Morgunblaðið - 16.06.1984, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1984
Schliiter greiðir
skaðabæturnar
Kaupmannahofn, 15. júní. Frá Ib Björnbak. frétlaritara Mbl.
POUL SCHLtÍTER, forsætisráðherra,
hefur boðist til að greiða manni nokkr-
um er hann seldi hús sitt árið 1981
600.000 danskar krónur í skaðabætur.
Kaupandinn samþykkti þessi málalok
og er þar með lagt niður skaðabótamál
gegn forsætisráðherranum.
Mál þetta hefur verið mikið tll
umfjöllunar í dönskum fjölmiðlum
að undanförnu, en skömmu eftir að
kaupin áttu sér stað, fyrir þremur
árum, uppgötvaði kaupandinn
marga galla á húsinu.
Schlúter hefur haldið fast við það,
að hann hafi ekkert vitað um galla
hússins. Hann bauðst til að kaupa
húsið að nýju fyrir það verð sem
kaupandinn hafði greitt fyrir það og
greiða auk þess 220.000 króna við-
gerðarkostnað. Þetta vildi kaupand-
inn ekki fallast á.
„Ég vil ekki taka þátt í málaferl-
um sem geta tekið fleiri ár. Þess
vegna hef ég ákveðið að greiða það
sem kaupandinn hefur krafist, til að
faliið verði frá skaðabótamáli," sagði
Schlúter er málið var leitt til lykta í
gær. Hann bætti við að hann væri
þess fullviss að lyktir hefðu orðið
aðrar ef málið hefði komið fyrir
dómstóla. Hann sagðist verða að
horfa framhjá þeim peningum sem
færu í að greiða skaðabæturnar til
að binda enda á þetta mál, sem blás-
ið hefði verið upp í fjölmiðlum.
Trudeau fer frá
eftir sextán ár
OtUwa. Kanada, 15. júní. AP.
PIERRE Elliott Trudeau hélt í gær-
kvöldi kveðjuhóf með félögum sínum
úr FrjáLslynda flokknum, en hann læt-
ur af störfum forsætisráðherra í næsta
mánuði eftir sextán ára feril. Trudeau
var vel fagnað í hófinu, og voni milli
atriða sýnd brot úr fréttamyndum frá
ferli hans sem forsætisráðherra.
Trudeau gerði sér far um að nefna
ekki neinn þeirra sem í framboði eru
öðrum fremur í ræðu sinni, en fram-
bjóðendurnir eru sjö talsins og hefur
John Turner þótt þeirra líklegastur
til að hljóta kosningu.
Turner er fyrrverandi fjármála-
ráðherra en sagði sig úr stjórn
Trudeaus árið 1975. Sá sem hlýtur
embætti leiðtoga flokksins tekur við
embætti forsætisráðherra þegar
Trudeau lætur af embætti síðar í
þessum mánuði, en skal boða til
kosninga fyrir næsta vor.
Hljóti Turner kosningu, gæti hann
þurft að setja saman ríkisstjórn án
þess að eiga sjálfur sæti á þinginu,
en ef svo færi er talið að hann muni
reyna að vinna kosningarnar innan
Pierre Elliot Trudeau
nokkurra mánaða. Hinir sex fram-
bjóðendurnir eru fulltrúar á þinginu
og eiga allir sæti í stjórn Trudeaus.
Norræn miðstöð
á Álandseyjum
Menntamálaráðherrar Norðurland-
anna ákváðu á fundi á Suður-Jótlandi
fyrr í þessari viku að stofna Norræna
menningarmálamiðstöð á Álandseyj-
um. Þessi miðstöð mun hafa það verk-
efni að efla menningarlíf Álandseyinga
og auka tengsl þeirra við önnur Norð-
urlönd.
Húsið verður rekið af Norrænu
ráðherranefndinni og landsstjórn-
inni á Álandseyjum í sameiningu.
Áætlað er að rekstur menningarmið-
stöðvarinnar hefjist 1. janúar 1985.
Síkhar með brugðin sverð í mótmælagöngu í Lundúnum. Gengu síkharnir til sendiráðs Indiands í Lundúnum og
mótmæltu þar áhlaupi indverska stjórnarhersins á Gullna musterið í Amrirsar, þar sem hundrað síkha féllu.
Mikið magn fíkniefna
í Gullna musterinu
Dehlí, 15. júní. AP.
Stjórnarherinn hefur gert
upptækt „gífurlegt magn“ af
heróíni og hassi í gullna
musterinu. Fíkniefnin voru
að verðmæti margra milljóna
dollara og er hermt að sikhar
hafi dregið þau að sér frá
Pakistan til þess að fjár-
magna vopnakaup.
Jafnframt fannst gífurlegt
magn af gulli, silfri, skartgrip-
um, verðmætum gimsteinum og
peningum. Fíkniefnin fundust í
þeim hluta mustersins sem
stuðningsmenn Jarnail Singh
Bhindranwale héldu til í.
Herma heimildir að musterið
hafi með sanni verið fíkniefna-
geymsla og dreifingarmiðstöð.
Hafi hinir herskáu sikhar stund-
að þaðan stórfellda fíkniefnasölu
óáreittir. Mun það hafa verið trú
þeirra að aidrei yrði ráðist inn í
musterið.
