Morgunblaðið - 14.03.1984, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.03.1984, Blaðsíða 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1984 e IM3 Unlvirtll Pf.il Svnjllol* „ HjónaJaccrwL þý&ir a%> qefa, oq iaMa- \jofba- Kokur'nar þlnar, s\jo þú* 6kaLt þvo upp! Ast er ... ... að kyssa hana undir mistilícininum. TM Rag. U.S. Pat. 00,—all righls reserved * 1983*-0S Angeles Times Syndicate Þú hefur auðvitað verið bú- inn að eyða helmingnum af kaupinu í getraunaseðlana! Snjallt? — Ég bara skellti gasi í hann! Kristnir ofsóttir Til Velvakanda. „Þessar tvær myndir sem ég sendi þér, Velvakandi góður, og óska að þú birtir fyrir lesendur þína, rakst ég á í tímaritinu Ljós í austri, sem ég er áskrifandi að. Eins og lesendur muna kannski eftir hef ég áður vitnað í það blað hér í Velvakanda. Þessar tvær myndir sína okkur hvernig tilver- an getur verið fyrir móðurina. Lilija Bachmann með börnin, sem eru nú án föðurumhyggjunnar, þar sem faðirinn var handtekinn fyrir trú sína 1982 og bíður eftir því að verða látinn laus þann 4. júlí í ár. Á neðri myndinni sjáum við föðurinn, Gustav Bachmann, við innganginn á dómsalnum er hann var dæmdur til tveggja ára fangelsis fyrir trúarbrögð sín. Báðar þessar myndir minna okkur á það að það er ekki neitt sjálfsagt að fjölskyldur fái að lifa hamingjusamlega saman í veröld okkar. En um leið minnir það okkur líka á það að þeir, sem eiga þeirri gæfu að fagna og að búa saman sameiginlegu fjölskyldulífi mega gleðjast yfir því að vera þakklátir. Nú mega lesendur ekki halda að ég sé með skítkast út í Sovétríkin. Því fer fjarri. En öllu óréttlæti hvar sem er í heiminum, hvort sem það er í Sovétríkjunum, Ameríku eða bara hér uppi á okkar afskekkta landi íslandi, ber að mótmæla og gera opinbert. Það í Sovét hefur hjálpað mörgum kristnum mönnum austur í Rússía að kristnir menn á Vesturlöndum tali hátt um ofsóknirnar á hendur þeim.“ Einar Ingvi Magnússon Svör við fyrir- spurn um sorp- flutninga Til Velvakanda. „í dálkum „Velvakanda" 10. þ.m. var fyrirspurn frá Garðari Ág- ústssyni varðandi laust efni og rusl, sem hrynur af bílum á götur borgarinnar. Sérstaklega var til- tekin leiðin upp á sorphaugana í Gufunesi. Engin sérstök reglugerð er til um sorpflutninga. Hins vegar eru bæði heilbrigðisreglugerð, lögreglusamþykkt Reykjavíkur og eins eru í umferðarlögum ákvæði, sem ná yfir þetta, þannig að búa skal svo um farm bifreiða að hann valdi ekki óþrifnaði á götum borg- arinnar. Lögreglumenn og eftir- litsmenn gatnamálastjóra fylgjast með þessu, en alltaf eru einhverjir sem brjóta þetta og sleppa. Flokk- ur frá hreinsunardeildinni fer reglulega þessa umræddu leið og hreinsar upp það sem fallið hefur og fokið á veginn eða i nágrenni hans.“ Ingi Ú. Magnússon, gatnamálastjóri. Þessir hringdu . Kolaport — gott nafn og vel við hæfi Fyrrverandi kolamokari hringdi: — Ég hef séð að einhverjir eru að setja út á nafngift nýju bíla- geymslunnar við Kalkofnsveg, Kolaportið, á dálkum Velvak- anda að undanförnu. Mér finnst þetta nafn hins vegar ágætt og það er vel við hæfi. Þarna var áður kolaport, og var kolunum mokað þarna í poka meðan þau voru notuð til kyndingar í hús- um hér í borginni. Þá langaði mig til að koma að- eins inn á annað. Ég hlusta oft á forystugreinar dagblaðanna í út- varpi. Finnst mér að forystu- greinar blaðanna hér í höfuðstaðnum séu eins og hverj- ir aðrir sunnudagsskólapistlar i samanburði við blöðin úti á landi — þeir eru svo miklu kjaftforari þar. Sóðaskapur að köttum Kona hringdi: — Það er oft talað um að sóðaskapur sé af , hundum hér í borginni en enginn minnist á kettina. Það er rétt eins og fólki sé ekki kunnugt um að kettirnir ganga í sandkassa á leikvöllum hér til að gera þarfir sínar en klóra svo sandinn yfir á eftir. Svo fara börnin að leika sér í þessu. Mér finnst að það ætti þegar í stað að tæma alla sandkassa í borginni og setja í þá nýjan sand. Síðan ætti að breiða yfir alla sandkassa á nóttunni þannig að kettirnir komist ekki í þá. Police á Lista- hátíð — Duran Duran tískufyrirbrigði Police-aðdáandi hrindi: — Ég vil þakka fyrir góða grein, sem birtist núna á sunnudaginn í Morgunblaðinu um hljómsveit- ina Police. Þá vil ég taka undir óskir Police-aðdáenda sem skrif- aði í Velvakanda og bað um Pol- ice á Listahátíð. Ég hef séð að margir biðja um Duran Duran, sem fyrir sitt leyti er sæmileg hljómsveit. Þó held ég að vin- sældir þeirra félaga séu fyrst og fremst tískufyrirbrigði og bólan verði sprungin eftir nokkra mánuði. Því tel ég skynsamlegra að fengin væri hljómsveit á Listahátíð eins og Police, sem hefur skipað sér í traustan sess og aflað sér fjölda áhangenda. Police á Listahátíð — þá verður fjör i Höllinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.