Morgunblaðið - 29.04.1984, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 29.04.1984, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. APRÍL 1984 21 Á felgunni — bflsnælda með 19 „ferðalögum“ Á FELGUNNI hcitir bflsnælda sem út hcfur verið gefin og inniheldur hún 19 „ferðalög“. Lögin eru af hljómplötunum „Áfram" með Hálft í hvoru, „Bergmáli og Afturhvarfi" Berg- þóru Árnadóttur og „Það vex eitt blórn" Guðmundar Árnasonar. Eitt splunkunýtt lag af óútkom- inni breiðskífu Bergþóru er einnig á snældunni, en það heitir „Hvar er friður". Af öðrum lögum má nefna Borg- arljós, Heimurinn og ég, Vinátta okkar, Sýnir, Einu sinni þú, Heit- ur snjór, Sitthvað er bogið o.fl. Útgefandi er ÞOR, dreifingu annast Fálkinn hf. Varað við afleið- ingum sparnað- arráðstafana í rekstri spítalanna MORGUNBLAÐINIJ hefur borizt eftirfarandi frá formönnum lækna- ráða Borgarspítala, Landakotsspít- ala og Landspítala: „Sameiginlegur fundur stjórna læknaráða Borgarspítala, Landa- kotsspítala og Landspítala, hald- inn 18. apríl 1984, varar við afleið- ingum fyrirhugaðra sparnaðar- ráðstafana í rekstri þessara spít- ala. Á undanförnum árum hefur rekstrarfjárskortur háð allri starfsemi spítalanna í Reykjavík. Sá skortur hefur haft í för með sér mikið aðhald og sparnað á öllum sviðum. Frekari niðurskurður mun því óhjákvæmilega leiða til samdráttar í allri þjónustu við sjúklinga. Þá lýsa stjórnir læknaráðanna áhyggjum sínum yfir þeim víð- tæku lokunum á sjúkradeildum, sem fyrirhugaðar eru í sumar. Lokanirnar svara til þess, að á 12 vikna tímabili verða yfir 100 sjúkrarúm tekin úr notkun á lyfja-, handlæknis- og barnadeild- um þessara þriggja spítala. Því er ljóst að vart verður hægt að sinna nema bráðaþjónustu á þessu tíma- bili. Má því búast við að lítið sem ekkert verði hægt að taka inn af biðlistum spítalanna i sumar." Misritun { BLAÐINU í gær í nafnalista fermingarbarna í Fella- og Hóla- sókn i dag, sunnudaginn 29. apríl, kl. 11 í Bústaðakirkju, hefur föð- urnafn Gunnars Veigars, Unufelli 2, misritast. Hann er Ómarsson. Beðist er afsökunar. Myndavíxl Myndir víxluðust á blaðsðiðu 26 í Morgunblaðinu í gær. Með frétt um sýningu Þorvaldar Haldorsen birtist mynd frá sýningu Myndlista- og handíðaskólans. Ljósmynd af einu málvcrki Þorvaldar fylgdi síðan frétt af sýningu nemenda skólans. Skipholt lúxusíbúðir Vorum aö fá í einkasölu 2 íbúöir sem eru hæö og ris ca. 150 fm. Einstök staösetning — frábært útsýni. Skilast tilbúnar undir tréverk. Verö 2 millj. 925 þús. Verslunar og skrifstofuhúsnæöi Á sama staö: jaröhæö sem er ca. 250 fm, býöur upp á mikla möguleika fyrir félagasamtök, skrifstofur og fleira. Skilast tilb. undir tréverk. Teikn. á skrifstof- unni. Verö 5 millj. 