Morgunblaðið - 14.03.1984, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1984
59
Þriöja grein
Breakers Hotel til vinstri og Langisandur. Eyjarnar útifyrir eru olíu-
borpailar, sem Walt Disney hannaöi til aö falla aö landslaginu.
Þú feröast ýmist meö kjarnorkukafbátnum George Wasington, ein-
teina járnbraut, eöa í geimflaug til nágrannaplánetanna í Disneylandi.
eftirlitsferð hefði stöðvað tvo
náunga á mótorhjóli fyrir of
hraðan akstur. Lögreglumaður-
inn stöðvaði bíl sinn fyrir aftan
mótorhjólið eins og venja er og
labbaði yfir að hjólinu. Þá sneri
sá sem aftar sat á hjólinu sér við
og skaut lögregluþjóninn með
hlaupstífðri haglabyssu í andlit-
ið. Síðan óku þeir á brott á mik-
illi ferð. Nú urðu okkur Gísla
ljósari móttökurnar hjá lög-
regluþjóninum brjóstabreiða
fyrsta kvöldið okkar og áður var
sagt frá.
Konur sækja á víöar en á íslandi.
Þessi dama er skipstjóri á ferj-
unni sem viö fórum meö milli
Long Beach og Katalina-eyju.
unarferð á bakvið í spilavítinu.
Þá er komið í talningarherberg-
in og yfir spilasalina, þar sem
fylgst er með því sem fram fer í
gegnum gler, sem virkar sem
spegill hinumegin frá. Þótt ein-
kennilegt megi virðast er matur,
drykkur og gisting mjög ódýrt
allstaðar í Las Vegas, þrátt fyrir
gífurlegan íburð og góða þjón-
ustu. Ef þú átt lítið fé, en vilt
lifa eins og kóngur þá er Las
Vegas sennilega besti staðurinn
í heiminum til þess.
Haglaskot í andlitið
Eftir tveggja daga dvöl í Las
Vegas lögðum við upp aftur. Við
lögðum smá lykkju á leið okkar,
ókum inn í Arizona og yfir
Hoover-stífluna, það stórkost-
lega mannvirki. Þaðan ókum við
til Kingsman í suðri og svo yfir
Colorado-fljót við Needles. Yfir
Mojave-auðnina aftur og komum
inn í úthverfi LA að áliðnum
degi.
I fréttatíma útvarpsins var
sagt frá því, að lögregluþjónn á
Heimleiðis
Næsta dag lögðum við af stað
heimleiðis. Þotan tók af til vest-
urs. Við flugum lágt yfir hafnar
svæði Long Beach og út á Kyrra-
hafið, en snerum svo við og klifr-
uðum þvert yfir Los Angeles. Á
vinstri hönd voru Malibu Beach,
Beverly Hills og Hollywood,
heimur kvikmyndastjarnanna,
hinumegin var Anaheim með
Disneylandi, öðrum ævintýra-
heimi. Ef til vill eru báðir jafn
óraunverulegir, en þarna er ekki
bara óraunverulegur gleðiheim-
ur. Ef þú vilt upplifa mannlífið
eins og það raunverulega er þar
sem kaldur raunveruleikinn er
kaldastur og sósíalísk Potemkin
tjöld fela ekki misfellur hins
daglega lífs ef þú þorir að
treysta á sjálfan þig og þig ein-
an, þá á ég ekki nema eitt ráð
fyrir þig. Farðu til Kaliforníu og
upplifðu stórfengileikann þar
sem hann er stórkostlegastur.
Framundan eru mikil hátíða-
höld í Kaliforníu, sem Islend-
ingar munu taka þátt í. Næsta
vor verða Ólympíuleikarnir í Los
Angeles og næsta sumar verður
alþjóðaþing Lionsmanna haldið í
San Francisco svo aðeins tvö
dæmi séu nefnd.
Flugleiðir bjóða upp á ferðir
þangað sem eru litlu dýrari en
hefðbundnar sólarlandaferðir
íslendinga og er það eitt ástæða
til að nota tækifæri, sem ekki er
kannski ástæða til að standi
lengi, þar sem fjarlægðin er
meira en tvöfalt lengri en á sól-
arstrendur Evrópu.
íslenskar tækninýjung-
ar fyrir sjávarútveg
— eftir Jón H.
Magnússon
Á undanförnum árum hafa
nokkur íslensk iðnaðarfyrirtæki
og íslenskar rannsóknastofnanir
unnið að þróun áhugaverðra
hjálpartækja fyrir sjómenn og
starfsmenn í fiskvinnslu til að
létta störf þeirra og bæta afköst
og þannig auka tekjumöguleika
þeirra.
Það er áhugavert, að þessi ís-
lensku fyrirtæki hafa yfirleitt
þróað tæki, sem eru nýjungar á
sínu sviði. Segja má, að þessi tæki
hafi vakið verðskuldaða athygli
bæði hér innanlands og erlendis.
