Morgunblaðið - 14.03.1984, Síða 14

Morgunblaðið - 14.03.1984, Síða 14
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1984 „Ef listamenn verða kaldhæðnir, þá hverfiir listin“ Á síðasta hausti kom út í Fær- eyjum fjórða skáldsagan í þeirri þroskasögu listamanns, sem Jens Pauli Heinesen hefur tekið sér fyrir hendur að rita og spannar yfir tímabilið frá því fyrir síðustu heimsstyrjöld og fram á okkar daga. Höfundurinn nefndir þennan flokk skáldsagna „Á ferð inn í eina óendaliga sögu“. Nú þegar er þessi skáldsaga orðin hin viðamesta, sem skrifuð hefur verið á færeyska tungu, en eins og nafnið gefur til kynna er ekki fyrirhugaður neinn endir á henni, þetta er saga eilífrar leitar og eilífrar listrænnar sköp- unar. í viðtali við Morgunblaðið segir Jens Pauli, að hann muni halda áfram að skrifa þessa sögu meðan honum endist líf og heilsa, en síðan geti einhver annar tekið upp þráðinn og haldið áfram. Síðasta skáldsagan, „Markleys breiðist nú fyri tær fold“, tekur nafn sitt af vísuorði í kvæði Christian Matras „Reikar tú úti um kavalond". Þetta sérkennilega og fallega ljóð eftir mesta núlif- andi ljóðskáld Færeyinga hefur yfir sér einfaldleik og þokka þjóð- vísunnar. Síðasta erindið hljóðar svo: „Markleys breiðist nú fyri tær fold við havsins flötum so víða — faðir tín festir ein heim í bond at liva til evstu tíða.“ í þeim skáldsögum, sem út eru komnar í þessum sagnaflokki, þessum fyrstu skrefum höfundar- ins út í óendanleikann, ef svo mætti að orði kveða, er fjallað um undraveröld bernskunnar og mið- punktur sögunnar er sífrjór, næm- ur og skapandi barnshugurinn. Lýsing eða úttekt á samfélagsleg- um veruleika er látin víkja fyrir ljóðrænum náttúrumyndum og stemmningum. Einn færeysku gagnrýnandanna gat ekki orða bundist eftir útkomu síðustu skáldsögunnar og lýsti því yfir, að ef Jens Pauli héldi uppteknum hætti, gætu menn séð fram á bókmenntalegt sjálfsmorð hans. Enginn færeyskur rithöfundur hefur þó skrifað jafn óvægið og ástríðufullt um færeyskan veru- leika samtímans og einmitt Jens Pauli. Fyrir rúmum áratug gaf hann út mikla skáldsögu, sem markar tímamót í færeyskum bókmenntum, bæði hvað varðar innihald og efnismeðferð. Þessi bók, „Frænir eitur ormurinn", var ádeila í stórum stíl, svört messa, og segir frá miklum og voveifleg- um tíðindum: bókabrennu í miðri Þórshöfn, morði og múgæsingum, pólitískum og trúarlegum hneykslismálum. í skemmtilegri smásögu, sem Jens Pauli skrifaði fyrir mörgum árum, „Profeturin og hanin ið gól,“ koma andstæð- urnar í skáldskap hans einkar vel fram, þ.e.a.s. hugsjónaeldurinn og náttúrurómantíkin annarsvegar og drungi og nöturleiki hversdags- ins hinsvegar. „Spámaðurinn" sit- ur í köldu kamesi undir súð, síð- hærður og vannærður, með tann- pínu í jaxli og skrifar bréf til heimabyggðar sinnar, þrungin brennandi vandlætingu. Sveitung- arnir eru smáir í orðum og smáir í gerðum, fordómafullir og fáfróðir. Þeir nota Guð ýmist eins og tertu til að fá sér bita af á sunnudögum eða eins og byssuhólk til að skjóta með hver á annan. „Spámaðurinn" er reiður, sár og undrandi, en af broddinum sem situr í vitund hans kviknar lifandi skáldskapur, við- kvæmur, spurull og barnslegur í óskáldlegu og samúðarlausu um- hverfi. Er þessi broddur horfinn? Skáldskapurinn verður að spíra „Ég er hættur að skrifa um samfélagsmál í bili, sagði Jens Pauli, þegar við hittum hann að máli á heimili hans í Stoffalág nýlega. Ég skrifaði mig hreinan af þeim í „Frænarormi" og öðrum bókum, t.d. „Rekamanninum", sem út kom 1977 og fjallaði um mann- gerð, sem var mjög áberandi í Færeyjum hér áður fyrr. Þessi manngerð er nú horfinn, en hugs- unarhátturinn lifir á vissan hátt ennþá. Nú spyrðu mig að því hvort broddurinn sé horfinn. Svo er alls ekki. Ég hef skrifað um æskuárin í þessum bókum og bernskan er vernduð frá hversdagsleikanum og sviftingum í þjóðfélaginu. Barnið lifir í tímalausri veröld, veröld Jens Pauli Heinesen hins eilífa ljóðs. Hér áður fyrr skrifaði ég mikið um samfélags- mál og einhverntíma seinna kem ég áftur að þeim efnum. Um „Frænarorm" er það að segja, að hann fékk, litlar undirtektir hér í Færeyjuhi. Yfirleitt las fólk ekki bókina. Á Islandi fékk hún hins- vegar mjög lofsamlega