Morgunblaðið - 16.06.1984, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGÁRDAGUR 16. JÚNÍ 1984
29
Námstefna
um eldvarna-
eftirlit
NÁMSTEFNA um eldvarnaeft-
irlit verður haldin að Hótel Loft-
leiðum dagana 19. til 21. júní nk.
Námstefnan verður haldin á
vegum Brunamálastofnunar
ríkisins og í samvinnu við Verk-
fræðingafélög Noregs og íslands
og Brunabótafélag Islands.
Félagsmálaráðherra, Alex-
ander Stefánsson, setur nám-
stefnuna og sérfræðingar í
brunavarnaeftirliti og bruna-
tryggingastarfsemi, innlendir og
erlendir, flytja erindi og leið-
beina við framkvæmd bruna-
varnaeftirlits. Námstefnugögn
verða bæði á íslensku og norsku.
í fréttatilkynningu Bruna-
málastofnunar ríkisins segir að
tilgangurinn með námstefnu
þessari sé að ræða fyrirkomulag
eldvarnaeftirlits i landinu og að
reyna að gera sér grein fyrir
skiptingu verkefna og ábyrgðar
milli þeirra aðila, sem þar koma
við sögu, auk þess að leiðbeina
um framkvæmd eldvarnaeftir-
lits.
Mótmæla
byggingu
bensínstöðvar
MIÐVIKUDAGINN 13. júní sl. var
borgarstjóranum í Reykjavík, Davíd
Oddssyni, afhent mótmæli vegna
fyrirhugaðrar byggingar bensín-
stöðvar við Stekkjarbakka gegnt
Gróðrarstöðinni Alaska.
í mótmælum, sem 158 íbúar í
götum sem liggja næst Stekkjar-
bakka undirrituðu, er þess getið
að engin þðrf sé fyrir bensínstöð á
umræddum stað og er vilji ibú-
anna að borgarstjórn taki fullt til-
lit til vilja þeirra, sem er ekki ann-
ar en sá að borgaryfirvöld haldi
sig við fyrri ákvörðun og breyti á
engan hátt frá því sem þau hafa
áður kynnt, að svæðið verði ein-
göngu notað sem íþrótta- og úti-
vistarsvæði.
Ljósmynd Mbl./ Emilia.
J.T. Sugimato, yfirsjóliðsforingi í bandarísku strandgæslunni og aðalleið-
beinandi á námskeiðinu, ávarpar þátttakendur á útskriftardegi.
Björgunarmenn
NÁMSKEIÐ í grundvallaratriðum
leitar og björgunar á vegum Land-
helgisgæslunnar og bandaríska
sendiráðsins lauk nýverið. Leið-
beinendur voru sérfræðingar
fengnir frá bandariskum björgun-
ar- og leitarskóla „The National
Search and Resque School“, sem
rekinn er af bandarísku strand-
gæslunni og bandaríska flughern-
um. Námskeið þeirra eru haldin
um allan heim og skólinn hefur
útskrifað fleiri en 6.000 nemend-
ur.
Kennd voru undirstöðuatriði í
skipulagningu leitar og leitar-
tækni jafnt á sjó sem landi.
Námskeiðið stóð í 3 vikur í
Sjómannaskólanum.
Gunnar Bergsteinsson, yfir-
maður Landhelgisgæslunnar,
sagði í samtali við blm. Mbl. að
megintilgangur þessa nám-
skeiðs hefði verið tvíþættur: Að
auka samvinnu og samræmingu
þeirra aðila sem vinna að björg-
unarmálum hér á landi, en einn-
ig til að halda námskeið þar sem
öll björgunarfélög í landinu
gætu notið sömu kennslu.
„Hingað til hefur verið sendur
einn og einn nemandi héðan til
höfuðstöðva skólans í New York,
en sú menntun kemur að litlu
gagni þegar á reynir," sagði
Gunnar. 24 tóku þátt í nám-
skeiðinu, frá Landhelgisgæsl-
unni, flugmálastjórn, Slysa-
varnafélagi Islands, Pósti og
síma, Sjómannaskólanum og
varnarliðinu í Keflavík.
