Morgunblaðið - 14.03.1984, Side 6

Morgunblaðið - 14.03.1984, Side 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1984 Lj ósmy ndasýning Myndlist Valtýr Pétursson Þeir félagar Sigurgeir Sigur- jónsson og Guðmundur Ingólfs- son, báðir meðal fremstu ljós- myndara okkar, halda sýningu í Listmunahúsinu eins og stendur. Hér er um sýningu að ræða, sem er sérlega vönduð og ber þeim ljósmyndurunum gott vitni um kunnáttu og listræn vinnubrögð. Fyrir nokkrum vikum reit ég hér ! blaðið grein um sýninguna FROZEN IMAGE, sem fór um Bandaríkin, og þar áttu þessir ljósmyndarar báðir verk, sem maður tók sérstaklega eftir. Mergurinn í sýningunni í Listmunahúsinu er sú sýning, sem nýlega var á ferð í Berlín og Bonn sem íslandskynning og mér er sagt, að það hafi vakið sérstaka eftirtekt, að sú sýning var seld á einu bretti og mun verða notuð sem landkynning á meginlandinu á vegum Flug- leiða. En þeir félaga hafa nokkuð breytt til, því að eins og annar þeirra sagði við mig: „Það þýðir ekkert að selja Þjóðverjum skóg.“ Á þessari sýningu eru 58 myndir og skiptast nokkurn veg- inn jafnt á þá félaga. Sigurgeir er með litmyndir, en Guðmund- ur heldur sig við landslag í svart/hvítu. Þarna sjást líka gömul hús, Bjarnaborg við Hverfisgötu, lúxusíbúðir síns tíma hér í borg. Smiðjustígurinn og Vesturbærinn koma einnig við sögu, og svo eru það feiki fal- legar skógarmyndir, Skaftafell og Þingvellir, Flatey og Hafnar- fjarðarhraun, það er Guðmund- ur Ingólfsson, sem glímir við þessi viðfangsefni. Sigurgeir á þarna frábærar myndir frá Hjalteyri, sem segja sorgarsögu, og Möðrudalskirkja trónar þarna. Sandarnir eru Sigurgeiri einnig hugstætt viðfangsefni. Þeir félagar eru nokkuð ólíkir í vinnubrögðum og meðferð verk- efna. Guðmundur tekur verkefn- in mjög ákveðnum tökum, mynd- ir hans hafa traustan grunn og allt er hnitmiðað til hins ýtr- asta. Sigurgeir er aftur á móti nokkuð fyrir að grípa augnablik- ið, og hann notfærir sér meira myndefni, sem stundum líkist ýmsu í samtímamálverkum. Sumar af myndum hans frá söndunum eru í sérflokki. Það er skemmtilegt að skoða þessa sýningu og gera sér ljóst hvar Ijósmyndalistin er á vegi stödd hjá okkur. Hér eru á ferð menn, sem sjá og höndla fyrir- myndir sínar á allt annan hátt en við eigum að venjast hjá eldri mönnum. Sú var tíðin, að menn notuðu ljósmyndavélina á nokk- uð rómantískan hátt, hver man ekki eftir póstkortinu frá Akur- eyri með trénu? En nú gera menn sér mat úr auðninni og fullvöxnum skógum. Sjónar- hornið hefur einnig tekið stakkaskiptum og í fáum orðum sagt: Nútíminn hefur haldið inn- reið sína, bæði hvað tækni og listrænt mat áhrærir. Þessi sýn- ing þeirra Guðmundar Ingólfs- sonar og Sigurgeirs Sigurjóns- sonar gefur það fyrrnefnda fylli- lega til kynna og hún er einnig vitni um mikla leikni, kunnáttu og smekkvísi þeirra, er halda á myndavélinni. Hafi þeir félagar þakkir fyrir þessa sýningu, sem hefúr myndrænt gildi í fyrirrúmi og frásögnina ekki síður. Ljósmynd eftir Guðmund Ingólfsson Ljósmynd eftir Sigurgeir Sigurjónsson Þrenning Rudolf Weissauer Enn einu sinni er Rudolf Weissauer kominn langan veg til að heimsækja land og vini sína hér. Guðmundur Árnason sér að venju um húsnæði fyrir sýningu Weissauers í rauða húsinu við Bergstaðastræti og auðvitað er Örlygur Sigurðs- son ekki í mikilli fjarlægð. Jónas Guðmundsson er einnig í sjónmáli, og þá er þrenningin hans Rudolfs upptalin. Það er mikill vinskapur að koma allt frá Bæjaralandi hingað í bjórleysið og fara hringinn í kringum land jafn- vel tvisvar í hverri heimsókn, nema Ijósið í láði og legi, melta það og síðan gera úr því mynd- ir, sem svo er komið með í pússi sínu næst, þegar leiðin liggur til hinnar norðlægu eyj- ar í miðjum Atlantsálum. Þetta er ekki frásögn af nein- um venjulegum Bæjara. Svona fer Rudolf Weissauer að við myndgerð sína, sem hann síð- an sýnir hjá vini sínum Guð- Leikhúsplaköt „Gildi leikmyndar á ekki að meta í hlutfalli við það silki og flauel, sem notað er, þ.e. það sem sést berum augum. Mik- ilvægast er, hvernig hið sjón- ræna getur stuðlað að skiln- ingi á boðskap sýningarinnar og listrænni túlkun.