Morgunblaðið - 14.03.1984, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.03.1984, Blaðsíða 10
58 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1984 Grein og myndir Úlfar Ágústsson Kalifornía gullna ríkið Los Angeles-svæðiö er mjög áhugavert fyrir ferða- menn. Þar er Hollywood, Disneylandv Hollywood Bowl, Langisandur, og margt fleira. Á næsta ári verða Ólympýuleikarnir haldnir þar og búist er við allt að einni milljón ferðamanna vegna þeirra. í síðustu greininni skoðum við okkur um í nágrenni Los Angeles, en höldum síðan yfir í næsta fylki, Nevada, og skoðum spilaborgina frægu Las Vegas. Höfnin í Avalon á Katalina-eyju. Breakers Hotel við Langasand Við erum greinilega farnir að venjast Ameríku. Það tók okkur aðeins skamma stund að finna Breakers Hotel við Ocean Boule- vard á Long Beach. Þegar við renndum upp að aðaldyrunum tók á móti okkur íturvaxinn ung- ur negri í einkennisbúningi. Þeg- ar ég hafði kynnt mig, sagði hann að þau hefðu einmitt verið að vonast eftir okkur, bað okkur að ganga í bæinn, hann mundi sjá um bílinn og farangurinn. í fáum orðum sagt voru móttök- urnar og þjónustan á þessu gamla hóteli með því allra besta sem ég hef kynnst í heiminum. Breakers Hotel, var upphaf- lega byggt á þriðja áratugnum og ætlað olíufurstum, kvik- myndastjörnum og öðru auð- fólki, sem vildi njóta lífsins við Langasand. Nú hefur hótelið verið endur- byggt í sinni upprunalegu mynd og er stórkostlegt að upplifa þessa gömlu tíma bandarískrar auðstéttar. Að komast í heims- mctabókina Terri Villa McDowell fram- kvæmdastjóri ferðamálaráðs Long Beach tók á móti okkur næsta morgun í ráðstefnuhöll- inni, sem er rétt hjá Breakers. Við fórum með henni til að vera viðstaddir opnun nýs skemmti- og viðskiptasvæðis þarna við höfnina. Shoreline Village er byggt á fyllingu við norðurenda Long Beach og kostaði 7,5 milljónir dala. Þarna er stór skemmti- bátahöfn og verslunarhverfi. Mikið var um dýrðir. Stór lúðra- sveit lék og borgarstjórinn hélt ræðu, auk fjölda skemmtikrafta sem skemmtu á götum og torg- um. Yfir höfðum okkar hékk heimsins stærsti blöðrustrengur. Öðrum enda strengsins hafði verið komið fyrir á Queen Mary vestan Shoreline Village og hin- um endanum á glæsihótelinu Hyatt Regency uppi á landi að austanverðu. Strengurinn var 1800 metra langur og honum var haldið uppi af 7.200 helíumfyllt- um blöðrum. Miðjan var svo dregin niður í mastur gamallar skútu, sem lá í höfninni á Shore- line Village. Hámark hátíða- haldanna var svo að sjóræningi kom róandi á árabát, kleif upp í reiða skútunnar og hjó á heims- metsstrenginn og var þar með Ekta Show Biz undir berum himni í Disneylandi. Skemmtiatriðin eru aldeilis frábær. Æröur tuddinn reynir að brjótast út úr básnum, meðan kúrekinn kem- ur sér fyrir á baki hans. sundi á tuttugustu og sjöundu hæð yfir Las Vegas-borg. orðinn ódauðlegur og kominn í heimsmetabók Guinness. Eyja tyggjókonungsins Eftir hádegi héldum við svo í boði Catalina Cruises til eyjunn- ar Katalínu, en hún liggur um 22 mílur undan ströndum Kali- forníu. Ferðast er með 700 manna ferju, en 5 slíkar eru í stöðugum ferðum milli lands og eyjarinnar á vegum þessa fyrir- tækis. Eyjan er um 75 fermílur að stærð. Þar hafa fundist um 4000 ára gamlar minjar um indíána- byggð. Spánverjar fundu eyjuna 1542, en nafnið er frá 1602. Gull- æðið greip um sig þar 1863, en eyjan var yfirgefin í þrælastríð- inu 1864. 