■ ■■
\f/
ERLENT,
Indversk yfirvöld halda því
fram að sikhar hafi fengið vopn
frá Pakistan og jafnframt hlotið
þar þjálfun. Meðal vopna sem
fundust í musterinu voru mörg
með pakistönskum merkingum,
en lögregla segir sum þeirra
hafa náðst í stríði Indverja og
Pakistana 1971. Pakistanar hafa
neitað ásökunum þessum.
Thatcher um yfírlýsingu Alfonsins og Gonzalezar:
Frjálslega farið
með staðreyndir
London, 15. júní. AP.
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra sagði að farið væri frjálslega
með staðreyndir í sameiginlegri yf-
irlýsingu Raul Alfonsins
Argentínuforseta og Felipe Gonz-
alezar forsætisráðherra Spánar,
þar sem leiðtogarnir gera annars
vegar tilkall til Falklandseyja og
hinsvegar Gíbraltar.
í yfirlýsingu leiðtoganna á mið-
vikudag sagði að Argentína og
Spánn væru fórnarlömb tíma-
skakkrar nýlendustefnu. Thatcher
sagði að í yfirlýsingunni væri
staða Gíbraltars og Falklandseyja
ranglega sett fram. Hét hún því að
standa við heit brezkra stjórn-
valda gagnvart íbúum Gíbraltar
og Falklandseyja, sem óska að
Thatcher
vera áfram undir brezkum yfir-
ráðum.
Jóhannes Páll
páfi I myrtur?
JÓHANNES Páll páfi I, sem var
páfi f 33 daga 1978, var myrtur,
segir í nýútkominni bók eftir
brezkan höfund, David Yallop,
sem hefur rannsakað dauða páfa í
þrjú ár.
Yallop lýsir sök á hendur ít-
ölsku frímúrarareglunni P2 og
stofnanda hennar, Licio Gelli,
sem nú er í felum í Suður-
Ameríku. Yallop telur líklegt að
páfanum hafi verið byrlað eitur.
Yallop segir að kringumstæð-
ur andláts páfa hafi verið dul-
arfullar og nokkrir óskýranlegir
atburðir hafi gerzt. Til dæmis:
• Engin krufning fór fram. Páfi
virðist hafa látizt af völdum
hjartaáfalls, en var aldrei hjart-
veikur.
• Allir hlutir í svefnherbergi
hans voru fjarlægðir, meðal ann-
ars lyf hans og erfðaskrá, og síð-
an hefur ekkert til þeirra spurzt.
• Ekki liggur ljóst fyrir hvenær
dauða páfa bar að höndum.
• Opinberar upplýsingar um
það sem páfi hélt á þegar hann
lézt voru rangar.
Yallop segir að fjöldi manna
hafi haft ástæðu til að óttast að
páfinn léti til skarar skríða gegn
þeim. í þeim hópi voru:
• Paul Marcinkus biskup, for-
stöðumaður banka Vatikansins,
sem páfi ætlaði að víkja frá
störfum vegna viðskipta hans
við Roberto Calvi, illræmdan yf-
irmann Banco Ambrosiano.
• Calvi sjálfur, sem hefði orðið
fyrir meiriháttar áfalli ef Marc-
inkus hefði verið settur af.
• Licio Gelli, yfirmaður P2, sem
reyndi að vernda Calvi.
Jóhannes Páll páfi I
• Michele Sindona, bankastjóri
og fjármálaráðunautur Vatik-
ansins, sem nú afplánar 25 ára
fangelsisdóm í Bandaríkjunum.
• John Cody kardináli, erkibisk-
up í Chicago, sem var viðriðinn
nokkur hneykslismál.
• Jean Villot kardináli, páfa-
ritari og raunverulegur forsætis-
ráðherra Vatikansins þegar páfi
lézt.
Stjórn Muldoon
missti meirihluta
Wellington, Nýj» Sjálandi, 15. júní. AP.
ROBERT Muldoon, forsætisráó-
hcrra, boðaði í gær til kosninga eftir
að stjórn hans missti eins atkvæðis
meirihluta sinn á þingi. Muldoon til-
kynnti að stjórn sín gæti ekki setið
áfram við völd og boðaði til kosn-
inganna þann 14. júlí nk.
Niðurstöður skoðanakannana
sem birtar voru í morgun sýna að
þjóðernisflokkur Muldoons hefur
44% meirihluta kjósenda á bak við
sig, Verkamannaflokkurinn fylgir
fast á eftir með 43% atkvæða und-
ir forystu David Lange.
Muldoon hefur verið forsætis-
ráðherra frá árinu 1975, þegar
Þjóðernisflokkurinn vann mikinn
kosningasigur undir hans forystu.
Meirihluti hans minnkaði til
muna 1978 og 1981, og á síðastliðn-
um tveimur árum hefur stjórn
hans einungis haft eins atkvæðis
meirihluta á þingi.
Fé til æsku-
lýðsstarfs
NORRÆNA ráðherranefndin
(mcnntamálaráðhcrrar) lauk síðastlið-
inn miðvikudag fundum sínum í
Msgeltander í Suður-Jótlandi og var
ákveðið að veita 925.000 danskar krón-
ur til æskulýðsstarfs á næsta ári, en
árið 1985 er alþjóðlegt æskulýðsár
Sameinuðu þjóðanna.
Ráðgert er að halda fund Norður-
landaráðs í Reykjavík 1 mars 1985 og
verður í sambandi við hann haldin
sérstök æskulýðsráðstefna þar sem
áformað er að hrinda í framkvæmd
ýmsum aðgerðum í tilefni æskulýðs-
ársins.