Morgunblaðið - 16.06.1984, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ1984
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
/w TIL FÖSTUDAGS
nf r\M
Nýju fötin
keisarans
Yngvi Guðnason skrifar:
Heil og sæl, þið sem eruð velvak-
andi og ekki síður þið sem sofið.
Alltaf er tæknin okkar mannanna
að aukast. I rafeindasmásjánni get-
um við skoðað ótrúlega smáa hluti,
með infra-rauðum geislum getum
við tekið myndir í myrkri og með
sérstökum útbúnaði getum við jafn-
vel skoðað umhverfi okkar í nátt-
myrkri.
Eitt af nýjustu afrekunum er það,
að við hér uppi á íslandi höfum sett
upp sýningu á nýju fötunum keisar-
ans og birtist jafnvel mynd af þeim á
baksíðu Morgunblaðsins 8. júní síð-
astliðinn.
En eins og í ævintýrinu fræga létu
börnin ekki blekkjast. Þau sáu strax
að þetta voru bara hrúgur af stein-
völum, sem tilvalið var að leika sér
að.
Mér er bara spurn, hver er að
draga hvern á asnaeyrunum?
Hvenær eru sund-
staðirnir opnir?
Klsa l>órey Eysteinsdóttir, tólf ára,
skrifar:
Kæri Velvakandi.
Mig rak í rogastans er ég ætlaði
í Laugardalslaugina á annan f
hvítasunnu. Þegar ég kom þangað
um tólfleytið, var mér sagt að það
hefði verið lokað kl. 11.30. Eg taldi
víst að það væri annað hvort opið
eins og á sunnudögum eða mánu-
dögum þ.e. til kl. 17.30 eða léngur.
Það kom svo sem til greina að það
væri lokað og þess vegna hringdi
ég áður en ég fór, en það var alltaf
á tali svo að það hlaut að vera opið.
En hvers vegna þá til hálf tólf?
Hvar kemur það fram?
Ég hef í hendi mér- bækling um
sumarstarf fyrir börn og unglinga
1984 og þar kemur ekki fram neinn
sérstakur opnunartími á annan í
hvitasunnu. Sama er að segja um
dagbókina á bls. 6 í Morgunblað-
inu.
Ég vil geta þess að margt fólk
var þarna á leið í sund en þurfti
frá að hverfa.
í framhaldi af þessu vil ég benda
á að f Dagbókinni er rangur
opnunartími Sundhallarinar og
Sundlaugar Breiðholts.
Nú er í gildi sumartími en f
Dagbókinni virðist enn ríkja vetur.
i
Ætíð hafa Bandaríkjamenn
þurft að koma til hjálpar
Húsmóðir skrifar:
Afi minn leiddi mig smástelpu
niður á bryggju þegar búið var að
kasta upp úr bátnum, til að sýna
mér að engir tveir þorskar væru
eins, þess vegna hlýtur maðurinn
að vera misjafn, og hafa sínar per-
sónulegu skoðanir.
Tvö stjórnmálakerfi hafa komið
við sögu á þessari öld og bæði eins
hvað það snertir, að maðurinn á að
vera réttlaus, eins og skynlaus
skepna, eftir kerfisritúalinu. Þegar
Hitler ætlaði að leggja undir sig
heiminn, þá hrukku lýðræðisþjóð-
irnar í Evrópu við, og báðu Banda-
ríkjamenn að hjálpa sér. Þeir
brugðu skjótt við og sigruðu Hitler,
en það kostaði miklar fórnir. Þá
„Míg hefur átt i
í koti karl“
6208—9318 skrifar:
Kæri Velvakandi.
Villt þú gera mér greiða? Ég
hef lengi kunnað gátu eftir séra
Svein Vlking sem hljóðar svo:
Mig hefur ítt f koti karl.
Krepptri þritt f hendi falin.
Ég er hitt og hnarreist fjall.
Hiðung alittumönnum talin.
Vilt þú birta þessa gátu f
dálkum þfnum og vona ég að
einhver komi með ráðninguna
sem ég ekki veit sjálf.
stolið og eigandi þess getur því
leitað til okkar.
Það væri synd ef hjólið kæmist
ekki í hendur eigenda síns og því
vil ég koma þessu á framfæri. Það
má geta þess að þetta er grátt
karlmannsreiðhjól og er vonandi
að eigandi þess reki augun í þessar
línur og vitji þess sem fyrst.
sendu þeir Marshall-aðstoðina og
Evrópa reis úr rústunum eins og
fuglinn Fönix.