dóma. ís- lenski gagnrýnandinn sagði, að það ætti að lesa hana mörgum sinnum á hverjum heimili í Fær- eyjum. En ég hef orðið þess var að ungu fólki fellur hún vel í geð. Það kemur oft til mín að fyrra bragði og ræðir um hana. Það er eins og þessi bók hafi ekki byrjað að verka fyrr en mörgum árum eftir að hún var gefin út. Þannig er það oft með skáldskap. Hann er háður lögmáli tregðunnar, verður að fá að spíra í hjörtunum." — Hvað um þá kenningu, að það jafngildi bókmenntalegri kviðristu fyrir þig að halda áfram í sama dúr? „Ég skrifaði þessar fjórar skáldsögur um tímann, sem ég upplifði frá því ég var ungur drengur og styrjöld geisaði í Evr- ópu. Ég hef lýst því hvernig það orkaði á hugann alltsaman. Ég fjalla ekki um þjóðfélagsmál. Það Edvard T. Jónsson ræðir við Jens Pauli Heinesen er kannske það sem þessi gagn- rýnandi er mér gramur fyrir. Raunar vísa ég til samfélagsmála óbeint. En kjarni málsins er sá að ég fæst við skáldskap og það er ekki skáldskaparins að fjalla um þjóðfélagsmál beinlínis. Ef ég ætl- aði mér að gea það myndi ég setj- ast niður og reyna að skrifa dokt- orsritgerð. En næstu bækur verða öðruvísi. Ég get ekki haldið áfram lengur í sama dúr. Þegar sfðasta bókin endar er ég 14 ára gamall. Um skólaárin ætla ég ekki að skrifa, það hef ég gert áður. En þegar kemur að þeim tíma, þegar unglingurinn byrjar að velta fyrir sér vandamálum samtímans, þá breytast bækurnar sjálfkrafa. Sannleikurinn verður sagður, en þetta verða samt engar uppljóstr- unar- eða játningabókmenntir, eins og nú til siðs að skrifa viða um lönd. Hér í Færeyjum skrifa rithöfundar fremur lítið um vandamál líðandi stundar, ólfkt því sem gerist á hinum Norður- löndunum. En ég held samt ekki að það sé þetta sem fæli almenn- ing frá því að lesa færeyskar bókmenntir. Fyrir því eru aðrar ástæður. Raunar er mikið lesið í Færeyjum, en lestraráhugi fólks beinist einkum að dönsku viku- blöðunum. Það er mikið gefið út af færeyskum bókum, góðum skáld- skap, en salan hefur ekki aukist að sama skapi. Lesendur fagurbók- mennta eru tiltölulega fáir. Og svo er helmingurinn af öllum Færey- ingum frelsaður, sumir trúarlega, aðrir pólitískt. Og frelsaðir menn lesa bara það sem samrýmist skoðurtum þeirra. Ef þeim er í nöp við mig eða ósammála mér, þá lesa þeir ekki bækurnar mínar." Trú og pólitík — Trúarlíf hér á eyjunum er fyrirferðamikill þáttur í bókum færeyskra rithöfunda. Hver er skýringin á þessu? „Þetta er svo ríkur þáttur í fær- Fyrirliggjandi í birgðastöð STAL Stál 37.2 DIN 17100 Fjölbreyttar stæröir og þykktir sívalt ferkantað flatt SINDRA STALHF Borgartúni 31 sími 27222 Skáld ofsans — eftir Kristin Jón Guðmundsson Jæja, þá hef ég loksins misst trúna. Trúna á að við dr. Gunn- laugur Þórðarson getum ræðst við eins og tveir ólíkir en skilningsrík- ir bræður. Hinsvegar eru vfða föð- urlegir ómar í skrifum hans, þó mér lfði undir þeim eins og ótínd- um „méchant garnement", eins og það heitir á heimsmálinu. Hygg ég að fáir feður uppskæru mikla son- arelsku fyrir slíkt tal. Og í Morgunblaðinu þann 22. febrúar upplýsir doktorinn mig um það að ég ætti frekar að sitja heima og rita skáldsögur heldur en að rembast við að slá karl eins og hann út af laginu frammi fyrir alþjóð. Hafi hann viðurkennda sérfræðinga á bak við sig, meira að segja í fjarlægum heimsálfum, sem reki allt er út úr mér komi jafnharðan öfugt ofan í mig. Á hann náttúrulega þar helst við hinn stórmerka alkóhólkönnuð og prófessor mr. Morris E. Chafetz. Opinberar hann ljósrit af æviskrá snillingsins með slíkum helgileik að svo virðist helst sem um trún- aðarskjal hafi verið að ræða. Er mér þar sýnt fram á að best sé að hafa sig hægan gagnvart slikum manni, sem meðal annars hafi verið sérlegur áfengis- og ffkni- efnaráðgjafi Bandaríkjastjórnar. Ja, mér þykir týra ef ég er orð- inn illa séður í Hvíta húsinu fyrir að mótmæla meistara Gunnlaugi. En það þykir mér bara allra verst að þrátt fyrir þessar harðsnúnu tilfæringar doktorsins sýnir hann ekkert snið á að fara að svara áköfum fyrirspurnum mínum, sem dunið hafa á honum siðan í des- ember; Af hverju er áfengi aflvaki vestrænnar menningar og lista???

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.