300 þús. FOSSVOGUR, einbýlishús á einni hæö um 220 fm auk bílskurs, geymslu o.fl. Sklptist m.a. i 4 sv.herb., húsb.herb., 3 stofur, sjón- varpsherb, o.fl. Arinn i stofu. Sérstaklega vandaö hús. Lóö og umhverfi í sérflokki. Uppl. á skrifstofu okkar. . * GILJALAND, palla-raöhús, ca. 218 fm. Skiptist í 4 sv.herb., húsb. herb., stórar stofur, sjónvarpsherb., eldhús, borðstofu, bað o.fl. Góðar innréttingar. Mjög vel staösett. Bilskúr. Verö 4,3 millj. GRENIGRUND, sérhæö í fjórbýli um 130 fm aö stærð. Sk. í 3—4 sv.herb., stofur, eldhús, sér þv.hús o.fl. Bilskúrsr. Verð 2,6 millj. VESTURBÆR, einbýli á 2 hæöum auk kjallara um 400 fm að stærö. Glæsilegt hús á besta staö i vesturbænum. Sk. í stofur, húsb.herb., 5 sv.herb. o.fl. auk sér 2ja herb. íbúðar í kj. Uppl. á skrifst. okkar. Opiö 1—4 28444 HÚSEIGNIR ^■&SKIP VEITUSUNOI1 Daniel Arnaton, Wgg. tut. Órnóttur Ornólfaaon. aötuat). HEIMILISTÖLVAN Forritunareiginleikar ★ z 80 cpu örtölva. ★ Allt aö 128 stafir í línu meö fjölþættum skipunum. ★ Sjálfvirkt game/basic val þegar kveikt er á tölvunni. ★ Hágæöa grafík meö mörgum litum. ★ Beinstýrö tónlist og samlíkingar með basic. ★ Öflugar línuritsskipanir gefa 256 x 192 punkta eða 64 x 48 punkta. Skjámyndareiginleikar ★ Þrjár skermstillingar: Textastilling: 32 x 24 stafir. Lágupplausnargrafík: 64 x 48 punktar Háupplausnargrafík: 256 x 192 punktar. ★ Storir og litlir stafir. ★ Útlit og litur 256 tákna er forritanlegt. ★ Forritanleg 32 litasett fyrir skjá. ★ 8 x 8 punktar fyrir , hvern starf. ★ 34 mynd- plön fyrir þrívíddareftirlíkingu. Litur ★ 16 litir fyrir stafi. ★ 16 jaöarlitir. ★ 16 skermlitir. Hljóð ★ Þriggja tóna hljóðgjafi fyrir tónlist og hljóðáhrif. ★ Hljóö kemur beint úr sjónvarpinu og því mjög öflugt. ★ Hvert hljóö gefur 5 áttundir. ★ „White noise“-hljóö fyrir leiki. Minni ★ RAM (random access memory) innbyggt 18 K bytes, stækkanlegt upp í 64K. ★ ROM (read only memory) 24 K bytes. o / / f Tengingar ★ Joysticks fyrir leiki. ★ Tengir fyrir minnisstækkun, prentara, diskdrif, síma modem, rs 232c tengi o.s.frv. ★ Segulbands I/0 tengi fyrir 2400 bandkvaröa. ★ Tenging fyrir leiki. Sérstakur aukabúnaður ★ Bit 90 tölvan getur notaö „coleco vision tm“ leiki beint og atarileiki meö millistykki. Stærð ★ Hæö: 50 mm, breidd: 330 mm, dýpt: 214 mm. Basicskipanir Lyklaborð Lyklaborð hefur 66 lykla meö grafík- og basicskip- unum. Forritanlegir lyklar eru tíu. 69 grafísk tákn. Stjórntakkar fyrir bendil og línur. Sjálfvirk endurtekning á öllum lyklum, INSERT, DELETE, CURSOR. ★ AUTO. ABS. ASC. ATN. CALL. CHR$. CLEAR. CLOSE. CONT. COPY. COS. DATA. DEF. DELET. DIM. EDIT. ELSE. END. EXP. FN. FOR. FRE. GOSUB. GOTO. HEX$. HOME. IF. IN INKEY$. IN- PUT. INT. JOYST. LEFT$. LEN LET. LIST. LN. LOAD. LOG. MID$. MUSIC. NEXT. NEW. ON. ONERR-GOTO. OPEN. OPTION-BASE. OUT. PEEK. PLOT. PLAY. POKE. POS. PRINT. READ. RAN. DOMIZE. REC. REM. RENUM. RESTORE. RESUME. RETURN. RIGHT$. RND. RUN. SAVE. SGN. SIN. SPC. SQR. STEP. STOP. STR$. TAB. TAN. THEN. TEMPO. TRACE. TO UNTRACE. VAZL. WAIT. BYE. EOR. INSCR. Skipholti 19, sími 29800.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.