Morgunblaðið - 16.06.1984, Side 1
48 SÍÐUR OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
135. tbl. 71. árg.
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Aukakosningar f Portsmouth:
Áfall fyrir
íhaldsflokk
1’orLsmouth, Knglandi, 15. júní. AF.
KOSNINGABANDALAG írjálslyndra
og jafnaAarmanna vann óvæntan sifrur
í aukakosningum í Portsmouth í gær
en kjördæmið hefur verið gróið íhalds-
kjördæmi. Er litið á úrslitin sem alvar-
legt áfall fyrir ríkisstjórn Margaret
Thatcher.
„Úrslitin eru sönnun þess, að
kosningabandalagið er helsta stjórn-
arandstöðuaflið og það spáir ekki
góðu fyrir ríkisstjórnina og Thatch-
er,“ sagði David Steel, leiðtogi
Frjálslynda flokksins, en frambjóð-
andi kosningabandalagsins, Michael
Hancock, ómerkti allar kosninga-
spár með því að bera sigurorð af
Ihaldsflokknum. Til kosninganna
var boðað vegna láts íhaldsmannsins
Ralph Pink, sem hafði verið þing-
maður kjördæmisins í 18 ár.
í síðustu kosningum sigraði
fhaldsflokkurinn með 12.335 at-
kvæða meirihluta en nú var meiri-
hluti kosningabandalagsins 1.341 at-
kvæði. Þessi ósigur íhaldsflokksins
skiptir engu máli á þingi þar sem
flokkurinn hefur 143 sæta meiri-
hluta en er samt verulegt áfall fyrir
Thatcher og ríkisstjórnina. Á það
einnig við um kosningarnar til Evr-
ópuþingsins þar sem Verkamanna-
flokkurinn hefur aukið mjög fylgi
sitt.
Leitað að liðhlaupum
AP.
Páfi kannar varðliðið
Jóhannes Páll páfi II er nú á ferð ( Sviss og var í dag staddur í
Einsiedeln, þar sem hann ræddi við presta kaþólsku kirkjunnar í
landinu. Báru þeir upp við hann vandkvæði sín og áhyggjuefni, en af
þeim má nefna einlífi klerka, þátttöku kvenna í guðsþjónustuhaldi og
hvernig kirkjan eigi að koma fram við kaþólikka, sem hafa skilið.
Heimsókn páfa lýkur á sunnudag. Þessi mynd var tekin þegar páfi kom
á mikinn leikvang í Lugano þar sem hann hélt messu. Hér kannar hann
heiðursvörð svissneskra varðliða.
Tveir indverskir hermenn, annar með eldvörpu á öxl, gæta þjóðvegar skammt frá Nýju Delhi og leita liðhlaupa
úr hernum. Er þar um að ræða hermenn af trúflokki sikha, sem hafa viljað mótmæla aðfórinni að trúbræðrum
sínum í Punjab.
íranir vilja hætta
árásum á olíuskip
__ d.l..;. i r. au
Manama, Bahrain, 15. júní. AP.
ÍRAKAR vöruðu í dag írani við og
kváðust mundu hrinda af höndum
sér sérhverri sókn þeirra en íranir
voru á hinn bóginn fremur hógværir
í yfirlýsingum sínum og buðust til að
hætta árásum á olíuskip á Persaflóa
ef írakar gerðu slíkt hið sama. Ir-
anskri farþegaflugvél í innanlands-
flugi var rænt í dag og var hún lent í
Luxor í Egyptalandi þegar síðast
fréttist.
Yfirmaður íraska flughersins
sagði á blaðamannafundi í Bagdað
í dag, að hafnbannið á Kharg-
eyju, helstu olíuútflutningshöfn
Irana, væri aðeins upphafið að
enn víðtækari aðgerðum ef stjórn-
in í Teheran „héldi áfram hernað-
inum gegn Irak og hagsmunum
Arabaríkjanna við Persaflóa".
Sagði hann íraska flugherinn full-
færan um að verja allt svæðið
„gegn ævintýramennsku og árás-
um Khomeinis".
Hashemi Rafsanjani, talsmaður
íranska þingsins, sagði við messu í
Teheran í dag, að íransstjórn
myndi fagna því ef framkvæmda-
stjóri SÞ, Perez de Cuellar, færi
fram á, að ekki yrði ráðist á olíu-
skip á Persaflóa. Sagði hann, að
Kosningarnar til Evrópuþingsins:
íhaldsflokkur og andstæðingar
EBE sigurvegarar í Danmörku
Breski Verkamannaflokkurinn jók verulega fylgi sitt
Kaupmannahöfn «g Brus.seI. Krá lb Björnbak, frétlaritara Mbl. og AF.
