Morgunblaðið - 16.06.1984, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNl 1984
fittmsíMaiáD
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Þá er fyrst enn meira lesmál
um vísuna Sólin gyllir. Oddfríð-
ur Sæmundsdóttir í Reykjavík
skrifar mér svo:
„í gamla vasabók hef ég
skrifað: Þrír ferðafélagar stað-
næmdust í Tíðaskarði á Kjal-
arnesi, þeir horfðu yfir flóann,
borgina og fjöllin í fjarlægð.
Árni Pétursson læknir var
einn þeirra, hann mælti fram
þennan vísuhelming:
Sólin gyllir haf og hauður
heldur svona myndarlega.
Guðmundur Sigurðsson
bankamaður (einn af Snilling-
unum) bætti við:
Ekkl er drottinn alveg dauður,
ekkert gerir hann kindarlega."
Ég þakka Oddfríði þetta
bréf. Ef hitt er réttara, um
gerð og höfund vísunnar, sem
fyrr er fram komið í þáttum
þessum, þá er bréf Oddfríðar
enn til vitnis um það, hversu
góðir höfundar laða að sér góð-
ar vísur.
♦
Geir S. Björnsson á Akur-
eyri sendir mér þetta ágæta
bréf:
„Góði Gísli:
Það er þetta með rugling á
orðunum hurð og dyr, sem
spurning er um hvort orðinn
sé geigvænlegur (sbr. 244.
þátt). Hvað segir þú um þessa
setnihgu úr Laxdælu:
„Auðr gekk at durum, og var
opin hurð ...“?
Um þessa setningu segi ég
það fyrst, að hún er gott dæmi
um það, að málið er duttlunga-
fullt og löngum má finna frá-
vik hins algenga. í aragrúa
dæma um orðið hurð, sem ég
tíndi saman í bókum, fann ég
annað svipað því sem Geir til-
færir. Það er í Fornmannasög-
um:
„Kerling sat at hurðarbaki;
sem hón lítr þenna vánda
dreng, grípr hón til hurðarinnar
ok slettir opinni... en er óvinr-
inn sér, at hurðin lýkst upp ...
stökkr hann út af kirkjunni; en
eptir þat setr kerling aptr
hurðina í stokk með öllum lok-
um.“
Ég tek þetta dæmi líka
vegna þess, að þar er notuð
sögnin að Ijúka(st) = loka(st).
Þá gátu menn sagt að hurð
væri lokin (aftur). Mér finnst
áð opin um hurð, þá sjaldan
það kemur fyrir, sé einhvers-
konar hliðstæða (og þó and-
stæða) við lokin.
Frummerking orðsins hurð
er víst grind eða fléttuverk,
gotn. haurds, lat. crates. Á
dönsku er dör haft um hvort
tveggja, það sem við köllum
hurð og dyr. Líklega hef ég
notað orðið geigvænlegur um
ruglinginn á þessum orðum,
þegar ég heyrði eftir starfs-
bróður mínum, að vísu af
dönskum uppruna, að hann
hefði hótað nemendum sínum
að fleygja þeim á hurð. Að
sjálfsögðu er það hægt, en ég
ímynda mér að hann hafi ætl-
að að fleygja þeim á dyr.
Um þágufallsmyndina í
sambandinu að loka hurðinni
má segja að hún gæti verið
verkfærisþágufall = að loka
dyrunum með hurðinni.
*
Næsta vandamál er merk-
ingarmunur orðanna stjórn og
stjórnun. Ég verð að viður-
kenna hreinskilnislega að mér
er þessi munur ekki full-ljós,
enda gefa orðabækur hann
óglöggt til kynna. Hitt er til-
finning mín, að orðið stjórnun
hafi stundum hin síðari ár sótt
óþarflega fast á orðið stjórn.
Stjórnun er rétt myndað af
stjóma og eldra en ég hélt í
málinu. Það kemur fyrir í þýð-
ingu á Mynstershugvekjum og
mætti vera komið frá Fjölnis-
mönnum. Fyrir mér, og reynd-
ar fleirum, er einn munur skýr
á stjórn og stjórnun: Stjórn
getur bæði merkt hugtakið að
stjórna og menn sem það gera,
sbr. rfkisstjórn, félagsstjórn og
hússtjórn. Stjórn getur þannig
verið sama sem stjórnarnefnd,
en stjórnun (e. management) er
alltaf huglegt (afstrakt) = það
að stjórna.
Mér skilst að stjórnunarfélag
sé til þess að kynna skynsam-
247. þáttur
legar aðferðir við það að
stjórna og vísa þessu vanda-
máli til Stjórnunarfélags ís-
lands og bið stjórn þess liðsinn-
is, sbr. fordæminguna á stagl-
stílnum í síðasta þætti!
*
Sögnin að þróa hefur mjög
góða merkingu: þroska, efla,
auka, láta vaxa. Naumast ætti
að vera þörf á því að þróa upp,
eins og sjá má ritað og heyra
sagt. Þróun er hreyfing á upp-
leið, ekki niður. Þegar menn
tala um að þróa upp aðferðir,
finnst mér það heldur böngu-
legt mál. Menn finna upp að-
ferðir, bæta þessar aðferðir og
æfa þær jafnvel. Ætli leiðinda-
málið að þróa upp geti ekki ver-
ið samruni úr finna upp og
þróa?
