Morgunblaðið - 16.06.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNl 1984
27
Stykkishólmur:
Lúðrablástur á
þjóðhátíðardaginn
Slvkki.shólmi, 15. júní.
17. JÚNÍ verður að venju hald-
inn hátíðlegur í Stykkishólmi og
hefjast hátíðarhöldin við Dval-
arheimili aldraðra með leik
Lúðrasveitar Stykkishólms und-
1034»
Nýtt tímarit
um gróður
og garðyrkju
NÝTT tímarit hefur hafið göngu sína
og ber það heitið „Gróandinn**. Rit-
stjóri Gróandans er Hafsteinn Haf-
liðason garðyrkjumaður, en eins og
nafnið bendir til er ritið um gróður
og garðyrkju. Auk þess er fjallað um
ýmis önnur efni tengd útihTi og frí-
stundum.
Meðal efnis í Gróandanum er
grein eftir ritstjórann, Hafstein
Hafliðason, um allt sem lýtur að
rósum. Þá eru greinar eftir Hall-
grím Indriðason, skógfræðing á
Akureyri, Hafliða Jónsson, garð-
yrkjustjóra Reykjavíkurborgar, og
Harald Þ. Skarphéðinsson skrúð-
garðafræðing. Af öðru efni má
nefna umfjöllun um snjóbræðslu-
kerfi og greinar um útisundlaugar
og gæludýr.
Gróandinn er 96 bls. að stærð í
venjulegu tímaritsbroti og útgef-
andi þess er útgáfufélagið Fjölnir
hf.
Hringskonur
með sölu-
tjald á 17. júní
HRINGSKONUR hafa
ákveðið að verða með sölu-
tjald í Lækjargötu á 17. júní.
Þar verður til sölu meðal
annars pylsur, sælgæti, blöðr-
ur og rellur. Opið verður frá
hádegi til miðnættis og er von-
ast til að góðhjartaðir borgar-
ar líti við. Allur ágóði rennur
til Barnaspítala Hringsins.
e>
INNLENT
ir stjórn Daða Þórs Einarssonar.
Þaðan verður gengið í
Hólmgarð, útivistarsvæði
Hólmarar við Aðalgötu en þar
fara hátíðarhöldin fram og
verður ýmislegt til fróðleiks
og skemmtunar. Meðal annars
koma fram hjónin Sigelinde
Kalman og Sigurður Björns-
son. Klukkan hálf fjögur býð-
ur Stykkishólmshreppur bæj-
arbúum til kaffidrykkju í fé-
lagsheimilinu. Um kvöldið
verður barnadiskótek fram
undir miðnætti.
— Árni
Eiríkur Kjalar einbeitir sér allt hvaö af
tekur er hann innir af hendi hið mikil-
væga starf.
Dregið í ferða-
happdrætti Úrvals
FYRIR skömmu var dregið í ferða-
happdrætti Úrvals en allir þeir sem
höfðu greitt ferðir til Ibiza, Mallorca,
Noregs og Daun Eifel áttu möguleika á
að fá ferð sína ókeypis.
Eiríkur Fjalar sá um að draga og
voru þeir heppnu: Ragnar H. Hall,
Nesbala 82, Seltjarnarnesi, (fékk
frítt til Mallorca), Einar Hjálmtýs-
son, Kleppsvegi 136, Reykjavík, (fékk
frítt flug og bíl til Noregs) og Sævar
Jónsson, Hæðarbyggð 2, Garðabæ
(fékk fría ferð til Daun Eifel).
Á annað þúsund
kvefaðir í apríl
A ANNAÐ þúsund manns fengu
það slæmt kvef í aprílmánuði á
þessu ári að þeir þurftu að leita
læknis.
í fréttatilkynningu sem
Morgunblaðinu hefur borist
frá skrifstofu borgarlæknis
kom fram að samkvæmt
skýrslum 10 lækna og lækna-
vaktar í Reykjavíkurumdæmi
hefðu 1.116 fengið kvef, há-
lsbólgu og lungnakvef í apríl.
Fjöldi þeirra sem fékk lungna-
bólgu var 48 og Streptó-
kokka-hálsbólgu og skarlatss-
ótt fengu 49 einstaklingar.
