Morgunblaðið - 16.06.1984, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.06.1984, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1984 7 Flexello trilluhjól Með eða án snúningsplötu Nylon hjól 50—150 mm. Gúmmíhjól 40—75 mm. Ávallt fyrirliggjandi G. J. FOSSBERG VÉLAVERZLUN HF. Skúlagötu 63 - Reykjavík Stmi 18560 Til sölu Rover 73 Coupé Einstakur og vel meö farinn Rover 3,5 L Coupé til sölu. Ekinn aöeins 19 þús. mílur. Verö 385 þús. kr. Upplýsingar í síma 91-19197, laugardag milli 13.00 og 18.00. Kvöldsími 91-17598. KOM OG SIGRAÐI í fyrstu keppninni er þessi frábæri kapp- siglari tók þátt í þá ekki bara sigraöi hann, hann hreinlega stakk andstæöinganna af. Getum nú aftur boöiö fleiri báta af þessari gerö meö stuttum fyrirvara. Verö frá 298.000. Benco Bolholti 4, Reykjavik sími 91-21945/84077. Stjórnmál í sumartíð Á það er bent í Staksteinum í dag, að það eru einkum framsóknarmenn sem halda því á lofti að sjálfstæöismenn vilji starfa með öðrum að stjórn landsins en Framsóknar- flokknum og séu teknir að undirbúa það. Þá er einnig vakið máls á næsta óljósum ummælum forráðamanna Samhygðar um að þeir ætli að stofna stjórnmálaflokk. Vill framsókn breytingu? NT, málgagn Framsókn- arflokksins, keppist við að skýra frá deilum milli sjálfstaeðismanna og fram- sóknarmanna og beinir nú athygli lesenda sinna að því, hvort verið sé að mynda nýja stjórn á bakvið framsókn. Þannig hófst baksíðufrétt NT í gær: „Nú á vordögum hefur öðru hvoru lyft sér á flug sá orðrómur að viðræður færu fram um nýja stjórn milli nokkurra forystu- manna Sjálfstæðisflokks- ins og forystumanna Al- þýðuflokks og Alþýðu- handalags og e.tv. fleiri flokka. Vitað er að all- margir forystumenn Sjálfstæðisflokksins eru óánægðir með núverandi stjórn einkum þeir yngri sem í heild fengu enga ráðherrastóla. Telja margir í þeim hópi lífsnauðsyn fyrir Þorstein Pálsson aö stjórnarmynstri verði breytt fari svo að enginn af ráðherrum flokksins standi upp fyrir honum í sumar eða haust Þá er mönnum í fersku minni skrif varaþingmannsins Guðmundar H. Garðars- sonar er hann nánast krafðist þess að stjórnar- samstarflnu yröi slitiö og undir þau orð hans tóku sumir af yngri mönnum flokksins í viðtali við NT.“ Eins og sjá má af þess- um orðum er frétt NT í raun ekki annað en órökstuddar vangaveltur sem skýrast betur þegar lengra er lesið: „Þetta er algjörlega úr lausu lofti gripið," segir Friðrik Soph- usson, varaformaöur Sjálfstæðisflokksins, í NT-fréttinni. „Það hefur enginn þreifað á mér alla- vegana," segir Guðrún Agnarsdóttir, þingmaður Kvennalistans, við NT. Og eftir Jóni Baldvini Hanni- balssyni, þingmanni Al- þýðuflokksins, hefur NT þegar hann hefur verið spurður hvort hann hefði tekið þátt í einhverjum stjórnarmyndunarviðræð- um: „Nei, því miður.