Morgunblaðið - 16.06.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.06.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNl 1984 Listahátíð í Reykjavík Niall Toibin í Gamla Bíói kl. 17: „Ekki lakari en Dave Allen" „HANN er ekki lakari háöfugl en Dave Allen, sem við þekkjum öll úr sjónvarpinu," sagði Sigmar B. Hauksson, einn úr stjórn Listahá- tíðar, er írska leikarann Niall Toi- bin bar á góma á fundi frétta- manna með forvígismönnum Listahátíðar fyrir nokkru. Toibin bregður sér í dag kl. 17 í gervi landa síns Brendan Behans og skemmtir gestum Gamla Bíós með dagskrá, sem ber nafnið The Bells of Hell. Toibin á að baki um 30 ára feril sem atvinnuleikari. Auk þess að leika í írlandi hefur hann komið við sögu í Bretlandi, Bandaríkjunum, Kanada og V-Þýskalandi. Þá hefur Toibin leikið í nokkrum kvikmyndum, m.a. „Ryan’s Daughter", „Guns in the Heather", „Philadelphia Dagskrá Lista- hátíðar ídag og á morgun 15.00 ÁRBÆR: Hvaðan komum við? 16.00 LÆKJARTORG: Svart og sykorlaust. Uppákoma. 17.00 ÁRBÆR: Hvaðan komum við? 17.00 GAMLA BÍÓ: Tbe Beils of HelL írski leikarinn Niall Toibin bregður sér í gervi landa síns, Brendans Behan. 21.00 LAIJGARDALSHÖLL: The Modern Jazz Quartett yljar ungum sem gömlum jazzáhuga- mönnum um hjartaræturnar. 17. SUNNUDAGUR 15.00 ÁRBÆR. Hvaðan komum við? 17.00 ÁRBÆR: Hvaðan komum við? Síðasta sýn- ing Borgars Garðarssonar á verki Árna Björnssonar. 23.00 LA UGARDALSHÖLL: Allt í einu pakka. Þjóðhátíðar- dansleikur. Lokaball Listahátíð- ar '84. Stuðmenn sjá um fjörið ásamt Pax Vobis og Svörtu og sykurlausu. Here I Come“. Islendingar kann- ast e.t.v. við hann sem kaþólska prestinn úr breska mynda- flokknum Brideshead Revisited, sem sjónvarpið sýndi fyrir nokkrum mánuðum. Toibin tók upp á því fyrir rúmum áratug eða svo að sér- hæfa sig í eins manns sýningum, „one man show“ eins og það er nefnt á ensku. Árið 1971 setti hann á svið einleikinn „Confus- ion“ í Gaiety-leikhúsinu í Dyfl- inni og sló sú sýning öll aðsókn- armet í sambærilegum verkum. Ekki aðeins á Toibin aðsókn- armet fyrir einleik í Dyflinni, heldur einnig í Cork, Limerick, Belfast og Waterford. Dagskráin, sem Toibin flytur í Gamla Bíói í dag kl. 17, „The Bells of Hell“, var fyrst flutt fyrir réttum áratug og hlaut þá feikilega góðar viðtökur, enda hefur Toibin hvarvetna hlotið einróma lof fyrir leik sinn og ekki spillir það fyrir í viðfangs- efni hans í dag, að hann þykir nánast tvífari Berndan Behans. Tónleikar Modern Jazz Quartet í kvöld: Morjfunblaðió/ KEE. Fjórmenningarnir í Modern Jazz Quartet við komuna til landsins í gærmorg- Hvalreki á fiörur jazzunnenda Það var ekki nein ellimerki á þeim að sjá, fjórmenningunum í Modern Jazz Quartet, þegar þeir komu til landsins í gærmorgun og blaðamenn hittu þá að máli á Loft- leiðahótelinu. Létu þeir vel af því að vera komnir til íslands og sögðust ekki, a.m.k. ekki enn, vera á þeim buxunum að hætta. Sú ákvörðun hefði oft komið til tals en hefði ekki orðið að raunveruleika. Á meðan þeir hefðu alltaf jafn gaman af því að spila sæju þeir ekki ástæðu til að hætta. Viðburður Tónleikar Modern Jazz Quartet í Laugardalshöllinni í kvöld kl. 20.30 eru án efa einhver mesti hvalreki á