KOSNINGAR til Evrópuþingsins fóru fram í mörgum aðildarlöndum Efna-
hagsbandalagsins í gær, fimmtudag, en í sumum verður kosið á sunnudag.
Engar tölur verða því birtar fyrr en eftir að kjörstöðum verður lokað þann
daginn. Ljóst er þó, að litlar breytingar hafa orðið í kosningunum í gær
nema í Bretlandi þar sem Verkamannaflokkurinn jók mjög fylgi sitt á
kostnað íhaldsflokksins. ( Danmörku þykir víst, að sigurvegarar kosn-
inganna þar hafi verið íhaldsflokkurinn og andstæðingar aðildarinnar að
EBE.
Skoðanakannanir í Danmörku
gefa til kynna, að íhaldsflokkur
Poul Schluters, forsætisráðherra,
og andstæðingar aðildarinnar að
EBE, Sósialski þjóðarflokkurinn
og Þjóðarhreyfingin gegn EBE,
hafi unnið á í kosningunum en að
mestur hafi orðið ósigur Fram-
faraflokksins. Mogens Glistrup,
fyrrum leiðtogi hans, var í fram-
boði og hafði gert sér vonir um að
verða kjörinn en af því mun ekk-
ert hafa orðið. Sagði Glistrup í
dag, að það væri ekki undarlegt
þótt kjósendur vildu ekki styðja
flokk, sem væri sjálfum sér sund-
urþykkur.
Dönskum jafnaðarmönnum
vegnaði ekki jafn vel og þeir höfðu
sjálfir vonað og fá líklega sama
fulltrúafjölda og áður og kannski
þann fulltrúa, sem losnar þegar
Grænlendingar ganga úr EBE um
næstu áramót. Samkvæmt skoð-
anakönnunum er ekki lengur
meirihluti meðal Dana fyrir að-
ildinni að EBE en á hinn bóginn
er sá hópur mjög stór, sem ekki
veit hvað hann vill. Svo virðist
sem hann hafi stækkað og þykir
það nokkuð hlálegt því að á það
var lögð mikil áhersla fyrir kosn-
ingarnar, að fólk gerði upp hug
sinn til EBE.
I gær var einnig kosið í Bret-
landi, Hollandi og á írlandi og
munu litlar breytingar hafa orðið
í tveimur síðastnefndu löndunum.
í Bretlandi aftur á móti jók
Verkamannaflokkurinn mjög
fylgi sitt en íhaldsflokkurinn tap-
aði að sama skapi. Er líklegt talið,
að þingmannatala Verkamanna-
flokksins hafi aukist um 17, úr 16
í 33, en íhaldsþingmönnunum
fækkað um 17, úr 60 í 43.
Kosningaþátttaka var víðast
hvar minni en árið 1979 þegar
fyrst var kosið til Evrópuþingsins
nema í Danmörku þar sem hún
var meiri. í Bretlandi var hún
ekki nema um 30% og hvergi
minni. Breskur þingmaður sagði í
dag, að Bretar mættu skammast
sín fyrir áhugaleysið.
íranir myndu ekki hleypa af einu
skoti á flóanum ef írakar hættu að
ráðast á olíuskip. Þessar yfirlýs-
ingar eru raktar til þeirra
áhyggna, sem íranir hafa af minni
olíuútflutningi, en ekki til áhuga
þeirra á raunverulegum friðar-
samningum. Talið er víst, að þeir
séu enn að undirbúa stórárás gegn
írökum.
transkri farþegaflugvél með 44
farþega innanborðs var í dag rænt
og snúið fyrst til Manama í Bahr-
ain en síðan til Luxor i Egypta-
landi. Eru flugræningjarnir átta
talsins, fimm menn úr hernum en
þrír óbreyttir borgarar. Munu þeir
nú þegar hafa beðið um hæli í Eg-
yptalandi sem pólitískir flótta-
menn en ýmislegt bendir til, að
egypsk stjórnvöld vilji að flugvél-
in fari sem fyrst á brott og flug-
ræningjarnir með henni.
Alsír og Marokkó:
Barist við
landamæri
ALsírborg, 15. júní. AF.
TIL bardaga kom með alsirskum og
marokkönskum hermönnum með þeim
afleiðingum, að tveir marokkanskir
hermenn féllu að því er alsírska varn-
armálaráðuneytið skýrði frá í dag.
f tilkynningu alsírska varnar-
málaráðuneytisins sagði, að alsirsk-
ur herflokkur hefði komið að 60
marokkönskum hermönnum á als-
írsku yfirráðasvæði og þá slegið i
brýnu með þeim þar sem tveir
Marokkómannanna hefðu fallið,
tveir særst og 31 verið tekinn til
fanga. Hinir hefðu flúið yfir til Mar-
okkó.