“ NT náði hvorki í „höfuðpaura" Alþýðubandalagsins eins og blaðið oröaði það né for- ystumenn Bandalags jafn- aðarmanna. Af þessari upptalningu í frétt NT kemur það eitt í Ijós, að það hljóta að vera einhverjir í Framsóknar- flokknum sem telja nauð- synlegt að breyta stjórn- armeirihluta á þingi. Þar ráöa vafalaust þeir menn ferðinni sem vilja að Fram- sóknarflokkurinn sé vinstri flokkur jafnt í innanlands- sem utanríkismálum og eru aldrei í rónni á meðan framsóknarmenn sitja í stjórn með sjálfstæðis- mönnum. Þessir aðilar f Framsóknarflokknum hafa jafnvel meiri ítök í NT en á Tímanum áður en skipt var um fot á málgagninu. Með hliðsjón af vinnubrögðum þessara framsóknarmanna væri ekki ólíklegt að innan skamms færu að birtast hvatningarorð í NT um nauðsyn þess að Fram- sóknarflokkurinn sneri sér til vinstri úr því að íhaldið væri komið á biðilsbuxurn- ar við komma og krata. Samhygö í stjórnmálin Annars minna þessi skrif NT um stjórnar- samstarflð helst á það að blöð taka sig stundum til og spinna þræði af þessu tagi yfir sumarvikumar þegar næsta lítið markvert gerist að minnsta kosti á stjórnmálasviðinu. En er allt svo tíðindalaust á þeim vígstöðum að vangaveltu- fréttir byggðar á orðrómi séu nauðsynlegar til aö fylla síður blaöanna? í Þjóðviljanum á flmmtudag birtist viðtal við Sigrúnu l>orsteinsdóttur, sem bauð sig fram til vara- formennsku í Sjálfstæðis- flokknum á landsfundin- um í nóvember 1983. Hún hlaut sárafá atkvæði en hefur fram til þessa starfað innan flokksins meðal ann- ars sem varabæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum og for- maöur atvinnumálanefnd- ar bæjarins, að sögn Þjóð- viljans. En tilefni Þjóðvilja- viðtalsins við Sigrúnu er að nú hefur hún sagt sig úr Sjáltsæðisflokknum. „Já. þetta uppgjör mitt við flokkskerfið í landinu stendur að sjálfsögðu í sambandi við starf mitt í Samhygð," segir Sigrún Þorsteinsdóttir og vísar þar með til sarataka sem hafa látið á sér bera í þjóðlífinu undanfarin misseri meðal annars með því að safna undirskriftum „gegn at- vinnuleysi" og festa boð- skap sinn á Ijósastaura víösvegar um landiö I. maí síðastliðinn en sýnast nú hafa uppi ráðagerðir um að stofna stjórnmálaflokk. „Markmið okkar er að breyta stefnu þjóðfélagsins og starfa í sama anda og við höfum gert innan Sam- hygðar ... Meginstefnan vrði andofbeldi, raunveru- leg samvinna, manngildi ofar auðgildi, frjálst val einstaklingsins og á móti allri einokun." Eftir að Sigrún Þor- steinsdóttir hefur lýst þess- um háleitu markmiöum spyr blaöamaður Þjóðvilj- ans: „Sumum flnnst nokk- uð mikil framsóknarlykt af Samhygð, ætlið þið að feta í það sporið?" Og Sigrún svarar: „Finnst fólki það? Við mig er sagt að þetta séu bara kommar í Sam- Hygð...“ I Morgunblaðinu á sunnudag sagði Júlíus Kr. Valdimarsson, formaður félagsmáldeildar Samhygð- ar, að samtökin væru ekki „pólitískt fyrirbrigði" en gaf jafnframt til kynna stofnun flokks sem „sið- ferðileg hreyfing" stæði á bak við. Og í nýjasta Helg- arpósti segir Pétur Guð- jónsson sem stofnaði Sam- hygð hér á landi 1979 eftir að hafa haldið námskeið á vegum Stjórnunarfélagsins til varnar streitu, að stjórn- málaflokkar á vegum Sam- hygðar starfi um allan heim og það sé „vel mögu- legt“ að slíkur flokkur verði stofnaður á íslandi. Ferðanestið í lofttæmdum umbúöum að þínu vali □ Grillaöir kjúklingar □ Smurt brauö □ Steiktar kótilettur □ Svartfuglsegg □ Soöin sviö □ Rófustappa □ Soöiö hangikjöt □ Kartöflumús □ Samlokur □ Haröfiskur og blandaö álegg á feröaveröi Vörumarkaðurinn lif. Eiðistorgi n, s.m, 29366. Ármúla 1 a, sími 686111.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.