fjörur hérlendra jazzunnenda um langa hríð. Hljómsveitin, sem er skipuð fjórum snillingum, hefur um árabil verið í fremstu röð jazzsveita. Hálft þriðja ár er nú lið- ið frá því fjórmenningarnir sögðust ætla að leggja tónleikahald alfarið á hilluna, en enn eru þeir að. Tón- leikum hefur þó fækkað mjög og eru aðeins fáir á ári hverju. Má því með sanni segja, að forráðamenn Listahátíðar hafi dottið í lukku- pottinn að þessu sinni. Margir jazzspekingar, sem þekkja vel til mála, halda því fram, að þetta kunni að verða síðasta árið sem Modern Jazz Quartet kemur saman til tónleikahalds. Valdi bassann Percy Heath heitir bassaleikari sveitarinnar. Hann ólst upp í Fíla- delfíu og vakti fyrst á sér athygli er hann söng i barnaþætti i útvarpi. Þeir, sem komu fram í barnaþátt- um sem þessum, fengu sjálfkrafa aðgang að ýmsum tónleikum og i heiðursskyni var þeim leyft að fara baksviðs og heilsa frægum jazzleik- urum, Fats Waller, Louis Arm- strong og Duke Ellington. Foreldr- ar Heath voru báðir mjög tónelskir og ekki leið á löngu þar til hann tók til við fiðlunám, en sneri sér síðar að bassaleik. Á meðal samstarfs- manna hans framan af ferlinum má nefna Howard McGhee, J. J. Johnson og Art Blakey. Hann gekk síðan til liðs við sveit Dizzy Gill- espie árið 1950. Heath hefur síðan unnið með flestum af þekktari jazzistum heims. Hafnaði trommunum Vibrafónleikarinn Milt Jackson varð strax á yngri árum mjög fjöl- hæfur tónlistarmaður og þegar kom í gagnfræðskóla lék hann jöfnum höndum á fimm hljóðfæri. Hann lagði aðaláhersluna á trommurnar þar til tónlistarkenn- ari hans fékk hann til þess að reyna fyrir sér á vibrafón. Eftir það leit hann aldrei um öxl og tók ástfóstri við hið nýja hljóðfæri. Dizzy Gillespie taldi hann á að yf- irgefa heimahagana, Detroit, árið 1945 og reyna fyrir sér í New York. Sú reynsla varð ekki ónýt því í New York kynntist Jackson mönnum á borð við Ray Brown, A1 Haig, Thel- onius Monk, Woody Herman, auk Gillespie sjálfs. Dvölin leiddi síðan til þess að hann varð einn stofn- enda Modern Jazz Quartet. Jackson hefur komið ótrúlega víða við á ferli sínum og þau stórmenni jazz- ins eru vart til sem ekki hafa spreytt sig með honum einhverju Leysti Clarke af hólmi Trommuleikari kvartettsins, Connie Kay, ólst upp í New York, þar sem móðir hans lagði ofurkapp á að hann lærði á píanó. Connie var ekki á þeim buxunum og hreifst af trommunum eftir að hafa heyrt í Cab Calloway í útvarpinu. Eitt fyrsta verkefni hans var að leika í næturklúbbi í Harlem, þar sem hann lék m.a. með ungum tromp- etleikara, Miles Davis. Það orð fór fljótt af honum, að þar færi óvenju hæfileikaríkur trymbill og orðspor- ið leiddi til þess, að menn á orð við Lester Young, Charlie Parker, Coleman Hawkins og Stan Getz sóttust eftir samstarfi við hann. Kay gekk til liðs við Modern Jazz Quartet árið 1955 og tók þá við af Kenny Clarke. Frá þeim tíma hefur liðsskipan kvartettsins verið óbreytt. Fékk ekki að hætta John Lewis heitir píanóleikari Modern Jazz Quartet. Hann fædd- ist í Illinois-ríki en ólst upp í Al- burquerque. Hann hóf strax píanó- nám, en langaði til að hætta. For- eldrarnir vildu það ekki og þegar hann var orðinn 15 ára gamall var