1919 keypti William Wrigley tyggigúmmíframleiðandi eyjuna og notaði undir sumarbúðir. Nú búa þar nokkrar þúsundir manna og lifa á túrisma, kvik- fjárrækt og grjóthöggi, en allt grjót, sem notað er í hafnargerð í Long Beach kemur frá Kata- línu-eyju. Eyjan er afar falleg og töfr- andi. Við gengum um aðalgötuna í Avalon, eina bænum á eyjunni, og nutum stórkostlegrar máltíð- ar með fulltrúa skipafélagsins. Síðan fengum við okkur bát á leigu og sigldum meðfram ströndinni. Disneyland leikvöllur þeirra fullorðnu Við fullnýttum okkur ferða- mannaþjónustuna daginn sem við fórum að skoða Disneyland. Létum rútu sækja okkur á hótel- ið, en rútufyrirtækin safna fólki af öllum stærri hótelunum og flytia á hópferðamiðstöðvar sín- ar. I þessu tilfelli var miðstöðin í gamla spánska hverfinu í Los Angeles. Þar tók við annar vagn, sem flutti okkur á bílastæðin við Disneyland. Hvor ferð fyrir sig tók um eina klukkustund. Disneyland er auglýst sem skemmtistaður fyrir fullorðna, þar sem börn mega koma með. Þannig var það líka. Mikill meg- inhluti gesta var fullorðið fólk, sem naut þess í ríkum mæli að sleppa fram af sér beislinu og finna til æskufjörs aftur. Disneylandi verður ekki líst með fáum orðum, en þetta er stórkostlegur staður og gefur innsýn í fjölda marga þætti for- tíðar, nútíðar og framtíðar. Einn dagur er í raun of skammur tími fyrir þennan stað, sem teiknar- inn Walt Disney stofnsetti fyrir u.þ.b. þrem áratugum. Las Vegas borg spilavítanna Um hádegisbil á mánudag kvöddum við fólkið á Breakersh Hotel með virktum og lögðum af stað til fjalla. Eftir um tveggja tíma keyrslu erum við komnir upp úr meng- unarloftinu í Los Angeles í hreint og tært fjallaloftið. Framundan eru víðáttumiklar eyðimerkur. Við ökum yfir Mojave-auðnina. í norðri er Dauðidalur, en í suðri er Leik- völlur djöfulsins. Við ökum fram hjá bæ með því einkennilega nafni Draugaborg (Ghost Town) og eftir nær sex tíma ferð birtist skyndilega í auðninni Las Vegas í Nevada-fylki. Upphaflega settust mormónar að þarna 1855, en nafnið er spánskt frá 1829 og þýðir Dalur- inn. Ástæðan til búsetu var sú, að vatn streymdi þarna upp úr jörðinni og þess vegna var járn- brautin milli LA og Salt Lake City lögð þarna um. Því þetta var eini staðurinn á allri leið- inni, þar sem hægt var að fá vatn á eimkatlana. Uppganginn á staðurinn samt augljóslega því að þakka, að 1931 var fjárhættu- spil lögleitt í Nevada. Þar við bætist að borgin var gerð að miðstöð aðfanga vegna virkjun- ar í Svörtu gljúfrum, sem nú heitir Hoover Dam og er ein stærsta virkjun í heimi. Árið 1940 var íbúatalan aðeins 16.000, en tíu árum síðar var íbúafjöld- inn kominn í 48.000 og nú býr þar um hálf milljón manna. í bænum eru 44 stór hótel og 33.000 gistiherbergi. Á síðasta ári komu 11,6 milljónir manna til staðarins. Þar eru 41.400 pen- ingavélar (slot macines) og 4.300 spilaborð og rúllettur svo ein- hverjar tölur séu nefndar. Bær- inn hefur lengst af verið þekktur fyrir spilavítin, en nú er sport orðið mikilvægur þáttur í at- vinnulífinu. Þarna er stærsta sýningarhöll á einu gólfi í heim- inum, um ein milljón ferfet. Þar er m.a. haldið árlega hesta- íþróttamót (rodeo) sem stendur í nokkrar vikur. Á kúrekahátíð Helldorado Rodeo í Las Vegas er með stærstu ródeóum í Amer- íku og dregur að sér mikinn fjölda þátttakenda og áhorfenda hvert ár. Þessi gamalkunna íþrótt kúrekanna er alltf jafn vinsæl, enda færni manna með ólíkindum. Ungir piltar sátu óða tarfa, 700—800 kílóa flykki, sem dönsuðu um með band reyrt undir nára þeirra. Slík er færn- in, að ekki er lengur spurt um hvort þeir geti setið dýrið eða ekki, (það gera þeir svo til allir) heldur hvernig stíllinn. Keppt var í kálfatjóðrun. Sigurvegar- inn var 6,8 sekúndur að elta kálf- inn á hesti sínum, snara hann, stöðva hest og kálf, snarast af baki, hlaupa að kálfinum, velta honum á bakið og tjóðra á hon- um fæturna. Ungar stúlkur kepptu í einskonar svigreið og trúðar léku sér við mannýga bola af afburða snilld á milli at- riða. Við bjuggum á Mint Hotel, stærsta hóteli borgarinnar. Stórkostlegt útsýni er úr veit- ingasölunum á efstu hæðinni og frá sundlauginni sem er á þaki þessarar 26 hæða byggingar. Á tveim neðstu hæðunum eru spilasalir og matsölustaðir. Gestum er boðið upp á fría skoð-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.