♦
Hvort eiga menn heldur að
segja og skrifa að lýsa yfir ein-
hverju eða lýsa einhverju yfir?
Ég hef grufíað út í þetta fyrr
og síðar og komist að þeirri
niðurstöðu að hvort tveggja
væri jafngilt. Fjölmörg dæmi
eru um það í fornu máli, að
hafa fyrri orðaröðina, sem
sumum málvísum mönnum
þykir þó lakari. Hér eru aðeins
tvö af mörgum:
„Hann lýsir yfir því, at hann
mun fara til íslands með Ingi-
rnundi," segir í Vatnsdæla
sögu, og í Eyrbyggju:
„Lýstu þeir þá yfir því, að
þeir mundu eigi troða skó til
að ganga þar í útsker til álf-
reks.“
*
Mér var fengin í hendur
klippa úr ritinu Hlynur. Þar er
að finna þessa álappalegu línu
undir mynd: „Það var þéttset-
inn Svarvarðardalurinn á aðal-
fundi Sf. KRON sem haldinn
var í Hamragörðum."
Nafn fæðingarsveitar minn-
ar er Svarfaðardalur, og ef
menn vita að KRON stendur
fyrir Kaupfélag Reykjavíkur
og nágrennis, ætti að vera
óþarfi að setja Sf. fyrir fram-
an. Hvernig þætti mönnum Sf.
KEA og Sf. SÍS?
g
usava
FLÓKAGÖTU1
SÍMI24647
Opið kl. 1—4
Raðhús — Bílskúr
við Goöaland sem er boröstofa,
dagstofa, hol, eldhús, 4 svefn-
herb., baðherb. og gestasnyrt-
ing. í kj. er stórt fjölskylduherb.,
snyrting meö sturtu, þvottahús
og geymslur. Samtals 230 fm.
Bílskúr 25 fm. Verð 4,5 millj.
Laugateigur
4ra herb. rúmgóö og björt kjall-
araibúö. Laus strax. Falleg lóö.
Verð 1650 þús. Útb. 60%.
Hverageröi
Einbýlishús viö Laufskóga 4ra
herb. 100 fm. Laust strax. Verð
1,2 millj.
Félagasamtök
— Hestamenn
Hef í einkasölu jarðir í Ölfusi og
Stokkseyrarhreppi.
Heigi Ölafsson,
löggiltur fasteignasali,
kvötdsimi: 21155.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
' sjöum Moggans'
Grundarfjöróur
Til sölu einbýlishús tæplega fokhelt á fallegri sjávarlóð.
Skipti á íbúð á Reykjavíkursvæöinu koma til greina.
Upplýsingar í síma 84840 eftir kl. 20.00.
EINBÝLISHÚS
VIÐ GARÐAFLÖT
Sérlega vandað og fallegt 160 fm einbýlishús er til
sölu. Tvöfaldur 50 fm bílskúr. 20 fm í kjallara. Upphit-
uð innkeyrsla. Ræktaður fallegur garöur. Sérlega
vönduð eign. Upplýsingar í síma 42481.
HRAUNHAMAR__________Sími 54511
Þingvallavatn
Sumarbústaðalóðir
1. Mjög falleg 3000 fm lóö í Miðfellslandi nálægt
Kaldárhöföa.
2. 2000 fm lóð í Miöfellslandi.
3. 2000 fm lóö viö Stelkjarlund í Miöfellslandi.
VJÐ ERUMÁ REYKJAVÍKURVEGI72, HAFNARFTRÐI,
Bergur A HÆÐINNIFYRIR OFAN KOSTAKAUP „ , „
Magnus S.
F/eldsted.
Hs. 74807.
Oliversson
Garðastræti 45
Símar 22911-19255.
Opiö í dag
frá 1—4.
Raðhús — Engjasel
Um 150 fm endaraöhus viö Engjasel.
Bilskyli.
Einbýli — Garðabær
Til sölu eldra einb. á einni hæö meö
stórri og vel ræktaóri eignarlóó vió
Faxatún. Hæöin er um 150 fm, 4
svefnh., 50 fm bílsk. fylgir Bein sala.
Seljahverfi — einbýli
Einbýli á einni hæö á eftirsóttum staö i
Seljahverfi. Innb. bilsk. Mikiö rými i
kjallara fylgir. Hæöin er um 150 fm.
Skipti á raöhúsi, mætti vera í smióum,
helst á svipuóum slóöum, möguleg.
Kleppsvegur - 4ra herb.
Um 117 fm íb. á 1. hæö. Bílskýlisróttur.
Engjasel — endaraðh.
Um 150 fm endaraöh. viö Engjasel.
Bílskýli.
Asparfell — 4ra herb.
Um 125 fm rúmg. íb. á hæö í lyftublokk
viö Asparfell.