Tólf íslensk fyrirtæki tóku þátt í
sjávarútvegssýningu, sem haldin
var í Kaupmannahöfn síðastliðið
sumar og vakti framleiðsla þeirra
mikla athygli. Má jafnvel telja, að
það sé ein af ástæðunum fyrir því,
að erlendir aðilar munu í sumar
halda alþjóðlega sjávarútvegssýn-
ingu hér á Islandi.
I samband við starf mitt sem
ráðgjafa á sviði vöruþróunar og
alþjóðlegra markaðsaðgerða, hef
ég haft þá ánægju að aðstoða og
fylgjast með mörgum íslenskum
fyrirtækjum sem eru að framleiða
og þróa búnað og tölvukerfi fyrir
sjávarútvegsmarkaðinn hér heima
og erlendis. En yfirleitt tekur það
nokkur ár að ljúka þróun á slíkum
tækjum og kerfum og fullprófa
þau í sínu eðlilega umhverfi, áður
en hægt er að hefja framleiðslu og
sölu á þeim af fullum krafti.
Eftirtalin fyrirtæki hafa nú
hafið framleiðslu á áhugaverðum
búnaði með útflutning í huga:
Fyrirtækið DNG á Akureyri
hefur nú hafið framleiðslu á sjálf-
virkri handfærarúllu með raf-
eindastýribúnaði. Segja má, að
handfærarúlla þessi renni út hjá
fyrirtækinu, sem annar varla eft-
irspurninni. Hér er um handfæra-
rúllu á heimsmælikvarða að ræða,
hvað varðar einfaldleika og
starfshæfni.
Fyrirtækið Kvikk, í samvinnu
við Baader-umboðið hérlendis, er
núna að hefja lokaprófun á sér-
stakri vél til að kljúfa þorskhausa
og nýta þar með verðmæta afurð.
Fyrirtækið telur að með slíku
hjálpartæki megi bæta nýtingu
þorsksins um 7—10% og munar
nú um minna, þegar farið er að
ganga á fiskistofnana við landið.
Hefur vél þessi vakið mikla at-
hygli hérlendis og sérstaklega er-
lendis. Áætlað er að hefja fram-
leiðslu á vélinni innan skamms,
þegar prófun á henni er lokið.
Baader-umboðið hérlendis hefur
hannað sérstaka hausingavél við
flökunarvélar sínar. Því miður
verður vél þessi framleidd í
Þýskalandi, en hún hefur vakið
mikla athygli og sannar, að hugvit
íslenskra uppfinningamanna er
fyllilega á alþjóðamælikvarða á
þessu sviði.
Rafeindavogir 'og tölvukerfi
fyrirtækjanna Pólsins á Isafirði
og Marel í Reykjavík, eru nú
komnar í notkun í flestöllum ís-
lenskum fiskvinnsluhúsum og
hafa vakið rnikla athygli erlendis.
Notkun þessara nákvæmu og ör-
uggu voga kemur í veg fyrir þá
hættu að fiskpakkarnir séu nokkr-
um grömmum of léttir, og kemur í
veg fyrir of mikla yfirvigt þeirra,
þannig að nýtni fiskvinnsluhús-
anna batnar verulega. Þá eru þær
einfaldar í notkun og auka afköst
starfsfólksins verulega.
Tölvukerfi fyrirtækjanna, með
sérstökum forritum fyrir fisk-
vinnslu, er hið besta hjálpartæki
fyrir verkstjóra til að auðvelda
þeim að fylgjast með framleiðsl-
unni. Geta má þess að Póllinn fékk
nýlega heiðursverðlaun úr Verð-
Jón H. Magnússon
launasjóði iðnaðarins fyrir fram-
leiðslu sína. En starfsmenn Póls-
ins hafa snnað með dugnaði sínum
og hæfni, að hægt er að byggja
upp fyrirtæki hér á Islandi og
framleiða vörur á heimsmæli-
kvarða á þröngum sérsviðum, þar
sem nálægðin við viðskiptavinina,
í þessu tilfelli frystihúsin við ísa-
fjarðardjúp, skiptir öllu máli og
þar sem viðskiptavinirnir eru
kröfuharðir og vilja aðeins það
besta, reynir fyrirtækið það hag-
kvæmasta til að bæta rekstur
sinn. Líklegt er, að þessi tölvukerfi
og rafeindavogir, ásamt íslenskri
þekkingu á fiskvinnslu, verði veru-
leg útflutningsvara á næstu árum.
Vélsmiðja Sigurðar H. Þórðar-
sonar í Reykjavík hefur hafið
framleiðslu og sölu á sjálfvirkum
lyftum til að setja fiskbakka á
færibönd á vinnslulínu fisk-
vinnsluhúsa. Er hér um áhugavert
hjálpartæki að ræða til að létta
erfið og einhæf störf.
Olíunotkunarmælar fyrirtækj-
anna Örtölvutækni og Tæknibún-
aðar eru komnir í fjölmörg íslensk
og erlend fiskiskip. Hefur notkun
þessara mæla sannað að hægt er
að spara og nýta olíuna verulega,
án þess að það hafi marktæk áhrif
á aflafeng skipanna.