“ Þetta eru orð Máns Hedströms, sem nú heldur sýningu á leikhúsplak- ötum sínum í Norræna húsinu. Hedström er afar afkasta- mikill og mjög þekktur fyrir leikmyndir og leikhúsplaköt sín, og sýningar hafa verið haldnar víða í Evrópu á verk- um hans á þessu sviði. Hann er innanhússarkitekt að mennt og kennari í leikmyndagerð við Listiðnaðarháskólann í Hels- inki. Plaköt hans hafa náð miklum vinsældum, og er upp- lag þeirra frá 2.000—100.000. Af þessu má sjá, að hann hefur með list sinni náð til mikils fjölda fólks, og maður verður ekkert hissa á þeirri stað- reynd, er þessi sýning hans er skoðuð. Hún er bæði hressileg og lifandi, listræn í flestu til- viki, en persónulega fannst mér hún dálítið misjöfn á stundum. Sumt er þarna afar mikið í ætt við grafík, og sann- leikurinn er sá að milli grafík- listar og plakatanna er ekki langt bil, og margt líkt með báðum. KOM-leikhúsið hefur verið aðalvettvangur Hed- ströms, og hann hefur auð- sjáanlega lagt því leikhúsi mikið lið. Hve þessi plaköt falla vel að þeim verkum, sem þau tilheyra, skal ekki metið hér, til þess þarf að þekkja leiritin sjálf, en myndrænt gildi blasir við í flestum þess- ara plakata, og einkum og sér í lagi vil ég benda á No. 5, 6, 42 og 43. Þar fer Hedström á kostum með einfalt form og takmarkaða liti. Það er ekki gott að gera sér ljóst, hvor hlið Hedströms er sterkari, sú formræna eða litameðferðin. En þessi undirstöðuatriði í myndgerð blasa við í þessum verkum, og það mætti segja mér, að allt félli þetta vel að því, sem það stendur fyrir. En þarna eru líka einstaka verk, sem mér finnst svolitlir hor- tittir í samanburði við það, sem mér fannst best. Leiktjöld við ballettinn SALKA VALKA eru þarna einnig, og það er engu líkara en maður heyri gargið í máv- unum í Grindavík. Plakatið ágætt. Þetta er um margt óvenjuleg sýning hér á landi, og hún er vel þess verð að vera í sölum Norræna hússins. Stutt innlit gerði hana eftir- minnilega, og ég hafði ánægju af lifandi og hressilegum blæ hennar. Fólk ætti ekki að láta þessa sýningu fram hjá sér fara. Þarna er myndrænt gildi í hávegum haft á nýtískulegan hátt, og hvert einasta verk tal- ar skýrt og skiljanlega sínu máli. mundi Árnasyni, og á meðan á sýningunni stendur, er þar margt á ferð af afar skemmti- legum mönnum. Rudolf, Guð- mundur, Örlygur, þrenning, sem ekki er á hverju götu- horni, og það litla, sem eftir er af húmanisma i þessari borg, er ef til vill aðalsmerki þess- ara margslungnu persónu- leika. Myndirnar, sem Rudolf kemur með að sinni, sverja sig mjög í ætt við það, sem maður á að venjast frá hans hendi. Hann er lipur myndgerðar- maður og kann sitt verk. Hvort heldur hann notar past- ell eða grafískar aðferðir. Þarna eru nú myndir af Vest- mannaeyjum, sem gerðar eru á nokkuð rómantískan hátt, en þannig sér. listamaðurinn fyrirmyndina, og það er skammdegið, sem heillar hann að sinni. Margt fleira mætti nefna á þessari litlu. sýningu hjá Guðmundi Árnasyni, en látum nægja að segja, að það sé ósvikinn Weissauer, sem er þarna á veggjum. Það er mikill vinskapur að koma í tuttugu ár til að heim- sækja vini sína hér á landi. Líklegast eru sýningar Weiss- auers orðnar eins margar og ferðalögin. Hann er fastur far- þegi með strandferðaskipum ár eftir ár og þekkir hvern krók og kima af strandlengju landsins. Hann er góður vinur vina sinna, og það hafa verið bundin traust vináttubönd við þá, sem honum eru kærir. Það er dálítiö magnað að koma í hópinn, þegar þeir þrír eru á tali. Þar fljúga glaðværar sög- ur og mikið er hlegið. Þar er mannleg gleði fyrst og fremst í hávegum höfð, og það er ekki ólíkt því sem hljómlistar- mennirnir hans Heinesen séu þarna ljóslifandi og umhverfið fellur að öllu saman, svo að maður kemst í snertingu við hinn eina sanna tón, eins og skáldið sagði. Það er ómetan- legt að hafa þessa þrenningu við Bergstaðastrætið, og mik- ils er misst fyrir þá, sem fara á mis við þá uppákomu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.