu- leysis, er skelfileg. Þórhallur Heimisson Efnahagslega eru menn e.t.v. ekki ýkja aðþrengdir. Velferðar- ríkið sér um sína, a.m.k. í Dana- veldi. Þó má benda á, að erfitt get- ur mönnum reynzt að lifa af at- vinnuleysisbótum, sem nema 3500 krónum dönskum á mánuði. Andleg þrenging atvinnuleys- ingjans er hins vegar ótvíræð. Flestir þeirra, sem verða fyrir barðinu á atvinnuleysinu, eru á aldrinum 16—25 ára. Þar er á ferð hin unga kynslóð, sem á að erfa landið, stútfull af menntun eins bezta skólakerfis í heimi og hlaðin orku. Þegar þetta unga fólk ætlar út á vinnumarkaðinn, kemur það iðulega að luktum dyrum. Afleið- ingin verður vaxandi tilfinning fyrir eigin tilgangsleysi: „Ég hef ekkert að gera og fæ líklega ekkert að gera á næstunni. í raun hefur þjóðfélagið litla sem enga þörf fyrir mig.“ Þannig hugsa margir. Krakkarnir reyna að gleyma sér við tómstundaiðju. Sumum tekst að þrauka; aðrir gefast upp og leggjast í vímuefni, sem leitt geta eins og allir vita til hins endan- lega flótta frá lífinu í bókstafleg- um skilningi þeirra orða. Þeir, sem ekki fylla framan- greindan flokk, bregðast oft ann- an veg við atvinnuleysinu en yngri kynslóðin. Kunnugir tjá mér, að það sem verði „eldri“ atvinnuleys- ingjum (25 ára og úpp eftir) oftast að fótakefli, sé niðurlægingin, sem þeim finnst þeir verða fyrir. Þeir hafa yfirleitt unnið hörðum hönd- um, líkt og aðrir. En þegar þeir missa atvinnuna, taka þeir þann kost að einangra sig öldungis frá umhverfinu. Þetta er fólk, sem ráfar um íbúðir sínar dag eftir dag og fer helzt ekki út fyrir hússins dyr nema til þess að sækja félags- málapakkann sinn eða hinn dag- lega skammt af bjór. Ekki þarf mikla menntun í sálar- eða félags- fræði til að sjá, hvert slíkir lifnað- arhættir leiða einstaklinginn. Ofan á þetta allt bætist vaxandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.