Þegar olíukostnaður útgerðar-
fyrirtækja er nú allt frá 30—60%
af aflaverðmæti eftir aðstæðum
og getur farið allt upp í 110% í
einstaka veiðiferð, þá er það aug-
ljóst mál, að notkun slikra hjálp-
artækja er nauðsynleg til að bæta
afkomu útgerðarfyrirtækja.
Nefna má ýmsar aðrar íslenskar
nýjungar fyrir sjávarútveg eins
og: Orkunýtna toghlera frá J.
Hinriksson, sem seldir eru víða
um heim. Björgunarnet Markúsar.
Sigmunds-gálgann fyrir björgun-
arbáta. Lausfrysta frá Traust.
Ýmis færibönd og fiskflokkunar-
vélar frá mörgum íslenskum fyrir-
Á FIJNDI í Verkalýðsfélaginu Baldri
var kjarasamningur milli Alþýðu-
sambands Vcstfjarða og Vinnuveit-
endasambands Vestfjarða, sem er
samhljóða samningi ASÍ og VSÍ,
samþykktur með 41 atkvæði gegn 12
en 7 skiluðu auðu.
Á þeim fundi var eftirfarandi
tillaga samþykkt samhljóða:
„Almennur fundur í Verkalýðs-
félaginu Baldri telur það hrein
svik við láglaunafólk ef ríkis-
stjórnin hyggst fjármagna kostn-
aðinn á félagsmálaþætti nýrra
tækjum. Örugg hleðslutæki og
spennugjafa frá Rafeindaiðjunni.
Þá eru vísindamenn Háskóla ís-
lands að vinna að ýmsum verkefn-
um sem geta verið áhugaverð fyrir
íslenskan sjávarútveg í náinni
framtíð.
Nefna má nokkur þróunarverk-
efni við Háskólann:
Lokið er fyrsta áfanga við að
taka fram sérstakt gæðaeftirlits-
kerfi fyrir fiskvinnslustöðvar, sem
á að tryggja að íslenskur fiskur
verði ávallt í réttum gæðaflokki.
ítarlegt tölvu-reiknilíkan af
fiskistofnum og íslenskum fisk-
veiðum er núna næstum tilbúið.
Markmið þessa tölvu-reiknitækis
er að veita upplýsingar um áhrif
þess að breyta fiskveiðistefnu.
Með þessu reiknitæki á að vera
unnt að spá nokkur ár fram í tím-
ann um þorskafla og afkomu
þorskveiðiflotans að gefnum for-
sendum um stærð, samsetningu og
gerð fiskiskipaflotans.
Verið er að vinna að þróun á
sjálfvirku staðsetningar- og til-
kynningaskyldukerfi fyrir fiski-
skip, sem á að auka öryggi sjó-
manna á hafi úti.
Þá er verið að vinna að athugun
á hönnun tækja til að greina
hringorma í fiskflökum, en því
miður skortir fjármagn til þessara
rannsókna. Talið er, að vinna við
að tína hringorm úr fiskflökum
hafi kostað íslenskar fiskvinnslu-
stöðvar um 300 millj. á síðastliðnu
ári. Á sama tíma var varið um
0,1% af þessari upphæð til rann-
sókna á möguleikum á hönnun
tækja til að greina hringorm 1
fiskflökum, og óvíst er um áfram-
haldandi fjárveitingu til þessa
rannsóknaverkefnis.
Verið er að vinna við Háskólann
að þróun staðsetningartækis, sem
fær merki frá nokkrum gervi-
tunglum og getur út frá þeim
reiknað út staðsetningu skipa með
nokkurra metra nákvæmni. Áætl-
að er að slík staðsetningartæki
komi í flest skip eftir nokkur ár.
I grein þessari hafa verið nefnd-
ar nokkrar íslenskar tækninýj-
ungar fyrir sjávarútveg. Áhuga-
vert er að vita til þess, að þegar
farið er að ganga á fiskistofnana
við landið, sem mun leiða af sér
minnkun útflutningstekna okkar
af sölu fiskafurða, þá eru að koma
fram áhugaverð íslensk hjálpar-
tæki til að nýta betur aflann, auka
afköst og öryggi starfsmanna í
sjávarútvegi og bæta rekstur
fyrirtækjanna. Þá hafa þessi tæki
vakið athygli erlendra aðila, þann-
ig að góðir möguleikar eru núna á
útflutningi á þessum tækjabúnaði
og íslenskri þekkingu á fiskveiðum
og fiskvinnslu.
Jón H. Magnússon er rerkfræðing-
ur og rádgjafí á sridi röruþróunar
og markadsmála.
kjarasamninga með því að draga
úr niðurgreiðslum á landbúnað-
arvörum. Með þvi væru þau grið
rofin, sem tókust með þeim hóg-
væru kjarasamningum sem fólk
hefur almennt fallist á.
Hækkun á lífsnauðsynjum, eins
og landbúnaðarvörum kemur með
tangmestum þunga niður á lág-
launafólki með erfiða framfærslu
og bitnar því verst á því fólki sem
kjarasamningarnir áttu að
vernda."
Verkalýðsfélagið Baldur á ísafirði:
Kostnaður við félags-
málaaðgerðir verði ekki
tekinn af niðurgreiðslum