hann farinn að vinna fyrir sér með píanóleik á dansstöðum og næt- urklúbbum. Eftir að hafa gengið í herinn og barist m.a. í Evrópu sneri hann heimleiðis og lagði stund á tónlistarnám í Manhattan School Of Music. Hann komst síðan í kynni við ýmsa kunnunga jazzara áður en að stofnun kvartettsins kom. Frá stofnun hans hefur hann komið víða við auk þess að leika með þeim Heath, Jackson og Kay. Mbl. KEE. Stuðmenn talið frá vinstri: Ásgeir Óskarsson, Tómas Tómasson, Þórður Árnason, Jakob Magnússon og Valgeir Guðjónsson. Ennfremur Guðjón Pedersen og Edda Heiðrún Backman úr leikhópnum Svart og sykurlaust. Á myndina vantar Egil Ólafsson. Stuðmenn í Laugardalshöll Beint flug á Suð- ureyri liggur niðri Flogið til Flateyrar og farþegar keyrðir þaðan Yfirlitssýn- ing á Höfn í Hornafirði YFIRLITSSÝNING í máli og mynd- um yfir þátt íslands í norrænu menningarkynningunni í Bandaríkj- unum var opnuð að Hafnarbraut 36 á Höfn í Hornafirði, fimmtudaginn 14. júní. I frétt frá Menningarstofnun Bandaríkjanna á íslandi segir að sýningin sé unnin í sameiningu af stofnuninni og menntamálaráðu- neytinu og hafi þegar verið sýnd víða um land. Sýningin er opin kl. 17—20 virka daga og kl. 14—20 um helgar og stendur til 24. júní. Þá verður einnig opnuð sýning á bandarískum bókmenntum frá Ameríska bókasafninu i Reykja- vík og verða bækur, sem þar eru, einnig til útláns í bókasafni Hafn- ar til loka ágústmánaðar. STUÐMENN munu skemmta í Laugardalshöll ásamt nokkrum öðrum 17. júní n.k. Skemmtunin hefst á miðnætti á sunnudag og stcndur til kl. 2.30 að morgni 18. júní. Stuðmenn munu leika tals- vert af nýju efni en auk þeirra koma fram leikhópurinn Svart og sykurlaust, Pax Vobis og Bara- flokkurinn. Að lokinni skemmtuninni í Laugardalshöll ætla Stuðmenn að leggja land undir fót og hyggjast þeir skemmta næstu vikurnar, landshornanna á milli. ÁÆTLUNARFLUG Arnarflugs til Suöureyrar við Súgandafjörð hef- ur legið niðri frá því um síðustu helgi. Arnar Helgasonar, yfirmaður innanlandsdeildar Arnarflugs, kvað ástæðuna vera þá, að Twin Otter-vél félagsins hefur ílengst í skoðun. Arnarflug á, auk hennar Laugarásbíó hefur tekið til sýningar kvikmyndina „Sjó- ræningjarnir frá Penzance“ eftir Wilford Leach, en hann leikstýrði jafnframt mynd- inni. Aðalhlutverk leika Kev- in Kline, Angela Lansbury, Rex Smidt og Linda Ronstadt. Myndin fjallar í stórum drátt- um um 21 árs gamlan mann, Friðrik, sem er að ljúka námi tvær flugvélar af Cessna-gerð, en Suðureyri er eini staðurinn í inn- anlandsáætlun félagsins þar sem þeim er ekki hægt að lenda. f sl. viku hefur því verið flogið með farþega og póst til Flateyrar og síðan keyrt til Suðureyrar. Næsta áætlunarflug á Suðureyri verður væntanlega á miðvikudag. hjá sjóræningjum. Friðrik er fæddur 29. febrúar og því telur sjóræningjaforinginn hann að- eins fimm ára og neitar að láta hann fara. Friðrik er heiðarleg- ur og vill uppræta sjóræningja- hópinn en það fer á annan veg, sannarlega óvæntan. Hann tek- ur þátt í ránsferðum, en eyðir mestum tíma í kvenfólk sem hann hefur lítið séð af í karla- veldi sjóræningjanna. „Sjóræningjarnir frá Penzance“ í Laugarásbíó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.