I sigurvímunni gleymdu þjóðirn-
ar hinu kerfinu, sem boðaði að
kommúnisminn skyldi verða alls-
ráðandi, og hvernig er ástandið
núna? Strax eftir stríðið reyndu
Rússar að halda áfram að leggja
undir sig löndin og höfðu stuðning
kommúnistanna sem alls staðar
fundust, og þeir sviku föðurland
sitt í hendur Stalíns, en þegar kom
að Vestur-Berlín átti að svelta íbú-
ana og koma þeim þannig undir
kúgun kommúnismans. Þá sáu
Vesturveldin loksins sína sæng upp
reidda, og þá máttu Bandaríkja-
menn koma aftur, og vegna þess að
Leiðakerfi SVK
Tvær vinkonur úr Kópavoginum
hringdu til Velvakanda og vildu
koma eftirfarandi á framfæri:
Við erum búsettar í Kópavogi og
langar okkur þvf að minnast lítil-
lega á leiðakerfi SVK.
Við viljum beina þeirri spurn-
ingu til þeirra sem sáu um að
breyta leiðakerfi SVK hvort kerfið
þurfi að vera þannig úr garði gert
að allir vagnar gangi á hálftima
fresti. Tökum til dæmis farþega
sem býr í vesturbæ Kópavogs.
Hann þarf fyrst að fara stóran
hring í austurbænum áður - en
hann kemst leiðar sinnar til
Reykjavíkur. í leiðabókinni stend-
ur að farþegar úr vesturbænum,
sem ætla til Reykjavíkur, skuli
fara úr í Hamraborg, en ef það er
gert þarf að bíða í hálftíma þar til
næsti vagn kemur og það er
reyndar sá sami og setti mann út
hálfri stundu áður.
Við erum mjög óánægðar með
þetta kerfi og erum við vissar um
að svo er um fleiri Kópavogsbúa.
þeir áttu flugvélar sem borið gátu
kjarnorkuvopn, þá varð Stalín að
láta í minni pokann. Berlínarmúr-
inn varð að byggja svo að ekki yrði
landauðn í Austur-Þýskalandi. Enn
er það svo að til Bandaríkjanna og
annarra lýðræðisríkja vilja allir
íbúar austurblokkarinnar flýja, en
til Rússlands flýja bara landráða-
menn.
Bandaríkjamenn björguðu
mannréttindunum í Evrópu frá
nasismanum, og enn heimta þeir að
mannréttindum sé komið á, þar
sem þeir veita aðstoð.
Nú ærast kommúnistarnir hér og
víðar, af því að það hillir undir frið
og lýðræði í E1 Salvador, og finnst
það óbærilegt að skæruliðarnir
skuli ekki geta haldið áfram morð-
um, ránum, eyðileggingu mann-
virkja og eitursölu, sem er aðal-
tekjulind þeirra, og þá geta þeir
líka borgað Rússum sem heimta
svo algjöra undirgefni fólksins,
eins og í Póllandi. Stjórnin í Búlg-
aríu afgreiðir 50% alls heróíns í
Vestur-Evrópu. Það segir frá þessu
í nýlegu Úrvali. Er hægt að vera í
menningartengslum við svona
stjórnvöld? Pakistanar dæma eit-
ursalana aftur á móti til lífláts.
Hvenær ætla kommúnistar að gera
þjóðhetjur úr hryðjuverka-
mðnnum, og kenna börnunum slíka
hetjudýrkun?
Fundið
lyklaveski
Jón Eiríksson skrifar.
Heiðraði Velvakandi.
Vinsamlegast, mundir þú viija
taka eftirfarandi og birta í hinum
víðlesnu pistlum:
Lyklavesti fannst laugardaginn 2.
þ.m. við Gullfoss. Upplýsingar í sima
12772.
Hugheilar þakkirfærum við öllum sem heiðruðu okkur
og sýndu okkur vinsemd með heimsóknum, gjöfum og
heiUaskeytum á sextugs afmælinu 5. júní sl.
Lifið öll heil og sœl.
Elsa og Magnús Kjartansson,
Hjallanesi.
Nýir og notaðir
bílar
í nýjum og glæsilegum sýningarsal.
Golf GTI árg. 1982, svartur.
Sapporo 2000 GLS árg. 1981, rauösans.
Mazda 626 árg. 1981, blásans.
Golf GL árg. 1982, blásans.
Colt 1200 GL árg. 1981, blásans.
Pajero bensín árg. 1983, rauöur.
Buick Riviera árg. 1979, svartur.
Jetta CL árg. 1982, hvítur.
Audi 80 árg. 1979, grænsans.
Audi 100 árg. 1977, blár.
Opið ffrá kl. 13—17 í dag
☆ i?itN?TT£&líi?ií ☆
Staðurinnjmm
3
3
3
i
i
v
4
i
i
#
i
Smiðjuyegi
FASTIR LIÐIR
-tt- ís- -tt- -tt- *-
Opiö frá kl. 22.00—03.00
Miðaverö kr. 250
Snyrtilegur klæönaöur
Aldurstakmark ’67 (nafnskírteini)
Allir keyröir heim
Rúta:
1. Breiöh., Árb., Mosfellssv.
2. Kópav., Garöab., Hafnarfj.
3. Um Reykjavík.
.ix-&-&
i
v
i
#
i
☆
i
☆
i
☆
i
17. júní-gleðin
hefst í kvöld hjá
okkur.
■^^7' iziiN?TTBetff ixix