19. júní kominn út
19. JÚNÍ ársrit Kvenréttindafélags
íslands er komió út í blaðinu er
tekin til umfjöllunar jafnréttisbar-
átta og áhrif hennar á samskipti
kynjanna. Nefnist þessi þáttur
„Jafnrétti frá getnaði til grafar“.
Þar er rætt við fólk sem hefur m.a.
stöðu sinnar vegna haft sérstaka
aðstöðu til að fylgjast með jafnrétt-
isumræðunni og áhrifum hennar á
samskipti karla og kvenna.
„Eru tölvurnar ógn eða nýir
möguleikar,“ er spurning sem
varpað er fram í 19. júní að þessu
sinni. Fjallað er um tölvur og
konur og tölvufræðslu í skólum
og hættuna sem ófrískum konum
kann að stafa af tölvunum. í
tímaritinu eru einnig viðtöl við
konur í ábyrgðarstörfum: Salóme
Þorkelsdóttur forseta efri deild-
ar Alþingis, Helgu Jónsdóttur
aðstoðarmann forsætisráðherra
og Sólrúnu Jensdóttur skrif-
stofustjóra í menntamála-
ráðuneytinu. Einnig er talað við
listakonurnar Ragnheiði Stef-
ánsdóttur myndhöggvara og
Nínu Björk Árnadóttur, rithöf-
und og Ónnu Sigurðardóttur for-
stöðumann Kvennasögusafnsins.
Samtök kvenna á vinnumarkaði
og Framkvæmdanefnd um
launamál kvenna fá umfjöllun í
blaðinu og loks má geta greinar
um fóstureyðingar í ljósi nýrrar
löggjafar, en í henni eru tölu-
legar upplýsingar um fóstureyð-
ingar síðustu árin. Sitthvað
fleira er í þessu blaði. Það er 88
síður og ritstjóri er Fríða
Björnsdóttir.
ForsíAa 19. júní, ársrits Kvenréttind-
afélags íslands.
Osóttir happdrættisvinningar
sem kom á dagatal nr. 11899, hef-
ur enn ekki verið vitjað. Sá vinn-
ingur er flug og gisting í ellefu
daga fyrir alla fjölskylduna á sól-
arströndinni Rimini á Ítalíu.
Vinningana ber að vitja á aðal-
skrifstofu Samvinnuferða-
Landsýnar í Austurstræti 12,
Reykjavík eða hjá umboðs-
mönnum.
DREGIÐ hefur veriö f annað sinn f
dagatalahappdrætti Samvinnuferóa-
Landsýnar 1984.
Vinningurinn, tveggja vikna
dvöl í sæluhúsi í Kampervennen
eða Eemhof í Hollandi auk bíla-
leigubíls í eina viku, kom á happ-
drættisdagatal nr. 7362.
Vinningsins úr fyrsta drætti
Þjóðhátíðarkaffi-
sala Fríkirkjunnar
SUNNUDAGINN 17. júní verður
þjóðhátíðarguðsþjónusta í Fríkirkj-
unni í Reykjavík og hefst kl. 11.00.
Leikið verður á selló og orgel í 20
mínútur á undan messu. Safnað-
arprestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Fríkirkjukórinn syngur und-
ir stjórn organistans, Favels Smíd.
Að lokinni athöfninni hefst
kaffisala Kvenfélags Fríkirkj-
unnar á stéttinni utan við
kirkjudyr og stendur allan dag-
inn. Við vonum, að margir leggi
leið sína í Fríkirkjuna þennan
morgun að hlýða á messu, kaupi
sér síðan kaffi og vöfflur, áður
en þeir fara heim og minnist
hins fornkveðna, er þeir setjast
að þjóðhátíðarsteikinni, að ekki
er ket, nema kaffi á undan renni.