Gamli bærinn
Hæð og ris
Vorum að fá i sölu hæð og ris í eldra
steinhúsi ca. 90 fm við miöborgina. A
hæöinni er 3ja herb. ibúö og i risi er
herb. m.m. Eignin þarfnast standsetn-
ingar. Verö tilboö.
Gamli bærinn
Um 92 fm 4ra herb. ibúö á hæö í nýlegu
húsi viö Leitsgötu M.a. 3 svefnherb
Hólahverfi — 2ja herb.
Um 60 fm 2ja herb ibúö á hæö viö
Krummahóla M.a. Þvottahús á hæö-
inni, víösýnt útsýni. Bein sala.
Nokkrar glæsilegar eignir á sölu-
skrá. Einungis í makaskiptum.
Jón Arason lögmaöur,
málflutnings og fasteignasala.
Heimasími sölustjóra 76136.
MH>BOR
Lækjargata 2 (Nýja Bíó-húsinu) 5. hæö.
Símar: 25590 — 21682.
Opiö frá kl. 12.00—18.00
2JA HERBERGJA
Eyjabakki
Einstaklega rúmgóö íbúö. Stórt svefn-
herb. og stór stofa. Frábært útsýni.
Verö 1450 þús.
Austurbrún
Einstaklingsíb. á 6. hæö í lyftublokk á
einum besta staó bæjarins. Frábært
tækifæri fyrir eldra fólk. í skiptum fyrir
stærri eign t.d. 3ja herb. íb. Verö 1,3
millj.
Bólstaðahlíö
Rúmgóö 60 fm ibúö á jaróhæö. Góö
sameign. Ákv. sala. Verö 1350 þús.
Blikahólar
Góö 65 fm íbúó meö sérlega góöum
innr. Ákv. sala.
Krummahólar
Falleg 65 fm íbúö. Stórar suöursvallr.
Gott útsýní. Ákv. sala. Verö
1250—1300 þús.
Þingholtsstræti
Kjallari lítiö niöurgrafinn 45 fm. Ákv.
sala. Veró 800 þús.
3JA HERBERGJA
Furugrund
í nýlegu fjölbýlishúsi. Aögangur aó
bílskýli. íbúóin er á efstu hæö, lyfta í
húsinu. Verö 1750 þús.
Kjarrhólmi
Á 1. hæð i fjölbýlishúsi, nýleg og falleg
ibúö, þvottahús í íbúöinni. Verö 1,6
millj.
Njálsgata
Nýuppgerö, falleg (portbyggö), ris. Laus
strax. Verö 1550 þús. Suöursv.
Maríubakki
Falleg 85 fm íbúö á 3. hæö Ný eldhús-
innr. Nýtt gler. Ákv. sala. Verö
1650—1700 þús.
4RA HERBERGJA
Áiagrandi
Einstök ibúö í nýju fjölbýlishúsi á 3.
hæö. Verö 2,5 millj.
Óskum eftir öllum tegundum fasteigna á söluskrá
Komum og skoöum, verðmetum samdægurs.
Lækjargata 2 (Nýja Bió húsinu) 5. hæð.
Simar: 25590 — 21682.
Ðrynjólfur Eymundsson, hdl.
Álftahólar
♦ bílskúr, frábært útsýni tll suöurs og
vesturs. 3 svefnherb., stór stofa. Verö 2
millj. Laus strax.
Asparfell
1 lyttublokk á 3. hæö. Verö 1,6 millj.
Barónsstígur
Sórstaklega hentugt fyrir fólagasamtök,
vegna staösetningar. Einnig ágæt. Verö
1.8 millj.
5—6 HERBERGJA
Skípholt
5 herb. ca. 135 fm + bílskúr á 1.
hæö í þríbýllshúsl. Verö 2,9 millj.
Háaleitisbraut
6 herb. glæsileg íbúö á 4. hæö. Vand-
aöar innr. Akv. sala. Verö 2,7 millj.
Kríuhólar
Rúmgóö 136 1m ibúö í lyftuhúsl. G6Ö
sameign Akv. sala. Laus strax. Skipti
möguleg á minni. Verö 2050 þús.
RAÐ- OG EINBÝLISHÚS
Flúðasel
Mjög vandaö raöhús 240 fm. Sauna í kj.
Húsiö er í sórflokki. Ákv. sala. Verö
4,3—4,4 millj.
Skólavöröuholt
2 X 50 fm, 3 svefnherb., 2 saml. stofur,
30 tm atvinnuhúsnæöi. Verö 2,3 mlllj.
Digranesvegur
Steinsteypt einbýii, ca. 85 fm aö
grunnfleti, hæö og ris og kjallari + bíl-
skúr. Hæö: 3 stofur, eldhús og baöh.
Ris: 4 svefnherb., baöherb., skáli. Kjall-
arí: einstaklingsíbúö. Stór og góóur
bílskúr. Frábært útsýni, gróskumikill og
fallegur garöur. Verö 3,9 millj.
Seltjarnarnes
Failegt 155 fm parhús á einni hæö
ásamt góöum bílskúr. Húsíö sklptist í 3
svefnherb., 2 stofur, húsbóndaherb.
Ákv. sala. Verö 3,9 millj.