Morgunblaðið - 16.06.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 1984
37
Árne8Íngakórinn ásamt stjórnanda sínum, Guðmundi Ómari Óskarssyni, á Árnesingamóti í vor, þar sem minnst var
50 ára afmxlis félagsins. I.jósmynd: Árnesingafél. i Rvik.
Árnesingaf élagið
í Reykjavík 50 ára
LISTAHÁTÍÐ í reykjavík
#117 JÚNÍ1984
Árnesingafélagið í Reykjavik varð 50 ára hinn 27. maí síðastliðinn og eru
félagsmenn nú um 400. Auk þess að stuðla að kynningu og samstarfi milli
Árnesinga sem búsettir eru í höfuðborginni, hefur félagið beitt sér fyrir
varðveislu sögulegra minja úr Árnesþingi og annarra menningarverðmaeta og
stuðlað að útgáfu bókmenntaverka, sem tengjast Árnessýslu.
Félagið var stofnað 1934 og hef-
ur árlega gengist fyrir Arnes-
ingamótum í Reykjavík, þar sem
þjóðkunnir Árnesingar hafa lagt
því lið, auk þess sem Jónsmessu-
mót hafa verið haldin heima í hér-
aði.
Mikið skógræktarstarf hefur
verið unnið á vegum Árnesingafé-
lagsins í Reykjavik um áratuga-
skeið. Félagsmenn hafa plantað
tugum þúsunda trjáplantna, eink-
um að Áshildarmýri.
Félagið fékk fyrir all mörgum
árum til umráða hinn forna vor-
þingsstað Árnesinga í landi
Minna-Hofs í Gnúpverjahreppi og
hefur unnið að varðveislu þeirra
minja sem þar eru.
Árnesingakórinn, sem haldið
hefur uppi þróttmiklu söngstarfi
um árabil, er ekki formlega tengd-
ur Árnesingafélaginu i Reykjavík,
en var í upphafi myndaður innan
félagsins. Söngstjóri kórsins nú er
Guðmundur ömar óskarsson og
formaður Þorgerður Guðfinns-
dóttir.
Hinn 13. april síðastliðinn var
efnt til sérstaks Árnesingamóts,
sem helgað var hálfrar aldar af-
mæli félagsins. Meðal gesta á mót-
inu voru fyrrverandi formenn fé-
lagsins, sem eru á lifi. Jónsmessu-
mót Árnesingafélagsins f Reykja-
vík verður að þessu sinni haldið að
Flúðum í Hrunamannahreppi
hinn 23. júni næstkomandi. Heið-
ursgestir mótsins verða Yngvar
Þórðarson, Reykjum á Skeiðum,
og kona hans, Sveinfríður
Sveinsdóttir, og Sigurður Ingi Sig-
Guðmundur Jónsson, lórmaður hestamannafélagsins á Höfn, Horna-
firði, stendur hér við félagsmiðstöð þá sem hestamenn á Höfn eru að
reisa.
Homafjörður:
Hestamenn undir-
búa fjórðungsmót
HESTTAMENN á Hornafirði undirbúa nú af kappi fjórðungsmót sitt,
sem haldið verður á Fornustekkavelli við Hornafjörð dagana 28. júní til
I. júlí. Unnið er nú að framkvæmdum á mótsvæði og ganga þær vel.
Félagar í hestamannafélaginu Hornfirðingi eru nú að reisa félagsmið-
stöð sína, sem er veglegt hús, um 300 m2 með danssal.
Guðmundur Jónsson, formað- stæði góð svo og öll þjónusta.
ur hestamannafélagsins, sagðist Þorsteinn Bjarnason, hrossa-
gera ráð fyrir að gestir á mótinu ræktarráðunautur, hefur nýlega
verði á bilinu 1.000—1.500. Að lokið forskoðun á Austurlandi
sögn Guðmundar er aðstaða á vegna fjórðungsmótsins á
mótsvæðinu mjög góð, tjald- Fornustekkavelli í Hornafirði.
urðsson, fyrrverandi oddviti á
Selfossi, og kona hans, Arnfríður
Jónsdóttir.
Núverandi formaður félagsins
er Arinbjörn Kolbeinsson læknir
og aðrir í stjórn eru Bjarni K.
Bjarnason, borgardómari, frú
Esther Steindórsdóttir, Sigmund-
ur Stefánsson framkvæmdastjóri
og frú Unnur Stefánsdóttir.
MIÐASALA:
Gimli v/Lækjargötu: Opið frá kl. 14.00—19.30.
Sími 621155. Vörumarkaöurinn Seltjarnarnesi og
Mikligaröur v/Sund:
Fimmtud. kl. 14:00—10:00
Föstud. kl. 14:00—21:00
Laugard. kl. 10:00—16:00
STÓRVIÐBURÐUR í HEIMI JASSINS
THE MODERN JAZZ QUARTETT
heldur tónleika í Laugardalshöll í kvöld 16. júní kl. 21.00. Einstætt tækifæri til að heyra jass
eins og hann gerist bestur.
Kvartettinn skipa: John Lewis píanó,
Milt Jackson, vibrafón,
Percy Heath, bassa,
Conney Kay, trommur.
MetsöluUad á hverjum degi!