Aðra vegfarendur, seinna um
daginn, bjóðum við einnig hjart-
anlega velkomna.
Gunnar Björnsson
fríkirkjuprestur.
útskrifaðir
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
VEROBRÉFAMARKAOUR
Huai VERSUUNAniNNAR SlM SS77TO
SIMAT1MAR Ki. 10-12 OO 16-17
KAUPOeSAlA VC9SKUL DABRÍFA
Hagabeit
Tökum hross í hagabeit. Upplýs-
ingar í síma 99-6941.
Verslun og þjónusta
Minka-. muskrattreflar, húfur og
slár. Minka- og muskratpelsar
saumaöir eftir máli. Viögeröir á
pelsum og leöurfatnaöi.
Skinnasalan, Laufásvegi 19,
síml 15644.
islenskar lopapeysur
og lopi
isienskar lopapeysur og lopi i
stórum og litlum pöntunum
óskast keyptar af norsku fyrir-
tæki. Vinsamlegast sendiö sýn-
ishorn í póstkröfu. Skrifiö á
norsku eöa ensku tll:
Stein Finstad,
Uranienborgveien 23,
Oslo 3, Norge.
• húsnæöi :
{ i boói J
Kalifornía —
hús til leigu
Hver ætlar á Ólympiuleikana f
Los Angeles? Til leigu lítiö ein-
býlishús meö svefnpláss fyrir 6 '
manns. Öll þægindi. Stutt á
leikvanginn. Qöngufæri á
ströndina o.fl. Upplýsingar f
sima 17959.
Sunnudagur 17. júní
KL 13. Elliöavatn — HjaHar —
KakUrsel. Létt ganga f. alla.
Verö 150 kr. Frftl f. bðrn m. full-
orönum. Brottför frá BSl bensin-
sölu. Sjáumst.
Feröafélagiö Utivist.
Laugardagur 16. júní
kl. 20.
Þjóðhátiðarganga á Esju. Geng-
iö á Þvertellshorn. Brottför frá
BSl bensínsölu. Verö 200 kr.
Þátttakendur geta elnnig komiö
á eigin bíl inn aö Mógilsá. Heim-
koma um 01-leitiö e. mlðnætti.
n
UTIVISTARFERÐIR
Fimmtudagur 21. júnf.
Sóimtöóuferö f Viöey. Leiösögu-
maöur Örlygur Hálfdánarson
o.fl. Verö kr. 150, frítt f. börn m.
fullorönum. Brottför frá Sunda-
Laugard. 23. júnf kl. 20.00. Tf-
unda Jónsmassunæturganga
Úfivistar. Brottför frá BSl bens-
insölu. Sjáumst.
Feröatélagiö Utivist.
ÚLFAR JACOBSEN
Feröaskrifstofa
Austurstræti 9.
Símar 13499 og 13491.
í sumar bjóöum viö
eftirtaldar feröir:
12 daga hálendisteröir með
léttum gðngum
Landmannalaugar — Mývatn —
Heröubr.llndir — Askja —
Hljóöakiettar — Skagafjöröur
— Laugarvatn — Reykjavik.
Verö 12.000 kr.
12 daga farðir um suðaustur-
land og Sprsngisand
Þórsmörk — Skaftafell — Þör-
isdalur — Hallormsstaöur —
Heröubreiöalindir — Askja —
Hijóöaklettar — Mývatn —
Landmannalaugar — Reykjavík.
Vorö 12.000 kr.
• daga forö um Fjallabak
Þingvellir — Landmannalaugar
— Klrkjubæjarklaustur — Jök-
ullón — Skaftafell — Þórsmörk.
Verö 6.000 kr.
19 daga langferð með
láfum gðnguferðum
Lýsuhóll (Snæfellsnesi) — Þing-
vellir — Þórsmörk — Skaftafell
— Þórisdalur — Hallormsstaöur
— Heröubreiöalindir — Askja
— Hljóöaklettar — Mývatn —
Landmannalaugar — Reykjavík.