Þá herjaði inflúensa á 484
íbúa á þessu svæði samkvæmt
skýrslunni. Hettusótt fengu
fjórir, rauða hunda, tólf,
hlaupabólu 16, og einn fékk
mislinga.
Kristalssalur
Loftleiða
í MYNDATEXTA undir mynd með
frétt um sprengjugabbið í bresku
þotunni á Keflavíkurflugvelli sem
birtist á miðopnu blaðsins í gær mis-
ritaðist nafn hótelsins sem um var
rætt.
Var starfsfólk Hótels Loftleiða
að taka saman rúmföt í Kristals-
sal Hótels Loftleiða en ekki Hótels
Sögu eins og misritaðist. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Úlfar Þormóðsson í húsnæði nýja gallcrísins í Pósthússtrætinu.
Lifandi gallerí
— segir Úlfar Þormóðsson, sem opnað
hefur nýtt gallerí í miðborginni
„Við ætlum að vera hér með lif-
andi gallerí. Ég segi ekki að það
verði breytilegt frá degi til dags hvað
hér verður á boðstólum, en við stefn-
um að því að það verði það næstum
því og fólk verði helst að koma á
hverjum degi til að kynna sér hvað
er að gerast," sagði Ulfar Þormóðs-
son, forsvarsmaður gallerísins Borg-
ar, sem opnaði í Pósthússtrætinu í
vikunni.
„Nú stendur hér yfir sýning
nokkurra félaga úr félaginu ís-
lensk grafík og auk þess erum við
með keramik og glerskúlptúra til
sýnis og sölu. Þessi sýning sem
hangir á veggjum núna stendur að
minnsta kosti næstu tvær helgar,
en hvað þá tekur við er að mestu
óráðið," sagði Úlfar.
Galleriið verður opið virka daga
frá kl. 10—18 og um helgar 14—18.
Starfsmaður með Úlfari í gallerí-
inu er Edda Óskarsdóttir. Um
breytingar á húsnæði gallerísins
fyrir opnunina sáu arkitektarnir
Magnús Skúlason og Sigurður
Harðarson.
Úlfar sagði að þau myndu leggja
áherslu á að hafa gott yfirlit yfir
íslenska grafik á boðstólum. Þá
hefði hann uppboðsleyfi og myndu
í framtíðinni verða haldin uppboð
í galleríinu, auk þess sem komið
yrði upp bókahorni með íslenskum
listaverkabókum.
„Við lítum björtum augum til
framtíðarinnar. Ef það er ekki
rekstrargrundvöllur fyrir gallerfi
í miðborginni þá er hann ekki til
annars staðar," sagði Úlfar.
ALLTAF Á SUNNUDÖGUM
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
HLJOTUM AÐ HORFA
MEÐ ÞAKKLÆTI TIL
ÞESSARA 40 ÁRA
— rætt viö frú Vigdísi Finnbogadóttur,
forseta íslands
JÓN SIGURÐSSON,
FORSETI — SAGAN OG
SAMTÍMINN
RÍS ÞÚ ÍSLANDS UNGA
MERKI
— saga íslenzka fánans
FJALLKONULJÓÐ EFTIR
DAVÍÐ STEFÁNSSON
5 ÁRA AFMÆLI LÝÐ-
VELDISINS, LJÓÐ
TÓMÁSAR GUÐ-
MUNDSSONAR
REIÐSKÓLI ROSEMARIE
ALHEIMSMÁLIÐ
ESPERANTO
ÉG ER BJARTSÝNN UM
NOKKURN ÁRANGUR
— rætt viö Árna Böðvarsson,
málfarsráöunaut
UNESCO OG EIN-
VALDURINN
VARGURINN SNÝR
AFTUR
BANNAÐ AÐ KÁFA
ÁKONUM
— stefnumörkun jafnaöarflokks-
kvenna í Svíþjóö
LÍKAMLEG VELFERÐ
OKKAR VELTUR Á YFIR-
MANNINUM
ÍSLENZKAR LISTAKON-
UR í KAUPMANNAHÖFN
FLOTAFORINGINN, SEM
STJÓRNAÐI EIGIN
AFTÖKU
SPURT OG SVARAÐ UM
GARÐYRKJU
|H$r0ðiiti!hIaÞiÞ
Sunnudagurinn byrjar á síðum Moggans