Verö 19.000 kr.
12 daga gönguferð um
Suðurtand
Þórsmörk — Eldgjá — Land-
mannalaugar — Veiöivötn. Verö
12.000 kr.
Brottfarir alla mánudaga frá 2.
júlí. Fullt fæöi, tjaid, dýna og
leiösögn er innifaliö í veröl allra
teröa. Leitiö nánari upplýsinga á
skrifstofunni.
ULFAR JACOBSEN
Ferðaskrifstofa
Austurstræti 9.
Símar 13499 og 13491.
12 daga gönguferðir um
Suðurland 2.—3. júlí og
16.—27. júlí
Mrsmðrk — Eldgjá — Land-
mannalaugar — Vsfðivðtn. Gist
veröur i tjöidum 2—4 nætur á
hverjum staö og þaöan lagt upp
í daglangar göngur um svæöiö.
Verö 12.000 kr.
Fíladelfía
Almenn bænasamkoma kl.
20.30. Bæn, lofgjörö og pakk-
argjörö.
ftFerðaklúbbur
aranda
Skagafjöröur — kynningar- og
skemmtiferö 29. júni (2 dagar).
Brottför kl. 20 frá Vesturgðtu 4.
Gisting á Húnavöllum og á Hól-
um. Fariö í Drangey. Fararstjóri
Haraldur Bessason, prófessor.
Færeyjar um Ólafsvöku. Brott-
farir 24. júlí og 28. júlí.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR1179S og 19533.
Helgarferðir
15.—17. júní:
1. Þjórsárdalur — BurteH Gist á
tjaldstæöinu v/Kriöufell. Göngu-
feröir um nágrennlö.
2. Þórsmörk. Glst í Skag-
fjörösskála. Gönguferöir um
Mörkína. Farmióasala og upp-
lýsingar á skrifstofu Ff, Öldugötu
3.
Dagsferðir um helgina
16.—17. júní:
1. 16. júní kl. 13.00: A slóöum
Kjalnesingasögu. Fararstjórl:
Jón Böóvarsson. Verö kr. 350.
2. 17. júni (sunnudag).
a) kl. 10.30. Botnssúlur (1086
m). Verö kr. 350.
b) kl. 1300. Eyóibýlin i
Þingvallasveit. Verð kr. 350.
Fimmtudag 21. júni kl. 20.00.
Miönæturganga á Esju (sumar-
sólstööur) Verö kr. 200.
Feröafélag Islands
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Sumarleyfisferöir —
Ferðafélags íslands:
23.-28. júnf (< dagar):
Skaftafefl, gist á tjaldstæöinu og
gengíó um þjóógaröinn. ÞægHeg
gistiaðstaöa og fjöibreytt um-
hverfi.
29. júnf — 3. júlf (5 dagar):
Húnavellir — Lltla Vatnsskarö
— Skagatjöröur. Gist í húsum.
Gengiö um Lltla Vatnsskarö til
Skagafjaróar. Farlö aö Hólum,
Hegranesi og noröur fyrir skaga.
5 —14. júlf (10 dagar):
1. Hornvík — Hornstrandir.
Tjaldaö i Hornvík. Gönguferöir
frá tjaldstaó.
2. Aöalvík — Hornvik, Göngu-
ferö meö viöleguútbúnaö.
3. Aöalvík. Tjaldað aö Látrum,
gönguferöir (dagsferö eöa tvelr
dagar) Leitiö upplýslnga og
tryggiö ykkur farmiða tímanlega.
Feröafélag fslands
Elím, Grettisgötu 62,
Reykjavík
A morgun, sunnudag, veröur al-
menn samkoma kl. 11.00. Verlö
velkomin.
Krossinn
Samkoma i kvöld kl. 20.30 aö
Alfhólsvegi 32, Kópavogi. Allir
velkomnlr.